Morgunblaðið - 20.07.1993, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1993
C 3
SUND / MEISTARAMOT ISLANDS
Morgunblaðið/Kristinn
Bryndís Olafsdóttir vann besta afrekið á sundmeistaramóti íslands um
helgina og er hér með verðlaunin.
Æfing fyrir
Evrópumótið
- sagði Bryndís Ólafsdóttir, afreksmað-
ur mótsins, þar sem engin met féllu
Bryndís Ólafsdóttir vann besta góða veðrinu og sundfólkið var yfír-
afrekið á meistaramóti íslands leitt þó nokkuð frá sínu besta, en
í sundi, sem fór fram í Laugardals-
iaug um helgina.
Stemþár Hún 'fékk 754 stig
Guðbjartsson fyrir að synda 100 m
skrifar skriðsund á 1.00,11
mín. og fékk Páls-
bikarinn til varðveislu í ár. Þetta var
jafnframt besta afrek kvenna á
mótinu og fyrir það fékk hún Kol-
brúnarbikarinn. „Þetta var ágæt
æfíng fyrir Evrópumeistaramótið,"
sagði Bryndís við Morgunblaðið.
Arnar Freyr Ólafsson, bróðir
Bryndísar, stóð sig best hjá körlun-
um. Hann fékk 687 stig fyrir að
synda 400 m skriðsund á 4.17,17
mínútum.
Mótið var vægast sagt rislítið.
Sárafáir áhorfendur létu sjá sig í
SKOTFIMI
Haglabyssumót:
AHreð
sigraði
aftur
Alfreð K. Alfreðsson, Skotfélagi
Reykjavíkur, sigraði á lands-
móti í haglabyssu á velli Skotfélags
Suðurlands um helgina, en 25 kepp-
encjur frá fímm félögum mættu til
leiks. Mótið gaf stig til bikarmeist-
ara íslands og er Alfreð efstur með
fullt hús stiga, 45 stig, eftir þrjú
mót. Hann skaut 86 dúfur um helg-
ina og þar af 25 af 25 mögulegum
í einni hrinunni.
Kári Grétarsson, Skotíþróttafé-
lagi Hafnarfjarðar, var í öðru sæti
með 84 dúfur, en hann er annar í
stigakeppninni með 44 stig.
Skotfélag Reykjavíkur sigraði í
Iiðakeppninni, Skotíþróttafélag
hafnarfjarðar var í öðru sæti og
sveit Skotfélags Keflavíkur í þriðja
sæti.
engin met féllu. Þetta var síðasta
mót keppnistímabilsins og greinilegt
að fyrir flesta skipti það litlu sem
engu máli. Fólkið, sem stóð sig svo
vel á Smáþjóðaleikunum á Möltu í
lok maí, miðaði undirbúninginn við
það mót, en nú var ekki að neinu
að keppa eins og einn þjálfarinn
orðaði það. Reyndar kom fram hjá
keppendum að til að hefja mótið á
stall væri æskilegt að það væri und-
anfari einhvers meira, eins konar
úrtökumót fyrir stærri viðburði.
Þess má geta að unglingameist-
arar fengu verðlaunapeninga aðeins
til að skila þeim aftur strax eftir
afhendingu enda voru þeir fyrir aðr-
ar greinar._________________
■ Úrslit/C6
■ ROY Keane var seldur frá Nott-
ingham Forest til Manchester
United um helgina. kaupverðið var
3,750 millj. pund (liðlega 400 millj.
kr.) og hefur aðeins einu sinni verið
greidd hærri upphæð fyrir leikmann
á milli breskra liða.
■ KEANE mætti á fyrstu æfing-
una hjá United á laugardag, en lið-
ið tekur þátt í fjögurra liða móti í
Suður-Afríku í næstu viku.
■ BLACBURN reyndi að kaupa
Keane, en eftir að tilboð kom frá
United kom ekki annað til greina
hjá honum. „Ég hef verið stuðnings-
maður félagsins frá því ég var gutti,“
sagði leikmaðurinn, sem Forest
keypti frá Cobh Ramblers fyrir 25
þús. pund (tæplega 2,7 millj. kr.).
■ BRIAN Laudrup hefur verið
ánaður til AC Milan frá Fiorentina
í 12 mánuði. Laudrup er ætlað að
koma í staðinn fyrir Ruud Gullit
hja ítölsku meisturunum.
■ FIORENTINA, sem féll í 2.
deild og leikur þar í fyrsta sinn í
meira en hálfa öld, gerir ráð fyrir
að fara aftur upp og ætlar að halda
húsinu, sem Laudrup bjó í í þeirri
von að hann komi aftur.