Morgunblaðið - 13.07.1993, Síða 2

Morgunblaðið - 13.07.1993, Síða 2
2 C MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 13 JÚLÍ 1993 Tour de France hjólreiðakeppnin í ár hófst laugardaginn 3 júlí í borginni Le Puy du Fou og lýkur sunnu- Æjm daginn 25. júlí, í París. / Þátttakendur eru 180 / og munu þeir hjóla - ^ samtals 3.800 km K oguppí 2.802 m / "'C’W yfir sjávarmáli /HyonJjj í Ölpunum. / Heildarverö- / \ Vj launaféð / ? ' Jp erum27 / , . / Forystusauðurinn hverju sinni hjólar í gulu skyrtunni Forkeppni 3. júlí, 6.8km 1 4. júlí 215 km 9 1 2 5. júlí 227,5 10 1 3 6. júlí 189,5 11 1 — Hraðakeppni liða —SSg .... Hraðakeppni einstaklinga O Upphafsstaðir leggja • Upphafs- og endastaðir leggja REUTER TOUR DE FRANCE hjólreiðakeppnin 1993 I SKÚLI Ágústsson sigraði án forgjafar í Opna Mitsubishi mótinu í golfi sem haldið var á Jaðarsvelli á Akureyri um helgina. Verðlaunin á mótinu voru gefín af Heklu og Heldi á Akureyri, en Skúli er ein- mitt framkvæmdastjóri og einn eig- enda Höldurs, og tók því við verð- laununum nánast úr eigin hendi. - ■ EYJÓLFUR Ágústsson, sem er bróðir Skúla og starfar einnig hjá Heldi, tók líka þátt en árangur hans er ekki í frásögur færandi. Hins veg- ar datt hann í lukkupottinn þegar dregnir voru út fjórir þátttakendur í happdrættinu á mótinu. Hann hirti þar einn vinninginn, og þvi má segja að Höldur hafí ekki þurft að sjá á bak öllum verðlaununum sem fyrir- tækið gaf til keppninnar. ínémR FOI_K ■ ZORAN Micovic, sem lék með Fylki, er farinn frá félaginu — til Tindastóls. ■ FIAT, sem hefur verið aðal- styrktaraðili ítalska knattspyrnufé- lagsins Juventus, hefur tilkynnt að fyrirtækið mun ekki styrkja Juvent- us eins mikið og áður, en mikill sam- dráttur er í bifreiðaiðnaði ■ SPARKFRÆÐINGAR í Þýska- landi segja að Köln eigi aðeins eina stjömu í herbúðum sínum. Það sé þjálfarinn Morten Olsen, en hann tekur þátt í æfingum liðsins á fullum krafti. ■ GAY Whittingham, sem skoraði 47 mörk fyrir Portsmouth sl. keppn- istímabil og hefur skorað 93 mörk á fjórum keppnistímabilum fyrir Portsmouth, hefur skrifað öllum framkvæmdastjórum úrvalsdeildarl- iðanna í Englandi bréf, þar sem hann tilkynnir að hann sé til þjón- ustu tilbúinn. ■ WHITTINGHAM, sem er 28 ára, fyrrum hermaður, hætti í hern- um fyrir flórum árum til að ieika knattspyrnu — hélt þá með skot- skóna sína til Portsmouth. ■ EINAR Jóhannsson varð i fimmta sæti á alþjóðlegri keppni í þríþraut, sem fór fram við Köln í Þýskalandi um helgina. Þijúhundr- uð keppendur tóku þátt í keppninni. Einar fékk tímann 2:23,40 kls. í flokki 30-35 ára, en sundmaðurinn Ragnar Guðmudnsson varð í sjötta sæti í flokki 20-25 ára með tímann 2:28,06 kls. HÁTTVÍSI Islensk knattspyrnuforysta er al- mennt vel á verði, þegar íþrótt- in er annars vegar. Uppbygging á knattspymuvöllum talar sínu máli, góð lið bera með sér markvissa þjálfun og öflugir stuðningsmanna- hópar eru til vitnis um gott starf. íslensk knattspyma nýtur þeirrar sérstöðu að vera ekki í samkeppni við aðrar íþróttir og því er sérstaklega mikilvægt að vera vel á varðbergi varðandi allt, sem viðkemur grein- inni með framfarir í huga. Fyrir nokkrum árum bar stund- um á miklum mddaskap í leikjum og eftir því var tekið að leikmenn yngri flokka fóm að dæmi þeirra eldri og beittu allra bragða. Alþjóða knattspymusambandið brást við með sérstöku átaki, Fair Play, og knattspymusambönd víða um heim fylgdu því eftir. Háttvísi, höfum rétt við, vom einkunnarorð KSÍ og þeim hefur verið fylgt eftir með því að útnefna prúðasta lið 1. deild- ar karla og kvenna sem og prúð- asta leikmann 1. deildar karla og 1. deildar kvenna með reglulegu millibili á hvetju tímabili. Þetta starf hefur borið árangur. Rudda- legur leikur heyrir til undantekn- inga í 1. deild. Leikmenn, þjálfarar og forystumenn liða eru þess með- vitaðir að háttvísi er til framdrátt- ar, en fólskulegur leikur til þess eins fallinn að skemma fyrir. Knattspyrnuforystan hefur tekið sig á hvað þetta málefni varðar og er það vel, en sama verður ekki sagt um alla stuðningsmenn. Reyndar hagar mikill meiri hluti sér óaðfinnanlega, en svörtu sauð- imir eru of margir og þá ber að uppræta. Sem betur fer felst vandamálið ekki í ofbeldi og djöful- gangi eins og víða ber á erlendis, heldur er frekar um að ræða dóna- lega, ókurteisa og óviðeigandi framkomu gagnvart mótheijum, dómara, línuvörðum ogjafnvel öðr- um áhorfendum. Viðkomandi eru sjálfum sér verstir með fyrmefndri framkomu, en þeir geta líka skaðað heimaliðið hveiju sinni og þannig stuðlað að eyðileggingu, váldið tjóni, sem erf- itt getur reynst að bæta. Félögin vita af hættunni og for- ráðamenn þeirra beina gjarnan orð- um sínum til áhorfenda, biðja þá vinsamlegast um að halda sig á mottunni og fara ekki inná völlinn eftir leik, því það geti haft heima- leikjabann í för með sér. Þessi hátt- ur hefur augljóslega haft áhrif, en dónaskapur á pöllunum er enn við líði. Eitt dæmi. HK hefur mjög svo frambærilegu liði á að skipa og leikmennirnir stóðu sig vel gegn ÍA í bikarkeppninni í liðinni viku, en sama verður ekki sagt um einn ákafan stuðningsmann heima- manna. Hann átti vægast sagt bágt, en það sem hann lét frá sér fara verður ekki haft eftir. í landi kvartana er brýnt að líta á björtu hliðamar og í því sam- bandi er knattspyman nærtækt dæmi. Hún er hin besta skemmtun og þar sem annars staðar kostar háttvísin ekki neitt. Áhorfendur leggja mest af mörkum með því að þagga á vinsamlegan hátt niður í svörtu sauðunum. Þeir skilja áður en skellur í tönnum. Steinþór Guðbjartsson Áhorféndur geta helst þaggað nidur í svörtu sauðunum á leikjum Hvers vegna fór PETUR BIÖRN JÓNSSON með skotskóna útá land? Ævintýra- þráin kalladi LEIKMENN Leifturs á Ólafsfirði hafa verið í sviðsljósinu að undanförnu — eru í öðru sæti í 2. deildarkeppninni og komnir í 8-liða úrslit fbikarkeppninni, þar sem þeir leika gegn Keflvík- ingum í Keflavík. Með liðinu leikur sóknarleikmaður sem hóf knattspyrnuferil sinn í Svíþjóð sex ára. Það er Pétur Björn Jónsson, sonur Jóns Péturssonar, fyrrum landsliðsmann úr Fram, sem lék með Jönköping f Svíþjóð á árum áður. Eftir Sigmund Ó. Steinarsson Pétur Bjöm, sem er 21 árs, lék í yngri flokkunum með Fram, fór síðan til Austra á-Raufarhöfn, er hann var í 2. flokki og þjálfaði og lék með Austra í 4. deild, en síðan fór hann til ÍR, en í fyrra gekk hann til liðs við Leift- ur. 'Hvers vegna fer strákur af malbikinu út á land? „Það var ævintýraþráin sem kallaði. Mér finnst gaman að vera úti á landi og kann vel við mig á Ólafsfírði. Þar er miklu meiri stemmning í kringum Leiftur en til dæmis IR, sem er lítið félag í Reykjavík." - Eruð þið aðkomumennirnir frægir kappar á Ólafsfírði? „Við erum ekki heimsfægir, en óneitanlega vekja aðkomumenn í litlu bæjarfélagi athygli. Okkur hefur verið tekið vel og maður getur hvenær sem er gengið út á götu til að ræða við fólk.“ - Eru menn ekki að gefa ykkur góð ráð, eða þá deila á ykkuf! „Það er alltaf svo að hver maður hefur ákveðnar skoðanir. Maður skrifar ýmsar ráðleggingar bak við eyrað, en ef ég er ekki sammála þá læt ég viðkomandi heyra mínar skoðanir. Það er mjög gott fyrir knattspyrnuna á Ólafsfírði að áhuginn sé það mikill, að menn ræða mikið um knattspymuna. Auðvitað hittir maður alltaf spek- inga, sem vita allt betur — og vilja bjarga málunum á einu bretti. Það hefur gengið vel hjá okkur og á meðan það heldur áfram er öllum Ijóst að þjálfarinn er að gera rétt. A meðan halda hinir ýmsu speking- ar sér á mottunni." - Hvað er framundan hjá Pétri Birni? „Ég fer í sálfæðináni í Háskólan- um í haust.“ - Hefur þá hugsað þér að fara á ný til liðs við þitt gamla félag, Fram? „Það kemur einhverntíman að því að ég fari heim á ný — ég er Framari og verð það alltaf. Það sem ég stefni nú að í sambandi við knattspyrnuna, er að leika með Morgunblaöið/Svavar B. Magnússon. Pétur Björn Jónsson — einn af „sjómönnunum“ frá Ólafsfirði, sem hefur skorað sjö mörk í þremur bikarleikjum í sumar. tuttugu og eins árs landsliðinu. Það væri gaman að fá tækifæri til að sýna sig og bera sig saman við leikmennina sem leika í liðinu.“ Eru Ólafsfirðingar tilbúnir að takast á við 1. deildarkeppnina á ný? „Já, það eru þeir svo sannarlega tilbúnir að gera. Hér eru aðstæður mjög góðar og stuðningsmanna- hópur Leifturs er stór og öflugur." - Ætlið þið ykkur 1. deildarsæti? „Já, við keppum að því. Næstu tveir leikir okkar verða erfiðir og eftir þá sjáum við hvar við stönd- um. Við Iteikum gegn Breiðablik og Stjörnunni." - Þið leikið bikarleik gegn Kefla- vík á milli. Þú stefnir að sjálfsögðu að skora í þeim leik, eins og hinum bikarleikjunum þremur? „Ég stefni að því að skora í öllum bikarleikjum og þar með talið bik- arúrslitaleiknum á Laugardalsvell- inum.“ Við hvað starfar þú á Ólafsfirði? „Það má segja að ég sé á knatt- spymuvellinum ellefu til tólf tíma á dag. Ég starfa við íþróttavöllinn fyrir hádegi, eftir hádegi þjálfa ég unglinga og á kvöldin æfi ég sjálf- ur og aðstoða við þjálfun á kvenna- flokki Leifturs. Ef ég á einhvern tíma aflögu, fer ég niður í bæ til að ræða málin, eða er heima með bók í hönd eða þá að horfa á sjón- varp.“ - Ein spurning í lokin — ertu betri knattspyrnumaður er pabbi þinn var? „Ég er bæði fljótari og leiknari með knöttinn. Styrkleikinn er sá sami í sambandi við skallabolta, en ég verð að játa að pabbi var mikill baráttumaður — fastur fyrir og harður í hom að taka. Þar hef- ur hann vinninginn."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.