Morgunblaðið - 03.07.1993, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 03.07.1993, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1993 27 Sjötugur * Askell Einarsson Á fyrstu áratugum aldárinnar um það bil sem þeir voru að fæð- ast, sem nú eru komnir á ellilaun var það eitt af stærri vandamálum stjórnsýslunnar hve erfítt var að fá aldraða embættismenn til að láta af störfum þótt þeir væru orðnir ófærir að gegna starfínu sökum ellihrumleika. Þá voru samgöngur allt aðrar en nú er og margir emb- ættismenn höfðu ekki lengur þrek til að starfa í víðlendum umdæmum þar sem þurfti að ferðast yfír fjall- garða og vatnsföll í hvaða veðci sem var. Til þess að láta slíka embættis- menn hætta störfum og rýma störf- in fyrir yngri mönnum urðu stjórn- völd að gera róttækar ráðstafanir. Sett voru lög um að engir skyldu gegna embætti eftir að þeir væru orðnir sjötugir. Þrátt fyrir breytta og fullkomnari heilsugæslu og þótt mannsævin hafí lengst til muna hefur þessum lögum ekki verið breytt ennþá. Menn í fullu fjöri með verðmæta lífsreynslu eru látnir hætta störfum ekki síðar en við 70 ára aldursmarkið. Þeirri kynslóð sem staðið hefur fyrir mestum al- hliða framförum af öllum kynslóð- um hér á landi er ýtt til hliðar án tillits til heilsufars og starfshæfni. Einn þessara manna, sem er enn- þá í fullu starfsíjöri og ellin hefur ekki náð neinum tökum á, er nú hættur störfum. Hann er sjötugur í dag og því ekki lengur heimilt að nýta starfskrafta sína í þágu samfé- lagsins þótt hann sé ennþá hug- myndaríkari og starfshæfari en margir yngri menn. Þetta er Áskell Einarsson fyrrum bæjarstjóri á Húsavík og fram- kvæmdastjóri Pjórðungssambands Norðlendinga. Hann er fæddur í Alþingishúsinu 3. júlí 1923. Foreldrar hans voru Einar skrifstofustjóri Alþingis, Þor- kelsson Eyjólfssonar prests á Stað- arstað. Móðir hans var Ólafía Guð- mundsdóttir, Jónssonar í Hörgsholti í Árnessýslu. Hann er því kominn af þekktum bænda- og embættis- mannaættum sem ekki verða raktar hér. Þegar Áskell var 6 ára andað- ist móðir hans og var hann þá tek- inn í fóstur af móðurbróður sínum Jóni Guðmundssyni gestgjafa í Val- höll og bónda á Brúsastöðum í Þing- vallasveit. Það átti því fyrir honum að liggja að eiga sína bernskugöngu á fornum og nýjum þingmannaslóð- um iandsins. Við sem þekktum hann ungan mann töldum því mjög lík- legt að hann ætti eftir að eyða fleiri ævidögum sínum á þingmannaslóð- um. En enginn ræður sínum nætur- stað. Fyrir Áskeli átti að liggja annar starfsvettvangur. Hann fór til náms í Flensborgar- skólann í Hafnarfirði og lauk þar gagnfræðaprófi vorið 1939. Á þess- um árum var mikið umrót í þjóðfé- laginu og hvarf hann frá námi um hríð og starfaði lengst við verslun- arstörf í hinni þekktu verslun Geirs Zoéga á Vesturgötunni í Reykjavík. Sigurjón Jónsson frá Stóra-Ármóti, sem lengi var þar verslunarstjóri, sagði við mig að hann hefði verið mjög undrandi að Áskell skyldi hætta verslunarstörfum því mikla hæfileika hefði hann haft á því sviði. Nú hélt Áskell i Samvinnuskól- ann til Jónasar frá Hriflu og lauk þaðan prófi vorið 1948. Guðlaugur Rósinkrans, yfirkenn- ari skólans, var þetta vor beðinn að benda á einhvem úr nemenda- hópnum til að taka að sér auglýs- ingastjórn Tímans, sem þá var ný- lega orðinn dagblað og ætlaði nú að hasla sér völl á auglýsingamark- aðnum. Guðlaugur benti strax á Áskel og taldi hann hafa mesta hæfileika í nemendahópnum til þessa starfs. Fljótlega fór auglýs- ingamagn Timans að stóraukast og var svo jafnan rneðan Áskell var auglýsingastjóri. Askell starfaði mikið að félags- málum á þessum árum sem hann var auglýsingastjóri Tímans. Hann sat bæði í stjórn Félags ungra fram- sóknarmanna í Reykjavík og stjórn Sambands ungra framsóknar- manna. Hann var lengi gjaldkeri SUF og annaðist um skeið ritstjórn á síðu þeirri, sem ungir fram- sóknarmenn höfðu þá í Tímanum. Þá vann hann einnig talsvert að auglýsingasöfnun fyrir tímarit og árbækur. Á þessum árum var hin svokall- aða Jónasarkynslóð við völd eða forstöðu í mörgum fyrirtækjum. Þetta voru menn, sem Jónas Jóns- son hafði tekið úr hópi nemenda sinna í Samvinnuskólanum og falið þeim ungum ábyrgðarstörf. Jónas var óhræddur að fela ungum mönnum ábyrgðar- og trúnaðar- störf. Segja má, að í flestum tilfell- um hafí hann verið glöggskyggn og reyndust þessir menn flestir trausts hans verðir og stóðu sig vel í þeim störfum sem þeim var trúað fyrir. Eitt sameiginlegt einkenni höfðu nokkrir af þessum fyrrverandi nemendum Jónasar, sem hann hafði komið á framfæri á valdaá- rum sínum. Þeir voru mjög á verði gagnvart ungum og metnaðarfull- um mönnum, sem lentu undir þeirra handaijaðri. Það voru ekki þeirra uppáhaldsstarfsmenn. Ef ungi maðurinn sýndi að hann var metnaðarfullur og ætlaði að koma sér áfram til áhrifa var hann oft í þeirra augum verri starfsmaður en sá sem sætti sig við óbreytt starf til langframa. Þeir virtust ekki feta í fótspor þess manns, sem kom þeim ungum til áhrifastarfa. Þeir voru bara hinir útvöldu sem vegna mikilla hæfíleika af guðs náð var tekið eftir á réttum tíma og settir til ábyrgðarstarfa. Ungir menn skyldu ekki ryðjast inn á þeirra svið. Ef til vill voru þetta bara mannleg varnarviðbrögð. Þeir höfðu sjálfir séð hvernig lærifaðir þeirra hafði verið settur til hliðar af þeim mönnum sem hann hafði komið ungum til áhrifa. Það var hlutskipti Áskels eins og ýmissa jafnaldra hans að lenda undir handaijaðri slíkra manna að afloknu skólanámi. Það gat ekki gengið lengi miðað við skapgerð hans og starfsmetnað. Án þess að fara um það fleiri orðum hvarf hann frá störfum hjá Tímanum eftir nokkurra ára starf. Hann starfaði um tveggja ára skeið sem fulltrúi á skrifstofu raforkumála- stjóra. Vafalaust ætlaði Áskell sér ekki að vera þar til langframa þó að þetta væri nokkuð gott starf. Ég átti samt frekar von á því, að hann ætlaði sér framtíðarstarfs- vettvang á höfuðborgarsvæðinu á þessum árum. Að afloknum sveitarstjórna- kosningum árið 1958 voru lausar nokkrar stöður bæjar- og sveitar- stjóra víða um landið. Áskell sótti þá um bæjarstjórastarfíð á Húsa- vík og var ráðinn til þess starfs fyrri hluta árs 1958. Fluttist hann þá með fjölskyldu sína til Húsavík- ur um vorið. Hann þótti mjög dug- legur bæjarstjóri. Karl Kristjáns- son segir í Sögu Húsavíkur, áð innheimta á tekjum kaupstaðarins hafí verið með miklum ágætum í bæjarstjóratíð Áskels. Yfírleitt mun hann hafa sýnt bæði dugnað og reglusemi í starfi sínu hjá Húsa- - víkurkaupstað. Vorið 1966 breytt- ist meirihluti bæjarstjórnar Húsa- víkur og var þá annar bæjarstjóri ráðinn af hinum nýja meirihluta. Áskell tók þá við framkvæmdastjó- rastarfi sjúkrahússins á Húsavík, sem hann gegndi næstu fimm árin. Byggða- og sveitarstjórnamálin áttu samt hug hans áfram. Árið 1970 kom út bók eftir hann sem hann nefndi „Land í mótun“. Þar lýsir hann hugmyndum sínum um framtíðarskipulag byggðarinnar á íslandi og rekur sögulega þróun byggðaskipulagsins. Þessi bók mun hafa verið m.a. notuð um tíma sem námsefni við Háskóla íslands. Sýn- ir það vel að þessi bók var virt sem skyldi. Áskell hefur skrifað mikið í landsmálablöðin um byggðamál undanfarin ár. Vænti ég þess að hann eigi eftir að láta meira heyra frá sér um þann málaflokk. Fáir menn þekkja betur íslenska stjóm- málasögu en hann. Hygg ég að hann muni láta heyra frá sér um þau mál áður en ellin fer að raska minni hans. Á öndverðu árinu 1971 var Áskell ráðinn framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Norðlendinga. Hann fluttist þá frá Húsavík til Akureyrar og hefur búið þar síðan. Störf sín fyrir sambandið rækti hann af miklum dugnaði og áhuga. Um það er okkur sem oft vorum á vegi hans þegar hann var í erindum hér syðra vel kunnugt. Einn hátt- settur maður sem starfaði í stofnun sem Áskell átti oft erindi við um málefni Fjórðungssambands Norð- lendinga, sagði við mig að hann væri undrandi á því að Norðlending- ar hefðu ekki sent Áskel sem full- trúa sinn á Alþingi því að ötulli talsmann hefðu þeir naumast feng- ið þrátt fyrir þá úrvalsmenn sem jafnan hefðu verið fulltrúar þeirra á þingi. Ég hygg að það hafi orðið Áskeli mikil vonbrigði þegar Fjórðungs- sambandi Norðlendinga var á sl. ári skipt í tvö sambönd, þ.e. eitt samband fyrir hvort kjördæmið. Hann hafði gert sér miklar vonir og stefnt að því að Fjórðungssam- bandið yrði sterk stjórnsýslueining og lagt mikla vinnu að undirbúningi þess. Það eru víst fyrirfram ákveðin örlög, að flestar tilraunir allt frá landnámsöld til samstarfs og sér- stöðu landsfjórðunganna hafa orðið minni en skyldi. Áskell var einn þeirra sem hafði bjargfasta trú á gildi þess, að landsfjórðungarnir hefðu sterk samtök og lagði sig mjög fram um að efla samstöðu Norðlendingafjórðungs. Áskell er tvíkvæntur. Hann missti fyrri konu sína, Þómýju Þor- kelsdóttur, þegar hann var bæjar- stjóri á Húsavík. Með henni átti hann tvær dætur, Steinunni og Ásu. Fyrir hjónaband hafði hann eignast dóttur, Guðrúnu. Síðari kona hans er Áslaug Valdemars- dóttir frá Húsavík. Þau eiga tvö TRJAPLONTUR - RUNNAR Verdhrun! Bjóðum eftirtaldar tegundir á ótrúlega hagstæðu verði á meðan birgðirendast: Alaskavíðir, brúnn (Tröllavíð- ir), kr. 65, birkikvistur í pottum kr. 199, alparifs kr. 180, gljámispill kr. 140, hansarós kr. 390, runnamura kr. 290, sírenur kr. 290, gullregn kr. 300, ásamt fjöl- breyttu úrvali sígrænna plantna með 30% afslætti. Trjáplöntusalan Núpum, Ölfusi, beygt til hægri við Hveragerði. Símar 98-34388, 985-20388. Opið 10-21 alla daga. börn, Ólafíu og Einar. Þau hjónin eiga mjög fallegt heimili í Höfða- hlíð 9 á Akureyri. Þangað er gott að koma og njóta gestrisni þeirra. Ég man fyrst eftir Áskeli þegar ég var að ljúka námi við Samvinnu- skólann vorið 1947. Hann var þá að taka inntökupróf upp í eldri deild skólans. Hann útskrifaðist þaðan eftir eins vetrar nám. Haustið 1948 þegar ég fór að starfa í Reykjavík hófust kynni okkar. Ég tók fljótlega eftir hinum fjölþættu gáfum hans og þótti fróðlegt að ræða við hann. Hann var þá í hinu svokallaða fram- sóknarhreiðri í prentsmiðjuhúsi Eddu þar sem Tíminn og Framsókn- arflokkurinn höfðu skrifstofur sín- ar. Hann fylgdist þá öðrum betur með landsmálunum og þeim hrær- ingum sem voru hverju sinni í stjórnmálunum. Jafn glöggskyggn maður og hann var öðrum fyrri til að spá í framvindu mála og sjá ýmislegt sem aðrir voru ekki búnir að átta sig á. Ég var á þessum árum mjög áhugasamur um landsr málin og stjómmálin og fór því fljót- lega að bera mínar ályktanir um landsmálin undir Áskel. Ég held að við höfum sameiginlega oftast verið búnir að átta okkur á því hvernig næstu skrefín hjá stjórnmálamönn- unum væru tekin. Áskell er líka mikill áhugamaður um dulræn málefni. Margar sam- ræðustundir höfum við átt um þau májefni um dagana. Áskell er maður mjög fjölfróður. Hann hefur aldrei einangrað hugs- anir og störf við einn málaflokk og lætur sér fátt óviðkomandi. Frægt var þegar hann var í spuminga- þætti í útvarpinu og spyrlamir gátu með engu móti lagt fyrir hann þær spurningar sem hann gat ekki svar- að. Ymsir voru famir að halda að þetta yrði fastur dagskrárliður til framtíðar. Nú er öld sérhæfingar- innar mnnin upp. Langskólagengn- ir, sérhæfðir menn er það sem koma skal. Meðan hann starfaði í Reykjavík vom stofnanir þær sem við störfuð- um á mjög nálægar hvor annarri. Við hittumst því eðlilega nánast daglega. Svo vildi til á tímabili, að forstöðumenn beggja þessara stofn- ana voru gamlir skólabræður. Ágætustu menn að mörgu leyti. Þeir vom báðir úr nemendahópi þeim sem Jónas frá Hriflu hafði komið ungum til ábyrgðarstarfa. Eins og áður er vikið að voru ung- ir og framagjarnir menn ekki þeirra uppáhaldsstarfsmenn. Við skildum því öðrum betur aðstöðu hvor ann- ars. Átti þetta sinn þátt í að sam- staða okkar varð meiri sökum varn- - arbaráttu þeirrar sem hvor okkar varð að heyja í þeim fyrirtækjum sem við störfuðum hjá. Eftir að Áskell fluttist norður yfír heiðar voru samfundir okkar margir þegar hann var á ferð til Reykjavíkur og oft hefur síminn verið notaður til að ræða málin og spá í hlutina. Hinu er ekki að leyna að stundum hafa smá óveðursský gengið yfir enda erum við vist báð- ir skapmiklir og hreinskilnir, ef til vill full hreinskilnir, eins og gamall ættingi minn sem þekkti okkur unga menn orðaði það einu sinni. Ég sendi Áskeli og fjölskyldu hans bestu kveðjur og árnaðaróskir á þessum tímamótum. Ég bíð óþol-v inmóður eftir að hann skrifí ævi- sögu sína því að sagnfræði þessarar aldar yrði svipminni ef þá bók kæmi til með að vanta í bókasöfn þeirra mörgu, sem hafa áhuga á að kynna sér hvernig landsmálin þróuðust á öldinni sem nú er að renna sitt skeið. Ragnar Ólafsson. Námskeið fyrir atvinnulausa STJÓRNUNARFÉLAG íslands hefur ákveðið að bjóða þeim sem enn hafa ekki fengið atvinnu til hins vinsæla námskeiðs Phoenix - sem hlotið hefur íslenska heitið Leiðin til árangurs. Námskeiðið fer fram 5.-9. júlí kl. 15.30 til 19.30. Á námskeiðinu er fjallað um und- irstöðu þess að menn nái árangri, jafnt í einkalífí sem starfi. Það þyk- ir skýra á mjög hnitmiðaðan og auðskilinn hátt undirstöður þess að menn nái árangri í lífínu með já- kvæðu hugarfari, réttum aðferðum og vilja til þess að takast á við ný verkefni, segir í frétt frá Stjórnun- arfélaginu. Námskeiðið byggir á mynd- bandasýningum hins þekkta kana- díska fyrirlesara Brians Tracys en myndböndin, sem eru á ensku, hafa íslenska skýringatexta og þeim fylgir vinnubók á íslensku. Fanný Jónmundsdóttir, leiðbeinandi hjá SFÍ, leiðbeinir á námskeiðinu en hún hefur ákveðið að gefa vinnu sína til þess verkefnis. Þátttakendafjöldi takmarkast við 25 manns. Þeir sem áhuga hafa hafí samband við Miðstöð fólks í atvinnuleit, Lækjargötu 14. • • VALHUSGOGN Ármúla 8, símar 812275 og 685375. raftgreitalar HORNSÓFI - SVEFNSÓFI EITT HANDTAK — Verð kr. 99.000,- stgr. Hornsett (án svefnsófa) 2 + horn + 3 í 4 Ktu Verð kr. 73.000,- stgr. Horsett, leður á slitflötum, 2 + horn + 3. Verð kr. 125.000,- stgr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.