Morgunblaðið - 02.07.1993, Page 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1993
Hversvegna
flokkum við ekki ruslið
okkar heima og komum því í endurvinnslu?
UNDANFARIN ár hefur það færst í vöxt að íbúar hér flokki rusl
sitt, safni a.mk. gosdósum og fari með dagblöð í endurvinnslu. En
við erum aftarlega á merinni í samanburði við íbúa margra annarra
landa. Hversvegna? Við státum okkur gjarnan af því að eiga hrein-
asta land í heimi en gerum okkur ekki grein fyrir því að það verð-
ur það ekki af sjálfu sér um ókomna framtíð. Við hendum hugsunar-
laust í ruslapokann, bréfbleyjum, niðursuðudósum, umslögum og
auglýsingapésum og allskyns umbúðum og það er algengt að við
hendum stórum plastpokum af rusli í tunnuna á hveijum degi.
GJald fyrir sorphirðu
Fáir leggja vinnu í að þjappa
msli saman og á heildina er fólk
of kæmlaust þegar úrgangur frá
heimilum er annarsvegar. í tillögum
sem heilbrigðisnefnd Reykjavíkur
hefur sent frá sér um markmið og
leiðir í úrgangs- og mengunarmál-
um á höfuðborgarsvæðinu er lagt
til að tekið verði upp sérstakt sorp-
hirðugjald fyrir heimili. Gjaldið
verður í hlutfalli við magn sorps
sem hirt er hveiju sinni. Á móti
kemur að verði felld niður tunnu-
og sorphirðugjöld sem nú eru inn-
heimt með fasteignagjöldum.
Einn liður í því hve áhugasamir
íbúar í Minnesota eru er sá að þeir
þurfa að borga fyrir hvem poka sem
þeir henda af úrgangi sem ekki er
endurvinnanlegur. Rusl sem hægt
er að flokka losa þeir sig við endur-
gjaldslaust.
Vantar þjónustu fyrir
almenning
Af hveiju stafar þetta áhugaleysi
okkar? Það vantar tengiliði, aðila
sem sækja flokkað rusl heim að
dyrum segja sumir. Aðrir benda á
að það vanti almenna fræðslu um
umhverfísmál og að koma fólki í
skilning um hve mikilvægt það er
að hver leggi sitt af mörkum.
Margir bera því við að hafa ekki
geymslupláss og hafa jafnvel gefíst
upp á dósasöfnun sökum plássleys-
is. Þetta á vonandi eftir að breytast
og þróunin í nýjum húsum og íbúð-
um er sú að gert er ráð fyrir sér-
stökum flokkunarstað annaðhvort í
geymslu eða í sérstökum skáp í eld-
húsinu.
70.000 tonn fara í urðun
Að sögn Magnúsar Stephensens
tæknifræðings hjá Sorpu bámst
fyrirtækinu um það bil 86.000 tonn
af úrgangi á síðasta ári og þar af
komu um 15.000 tonn á gámastöðv-
amar frá almenningi. Tveir þriðju
af þessum 15.000 tonnum fara í
náttúmlegan farveg eins og endur-
vinnslu og jarðvegsgerð. Töluvert
af sorpi fer til annarra en Sorpu
og þegar allt er reiknað er talið að
úrgangur á mann á höfuðborgar-
sævðinu sé um 750 kg. Talið er að
til Sorpu berist um 575 kg á mann.
Inn í þessu er allur úrgangur, einn-
ig frá fyrirtækjum. Að sögn Magn-
úsar eru þessar tölur ekkert sér-
staklega háar miðað við önnur vest-
ræn þjóðfélög.
Það sem fer í endurvinnslu em
í allt tæplega 20.000 tonn og þar
erum við á eftir mörgum öðmm
löndum því afgangurinn semsagt
um 70.000 tonn fer í urðun.
Gámar fyrlr flokkað rusl
í hverfln
í tillögunum sem Heilbrigðis-
nefnd Reykjavíkur sendi frá sér á
síðasta ári um markmið og leiðir í
úrgangs- og mengunarmálum á
höfuðborgarsvæðinu er lagt til að
Sorpa komi upp gámum i tilrauna-
skyni til söfnunar á endurvinnan-
legum úrgangi. Komið er með þá
uppástungu að gámar verði á stöð-
um þar sem flestir komist auðveld-
lega að þeim og tilraun þessi taki
m.a til dagblaða, fatnaðar og
drykkjaríláta. Mælist nefndin til að
fyrirtækið standi fyrir upplýs-
ingamiðlun og hvatningu til al-
mennings og fyrirtækja að flokka
sem mest af endurvinnanlegum úr-
gangi. Þetta á líka við um hættuleg-
an efnaúrgang.
Fólk getur flokkað
hellmiklð núna
Hvaða úrgang geta úöiskyldur
flokkað núna ef þær eru áhugasam-
ar og sætta sig við að flokka og
koma úrgangnum á áfangastað
sjálfar?
Að sögn Magnúsar Stephensens
er ýmislegt sem fólk getur komið
með í gámana ef það vill. Gler eins
og krukkur utan af rauðkáli, sultu
o.s.frv. sem ekki er með skilagjaldi
fer alla jafna í urðun og er ekki
flokkað. Vilji fólk flokka það snyrti-
lega niður má setja það í gijótgám
og það er síðan notað sem fylliefni
í grjót- eða malarurðun.
Niðursuðudósir og annað málm-
kennt eins og Iokin af glerkrukkum
má flokka sér og setja síðan í svo-
kallaða málmgáma.
Engin sérstök flokkun er á plast-
umbúðum og því fer allt plast í
venjulegt rusl og er urðað.
Hvað snertir matarafganga eins
og hýði af ávöxtum, eggjaskum og
kaffikorg, getur fólk sjálft farið
með út í garð og grafið niður eða
sett í kassa. Með tímanum verður
þar til góð og næringarrík mold
fyrir gróðurinn.
Að sögn Magnúsar þarf að moka
vel yfir matarafganga eða setja í
veglegan lokaðan kassa svo að
meindýr komist ekki í afgangana.
„Fólk þarf að afla sér ítarlegra
upplýsinga áður en það fer í að
gera þetta.“
Morgunblaðið/Júlfus
Hægt er að koma með garðaúr-
gang til Sorpu. „Timbur notum við
í tréflísar sem fara í kolefnisinn-
blöndun í kísilstál á Grundartanga.
AIls eru það um 8.000 tonn af tré-
flísum sem við látum frá okkur á
ári og um 2.000 tonn sem ekki
hefur verið hægt að nota hingað
til sökum þess hversu mikið smælki
það er. Ætlunin mun þó vera að
nota það í jarðvegsgerð.
Þá sagði Magnús að þeir tækju
á móti dagblöðum við gámastöðvar
svo og tímaritum og bylgjupappír
og nú þegar skilar almenningur um
50 tonnum á mánuði til þeirra af
dagblöðum. Auk þess koma blöð frá
fyrirtækjum. Dagblöðin fara í út-
flutning til Svíþjóðar en þar sem
verð er fallandi stefnir sá rekstur
nú í tap. Fyrirtæki sem framleiðr
eggjabakka nýtir dagblöð í fram-
leiðslu sína og töluvert magn fer
þangað og ekki í gegnum Sorpu.
Sorpa hefur tekið upp á því að
tæta pappírinn og selja hestamönn-
um. Þeir strá pappírstætingnum í
básana til að þurrka þá upp og
reynslan af því er ágæt, rykið er
minna en fylgir hefilspónum.
Rekló með tapl
Magnús segir að flutningskostn-
aður til útlanda hindri þá í endur-
vinnslunni, dýrt sé að senda úrgang
úr landi til endurvinnslu og rekstur-
inn sé jafnvel rekinn með tapi. Enn
sem komið er hafa forráðamenn hjá
Sorpu ekki fundið leiðir sem borga
sig til að koma upp aðstöðu til að
endurvinna hér á landi að neinu
marki. Fyrirtækið Sorpa er einung-
is 2ja ára og það var ákveðið að
fara hægt af stað til að ná fót-
festu. Eftir að hafa rætt við ýmsa
aðila sem tengjast sorphirðu hér á
landi kemur í ljós að þessi mál eru
mikið til umræðu núna og ef al-
menningur myndar þrýsting og sýn-
ir málefninu áhuga mun það ýta á
frekari aðgerðir í endurvinnslumál-
um. Það þarf átak í sorphirðu á
íslandi og því fljótar sem við tökum
höndum saman því betra. ■
Guðbjörg R. Guðmundsdóttir
]
Sæðisfrumur
í útrýmingarhættu
FYRIR 50 árum var talið eðlilegt
að 60 milljón sæðisfrumur væru
í hverjum millílítra sæðisvökva.
Nú teljast þeir góðir sem hafa
20 milljón frumur í hverjum
millílítra. Ófrjósemi er orðin
nokkuð alvarlegt vandamál á
Vesturlöndum og á Islandi bíða
t.d. hátt á 4. hundrað hjóna eftir
glasafijóvgun, eins og nýlega
kom í Daglegu lífi.
Ýmsar kenningar eru á lofti um
ástæðu fyrir tíðari ófijósemi karla.
Ein er sú að of mikið af verksmiðju-
framleiddu kvenkynhormónunum
estrógeni, sé í umhverfinu. Nýlega
birtist grein í The Time þar sem
skýrt var frá þessari kenningu.
Gervl-hormón
Estrógen-hormón myndast í
eggjastokkum kvenna fyrir tilstuðl-
an náttúrunnar og er hlutverk
þeirra að ákveða og viðhalda þeim
kyneinkennum sem fram koma á
kynþroskaskeiði. I getnaðarvarna-
Sæðisfrumur séðar gegnum smá-
sjá. Sprækum sæðisfrumum fer
fækkandi og hefur þróunin orðið
alvarleg á síðustu 50 árum.
pillunni, eða P-piIlunni eins og hún
er kölluð dags daglega, eru hins
vegar gervi-estrógen og beinast
augu manna sem aðhyllast áður-
nefndar hugmyndir fyrst og fremst
að gervi-hormónunum.
Claire Rayner ritstjóri bókarinn-
ar Atlas of the body & mind segir
að þó menn séu fijóir geti verið
mikið magn af vansköpuðum sæðis-
frumum innan um þær heilbrigðu.
Vanskapnaðurinn felst einkum í að
frumur eru tvíhöfða eða með tvo
hala.
„Við syndum í estrógen-sjó, sem
gæti orðið til að karlar verði æ lík-
ari konum,“ segir greinarhöfundur
The Times, Jeremy Laurance. Hann
segir að í kúamjólk hafi mælst mik-
ið magn af estrógeni og bendir á
að á síðustu 50 árum hafí mjólkur-
drykkja aukist til muna. „Einnig
er estrógen í mörgum sveppum og
jurtum, sérstaklega í soja,“ segir
hann og telur jafnvel að hormónin
séu í drykkjarvatni.
Benedikt Ó. Sveinsson kvensjúk-
dóma-og fæðingalæknir, sem fylg-
ist mjög vel með umræðu og nýj-
Skyldu kvenkynhormón leynast í dropunum?
4 mánaða gamalt fóstur. Um þessar mundir
er unnið að rannsóknum á liugsanlegum
áhrifum gervi-estrógena á fóstur.,
ungum á þessu sviði,
sagði við Daglegt líf að
hann kannaðist við
þessar hugmyndir og
sér þættu þær athyglis-
verðar. Umræða um
málið hefði komið upp
á nýafstöðnu þingi fæð-
ingalækna í Berlín.
Leka
verksmiðjurnar?
„Það kemur mér á
óvart hversu margir
karlar eru ófijóir af
ástæðum sem ekki er
unnt að skýra. Þar á
ég við fullfríska menn,
sem ekki hafa fengið
sýkingar eða sjúkdóma
sem skýra ófijósemi
þeirra. Það er eðlilegt
að menn velti fyrir sér
hvers vegna sæði hafí
hrakað svona mikið.
Það er áhyggjuefni ef
gervi-estrógen eru farin
að menga lífkeðjuna og
á þinginu í Berlín var
sjónum m.a beint að
verksmiðjum sem fram-
leiða þessi efni og þeirri
hugmynd varpað fram
hvort efnaúrgangur
hefði einfaldlega verið
losaður í sjóinn gegnum
tíðina."
Mlnnl eistu
Líkaminn sér sjálfúr
um að bijóta niður nátt-