Morgunblaðið - 20.07.1993, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
JHttgtmliIafeife
1993
ÞRIDJUDAGUR 20. JÚLÍ
BLAD
adidas
Verslunin Sel
Mývatnssveit
selur Adidas
Vertíðarlok í Laugardalslaug
Morgunblaðið/Kristinn
íslenska keppnistímabilinu í sundi lauk með Meistaramótinu, sem fór fram í Laugardalslaug um helgina. Bryndís Ólafsdóttir vann besta afrek mótsins, en engin
met féllu. Spennandi keppni var í 100 metra baksundi karla og sýnir myndin byrjunina. Nánar um mótið/C3 og C6.
KNATTSPYRNA
Lýsingar RÚV:
Hættvið
að hætta?
ÍÞRÓTTADEILD Ríkisútvarpsins
lýsti ekki frá leikjum í síðustu
umferð 1. deildar karla í knatt-
spyrnu, vegna þess að deildinni
var gert að halda sér innan setts
fjárhagsramma með því að
draga úr þjónustunni. Að öllu
óbreyttu verða um það bil 10
beinar lýsingar til áramótá, en
ákveðið hefur verið að endur-
skoða fyrrnefnda ákvörðun.
Ingólfur Hannesson, íþróttastjóri
RÚV, sagði við Morgunblaðið að
staðan væri einföld. Deildinni hefði
verið gert að lýsa frá HM í hand-
knattleik fyrr á árinu án þess að
fjárveiting kæmi á móti og þar sem
hún yrði að halda sér innan ákveðins
fjárhagsramma væri nauðsynlegt að
draga úr þjónustunni. „Starfsmenn
íþróttadeildar eru mjög ósáttir við
þessa stöðu, að ríkisútvarpið geti
ekki veitt hefðbundna þjónustu,"
sagði Ingólfur. RÚV lýsti frá bikar-
leikjunum í gærkvöldi og sagði Ing-
ólfur að það hefði verið mögulegt
vegna sérstakrar kostunar.
Hörður Vilhjálmsson, fjármála-
stjóri RÚV, sagði það sérstakt at-
hugunarefni, þegar hætt væri að
sinna ákveðnum viðburðum, en sér
hefði ekki gefist tími til að kanna
hvaða möguleikar væru í stöðunni.
Hins vegar yrði málið skoðað og
reynt að fínna lausn á því sem fyrst.
KNATTSPYRNA
Halldór úr leik
Halldór Áskelsson knatt-
spyrnumaður hjá Þór sleit
hásin á hægri fæti á æfingu á
föstudaginn, og mun hvorki æfa
né leika knattspyrnu næstu átta
mánuðina.
Halldór hefur átt við þrálát meiðsli
að stríða á hægri hásin og hefur
ekkert getað leikið með í sumar.
Hann hafði stefnt að því að vera
með síðari hluta mótsins, en ekk-
ert verður af því. „Ég spurði lækn-
inn hreint út hvort ég þyrfti að
hætta að leika knattspyrnu, og
hann sagði að ef aðgerðin tækist
vel ætti ég ekki að þurfa að leggja
skóna á hilluna. Ég geri mér því
þónokkrar vonir um að ég geti
spilað aftur," sagði Halldór.
Halldór Áskelsson.
Meintar mútur Marseille í Frakklandi:
FIFA skerst í leikinn
SEPP Blatter, framkvæmda-
stjóri Alþjóða knattspyrnusam-
bandsins, sagði í viðtali við
dagblað í Sviss um helgina að
ef sannaðist að Marseille f rá
Frakklandi hefði staðið fyrir
mútugreiðslum yrði félagið
sett í alþjóða bann og fengi þar
af leiðandi ekki að verja titilinn
í Evrópukeppni meistaraliða.
Blatter sagði að FIFA yrði að
gæta réttar knattspyrnunnar
og önnur sambönd eins og Evrópu-
sambandið yrðu að fara eftir því
sem FIFA segði, en hugsanlega
tæki FIFA af skarið á morgun eft-
ir að Jean-Pierra Bernes, fram-
kvæmdastjóri Marseille, hefur verið
yfirheyrður með leikmönnum Va-
lenciennes, sem hafa viðurkennt að
hafa þegið mútur frá einum leik-
manni Marseille. Leikmaðurinn hef-
ur staðfest að hann hafi unnið fyr-
ir framkvæmdastjórann, en Bernes
neitar að hafa komið nálægt mál-
inu.
Jean-Louis Levreau, varaformað-
ur Marseille, sagðist sannfærður
um að Marseille yrði með í Evrópu-
keppninni, því æðstu menn félags-
ins hefðu ekki gert neitt rangt.
„Hvað sem gerðist gerðist utan fé-
lagsins,“ sagði hann, en UEFA
veitti franska knattspyrnusam-
bandinu frest til 30. ágúst til að
tilnefna annað lið, ef sekt yrði sönn-
uð.
Blatter hafði efasemdir um
franska knattspyrnusambandið,
sagði að það hefði ekki sýnt sama
hugrekki og pólska sambandið, sem
svipti efsta liðið titlinum vegna
mútumála. „Franska sambandið
verður að taka á málinu og það
minnsta sem það getur gert er að
refsa leikmönnunum, sem hafa ját-
að að hafa átt hlut að máli.“ Hann
bætti við að FIFA myndi setja við-
komandi leikmenn í alþjóða bann
og aðspurður um hvort hann héldi
að Marseille yrði meinuð þátttaka
í Evrópukeppninni sagi Blatter:
| „Því miður, já.“
ÁTTA LIÐA ÚRSLIT BIKARKEPPNIKSÍ / C4