Morgunblaðið - 03.07.1993, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1993
41
VELVAKANDI
Er þetta mat samfélagsins
á aivarleika þessa brots?
í þessu opna bréfi kýs ég að koma
ekki fram undir nafni til að vernda
dóttur mína. Enda þarf ríkissak-
sóknari ekki nöfnin okkar, þar
sem hann þekkir málið vel.
í júlí 1992 komst ég að því að
dóttir mín, sem nú er 5 ára, hafði
verið misnotuð kynferðislega,
höfð við hana kynmök. Þá var hún
4 ára. Hún var ekki ein, fleiri
börn voru misnotuð af sama
manni sem raunar bjó í sama
húsi og þessi börn. í ljós kom að
eldri börn í húsinu höfðu vitað af
þessu og að þessi verknaður
mannsins hafði staðið yfir í nokk-
urn tíma.
Málið var kært til RLR af for-
eldrum nokkurra bama. Ég var í
þeim hópi. Bömin voru yfirheyrð
og ég var viðstödd yfírheyrslu dótt-
ur minnar, sem gerð var af sál-
fræðingi hjá Bamaverndarnefnd
Reykjavíkurborgar. Yfirheyrslan
var í heild tekin upp á myndband.
Maðurinn játaði á sig þennan glæp,
alla vega gagnvart mínu bami.
Málið var sent frá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins til ríkissaksóknara.
Þá hófst mikil og löng bið. Ég
hringdi nokkrum sinnum til að
frétta af málinu. Um miðjan maí
á þessu ári hringdi ég í Jón Er-
lendsson hjá ríkissaksóknara sem
vann í þessu máli. Hann sagði mér
þá að maðurinn hefði ekki verið
dæmdur, þrátt fyrir játningu á
þessum glæp. Málinu frestað í 3
ár. Ef hann bryti af sér á þeim
tíma, þá yrði málið tekið upp aftur
— annars ekki.
Daginn eftir þetta samtal okkar
birtist frétt um niðurstöðuna í
GÓÐ ÞJÓNUSTA HJÁ
GP HÚSGÖGNUM
FYRIR nokkrum vikum hafði ég
samband við Guðmund Pálsson í
GP húsgögnum í Hafnarfirði og
sagði honum farir mínar ekki slétt-
ar. Fyrir rétt rúmu ári síðan hafði
ég keypt hjá þeim leðurhornsófa.
Eitthvað virtist litunin á leðrinu
hafa mistekist þannig að þegar líða
tók á veturinn fór hann að láta á
sjá. Guðmundur kom til mín, leit á
gripinn og lét þau orð falla að þetta
sætti hann sig ekki við og lofaði
að mér yrði bættur skaðinn. Og
viti menn — fimm vikum seinna
sendi hann mér nákvæmlega eins
sófa, nema ógallaðan.
Mér finnst þetta alveg sérstakt
og mátti til með að þakka fyrir
blöðunum.
Maður fremur glæp, hefur kyn-
mök við 4 ára stúlkubarn og mis-
notar fleiri börn kynferðislega,
játar á sig glæpinn, en hlýtur
ekki dóm. Hvers konar réttarkerfi
búum við við? Hvaða réttlæti felst
í því að hlífa mönnum sem fremja
glæpi sem samkvæmt hegningar-
lögum er hægt að dæma í þyngstu
refsingu? Aldrei var haft samband
við mig að fyrra bragði og ef ég
hefði ekki hringt um miðjan maí,
þá hefði ég lesið um niðurstöðuna
í blöðunum. Ég hef síðan haft
samband við ríkissaksóknaraemb-
ættið og fengið þau svör að málið
sé afgi’eitt og það þurfi ekki að
ræða meira. Ég fór fram á að
myndbandsupptakan yrði eyði-
lögð og það sem þar kæmi fram
væri skrifað upp í skýrsluformi.
Ég kæri mig ekki um að til sé
myndbandsupptaka — e.t.v. um
aldur og ævi bamsins míns í fór-
um ríkissaksóknara. Mér var tjáð
að það væri ekki hægt. Ég býst
við að hvert einasta foreldri í land-
inu skilji vel að sú líðan er ekki
góð að vita af slíku myndbandi
af barninu sínu. Hvetjir komast í
málsgögngin? Því hef ég ekki
fengið svarað.
Dóttir mín varð fórnarlamb
kynferðisafbrotamanns. Hún sýn-
ir nú með hegðun sinni, að hún
er alls ekki búin að jafna sig á
þeirri misnotkun sem hún varð
fyrir. Kannski nær hún sér aldr-
ei. Engir peningar, hvorki 50 þús-
und krónur sem henni voru boðn-
ar, né 600 þúsund sem ég fór
fram á sem miskabætur fyrir
frábæra þjónustu, sem kannski
fleiri mættu taka sér til fyrirmynd-
ar.
ÞAKKA ÞÉR FYRIR,
ELSKAN!
MIKIÐ afskaplega er ég orðin leið
á því að vera alltaf kölluð elska,
vina eða ljúfa af fólki sem ég veit
engin deili á né það á mér.
Má sem dæmi nefna þegar ég,
kona á fertugsaldri, kem á bensín-
stöð og bið um bensín á bílinn
minn, þá segir afgreiðsludrengur-
inn, „A að fylla, elskan"? Annað:
Hringt er í vinnuna til mín og ósk-
að einhverrar fyrirgreiðslu og við-
mælandi minn segir, „Heyrðu,
elskan ... það var nefnilega það,
vinan ... þakka þér fyrir, elskan.“
hennar hönd, geta afmáð þessa
hrikalegu lífsreynslu úr sálarlífi
þessarar litlu dóttur minnar. Þetta
bréf er ekki skrifað til að auð-
velda henni að takast á við fram-
tíðina, það er of seint. Þetta bréf
er skrifað til þess að dómar í sam-
bærilegum málum verði í sam-
ræmi við alvarleika brotsins og
hafi þau fyrirbyggjandi áhrif sem
refsingu er m.a. ætlað að hafa.
Er þetta mat samfélagsins á al-
varleika þessa brots?
Ég óska eftir að fá svör við
eftirfarandi spurningum og óska
eftir því að þeim verði svarað á
síðum þessa blaðs.
1. Er fordæmi fyrir því að kyn-
ferðisafbrotamaður, sem játað
hefur á sig kynmök við fjög-
urra ára barn, hljóti ekki dóm?
2. Er líklegt að önnur lítil börn
en dóttir mín, sem brotið er á,
á sambærilegan hátt, verði
talin það léttvæg að gerandinn
verði ekki dæmdur fyrir brot
sitt?
3. Er líklegt að þessi dómur hafi
fyrirbyggjandi áhrif á þann
hátt að aðrir kynferðisafbrota-
menn hugsi sig um tvisvar
áður en þeir fremja glæpi?
4. Hvaða rök eru fyrir því að
geyma áðurnefnt myndband?
5. Hefur ríkissaksóknaraembætt-
ið fijálst mat á því hvenær það
frestar ákæru og hvenær það
fer með mál fyrir dómstóla,
eða eru einhveijar leiðbeining-
arreglur í lögunum um hvenær
það er hægt? T.d. vegna alvar-
leika brots eða aldurs geranda?
Móðir
Skemmst er þess að minnast er
ég hringdi á afgreiðslu Flugleiða
í Keflavík til að fá upplýsingar um
flug og afgreiðslustúlkan sem ég
talaði við kallaði mig elskuna sína
í öðru hvoru orði.
Ekki veit ég hvort þessi ósiður
er kenndur á einhveijum framkom-
unámskeiðum, því oftar en ekki
er það fólk í ýmsum þjónustustörf-
um sem temur sér þessa fram-
komu.
Málvitund mín segir mér að
maður kalli engan elskuna sína
nema þykja vænt um viðkomandi
og sé honum mjög náinn.
Það er hægt að vera kurteis án
þess að misnota gæluorð svona
leiðinlega og ég held að fólk ætti
að endurskoða þessa framkomu við
viðmælendur sína.
Sigrún
LEIÐRÉTTINGAR
Seinni hluti í stað
hins fyrri
I viðskiptablaði Morgunblaðsins
síðastliðinn fimmtudag er frétt um
afkomu Rifóss hf. í Kelduhverfi. I
upphafi fréttarinnar segir, að dálít-
ill hagnaður hafi orðið af rekstri
fyrirtækisins á fyrrihluta ársins, en
slátrað hafi verið um 66 tonnum
af laxi á því tímabili. Rangt er þar
farið með, að þessar upplýsingar
eigi við fyrrihluta ársins, því að hér
er átt við síðari hluta ársins 1992.
Beðist er velvirðingar á þessu.
Föðurnafn
misritaðist
I minningargrein Olafar og fleiri
um Kristveigu Kristvinsdóttur á
blaðsíðu 29 í Morgunblaðinu i gær
misritaðist föðurnafn hinnar látnu.
Þá láðist að geta fæðingar- og dán-
ardags Kristveigar. Hún var fædd
24. apríl 1923 og lést 26. júní síð-
astliðinn. Hlutaðeigendur eru inni-
lega beðnir afsökunar á mistökun-
um.
Pennavinir
Nítján ára Nígeríupiltur með
margvísleg áhugamál:
Bright Ozuzil,
129 Ojo Road,
Ajegunte Apapa,
Lagos State,
Nigeria.
Frá Bandarikjunum skrifar karl-
maður sem getur ekki um aldur né
áhugamál:
Milton Finkelstein,
19 Vincent Street,
Newark,
New Jersey 07105,
U.S.A.
Sautján ára Gampíupiltur með
margvísleg áhugamál:
Mustapha Sillah,
Kinderdorf Bottrop Technical
High School,
Brikaa,
Kombo Central,
Western Division,
Gambia.
Þýskur 31 árs karlmaður sem
heimsótti landið 1981 vill eignast
íslenska pennavini. Með áhuga á
bókmenntum, listum og músík:
Joaehim Hippler,
Zweigertstrasse 3,
4300 Essen 1,
Germany.
Frá Ghana skrifar 23 ára stúlka
með áhuga á tónlist, íþróttum,
bókalestri og matargerð:
Faustina Hayford,
P.O. Box 455,
Cape Coast,
Ghana.
Kanadískur 38 ára blökkumaður
karlmaður sem getur ekki um
áhugamál:
Thomas Oduro Mensah,
180 Chalkfarm Drive,
Apartment. 1309,
Downsview,
Totonto,
Ontario,
Canada.
r
Þegar
halda á
skemmtilega
veislu
Auk 200-800 m2risatjaldanna
bjóðum við nú upp á stórskemmtileg
36, 54 og 162 nf samkomutjöld, sem leigjendur reisa
auðveldlega sjálfir.
TJALDALEIGA Upplýsingar og pantanir
KOLAPORTSINS ísíma625030.
REIKI-
NÁMSKEIO
- Veist þú að við búum öll yfir stórkostlegum
eiginleikum til að lækna okkur sjálf?
- Veist þú að með því að nýta okkur þessa eigin- \ L
leika getum við einnig hjálpað öðrum?
- Vilt þú nýta þér þessa eiginleika?
- Reikinámskeið er ein af mörgum leiðum til þess.
Námskeið í Reykjavík:
21 .-23. júlí 2. stig, kvöldnámskeið.
27.-29. júlí 1. stig, kvöldnámskeið.
Upplýsingar í síma 33934.
Guðrún Oladóttir, reikimeistari.
*Fyrir börn í fylgd með fullorðnum, sem eru að veiða.
Ódýr skemmtun
í ferðalaginu
Ókeypis veiði fyrir börn í 27 vötnum.*
Ferðaþjónusta bænda,
Bændahöllinni v/Hagatorg,
sími 623640/43. Fax 623644.