Morgunblaðið - 03.07.1993, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 03.07.1993, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚU 1993 33 Minning Haraldur Traustason sér annt um heimilisfólkið og okkur duldist ekki hvað kært var með þeim Hrafnhildi, nánara samband móður og dóttur er vandfundið. Við hjónin og börn okkar þökkum fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynnast Sigríði Hjaltadóttur og vottum Hrafnhildi, Jósef, Siggu, Vernharði, Ingibjörgu og Jósef litla, sem og öðrum aðstandendum, inni- legustu samúð okkar. Við erum rík- ari af kynnum okkar við Sigríði Hjaltadóttur. Guð blessi minningu hennar og styrki ykkur öll í sorg- inni. Olafur Helgi Kjartansson. Einhvers staðar er til örlítil mynd, varla stærri en frímerki, tek- in á ljósmyndastofu Simsons á Isafírði, af litlum hnoðra, sem hjúfr- ar sig upp að breiðum og hlýjum barmi konu, sem í tilefni dagsins skartar upphlutnum sínum. Hnoðr- inn er undirritaður rúmlega árs- gamall, konan Sigríður Hjaltadóttir frænka mín, þá liðlega þrítug. Kannski hef ég búið til minningu út frá þessari mynd, en svo mikið er víst að nú finnst mér sem hlýja, angan og stillileg festa þessarar konu hafi fylgt mér alla ævi, og muni gera þótt fundum okkar eigi eftir að bera saman í þessu jarðlífí. Sigga Hjalta var reyndar samgróin þeirri óbreytanlegu tilveru sem maður skynjaði sem barn, jafnsjálf- sögð og festingin og sólin og tungl- ið og stjörnurnar, sem gengu sínar afmörkuðu brautir eftir henni, jafn- sjálfsögð og fjallaarmarnir sem um mann luktu, jafnsjálfsögð og loftið sem maður andaði að sér. Þetta eru ekki innantóm orð. Móðir mín og Sigga voru fóstursyst- ur auk þess að vera systkinaböm. Þegar foreldrar mínir hófu búskap og hlóðu niður fimm börnum á fimm árum höguðu atvik því svo að Sigga tók að sér rekstur matsölu í. ný- byggðu Alþýðuhúsi á ísafirði og bjó þar á efstu hæðinni í nábýli við foreldra mína. Hún átti því sinn þátt í því að koma okkur á legg og mátti heita hluti af fjölskyldunni á þessum árum, enda faðir minn langdvölum fjarri við stjórnmála- vafstur og erindrekstur á vegum verkalýðshreyfingarinnar. Þann 13. apríl 1940 giftist Sigga sínum lífsförunaut, Ingimundi Guð- mundssyni vélsmið, og áttu þau sitt heimili síðan á Túngötu 11 á ísafirði. Mikill samgangur var á milli heimilanna alla tíð, Sigga hafði á hendi mjólkursölu fyrir frændfólk okkar í Unaðsdal og Ögri og var mjólkin því sótt til hennar tvisvar í viku eftir komu Djúpbátsins. Fylgdi því jafnan ákveðin serimón- ía, því ekki var við annað komandi en að þiggja góðgerðir, að minnsta kosti mjólkurglas og nýbakaðar kökur. Á stórhátíðum sóttum við jafnan heimboð til Siggu og Ingimundar. Voru það rausnarleg boð og eftir- minnileg. Húsbóndinn Ingimundur hafði á sér sömu stillilegu festuna . og Sigga í fasi og framgöngu, en 1 þó oftast glaðari í bragði og glettn- islegri við smáfólk. Hann átti góðan bókakost og gat oft haft tilvitnanir I í ljóð aldamótaskáldanna á reiðum höndum, eða þá að flett var upp í þeim eftir því sem tilefni gafst til í samræðum hinna fullorðnu. Húsið áttu þeir saman bræður, Páll og Ingimundur, og vel man ég einnig móður þeirra Ingibjörgu Pálsdóttur, sem jafnan sat með pijónana sína, sjónlítil orðin, en fór gjarnan með fróðleik frá æskustöðvum sínum í Húnaþingi. Vatnsdæla saga var henni hugleikin og man ég að lengi vel hélt ég að Ingimundur gamli hefði verið nákominn ættingi þeirra mæðgina, enda mun Ingimundur hafa verið látinn bera nafn hans. Ingimundur var næmur fyrir hinni skoplegu hlið mála og átti held ég Spegilinn frá upphafí og það úrval úr honum, sem gefíð var út undir | heitinu Rauðka, í tveimur bindum ef ég man rétt. Lá ég löngum og grúskaði í þeim bókmenntum, og | lærði þar að þekkja nöfn helstu stjórnmála- og fyrirmanna og milli- stríðsáranna og þekkja þá af skop- myndum Tryggva Magnússonar. Get ég enn kallað fram í hugann J ýmsar þeirra mynda, ásamt slitrum úr kveðskap Sigurðar Z. Þetta var mín fyrsta kynning af pólitík þessa tíma. Yfir heimilinu hvíldi þessi fágaði miðstéttarblær, sem einkenndi heimili faglærðra iðnaðarmanna á ísafírði þessa tíma: Reglusemi, hefðir, formfesta, en ' umfram allt hlýleiki. Með brottför foreldra minna frá ísafirði fyrir 40 árum varð vík milli vina. Jafnan var þó komið við hjá Siggu og Ingimundi, þegar leiðir lágu um ísafjörð, og eftir andlát hans, hjá Siggu og Hrafnhildi, fóst- ur- og systurdótturinni kæru, sem auðgað hafði tilveruna eftir að umstanginu við ólátabelgi fóstur- systurinnar lauk. Jafnan var þó fýlgst grannt með framvindu lífsins og hlýleiki og væntumþykja látin í ljós með ýmsum hætti við ýmis tækifæri. Því er það að þótt ekki verði héraðsbrestur við lát níræðrar konu, er samferðamönnum söknuð- ur í hug. Og okkur systkinunum, sem hún var nálega sem önnur móðir okkar fyrstu ár, verður hún hugstæð til æviloka. Olafur Hannibalsson. Okkur systkinin langar til að minnast elskulegrar ömmu okkar er lést hinn 24. júní síðastliðinn. Hún fæddist að Markeyri við Skötu- fjörð hinn 23. nóvember 1902 og voru foreldrar hennar hjónin Sigur- borg Þórðardóttir og Hjalti Einars- son. Var hún þeirra elsta barn. Átta ára gömul missti hún rnóður sína og fór þá í fóstur til Ólafs móðurbróður síns að Strandseljum í Ögurhreppi og konu hans Guðríð- ar Hafliðadóttur og ólst hún þar upp til fullorðinsára. Hún var vetr- artíma við nám í Húsmæðraskólan- um á Staðarfelli 1928-29 og var síðan um tíma hjá Einari Guðfínns- syni í Bolungarvík. Frá árinu 1935 rak hún matsölu í Alþýðuhúsinu á ísafirði uns hún giftist 1940 Ingi- mundi Guðmundssyni vélsmið á ísafirði. Þeim varð ekki barna auð- ið, en tóku í fóstur systurdóttur Sigríðar, Hrafnhildi, móður okkar, og ólu hana upp sem sína eigin dóttur til fullorðinsára. Fyrstu árin bjuggu mamma og pabbi, Jósef Hermann Vernharðsson, hjá afa og ömmu á Túngötu 11 á ísafirði, en 1969 fluttust þau til foreldra okkar í Hnífsdal þar sem þau bjuggu þar til afi lést 1973, og amma upp frá því. Þegar við systkinin tíndumst í heiminn eitt af öðru áttum við því láni að fagna að hafa Siggu ömmu, en svo var hún ávallt kölluð af öllum börnum sem hana þekktu, alltaf nálægt okkur. Hún hugsaði um að við hefðum það alltaf sem best, og alltaf var hún heima við og hugsaði um okkur. Hún var alltaf að og féll aldrei verk úr hendi. Ef hún var ekki að hugsa um heimilið þá var hún að pijóna, pijónaði alltaf á okkur sokka og vettlinga og reynd- ar pijónaði hún líka sjöl og vettl- inga sem hún seldi og voru mjög eftirsótt sökum þess hve fallegt það var. Hún hélt fullri heilsu og varð sjaldan misdægurt, þar til nú í vor að kraftar hennar þrutu. Við munum sakna þess mjög að hafa ömmu ekki til staðar lengur, því að alltaf átti hún eitthvað með kaffinu, pönnukökur, lummur, kleinur; og margar voru sending- arnar til Reykjavíkur af marmelaði og kleinum, þegar við vorum þar við nám og störf. Og gijónagrautur- inn hennar var sá besti í heimi. Öll eigum við systkinin margs að minn- ast því að alltaf var hún til staðar fyrir okkur og tók þátt í gleði okk- ar og sorgum. Og mikil var gleði hennar fyrir þremur árum er litli dóttursonurinn Jósef Hermann kom í heiminn. Hann var ekki orðinn mjög gamall er hún var farin að lesa fyrir hann, pijóna á hann sokka, leika við hann og kenna honum bænir. Og alltaf þótti honum best að hafa löngu sína inn með sér á kvöldin. Elsku amma. Við vonum að þér líði nú betur og sért komin til hans afa. Við kveðjum þig með söknuði og þakklæti fyrir allt. Sigríður, Vernharður og Ingibjörg. Fæddur 22. nóvember 1939 Dáinn 13. júní 1993 Ástkær faðir okkar og tengda- faðir er dáinn. Varð hann bráð- kvaddur á heimili sínu sunnudag- inn 13. júní sl. Því verður ekki með orðum lýst hvílíkt reiðarslag þetta var okkur öllum og langar okkur að minnast hans í fáeinum orðum. Pabbi var fæddur 22. nóvember 1939 í Garðshorni í Vestmannaeyj- um, sonur hjónanna Trausta Jóns- sonar og Ágústu Haraldsdóttur. Var hann elstur átta systkina. Þau eru: Jón Steinar, Ágústa, Brynja, Óli ísfeld, Steinunn, Ásta og Trausti Ágúst, en hann lést árið 1969 aðeins 17 ára að aldri. Sautján ára gamall kynntist pabbi henni mömmu okkar, Eddu Tegeder frá Háeyri, og áttu þau saman fjögur börn en þau eru: Þóranna og á hún tvö börn, Her- mann og á hann tvö böm, Jón Trausti í sambúð með Valborgu Júlíusdóttur og eiga þau tvö böm, Haraldur í sambúð með Helenu Guðmundsdóttur og eiga þau eitt barn. Hugur pabba stefndi snemma til sjós og aðeins fimmtán ára gam- all hóf hann sjómannsferil sinn, Einn helsti oddviti Haukadals- ættarinnar, Sigurgeir Kristjáns- son, er nú fallinn í valinn. Sumarið 1983 var haldið ættar- mót í Haukadal í Biskupstungum, og voru þar samankomnir fjöl- margir niðjar þeirra bræðra, Jóns Guðmanns Sigurðssonar og Greips Sigurðssonar, móðurafa Sigur- geirs, en þeir bræður voru synir Sigurðar Pálssonar bónda og hreppstjóra í Haukadal. Þarna sem við vorum saman komin við kirkj- una í Haukadal allur ættingjahóp- urinn, hélt Sigurgeir tölu, og fræddi okkur hin um ættina, um- hverfið og eldri tíma. Það var ekki einungis að hann væri fróður, held- ur átti hann einnig mjög gott með að miðla af fróðleik sínum til okk- ar hinna, með léttum undirtón og gamansemi. Sönn frásagnargáfa. Þarna sá ég manninn sem ég þyrfti að hafa nánara tal af, því að nokkru fyrr var ég farinn að grafast fyrir um forfeður mína og í burðarliðnum hjá mér var hug- mynd um að safna saman í niðja- tal niðjum þessara bræðra. Ekki man ég atburðarásina svo gjörla, en um þetta leyti var ég farinn að sjá eitthvað sem orkaði tvímælis í því sem til var ritað um niðja Sigurðar Pálssonar. Hugði ég mér gott til glóðarinnar að færa þetta í tal við Sigurgeir og fræðast um leið meir um ættina, sem og úr varð. í fyrstu var ég fremur ragur, og engin furða, því að mikill viskumunur var á milli okkar, en ekki lét hann mig fínna Með þessum fáu línum viljum við minnast afa okkar, Kristins Friðrikssonar, sem dó 24. júní sl. Við verklok Er sólskinshlíðar sveipast aftanskugga um sumarkvöld, og máninn hengir hátt í greinum tijánna sinn hálfa skjöid, er kveldkul andsvalt aftur kæla tekur mitt enni sveitt og eftir dagsvek friðnum nætur fagnar hvert fjörmagn þreytt. - fyrst sem háseti, þá vélstjóri og síðan er hann keypti sinn fyrsta bát 29 ára að aldri, þá var hann skipstjóri á honum og þeim bátum er hann eignaðist síðar. Varð hann fyrir ýmsum áföllum í útgerðinni en stærsta áfallið kom er hann missti bát og með honum einn mann í mars 1990. Tók þetta mikið á hann og upp úr því fór að bera á þeim veikindum sem sennilega voru orsök andláts hans. Þrátt fyrir þetta mótlæti gafst hann ekki upp því að hann gat ekki hugsað sér neitt annað starf en sjómennskuna, og innan árs var hann búinn að kaupa sér annan bát sem hann nefndi eftir mömmu sinni sem lést skömmu áður. Um helgar var fastur liður að fjölskyldan hittist uppi í Hrauntúni hjá pabba og mömmu og var þar iðulega margt um manninn og mikið spjallað. Hafði pabbi frá ýmsu að segja, var víðlesinn og einstaklega fróður um sögu lands og þjóðar. Hann hafði ríka kímni- gáfu og góðlátleg stríðni hans og athugasemdir vöktu oft kátínu. Pabbi var mjög barngóður og hændust bamabörnin að honum, enda sat hann iðulega með eitt- hvert þeirra í fanginu, og oft gistu þau hjá afa sínum og ömmu og að svo væri, heldur sýndi þessu mikinn áhuga og örvaði mig á all- an hátt. Eitt sinn er hann kom til mín, kom til tals hugsanleg framsetning á niðjatalinu og sátum við saman og spjölluðum, en skyndilega sagði hann: „Það væri gaman að hafa myndir af niðjunum með,“ og lyft- ist á honum brúnin að þessu sögðu. Grunar mig að þar hafi hann verið búinn að skoða Galtarættina sem þá var nýútkomin, sem mágur hans Sigurður Sigurmundsson átti dijúga aðild að. Á þeirri stundu hvarflaði ekki að mér að þetta gæti orðið svo viðamikið. Mikið vatn hefur til sjávar runn- ið síðan þetta var, en fyrir all- nokkru tjáði ég honum að nú væri í burðarliðnum mun yfirgripsmeira niðjatal Haukdæla en upphaflega hefði verið ráð fyrir gert, svo og hver myndi sjá um útgáfuna með mér þegar þar að kæmi, og auðvit- að yrði það með myndum. Þessar fátæklegu línur set ég hér í þakklætisskyni fyrir veitta aðstoð og uppörvun þegar ég fann mest fyrir vanmætti mínum frammi fyrir þessu ætlunarverki. En atburðarásin hefur hagað því þannig til, að nú verður ekki til baka snúið, þótt á þessari stundu sé ekki að öllu leyti ljóst hve yfír- gripsmikið þetta upphaflega „litla niðjatal" verður. Eg votta Björgu, börnum, barnabörnum og öðrum aðstand- endum mín dýpstu samúð. Guðmann Kristbergsson. En þegar hinst er allur dagur úti og upp gerð skil, og hvað sem kaupið veröld kann að virða, sem vann ég til: í slíkri rö ég kysi mér að kveða éinn klökkan brag og rétta að heimi að síðustu sáttahendi um sólarlag. (Stephan G. Stephansson) . Elsku amma, við vottum þér samúð okkar. Guðrún Ágústa Gústafsdóttir og Ágústa H. Friðriksdóttir. var þá kannski grillað, farið í öku- ferð eða gert eitthvað annað skemmtilegt. Margar góðar minningar eigum við úr árvissum tjaldferðalögum með pabba og mömmu um ísland. Pabbi elskaði að ferðast um landið og njóta íslenskrar náttúru, en sérstaklega naut hann þess að koma undir Eyjafjöllin, en þar hafði hann verið í sveit sem dreng- ur og hafði sterkar taugar til Eyja- fjallasveitarinnar. Seinna þegarvið vorum hætt að fara með þeim í frí þá töku barnabörnin við. Við fráfall föður okkar myndað- ist mikið tómarúm og segja má að kjölfesta fjölskyldunnar hafi farið með honum. Maður sem allt- af var hægt að leita til í erfiðleik- um. Maður sem var traustur, heið- arlegur og áreiðanlegur. Við kveðj- um með söknuði góðan föður og tengdaföður og barnabörnin kveðja frábæran afa. Sjáumst aft- ur. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama, en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Hávamál) Börn og tengdadætur. Höfundarnafn féll niður Nafn Birgis Rafns, höfundar fyrri minningargreinarinnar um Ingólf Pál Böðvarsson á blaðsíðu 30 í Morgunblaðinu í gær, féll niður vegna mistaka í vinnslu. Hlutaðeigendur eru innilega beðnir afsökunar á mistökunum. Hallgrímur Sigurvaldason. Leiðrétting Mynd sem birtast átti með minningargrein Hallgríms Jóns- sonar um Hallgrím Sigurvalda- son á Eiðsstöðum í Blöndudal í miðvikudagsblaði Morgunblaðs- ins varð viðskila við greinina vegna misgánings, en birtist hér með. Hlutaðeigendur eru inni- lega beðnir afsökunar á mistök- unum. íir^ nU ilí Stórhöiða 17, við Gullinbrú, sími 67 48 44 GÆÐAFLÍSARÁ GÓÐU VERÐI :~4 imíil *»! 4 StórhÖfða 17, við Gullinbrú, sínii 67 48 44 Sigurgeir Krist- jánsson — Minning Minning Kristinn Friðriksson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.