Morgunblaðið - 03.07.1993, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1993
13
Sigfús Bjarnason formaður Frama
Frelsið býður hættunni heim
SIGFUS Bjamason, formaður leigiibifreiðastjórafélagsins Frama,
segir félagið ekki vefengja dóm Mannréttindadómstóls Evrópu um
að óheimilt sé að þvinga menn til aðildar að félaginu, eigi þeir að
fá leyfi til að aka leigubíl. Breyting á lögum um leigubifreiðaakstur
sé óhjákvæmileg. Sigfús gagnrýnir hins vegar málflutning Sigurðar
Sigurjónssonar, sem kærði fyrrgreinda löggjöf til dómstólsins, í
Morgunblaðinu og segir Sigurð ekki bera mannréttindi fyrir brjósti,
heldur eigin hagsmuni.
mars sl. og án nokkurra þinglýstra
kvaða, en þá seldum við fjórum
aðilum hluta af eign okkar og höfð-
um til þess fullt frelsi. Sú ráðstöfun
mótaðist m.a. af þeirri sannfæringu
okkar að með þessum hætti yrði
framtíð hússins best tryggð. Ásak-
anir Guðmundar Magnússonar í
Pressunni 1. júlí sl. eru ekkert ann-
að en rógburður sem ekki verður
liðinn. Það sem fram til þessa var
talið lofsvert framtak einstaklinga
til varðveislu menningarminja, er
nú undir stjórn setts þjóðminjavarð-
ar gert tortryggilegt og reynt að
sverta mannorð okkar sem að því
höfum staðið.
Allir þeir sem bornir eru sökum
í máli þessu hafa þegar skrifað þjóð-
minjaráði eftirfarandi bréf og sent
afrit menntamálaráðherra:
Reykjavík, 1. júlí, 1993
ÞJÓÐMINJARÁÐ,
Ólafur Ásgeirsson formaður.
í dag, fimmtudaginn 1. júlí 1993,
birtust í vikublaðinu Pressunni al-
varlegar og ærumeiðandi ásakanir
Guðmundar Magnússonar, setts
þjóðminjavarðar, í garð okkar.
Hér með óskum við þess að þjóð-
minjaráð biðji alla hlutaðeigandi
aðila opinberlega afsökunar á þess-
um ummælum setts þjóðminjavarð-
ar og veiti honum ávítur fyrir róg-
burð.
Jafnframt förum við fram á að
þjóðminjaráð skýri frá því hvort
ásakanir hans séu fram settar í
umboði ráðsins. Ásakanir sem þess-
ar ætti enginn að setja fram nema
studdar séu ótvíræðum rökum og
það er óumdeilanlegur réttur hvers
manns sem borinn er sökum af
þessum toga að þær séu birtar hon-
um með öðrum hætti.__
Ólöf Eldjárn, Stefán Örn Stefáns-
son, Þórarinn Eldjárn, Sigrún
Eldjárn, Hjörleifur Stefánsson,
Ingólfur Eldjárn.
Höfundur er arkitekt.
Farið á Hafn-
ardaginn í
Sundahöfn
Hafnargönguhópurinn fer
frá Hafnarhúsinu að vestan-
verðu kl. 10 laugardaginn 3.
júlí í Sundahöfn til að taka þátt
í Hafnardeginum.
Áður en lagt verður af stað verða
skoðaðar elstu minjar um hafnar-
mannvirki í Reyjavík. Frá nýja mið-
bakkanum verður farið um borð í
farþegabát í Suðurbugt og siglt
með ströndinni inn í Sundahöfn og
farið um kynningarsvæðið. Kl. 13
verður kallað á fetju frá Viðey og
síðan lent við Bæjarvör_og gengið
austur á eyna og minjar um hafnar-
mannvirki frá byijun þessarar aldar
skoðaðar á Sundbakka.
Heimsókninni á Hafnardaginn í
Sundahöfn lýkur milli kl. 17 og 18
með því að siglt verður til baka í
Suðurbugt í gömlu höfninni og lagst
þar að bryggju. Öllum er velkomið
að taka þátt í ferðinni.
TÆLENSKUR MATUR
TÆLENSKT UMHVERFI
- hótelið þitt
„Sigurður kærði ekki til Mann-
réttindadómstólsins af því að hann
hefði áhyggjur af mannréttindum,
heldur vegna þess að hann rekur
bílastöðina 3x67 og vill afnema
leyfisveitingar til leigubílaaksturs,"
sagði Sigfús í samtali við Morgun-
blaðið. Hann sagði 3x67 rekna í
ólöglegri samkeppni við leigubíla-
stöðvar, þar sem greiðabílar stöðv-
arinnar flyttu fólk gegn gjaldi, sem
væri óheimilt samkvæmt lögum og
reglugerð. „Það hefur gengið erfið-
lega að fá lögregluna til að skipta
sér af þessum rekstri," sagði Sigfús.
Slæm reynsla í Svíþjóð
Hann sagði að í Svíþjóð, þar sem
akstur leigubíla hefði verið gefinn
fijáls, væri nú auðveldara að fá
leigubíl, en jafnframt hefði það
færzt í vöxt að misindismenn ækju
leigubifreiðum. Dæmi væru um að
bílstjórar hefðu ráðizt á farþega
sína og jafnvel nauðgað konum og
einnig væri mikið um að svindlað
væri á fólki, sérstaklega útlending-
um. Ekki væri lengur gengið eftir
því að leigubílstjórar hefðu hreint
sakavottorð.
Farþeganna vegna
Sigfús sagði að það væri ekki ein-
göngu vegna eigin hagsmuna, sem
leigubílstjórar héldu því fram að fjöldi
leigubfla ætti að vera takmarkaður
með leyfum, heldur teldu þeir að frelsi
byði hættunni heim í þessum efnum.
„Ég er ekki að segja að það eigi að
vera einokun á þessu, en núverandi
kerfí er bezt, bæði farþeganna vegna
og okkar vegna. Þetta kerfi vill Sig-
urður Siguijónsson hins vegar btjóta
upp,“ sagði Sigfús.
POSTSENDUM SAMDÆGURS
TILBODSVI
UM HELGINA
ÓTRÚLEGT ÚRVAL A F TJÖLDUM
12A00. stgr. 35.000. stgr.
/
H
2 MANNAtjakf DD200
I^SVEFNPOKI Nitestar-5°
I DÝNA -AUtíeinumpakka
5 MANNA tjald Lapbnd
2 SVEFNPOKAR Nicestar -5°
32 Lkadibox Attt íeinum pakka
W VID BJÓDUM ÞAD BESTAi
60ÐIR SKOR
Á ALLA
FÆTUR!
r "
opið laugardag kl. 10-16
sunnudag kl. 13 -16
REGNFOT
frá kr. 2.950.-
•þar sem ferðalagið byrjar!
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
EYJASLOÐ 7 101 REYKJAVIK S. 91-621780