Morgunblaðið - 13.07.1993, Blaðsíða 5
4 C
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 13 JÚLÍ 1993
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993
C 5
GOLF / SKOSKA MEISTARAMOTIÐ
Svílnn Jesper Pernevlk fær hér koss að sigurlaunum frá unnustu sinni Miu Sandsten.
Reuter
Miguel Indurain kom
inn meðforystuna
Reuter
Mlguel Induraln kom rúmum tveimur mínútum
á undan næsta manni í mark á níunda legg, og
fór þar með úr 27. sæti í það fyrsta á heildartíma.
Reuter
Alain Prost fagnar fimmtugasta sigrinum í
Grand Prix.
Tourde France
Úrslit á 9. legg:
1. Miguel Indurain (Spáni).1:12.50 klst.
2. GianniBugno(ítaIfu)...2.11 mín. á eftir
3. Eric Breukink (Hollandi).........2.22
4. Tony Rominger (Sviss)............2.42
5. Alex Zuelle (Sviss)..............3.18
6. Johan Bruyneel (Belgíu)..........3.50
7. Zenon Jaskula (Póllandi).........4.00
8. Raul Alcala (Mexíkó).............4.05
9. Philippe Louviot (Prakklandi).....4.28
10. Stephen Roche (írlandi).........4.30
11. AlbertoElli (Ítalíu)............4.32
12. Bjarne Riis (Danmörku)...........4.40
13. Charly Mottet (Frakklandi).......4.57
14. Pedro Delgado (Spáni)...........5.09
15. Gerard Rue (Frakklandi).........5.13
16. Claudio Chiappucci (Ítalíu).....5.18
17. Giancarlo Perini (Ítalíu).......5.27
18. Rolf Sorensen (Danmörku)........5.27
19. Flavio Vanzella (Italfu)........5:33
20. Jean-Philippe Dojwa (Frakklandi) .5:36
Staðan eftir níu leggi:
1. Miguel Indurain (Spáni)....35:29.25 klst.
2. EricBreukink (Hollandi)1.35 mín. á eftir
3. Johan.Bruyneel.(Belgúi.)..........2.30
4. Gianni Bugno (ítalfu).............2.32
5. Bjame Riis (Danmörku).............2.34
6. Johan Museeuw (Belgíu)............3.02
7. Zenon Jaskula (Póllandi)..........3.03
8. Alvaro Mejia (Kólumbíu)...........3.08
9. Philippe Louviot (Frakklandi).....3.54
10. Stephen Roche (írlandi)..........4.10
11. Alex Zuelle (Sviss)..............4.12
12. Raul Alcala (Mexfkó).............4.32
13. Charly Mottet (Frakklandi).......4.40
14. Claudio Chiappucci (Italíu)......5.07
15. Laurent Jalabert (Frakklandi)....5.11
16. Rolf Sorensen (Danmörku).........5.14
17. Mario Cipoilini (Italíu).........5.16
18. Lance Armstrong (Bandar.)........5.19
19. Alberto Elli (Ítalíu)............5.19
20. Tony Rominger (Sviss)............5.44
SPÁNVERJINN Miguel Indura-
in sigraði á níunda legg Tour
de France hjólreiðakeppninnar
og náði auk þess forystu í
keppninni með sigrinum.
Níundi leggur var hraðakeppni,
hjólaðir voru 59 kflómetrar í
norðaustur Frakklandi þar sem
hver og einn keppandi keppti
við klukkuna, og kom Indurain
í mark rúmum tveimur mínútu
á undan næsta manni, þrátt
fyrir að hafa þurft að skipta um
hjól 7 km frá endalínunni eftir
að dekk sprakk.
Índurain var í 27. sæti á heildar-
tíma fyrir legg gærdagsins en
góð frammistaða hans í hraða-
keppninni fleytti honum alla leið
upp í það fyrsta, og klæðist hann
því gulu treyjunni á morgun.
Heimsmeistarinn ítalski Gianni
Bugno varð annar í hraðakeppn-
inni, tveimur mínútum og ellefu
sekúndum á eftir Spánveijanum,
og Hollendingurinn Eric Breukink
var þriðji ellefu sekúndum á eftir
Bugno.
Indurain hefur nú forskot upp á
eina mínútu 35 sekúndur á næsta
mann í keppninni, og var mjög hissa
á að hafa náð svona góðu forskoti.
„Ég kom sjálfum mér mjög á óvart.
Þetta var mjög erfið hraðakeppni,
margar hæðir og daiir og veðrið
var langt frá því að vera fullkomið," sagði
Indurain.
Ekkert verður keppt í dag meðan kepp-
endur færa sig niður í Alpana þar sem
keppni í fjöllunum tekur við. Tíundi legg-
ur verður hjólaður á morgun, en þá verða
hjólaðir 204 kílómetrar.
Pamevik bestur í Skotlandi
SVÍINN Jesper Parnevik sigraði nokkuð óvænt á Opna skoska
meistaramótinu í golfi sem lauk um helgina. Parnevik lék mjög
vel og tryggði sér rétttil þátttöku á Opna breska mótinu sem
hefst f vikunni á konunglega St. George og þar telur hann sig
jafnvel eiga möguleika.
Þegar ég byija að leika vel, leik
ég oftast vel í nokkurn tíma
þannig að ég tel mig eiga mögu-
leika á að gera góða hluti á St.
George," sagði Pamevik eftir sigur-
inn í Skotlandi. Hann var að vonum
kátur með sigurinn og bætti bros-
andi við: „Það fer reyndar allt eftir
því hversu lengi og vel ég held
uppá þennan sigur!“ sagði hann en
þetta var fyrsti sigur hans á stór-
móti í þau átta ár sem hann hefur
keppt á mótaröðinni. „Ég gæti jafn-
vei komið of seint á teig, það er
aidrei að vita,“ sagði Svíinn.
KAPPAKSTUR
Hinn 28 ára gamli Svíi hafði sjö
högga forystu fyrir síðasta hring
og þaggaði strax niður í efasemda-
röddum með því að fá fugl á tveim-
ur fyrstu holunum. Þrátt fyrir nokk-
urt bakslag á nokkrum brautum
hafði hann níu högga forystu þegar
fjórar holur voru eftir. Payne Stew-
art saxaði örlítið á Svíann undir
lokin en sigurinn var þó öruggur.
„Það var erfitt að einbeita sér á
síðustu holunum. Ég var búinn að
sigra, en þó ekki,“ sagði hann.
„Þetta er mjög mikilvægt fyrir
mig því hingað til hef ég verið mjög
Efstu menn
Hér á eftir fer listi yfir efstu menn
á Opna skoska meistaramótinu. Kylf-
ingamir eru breskir nema annað sé
tekið fram.
271 - Jesper Pamevik (Svfþjóð)
....................64 66 70 71
276 - Payne Stewart (Bandar.)
....................71 69 67 69
278 - Gary Orr (70 72 72 64), Jose
Rivero (Spáni)(77 66 68 67)
279 - Paul Way (69 74 70 66), Sam
Torrance (73 65 71 70)
281 - Christy O’Connor, yngri (ír-
landi) (71 70 70 70)
282 -Roger Chapman, Mark Roe,
Robert Lee, Gary Evans og
Sandy Lyle.
283 - Peter Senior (Ástralíu), Steven
Richardson, Santiago Luna
(Spáni).
óþolinmóður spilari. Ef ég hef þurft
að þrípútta hefur það haft áhrif á
mig allan hringinn, en núna lét ég
hverri holu nægja sína þjáningu,“
sagði Parnevik sem lék á 64-66-70
og 71 höggi. Hann leiddi allan tím-
ann og sagði að sig hefði dreymt
um sigurinn fyrir síðasta hring.
„Mig dreymdi þetta í nótt og fugl-
arnir tveir á fyrstu tveimur holun-
um voru ekki slæm byijun,“ sagði
hann.
Parnevik var ákveðinn í að halda
ærlega uppá sigurinn með unnustu
sinni, Miu. „Sem betur fer leikur
hún ekki golf. Það er nóg að annað
okkar sé „ruglað“. Maður verður
„ruglaður" á að leika golf og það
eru ekki mjög margir kylfmgar sem
eru fullkomlega eðlilegir," sagði
Svíinn.
Prost stefnir á fjórða
heimsmeistaratitilinn
ALAN Prost hefur nú góða
stöðu í stigakeppninni um
heimsmeistaratitilinn íkapp-
akstri eftir sigurinn í Breska
kappakstrinum á sunnudaginn.
Prost hefur nú tuttugu stiga
forskot á helsta keppinaut sinn
Ayrton Senna, er með 67 stig
á móti 47 stigum Senna.
Sigur Prosts í Silverstone, þar
sem Breski kappaksturinn er
haldinn, var hans fimmtugasti
Grand Prix sigur. Félagi hans í
Williams liðinu, Bretinn Damon
Hill, ætlaði sér sigur á heimavelli
og hafði forystu lengi vel, en varð
að hætta keppni vegna vélarbiiunar
þegar keppnin var meira en hálfn-
uð. Hill hefur fjórum sinnum á
þessu keppnistímabili orðið í öðru
sæti í Grand Prix keppni, og var
að vonum svekktur eftir að hafa
þurft að hætta keppni. „Ég er alveg
tómur,“ sagði Hill. „Maður gerir
allt rétt, reynir að hafa allt hjá sér
fullkomið en þá klikkar eitthvað
annað,“ sagði Hill. „Hann átti virki-
lega skilið að vinna þessa keppni,"
viðurkenndi Prost. „Þetta var fímm-
tugasti sigurinn en ég hefði kosið
að ná honum við aðrar kringum-
stæður. Ahorfendur urðu fyrir mikl-
um vonbrigðum er Hill hætti
keppni," sagði Prost.
Prost tekiö sem þjóöhetju
En Prost var tekið sem þjóðhetju
er hann kom heim til Frakklands í
gær eftir sigurinn, og flest blöð
voru uppfull af fréttum af honum.
Hann kom fram í sjónvarpi og sagði
að ekki væri tímabært að bera hann
saman við Argentínumanninn og
kappaksturshetjuna Juan-Manuel
Fangio, sem á sínum tíma varð
fímm sinnum heimsmeistari. „Ég
hef orðið heimsmeistari "þrisvar
sinnum, og stefni nú að fjórða titlin-
um. Núna er ég með tuttugu stiga
forskot í stigakeppninni um heims-
meistaratitilinn, en það forskot get-
ur horfið í tveimur keppnum og því
þarf ég að fara variega."
Alþjóða kappaksturssambandið
mun funda nk. fimmtudag og föstu-
dag, og þar verða teknar fyrir ásak-
anir um að nokkrir kappakstursbíl-
ar, þar á meðal frá Williams liðinu,
hafi notað ólöglegt eldsneyti. Þá
hefur orðrómur verið í gangi um
að Prost verði sviptur sigrinum í
Spánska kappakstrinum vegna
málsins. Lítið sem ekkert var
minnst á það í fjölmiðlum í Frakk-
landi.
HJOLREIÐAR / TOUR DE FRANCE
KNATTSPYRNA / FRAKKLAND
Þaö er ekki eins mlklll fögnuöur í herbúðum leikmanna Marseille þessa dagana eins og þegar þeir fögnuðu
Evrópumeistaratitlinum í Múnchen á dögunum með því að leggja AC Milan að velli.
Leikmaður Marseille
viðurkenndi að
hafa greitft mútufé
Frakklands- og Evrópumeistarareiga á hættu
að verða dæmdirtil að leika í 2. deild
JEAN-JACQUES Eydelie, miö-
vallarleikmaður hjá Frakk-
lands- og Evrópumeisturum
Marseille í Frakklandi, breytti
framburöi sínum f gær og við-
urkenndi að hafa haft milli-
göngu um aö greiða þremur
leikmönnum Valenciennes
mútufé fyrir deildarleik félag-
anna í maí sem leið. Rannsókn
málsins er ekki lokið, en Mar-
seille á á hættu að verða dæmt
til að leika í 2. deild.
Eydelie hafði haldið fram sak-
leysi sínu í tvær vikur, en
vegna ásakana þremenninganna
hefur hann verið í varðhaldi, síðan
hann var bendlaður við málið. Um
helgina skrifaði hann rannsóknar-
dómara málsins bréf, sem gaf fyrir-
heit um játningu, og fimm tíma
fundur þeirra í gær var árangurs-
ríkur.
De Montgolfier, saksóknari,
sagði að sannað væri að grunur um
meistar mútur hefði reynst á rökum
reistur. Eydelie hefði ákveðið að
segja sannleikann eftir að eiginkona
hans, sem fór huldu höfði eftir
handtöku hans og gaf sig ekki fram
fyrr en um helgina, greindi lögregl-
unni frá því að Eydelie hefði verið
milligöngumaður í málinu að kröfu
Jean-Pierre Bemes, framkvæmda-
stjóra Marseille. Bernes er í varð-
haldi og hefur neitað öllum ásökun-
um.
Eiginkona eins leikmanns Va-
lenciennes hafði áður sagt að Eyd-
elie hefði látið sig fá umslag með
250.000 frönskum frönkum (liðlega
þijár millj. kr.), en leikmaðurinn
viðurkenndi ekki sekt sína fyrr en
eftir heimsókn eiginkonu sinnar í
fangelsið um helgina.
Eiginkonan óskaði þegar eftir
lögregluvernd, en leikmaðurinn
gerir ráð fyrir að sleppa úr varð-
haldinu í dag.
Fram kom hjá Eydelie að víða
væri pottur brotinn í franskri knatt-
spyrnu og komu ummæli hans á
óvart. „Okkur brá við að heyra
margt af því sem hann sagði,“ sagði
De Montgolfier.
Franska knattspyrnusambandið
hefur sagt að verði sekt sönnuð
verði tekið hart á málinu. Ekkert
verður samt aðhafst fyrir 24. júlí,
þegar deildin hefst á ný, og byijar
Marseille því í 1. deild, en á á hættu
að verða dæmt í 2. deild.
í gær var einnig greint frá öðru
ámóta máli. Tveir leikmenn
Grenoble, sem leikur í 3. deild,
sögðu að þeim hefðu verið boðnir
40.000 frankar (tæplega hálf millj.
kr.) fyrir að leika illa gegn Lyon-
Duchere. Leiknum lauk með marka-
lausu jafntefli, sem nægði Lyon-
Duchere til að flytjast upp um deild,
en af því varð samt ekki, þar sem
franska knattspyrnusambandið
sagði að aðstæður félagsins og fjár-
hagsleg staða fullnægðu ekki þeim
kröfum, sem gerðar væru til at-
vinnumannaliða. Félagið neitar
ásökunum um mútur, en rannsókn
heldur áfram.
FOLX
■ BRIAN Deane gekk í gær til
liðs við enska úrvalsdeildarliðið Le-
eds United, og greiddi félagið fyrir
hann 2,7 milijónir punda, eða tæpar
290 milljónir króna.
Deane lék með
Sheffild United, og
sögðu tveir Stjórnar-
menn hjá félaginu
af sér í kjölfar sölunnar.
■ SHEFFIELD Vnited fékk þó
betra tilboð í leikmanninn en Leeds
bauð, en það kom frá aðalkeppinaut- '
unum í Sheffield Wednesday, sem
bauð 3 milijónir punda í kappann.
Brian Deane hafði þó meiri áhuga
á að fara til Leeds, enda er það
heimaborg hans.
■ SHEFFIELD Wednesday er
hins vegar umhugað um að fá til
sín nýjan leikmann, og fastlega er
búist við að liðið kaupi Des Walker
frá Sampdoria á Ítalíu, fyrir um
267 milljónir króna. Walker verður
að sætta sig við kauplækkun ef
hann fer aftur heim tii Englands,
en hafði um tvær og hálfa milljón
króna í laun á viku hjá Sampdoria.
Wednesday getur aðeins boðið hon-
um rúmar sexhundruð þúsund krón-
ur í vikulaun.
M GLENN Roeder hefur sagt upp
stöðu sinni sem framkvæmdastjóri
hjá 3. deildarliðinu Gillingham, og
tekið við sama starfi hjá 1. deildarl-
iðinu Watford. Hann tekur við
starfi Steve Perrymans sem fór til
Tottenham Hotspurs sem aðstoð-
arframkvæmdastj óri.
■ MERVYN Day, sem verið hefur
varamarkvörður Leeds United und-
anfarin ár, hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri hjá 3. deildar liðinu
Carlisle United, og á hann jafn-
framt að leika með félaginu.
■ ORÐRÓMUR hefur verið í
gangi um að Steve Bould, varnar-
maður hjá Arsenal, sé á leið til
Wolverhampton Wanderers sem
leikur 5 1. deild.
■ KEITH Burkinshaw hefur tek-
ið við framkvæmdastjórastöðunni
hjá WBA eftir að Ossie Ardiles
yfírgaf félagið og fór til Totten-
ham. Hann var aðstoðamaður Ar-
diles hjá WBA, og maðurinn sem
árið 1978 fékk Ardiles til að koma
tii Englands frá Argentínu til að
leika knattspyrnu þar.
■ ALAN Sugar stjórnarformaður
Tottenham er enn að taka til í
herbúðum félagsins eftir vandræðin -
með Terry Venables. Nú hefur
Jonathan Crystal, lögfræðingur og
starfsmaður hjá félaginu, sagt starfi
sínu lausu, en hann var vinur Vena-
bles.
■ TOTTENHAM hefur lent í
vandræðum með nýuppgerða stúku
því þurrafúi hefur gert vart við sig
í tréverki í austurhluta hennar.
Framkvæmdir við stúkuna kostuðu
um einn milljarð og nú bætast rúm-
lega fimmtíu milljónir við, því rífa
þarf upp 5000 sæti til að komast
fyrir fúann.
■ FJÖGURRA liða mót er fyrir-
hugað á White Hart Lane í byijun
ágúst, þar sem auk Tottenham
leika lið Chelsea, Lazio frá Ítalíu'
og hollenska liðið Ajax. Ekki er
búist við að viðgerð verði lokið á
sætunum fimmþúsund fyrir þetta
mót, en iðnaðarmennirnir hafa lofað
að völiurinn verði að fullu tilbúinn
þegar Tottenham leikur fyrsta leik
sinn í úrvalsdeildinni næsta keppn-
istímabil, gegn Arsenal 16. ágúst
nk.
Frá Bob
Hennessy
ÍEnglandi
Maradona hótar að leysa frá skjóðunni
Diego Maradona hefur í hyggju
að gera heimildarkvikmynd
um sjálfan sig. Hann segir að
engu verði sleppt og hótar að
nafngreina menn, sem neyttu
kókaíns eða gera það enn og sölu-
menn. „Ég ætla að segja frá öllu,
sem ég veit um kókaínneytendur
og sölumenn efnisins. Ef til vill
kemur þetta mér í vandræði, en
Argentínumenn fá að heyra sann-
leikann."
Maradona sagðist ætla til Kúbu
á næstunni, þar sem hann yrði
með í knattspymuleik, sem yrði
leikinn til að mótmæla viðskipta-
banni Bandaríkjanna. Hann sagð-
ist þurfa ða gera eitthvað fyrir
Kúbu eftir að hafa verið þar sem
gestur Fidels Castros 1987. Við-
skiptabannið kæmi sérlega illa
niður á börnum, sem væru án
æskilegar fæðu fyrir vikið „og
enginn segir neitt. Við ætlum að
segja umheiminum að Kúba er
til,“ sagði Maradona.