Morgunblaðið - 20.07.1993, Qupperneq 8
JNÉHP
GOLF / OPNA BRESKA MEISTARAMOTIÐ
HákaHinn var frábær
GREG Norman komst á spjöld
sögu Opna breska meistara-
mótsins um helgina með því að
sigra á mótinu. Þetta er aðeins
annar sigur „hvíta hákarlsins"
frá Ástralíu á stóru mótunum,
hann sigraði á Opna breska árið
1986. Norman léká 13 höggum
undir pari vallarins og tveimur
höggum betur en Nick Faldo.
Fyrir vikið fékk hann um 16
milljónir króna í verðlaun.
Normann hefur verið lengi meðal
fremstu kylfinga í heimi og
oft hefur hann verið nærri því að
sigra á stóru mótunum, en síðustu
holurnar hafa oft reynst honum erf-
iðar. Að þessu sinni gerði hann eng-
in mistök og sigurinn var hans. Nick
Faldo, sem hafði titil að veija, sagði
að Norman hefði leikið frábærlega
og hann hefði aldrei átt raunveru:
lega mörugleika á að ná honum. í
sama streng tók Gene Sarazen, sem
er nú orðinn 91 árs en fylgist enn
vel með golfinu. „Þetta var mjög
trúlega besta golf sem ég hef séð í
þau sjötíu ár sem ég hef fylgst með
golfi,“ sagði hann. Bernhard Langer
sagðist hafa orðið vitni að besta
golfi sem hann hefði séð.
Norman lék síðasta hringinn á 64
höggum og setti nokkur met í 122ja
ára sögu mótsins. Enginn meistari
hefur leikið síðasta hringinn á eins
fáum höggum, enginn hefur leikið á
færri höggum samanlagt og hann
er fyrstur til að leika alla hringina
á undir 70 höggum. Hann lék af
miklu öryggi á sunnudaginn. Allt frá
því hann fékk fugl á fyrstu holu og
þar til á flötinni á 17. gekk allt eins
og í sögu og hann þurfti ekki einu
sinni að líta á skortöfluna - hann
Langþráður koss
Greg Norman hefur beðið lengi eftir að fá að kyssa bikarinn sem fylgir sigri í
Opna breska meistarmótinu. Eini sigur hans á stóru mótunum var árið 1986,
í Opna breska. Hákarlinn frá Ástralíu lék mjög vel og segir sjálfur að hann
hafi aldrei leikið betur.
vissi að hann var með forystu. Á
17. missti hann örstutt pútt og „það
var í eina skiptið sem ég fékk aðeins
f magann á þessum hring,“ játaði
Norman.
„Þetta er trúlega besti hringur
sem ég hef leikið um ævina, ég held
það sé ekki nokkur vafi á því. Ég
hef -aldrei áður farið heilan hring
þar sem öll högginn heppnast full-
komlega. Þetta var fullkomið," sagði
Norman.
Árið 1986 var Norman með for-
ystu fyrir síðasta hring á öllum íjóru
stóru mótunum en tókst ekki að
sigra, nema á Opna breska. „Von-
brigðin sem ég hef orðið fyrir á loka-
degi stóru mótanna undanfarin ár
eru enn í kollinum á mér, en ég er
óskaplega feginn að mér tókst að
sigra núna. Það sannar vonandi fyr-
ir mér og öðrum að ég get þetta
ennþá,“ sagði Normann eftir sigur-
inn.
Norman tapaði fyrir Bob Tway á
PGA-mótinu 1986 og á Masters fór
allt á sömu lund þegar hann tapaði
fyrir Larry Mize. Allt þar til í fyrra
sagði Norman að þetta hefði ekki
haft nein áhrif á sig, en í sjónvarps-
viðtali í fyrra losnaði um málbeinið.
„Ég hafði greinilega geymt þetta
með mér allan þennan tíma án þess
þó að gera mér grein fyrir því að
þetta hafði mikil áhrif á mig. Eftir
að ég játaði þetta fyrir sjálfum mér
og áttaði mig á hlutunum hefur mér
gengið betur.“
Sjálfstraustið virðist komið í lag
því eftir sigurinn sagði hann: „Ef
ég játa að Nick [Faldo] sé númer
eitt í golfínu í dag þá er ég um leið
að segja að hann sé betri en ég. Það
viðurkenni ég ekki - aldrei. Ég veit
að ég er bestur!"
FOLK
■ ÁSGEIR Nikulásson sigraði í
2. flokki hjá Nesklúbbnum. Asgeir
varð sextugur daginn eftir að mótinu
lauk, á sunnudaginn, og hafði því
æma ástæðu til að fagna.
■ KJARTAN L. Pálsson fyrrum
landsliðseinvaldur í golfi og farar-
stjóri hjá Samvinnuferðum tók þátt
í mótinu á Nesinu og keppti í 1.
flokki. Hann lék á 320 höggum og
sigraði en tilkynnti fyrir síðasta hring
að hann myndi ekki taka við verð-
launum ef hann ynni. Framkvæmda-
stjóri klúbbsins, Pétur Orri Þórðar-
son hlaut því fyrsta sætið.
■ FEÐGAR komu mikið við sögu
í Borgarnesi. Pabbinn, Stefán Har-
aldsson sigraði í 1. flokki og strák-
amir hans stóðu sig líka vel. Harald-
ur Már sigraði í meistaraflokki og
Hlynur Þór varð annar í unginga-
flokki.
■ KEPPNIN í meistaraflokki hjá
Golfklúbbnum Kyli í Mosfellsbæ var
spennandi og úrslitin réðust ekki
fyrr en á síðustu holu. Jón Haukur
Guðlaugsson hafði haft forystu alla
þijá dagana en Ragnar B. Ragnars-
son náði eins höggs forystu þegar
þijár holur vom eftir.
■ JÓN Haukur jafnaði aftur og
þegar kom á síðustu holu vom þeir
jafnir. Ragnar setti niður með lag-
legu pútti og sigraði.
■ EINHERJAR, þeir sem farið
hafa holu í höggi um ævina, halda
sitt árlega meistaramót í Leirunni
hjá Golfklúbbi Suðurnesja á laug-
ardaginn, daginn fyrir landsmót.
Ræst verður út frá kl. 9.30. Fróðlegt
verður að fylgjast með hversu marg-
ir fara holu í höggi þann daginn.
■ WAYNE Grady frá Ástralíu lék
fyrri níu holurnar mjög vel á þriðja
degi Opna breska. Þá lék hann á
30 höggum, eða fímm höggum undir
parinu og er það besti árangur kylf-
ings á fyrri níu á St. George golf-
vellinum.
■ GRADY hefur búið í Flórída
eins og svo margir kylfíngar. Hann
hefur tekið þátt í mótaröðunum í tíu
ár en ætíar að taka þátt í mótaröð-
inni í Japan frá og með 1995. Þá
getur hann flutt aftur til Ástralíu
og skotist yfír til að keppa.
MEISTARAMOT KLUBBANNA
Systkinin sigruðu
Systkinin Siguijón og Herborg
Amarsböm sigmðu í meist-
aramóti Golfklúbbs Reykjavíkur,
Siguijón lék á 297 höggum og
Herborg á 307. „Þetta var frábært,
vikilega gaman að fara heim með
verðlaunin," sagði Herborg eftir
sigurinn og bætti við þegar spurt
var hvort þau væm bestu kylfingar
<5R; „Já, ætli það ekki. Jú, við emm
greinilega best.“
„Þetta var í járnum fyrstu þijá
dagana en svo hrökk ég í gang og
sigurinn var í raun aldrei í hættu
síðasta daginn. Síðasta daginn lék
ég vel, nema hvað ég notaði 33
pútt, en hina dagana er ég ekki
ánægður með. Það létti yfír manni
að leika vel síðasta daginn, það er
gott svona fyrir landsmótið," sagði
Siguijón.
„Þetta var hörkukeppni og skýr-
ist ekki fyrr en á 17. holu síðasta
daginn. Þá fékk Ragnhildur 6 en
ég par og þá andaði maður léttar.
Ég hef spilað vel síðustu vikurnar
og hlakka mikið til landsmótsins.
Erfíðar og skipulegar æfíngar hjá
mér virðast vera að skila sér. Ég
er reyndar orðin dálítið þreytt en
það gleymist þegar vel gengur,“
sagði Herborg.
I 4. flokki gerðist það að sá sem
lék á fæstum höggum gleymdi að
skrifa undir skorkortið sitt síðasta
daginn og var því dæmdur úr
keppni. í piltaflokki lék Torfí Steinn
Stefánsson mjög vel síðasta daginn,
kom inn á 74 höggum. Hann var
sex höggum á eftir Styrmi Guð-
mundssyni fyrir síðasta dag en
Styrmir lék illa og Torfí vann með
níu höggum.
Þar kom að því að Þorsteinn sigraði
að var kominn tími til að sigra
á meistaramóti. Þó skömm sé
' frá að segja hef ég aðeins unnið
I einu sinni áður, árið
' Sigfús Gunnar 1988’“ s*gði. Þor-
Guðmundsson steinn Hallgrimsson
skrífar sem sigraði á meist-
aramótinu í Eyjum.
„Ég hef ekki staðið mig nógu
vel á þessum mótum í gegnum ár-
in. Ég átti von á mun meiri keppni
núna en það var mjög slök spila-
mennska hjá hinum þannig að þetta
var nokkuð öruggt hjá mér. Ég
setti mér það markmið að komast
í 0,0 í forgjöf og það tókst og er
ég kátur með það, en hefði þó vilj-
að ná betra skori á öðrum og þriðja
degi. Það var reyndar dálítð erfitt
í þessum vindi, hann kom allstaðar
að og því var maður ekki klár á
hvað maður átti að gera hveiju
sinni.
Völlurinn hefur trúlega aldrei
verið betri en um þessar mundir
og nú bíða menn bara spenntir eft-
ir nýju holunum níu sem verið er
að bæta við. Landsmótið er næst á
dagskrá hjá mér og þar stefnir
maður á verðlaunasæti,“ sagði Þor-
steinn, en hann er fyrstur Eyja-
manna til að ná 0 í forgjöf.
Bráðabana þurfti um annað sæt-
ið í meistaraflokki milli Sigþórs
Óskarssonar og Júlíusar Hallgnms-
sonar og sigraði Sigþór strax á
fyrstu holu.
Það er ein fjölskylda í Eyjum sem
ber höfuð og herðar yfir aðrar í
golfinu því bræðurnir Þorsteinn og
Júlíus urðu í 1. og 3. sæti, föður-
bróðir þeirra, Haraldur Júlíusson,
varð Qórði og Hallgrímur Júlíusson,
faðir strákanna varð í fímmta sæti.
GETRAUNIR: 12X X21 122 2 2 1 X
LOT'TO: 1 12 26 29 35 / 36