Morgunblaðið - 20.07.1993, Blaðsíða 2
2 C
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1993
IHIHHS
Hjólin:
Heilhjól að aftan og
þriggja teina hjól að
framan til að draga úr
loftmótstöðu
Grindin:
» Grindin er úr kolefni
og steypt í einu lagi.
Hún myndar hlíf yfir
afturhjólið til að draga
MBk. úr loftmótstööu
Stýriö:
Þri-handfanga stýri úr títan-málmi
með tölvubúnaði til gíraskiptinga
Gfraskipting:
MZS800 - Átta gíra.
Tölva i stýrinu stjórnar
smámótor i afturhjólinu
sem sér um gíra-
skiptinguna
Fremri
tannhjól:
Tvöfalt tannhjól
úr léttmálmi
Bremsur
úr léttmálmi
REUTER
HJOL I
TOUR DE FRANCE
HJOLREIÐA-
KEPPNINNI
Komin er ný gerð af Lótus-hjóli því sem
Chris Boardman keppti á til gullverð-
launa á Ólympíuleikunum í Barcelona I
fyrra. Eric Breukink, sem keppir með
spænska „ONCE“-liðinu, reyndi þetta
hjól í forkeppninni í Tour de France-
keppninni fyrr í þessum mánuði. Hjólið
er með tölvustýrða gíraskiptingu og að
öilu leyti liannað til að draga úr loftmót-
stöðu. Þessar tækniframfarir eiga að
gefa hjólreiðamanninum þriggja
sekúndna forskot á hvern kílómetra í
keppninni.
Spænska „Once“-liðið er talið
vera það næst besta f heiminum.
Helsti styrktaraðili liðsins eru
Samtök blindra á Spáni, en
happadrætti skapa þeim tekjur.
Fjárhagsáætlun liðsins hljóðar
upp á 420 milljónir kr.
■ CHRIS Nelloms frá Banda-
ríkjunum var í 2. sæti á laugardag
í 200 m hlaupi á Heimsleikum stúd-
enta. Fyrir tæplega ári var hann
nær dauða en lífi eftir að hafa orð-
ið fyrir byssuskoti. Kúlan fór í
gegnum hálsinn, braut viðbeinið og
annað lungað féll saman.
■ NELLOMS hélt forystu í hlaup-
inu, þar til 20 metrar voru í mark.
„Aðalatriðið er að geta verið með,“
sagði hann. „Ég hef hvorki styrk í
vinstri arminum né bijóstinu, en ég
ætla að reyna að styrkja mig svo
ég geti hlaupið 400 metra.“
■ HEIMSLEIKUNUM lauk í
Buffalo í Bandaríkjunum á
sunnudag. Daginn áður var Burt
Flickinger, formaður skipulags-
nefndar leikanna, fluttur á sjúkra-
hús vegna of mikils álags. Allt hef-
ur gengið á afturfótunum hjá
nefndinni. Peningar voru af skorn-
um skammti, styrktaraðila vantaði
og stærstu sjónvarpsstöðvarnar
höfðu ekki áhuga á leikunum.
■ DA VID Fox frá Bandaríkjun-
um tók í fyrsta sinn þátt í alþjóða
keppni. Hann vann til fjögurra gull-
verðlauna í sundi og setti leikjamet
í 50 m skriðsundi, 22,30. „Ég
mætti til leiks til að gera mitt
besta,“ sagði Fox, sem er 22 ára.
■ LIZ McCoIgan keppir ekki í
10.000 m hlaupi á HM í fijálsum
í næsta mánuði. Breski heims-
meistarinn er meiddur.
■ STEVE Backley, silfurhafi í
spjótkasti á ÓL í Barcelonaog fyrr-
um heimsmethafi, hefur ekki keppt
á tímabilinu vegna meiðsla og verð-
ur að sanna sig til að verða valinn
í hópinn til Stuttgart. Sama á við
um Roger Black, sem var valinn
í 4x400 m boðhlaupssveitina, sem
á titil að veija-.
■ STEVE Cram, sem var þriðji
í „draumamílunni" í Osló á dögun-
um, verður valinn til að keppa í
1.500 m hlaupi nái hann að hlaupa
undir 3.36,50 mín.
■ RUI Barros, verður ekki áfram
miðheiji Mónakó, sem er spáð góðu
gengi í frönsku deildinni á næsta
tímabili. Portúgalinn getur valið
úr fjölda tilboða í heimalandinu.
■ JOHN Buckley, leikmaður með
2. deildar liði Rotherham í Eng-
landi, sem lenti í samstuði við
mótheija í mars s.l., missti meðvit-
und og var vart hugað líf um tíma,
náði sér eftir skurðagerð á heila
og ætlaði að halda áfram þar sem
frá var horfið. Hann hóf æfingar
fyrir skömmu, en hefur nú ákveðið
að leggja skóna á hilluna.
■ BUCKLEY, sem er 31s árs,
sagðist stundum missa alla tilfinn-
ingu í vinstri armi. „Ég vil ekki
halda áfram í atvinnumennsku ef
ég er ekki fær um það,“ sagði hann.
AHUGAMENN
Margir kylfingar bíða spenntir
eftir því hvað áhugamanna-
nefndin á St. Andrews í Skotlandi
gerir í máli Jóns H. Karlssonar
úr GR. Jón hefur starfað í sumar
sem íþróttakennari á ^
golfvelli Oddfellow og
leiðbeint meðlimum
klúbbsins. Golfsamband
íslands sá eitthvað at-
hugavert við þetta og
sendi bréf til áhuga-
mannanefndarinnar í Skotlandi til
að fá úr því skorið hvort Jón er
áhugamaður eða atvinnumaður,
en reglur um slíkt eru mjög strang-
ar í íþróttinni. Menn mega til
dæmis ekki taka við verðlaunum
fyrir afrek sín í mótum nema upp
að ákveðinni upphæð. Taki vinn-
ingshafí t.d. við góðu golfsetti er
hann atvinnumaður.
Reglur þessar eru á
eru a margan
hátt gamaldags og heimskulegar
og algjör óþarfi hjá þeim sem fara
með mál golfíþróttarinnar hér á
landi að eltast við þær út í ystu
æsar. Ef menn opna augun aðeins
og líta í kringum sig sjá þeir sem
vilja að farið er í kring um reglurn-
ar víðast hvar. Ungir sænskir kylf-
ingar hafa til dæmis sagt undirrit-
uðum að þeir fái laun frá fyrirtækj-
um, með milligöngu golfsam-
bandsins þannig að þeir sleppi við
atvinnumannastimpilinn.
En aftur að máli Jóns. Hann
er íþróttakennari að mennt og
starfar sem slíkur hjá Oddfellow.
í íþróttakennaraskólanum að
Laugarvatni eru haldin tveggja
daga námskeið um golf fyrir vænt-
anlega íþróttakennara. Til hvers
ætli það sé? Jú, væntanlega til að
þeir geti miðlað af þekkingu sinni
á íþróttinni til annarra. Ef sú er
raunin þá er ansi blóðugt fyrir
íþróttakennara að mega ekki vera
kylfíngur án þess að teljast at-
vinnumaður þegar hann nýtir
þekkingu sína og menntun. Það
er undarleg stefna að þriggja
mánaða starf íþróttakennara, sem
er vel að merkja lögvemdað starfs-
heiti, gerir það að verkum að hann
teljist atvinnumaður.
Mikið var rætt um auglýsingar
á golfpokum kylfínga í kringum
síðasta landsmót og var mönnum
gert að hylja þær annars ættu
þeir á hættu að vera taldir at-
Er íþróttakennari at-
vinnumaður ef hann
nýtir menntun sína?
vinnumenn og um leið missa þeir
réttinn til að keppa á áhuga-
mannamótufn. Það er ekki verið
að ræða um mikla peninga í þessu
sambandi. Kylfingar eru aðeins að
reyna 'að fá eitthvað uppí þann
kostnað sem þeir leggja í til að
ná árangri og komast í landsliðið.
Fyrir það á að refsa mönnum. Það
er rangt.
Tímamir breytast og mennirnir
með, en reglur um áhugamennsku
í golfi breytast hægt — en breyt-
ast þó. Jack Nicklaus sagði við
undirritaðan að þegar hann var
að byija í golfí hefðu menn ekki
mátt minnast á að hugurinn
stefndi í atvinnumennsku, þá voru
þeir gerðir að atvinnumönnum.
Astandið hér á landi minnir á þessa
tíma í Bandaríkjunum og með
sama áframhaldi verða allir orðnir
atvinnumenn. Menn mega þá ekki
lengur ræða um golf og alls ekki
gefa félaganum leiðbeiningar, þá
teljast þeir atvinnumenn. Þróunin
má ekki verða þannig og það er
Golfsambandsins að hafa forystu
í málinu. Forystu sem felst í upp-
lýsingum til kylfinga en ekki elt-
ingaleik til að „góma“ þá.
Ég held að Golfsambandið ætti
að sjá í gegnum fingur sér um
hver á að teljast atvinnumaður
samkvæmt stíftistu skilgreinjngu
frá St. Andrews. GSÍ ætti frekar
að aðstoða íslenska kylfinga þann-
ig að þeir geti einbeitt sér að
íþróttinni án þess að hafa stöðugar
Qárhagsáhyggjur. Það væri miklu
giftusamara en eltast við þá sem
reyna að bjarga sér.
Skúli Unnar
Sveinsson
Hvernig fjöigar HELGISIGURÐSSON mörkum og fækkarhöggum ?
Niður fyrir
pdstnúmerið
HELGI Sigurðsson er einn af öfiugri miðherjum landsins í
knattspyrnu. Hann sprakk út með Víkingum ffyrra, sem 10
mörk í deildinni eru til vitnis um, og hefur blómstrað með
Fram í sumar. Mörkin eru orðin átta íjafn mörgum deildar-
leikjum og stefnan hefur þegar verið tekin á markakónginn,
en metið, 19 mörk, er vissulega í hættu. Helgi er iðinn við
kolann íknattspyrnunni, en ífrístundum vinnur hann hægt
og rólega að þvi að nota færri högg á golfvellinum.
Helgi er á hagfræðibraut við
Menntaskólann við Sund og
áætlar að taka stúdenstprófið
næsta vor, en
hann verður 19
EJjlr. , . ára í haust. í sum-
Stemþor . ,
Guðbjartsson ar Vlnnur hann vlð
garðyrkjustörf hjá
Borgarspítalanum, en fyrir helgi
gerði hann fyrstu þrennu sína
fyrir Fram. Hvernig leið þér, þeg-
ar þú gerðir fimmta mark Fram
og þitt þriðja í leiknum gegn
Fylki?
„Frábærlega vel. Það er ekki á
hveijum degi, sem maður nær að
gera þijú mörk í leik og ekki
skemmdi fyrir að sigurinn var
stór. Aðalatriðið er samt að liðið
geri mörk, því það verður að skora
til að sigra. Ég gæli við marka-
kóngstitilinn, en hugsa ekki um
það.“
Þið framlínumennirnir hjá
Fram náðuð vel saman á umrædd-
um leik. Er þetta að smella saman
hjá ykkur?
„Eg vona það og það verður
að gerast, því nú þegar er nógu
mikið bil í Skagann. Breytt leik-
skipulag, ég fremstur og Valdi
[Valdimar Kristófersson] og Atli
[Einarsson] fyrir aftan, gafst vel
sóknarlega og sérstaklega varnar-
lega. Það er mjög gott að hafa
þá fyrir aftan mig, því þeir spila
mjög vel fyrir mig. Nánast allt
gekk upp, en næsti leikur, gegn
KR, verður erfiður. Við fengum
aðeins eitt færi gegn KR-ingum
Morgunblaðið/Einar Falur
Helgl Sígurðsson hlúir að gróðri við Grensásdeild Borgarspítalans í
gær. Grasið á vel við hann í vinnunni sem á knattspyrnu- oggolfvöllum.
í bikarnum, en verðum að skapa
okkur fleiri og nýta þau.“
Þú virðist aldrei lenda í vand-
ræðum, en hver er erfiðasti mót-
herjinn?
„Það er rétt, ég hef aldrei misst
úr leik vegna meiðsla. Reyndar
held ég að menn séu farnir að
átta sig á því að farið er að taka
hart á ruddalegum brotum og
forðast þau þess vegna, en ef ég
sé að einhver ætlar harkalega í
mig, reyni ég að forðast óþarfa
tæklingar með því að sparka bolt-
anum í burtu og hoppa upp. Þeg-
ar ég var í Víkingi var Framarinn
Kristján Jónsson erfiðastur, en
nú slepp ég við að spila á móti
honum. Oskar Hrafn Þorvaldsson
í KR, sem reyndar er meiddur,
er því erfiðasti mótheijinn. Hann
er rosalega snöggur og það er
erfitt að hemja hann.“
Þú skorar og skorar, en í frí-
stundum reynir þú að fækka
höggunum í golfinu. Hvernig
gengur að samræma þetta?
„Golfið er áhugamál númer tvö
og ég tek það ekki eins alvarlega
og fótboltann. Golfið er skemmti-
legt og við, nokkrir strákar í
Fram, spilum útum allt okkur til
ánægju, en við höfum sótt um
inngöngu í Golfklúbbinn Kjöl í
Mosfellsbæ. Árangurinn er ekkert
sérstakur, ég er að fara 18 holurn-
ar á 110 til 115 höggum, en tak-
markið í sumar er að komast nið-
ur fyrir póstnúmerið heima, sem
er 109, og það ætti að takast.“