Morgunblaðið - 02.07.1993, Page 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1993
FORD MONDEO
- af Imikill og þýdgengur
Ford Mondeo sem tekur við
af Ford Sierra var frum-
sýndur hérlendis um síð-
ustu helgi og heimsóttu
yfir tvö þúsund manns
Ford-umboðið, Globus og
kynntu sér þennan áhuga-
verða bíl. Mondeo var fyrst
kynntur á bílasýningunni í
(Jenf í mars og lögðu
stjórnendur Ford mikla
áherslu á að kynna hann
sem nýjan bíl frá grunni,
sem hann vissulega er, og
telja sig geta með honum
sótt af hörku inn á markað
meðalstórra bíla. Mondeo
er fyrsti Ford bUlinn sem
kynntur er eins í öllum
löndum og segja talsmenn
Ford að bíllinn sameini það
besta frá Evrópu og Amer-
íku og þeir ætla honum
m.a. stórt hlutverk á Jap-
ansmarkaði. Stærstu
breytingarnar frá Sierra
eru þær að nú er hann
framdrifinn og síðan er
hann búinn nýjum og
öflugum vélum en segja
má að útlitsbreytingarnar
séu með minnsta móti. Hér-
lendis verða tvær megin-
gerðir í boði, GLX og Ghia
og kosta þær á bilinu 1.739
þús. kr. og uppí 1.947 þús-
und krónur. Hér á eftir
verður fjallað um GLX
gerðina.
q* Ford Mondeo ber áfram
talsverðan svip af Ford Si-
erra enda má segja að Si-
erra hafí verið snemma á
ferðinni með nokkuð ávalar
línur og bogadregnar en lið-
inn er um áratugur frá því
Sierra kom á markað.
Mondeo hefur einnig boga-
dregnar og mjúkar línur,
allar luktir eru sporösku-
| dregnar, um eiginlega
vatnskassahlíf er ekki að
ræða frekar en í Sierra en stuð-
arar eru nokkuð voldugir,
kannski jafnvel um of. En heild-
arlínan er góð og svipurinn
áferðarfallegur og taka má strax
fram að auðvelt og gott er að
þvo bílinn, svona sléttan og felld-
an.
Rúmgóður að innan
Mælaborðslínan er einnig
bogadregin og allt vel afmarkað
fyrir ökumann. Hola eða dæld
er á hillunni framan við framsæt-
isfarþegann og gefur það nokkuð
óvenjulegan svip. Ágætt er að
setjast inn og stíga út, sætin til
fyrirmyndar og góðar stillingar
á ökumannssæti, þar með talin
hæðarstilling og er hún rafstillt.
Bíllinn er allur rúmgóður að inn-
an og virðist ekki þrengt að far-
þegum í aftursæti þótt framsæti
séu höfð fremur aftarlega. Á
dýrari útgáfunni, Ghia, eru allar
stillingar ökumannssætis rafst-
illtar. Gott er einnig að taka á
handföngum og umgangast
Morgunblaðið/Einar Falur
Ford Mondeo hefur tekið við af Sierra. Með haustinu verður einnig til langbakur.
Útlitið er ekki gjörbreytt frá Sierra og má segja
að megindrættir útlinanna séu þeir sömu.
Of lin
bensíngjöf
Hóvær
þurrku-
mótor
hurðirnar. Ekki eru hefðbundnir
tittir fyrir læsingar heldur má
læsa með því að ýta hurðahand-
fanginu inn en annars er bíllinn
búinn fjarðstýrðri samlæsingu
með þjófavörn. Farangursrými
tekur 480 lítra, er jiokkuð langt
en fremur grunnt. Hægt er að
fella niður aftursætisbak
(40:60). Ökumaður á ekki í
vandræðum með að láta fara vel
um sig undir stýri í Mondeo.
Hann getur aðlagað sæti og stýri
að vild og er fljótur að átta sig
á rofum og mælum. Gott grip
er á stýrinu og gírstöngin liggur
mjög þægilega við og sömuleiðis
rofar við stýri fyrir stefnuljós og
þurrkur, þeir eru mjög stuttir
og þægilegir viðureignar. Heml-
ar eru góðir og næmir en galli
er hversu bensíngjöfín er lin og
vantar þar meiri stuðning. Hætta
er á að menn þreytist við ákveðn-
ar aðstæður. Þá er útsýni gott
en hliðarspeglar mættu gefa ör-
lítið stærra sjónarhorn. Annars
er nokkuð auðvelt að meðhöndla
Mondeo við þröngar aðstæður
og fljótlegt að átta sig á stærð-
inni.
Gott viðbragð
Mondeo er búinn tveggja lítra,
fjögurra strokka, 16 ventla og
136 hestafla vél með beinni
innsprautun og verður ekki önn-
ur vélarstærð fáanleg hérlendis.
Þetta er feikn öflug og skemmti-
leg vél, gefur gott viðbragð og
á ekki í neinum vandræðum með
að halda 1.233 kg þungum bíln-
um á góðri ferð þótt á brattann
sé að sækja. Hún er hljóðlát og
fímm gíra handskipting vinnur
vel með þessari vél þótt hún
mætti kannski vera liprari.
Annar staðalbúnaður í
Mondeo GLX er helstur vökva-
og veltistýri, samlæsingar, þjófa-
vörn, upphituð framrúða sem
hlýtur að teljast mikill kostur og
sjást vírarnir ekki nema vel sé
að gáð, útvarp og segulband.
loftpúði eða líknarbelgur í stýri
og fleira. í Ghia gerðinni er held-
ur meiri búnaður, m.a. heml-
alæsivörn, spólvörn og sóllúga.
Eins og áður er greint er aflið
kappnóg, viðbragðið er gott og
vinnslan einnig á mjög víðu
snúningssviði. Bíllinn er þýður á
MacPherson- og fjölliða gorma-
fjöðruninni og flýtur hann vel
yfír holur og ójafnan veg og er
rásfastur. Vökvastýrið er ná-
Kroftur
Mýkt
Rými
Mælaborð er vel úr garði gerð
og innri svipur er með fallegra
móti.
FORD MONDEO GLX
í HNOTSKURN
Vél: 2,0 I, fjórir strokkar, 16
ventlar, bein innsprautun,
136 hestöfl.
Vökva- og veltistýri.
Fimm gíra handskipting.
Upphitaðar fram- og afturrúð-
ur.
Þjófavörn.
Samlæsingar með fjarstýr-
ingu.
Rafstillanlegir hliðarspeglar.
Rafdrifnar rúðuvindur að
framan.
Öryggispúði í stýri.
Rafdrifin hæðarstilling á öku-
mannssæti.
Bensín- og skottlok opnanleg
innan frá.
Útvarp og segulband.
Lengd: 4,48 m, breidd: 1,92 m
(með speglum), hæð: 1,37 m.
Hjólhof: 2,70 m.
Beygjuhringur: 10,91 m.
Þyngd: 1.233 kg.
Bensíntankur tekur 61,5 lítra.
Hámarkshraði: 204 km/klst.
Viðbragó 0-100 km: 9,6 sek.
Bensíneyésla: 10,6 I í blönd-
uðum akstri, 5,9 á jöfnum 90
km hraða.
Staégreiösluveré: 1.739 þús.
kr.
Umboé: Globus hf., Reykjavík.
kvæmt og hæfílega létt. Malar-
vegur sem ekið var um var þó
nýlega heflaður á kafla og þar
gat örlað á skriki en það reynd-
ist smávægilegt. Það ætti því
ekkert að koma ökumanni á
óvart í hreyfíngum og hegðan
bílsins jafnvel á ósléttum og leið-
inlegum vegum. Á malbiki var
hegðanin óaðfínnanleg og greini-
lega hægt að leyfa sér hrað-
brautarhraða enda bíllinn nokk-
uð stór og þægilegur til lang-
ferða. Hvorki heyrist mikið vél-
ar- né vegahljóð en á litlum
hraða og í rigningu er hávaði frá
þurrkumótor næsta truflandi.
Verðlé
Verðið á Ford Mondeo er
kannski það sem stendur í mönn-
um en það er þó síst hærra en
verð á öðrum bílum í sama stærð-
arflokki og minna má á að tals-
vert mikið fæst fyrir þetta verð.
Ódýrasti bíllinn kostar 1.739
þúsund krónur og sé hann tekinn
fimm dyra (hlaðbaksútgáfa)
bætast við tæpar 30 þúsund
krónur. Skutbíllinn kemur til
með að kosta 1.873 þús. kr.
Ghia stallbakurinn kostar 1.877
og skutbíllinn verður á 1.947
þús. kr. Vilji menn sjálfskiptingu
kostar hún 96 þús. kr. og leður-
sæti kosta 150 þús. kr. í heildina
er Mondeo traustvekjandi bíll
með góða aksturseiginleika og
rúmgóður og þar að auki vel
búinn. ■
Jóhannes Tómasson
)