Morgunblaðið - 21.07.1993, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1993
Morgunblaðið/Jón Stefánsson
Jeppi valt á Dalvegi
JEPPI, sem dró fulla kerru af sandi, valt um fimm- manna til að hreinsa upp sand, sem helltist úr kerr-
leytið í gær á Dalvegi í Kópavogi. Bifreiðin endaði unni. Engin slys urðu á fólki en bifreiðin er aftur
á hliðinni á eyju milli akreina og kalla þurfti á lið á móti nokkuð skemmd.
Félögum í SUS
fjölgarum 73
FÉLAGAR á skrá hjá Sambandi ungra Sjálfstæðismanna eru nú 8.317
talsins samanborið við 6.095 í mars 1991, sem er yfir þriðjungs aukning
á tveimur árum. Þing SUS verður haldið í ágúst nk. og tveir menn eru
í framboði til formanns, núverandi formaður Guðlaugur Þór Þórðarson
og Jónas Fr. Jónsson hdl. Aukning félaganna er mest í Reykjavík og
á Reykjanesi að sögn Guðlaugs Þórs.
Þórður Þórarinsson sem situr í
nefnd sem m.a. fer yfir félagalista
SUS segir að fjölgunin hafi verið
mun meiri en menn hafi haldið. „Hjá
flestum félögum er fjölgunin eðli-
leg,“ sagði Þórður en bætti við að
hjá nokkrum félögum hefði fjölgunin
verið það mikil að ástæða hefði þótt
til að skoða nánar hvemig hún væri
tilkomin. Því hafi félagalistinn komið
inn á borð nefndar sem ákveðið hafi
að fjalla um málið. „Nefndin hefur
komið með samhljóða tillögu um full-
trúaflölda hvers félags en við báðum
jafnframt um frest til að kanna málið
nánar.“
Skýringar á aukningunni segir
Guðlaugur Þór Þórðarson m.a. þær
að 6 ný félög SUS á landsbyggðinni
hafi verið stofnuð frá árinu 1991 og
starf félaganna um land allt hafí ver-
ið mjög öflugt. Hann sagði jafnframt
að mikið af breytingunum á félaga-
tölum væru leiðréttingar frá árinu
1991 eða jafnvel eldri. „Nú þegar
menn hafa mikinn áhuga á að kom-
ast á SUS-þingið, þá vill hvert félag
að sjálfsögðu fá sem flesta fulltrúa
og mikil áhersla er lögð á að leiðrétta
skrámar. Ömgglega er einnig einhver
bein aukning á fjölda félaga vegna
formannskjörs og einhver félög vænt-
anlega beinlínis beitt sér fyrir að
bæta við félögum vegna þess.“
Verðbreytingar
v. gengisiækkunarinnar
A
Egils Verðið Vérðíð hækkar
appelsínu- varkr. ernúkr. um
þykkni
1 lítri 290 ' 320 10,3%
Appelsínuþykkni
hækkar um 10,3%
Sjávarútvegsráðuneytið lokar veiðisvæðum fyrir þorskveiðum
Mikil óánægja er meðal
sjómamia víða um landið
Sjávarútvegsráðherra segir fullt samráð hafa verið haft við sjómenn
MIKIL óánægja ríkir hjá sjómönnum víða um land vegna
reglugerða sem Sjávarútvegsráðuneytið gaf út í gær um lok-
un veiðisvæða, einkum fyrir Vestfjörðum og Norðurlandi.
Lokanirnar beinast einkum að verndun smáþorsks og ganga
í gildi næsta föstudag. Ráðuneytið segir að á þessu fiskveiði-
ári hafi mikið borið á smáfiski í afla og vegna þess hafi 108
sinnum þurft að grípa til skyndilokana. Betra sé að loka veiði-
svæðum, þar sem smáfisks sé helst að vænta, til lengri tíma.
EGILS appelsínuþykkni í eins lítra
brúsum hefur hækkað vegna geng-
isfellingarinnar. Sem dæmi um þá
hækkun má nefna að áður kostaði
brúsinn 290 krónur en kostar nú 320
krónur. Þetta er um 10,3% hækkun.
Skákmót í Slóveníu
Bragi og
Matthías
eru efstir
BRAGI Þorfinnsson og Matthías
Kjeld unnu hvor um sig sína þriðju
skák á heimsmeistaramóti barna
og unglinga i Bratislava og eru
efstir í sínum flokkum.
Bragi vann andstæðing sinn
Andrade frá Mexíkó í flokki skák-
manna 12 ára og yngri. Matthías
lagði Úkraínubúann Saidov á svart
en þeir tefla í flokki 14 ára og yngri.
Helgi Ass Grétarsson gerði jafn-
tefli við Sirigos í flokki 16 ára og er
í 5.-17. sæti. Magnús Öm Úlfarsson
í 18 ára flokknum gerði jafntefli við
De Maetelaerte.
„Þetta er alveg út í hött og til
að gulltryggja að allt fari á haus-
inn héma fyrir vestan. Þetta eru
einu miðin sem stunduð eru á
sumrin,“ sagði Marinó Amarson,
skipstjóri á Fönix, sem var að
veiðum á Vestfjarðamiðum í gær.
Náið samráð við sjómenn
Þorsteinn Pálsson, sjávarút-
vegsráðherra, segir óveijandi að
grípa ekki til aðgerða þegar svo
mikið sé um smáfisk eins og nú.
Ákvörðunin um lokunina sé byggð
á niðurstöðum veiðieftirlitsmanna
og náið samráð hafi verið haft við
samtök sjómanna og útgerðar-
menn.
Guðjón A. Kristjánsson, for-
maður Farmanna- og fiskimanna-
sambands íslands, telur að hægt
hefði verið að ná sátt um málið
ef betur hefði verið unnið að því
af hálfu ráðuneytisins.
Kvótakerfið hefur brugðist
Hann segir að lokanimar nái
yfír of stórt svæði og telur að þær
eigi eftir að koma sér einna verst
fyrir Vestfirðinga og íbúa á Húna-
flóasvæðinu og Norðausturlandi.
„Þá tel ég þessar lokanir vera enn
einn áfellisdóminn yfír kvótakerf-
inu og sýna að það hafí bmgðist
sem stjómunarkerfí í fískveiðum,"
segir Guðjón.
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, segist gera sér grein fyrir
að lokun veiðisvæða komi sér illa
fyrir margar útgerðir en langtíma-
hagsmunir séu í þessu sambandi
meiri en skammtímahagsmunir.
Hann segist telja að lokanimar séu
ekki nægilega miklar og áfram
verði um einhverjar skyndilokanir
að ræða.
Sjá B2 og miðopnu.
í dag
Skák
Aðildarumsókn og sjálfstæði Finna
16
Jóhann Hjartarson vann Hollend-
inginn Ven Wely á skákmóti í Biel
15
EB
Svifdrekaflug____________________
Árni Gunnarsson sigraði á íslands-
móti FMÍ í svifdrekaflugi 22
Leiöari__________________________
Nýr greiðslumiðill 18
Úr verinu
► Velheppnað got norsk-
íslenska síldarstofnsins -
Greiðslutryggingar í fiskút-
flutningi - Færeyingar fá minni
afla
Surnar-
búðn-
kvedja
Myndasögur
► Drátthagi blýanturinn -
Brandarar - Ljóð - Saga -
Skemmtilegar þrautir - Leik-
hornið - Myndir ungra lista-
manna - Viðtal vikunnar
Morgunblaðið/Þorkell
Á fullri ferð
BEYGJURNAR á brautinni eru nokkuð krappar og ekki heiglum
hent að ná þeim á miklum hraða.
Mikil aðsókn að bíla-
brautinni í Laugardal
Kostar 300 krónur að aka í 3 mínútur
MIKIL OG jöfn aðsókn hefur verið að nýrri bílabraut í Laugar-
dal en þar eru sex svonefndir go-kart-bílar leigðir út. Ökumenn-
irnir eru allt frá 12 ára aldri, mest er aðsóknin af unglingum 14
til 18 ára en þeir sem eldri eru bregða einnig á leik, og eru
sumir ökumennirnir á sextugsaldri. Það er Ulfar Hinriksson sem
rekur fyrirtækið ásamt nokkrum félögum og hyggjast þeir halda
starfseminni gangandi fram í september.
Það kostar 300 krónur að aka í
þijár mínútur á go-kart-bíl á bfla-
brautinni í Laugardal, en á þeim
tíma er hægt að fara 4 til 7 hringi,
eftir því hve ökumaður er vel að
sér. Að sögn Hlöðvers Gunnarsson-
ar, sem sér um bílabrautina, er við-
haldskostnaður töluverður og sér-
staklega hafa dekk slitnað mikið
sökum grófs efnis í brautinni.
Vísað útaf —
Hlöðver sagði að strangt væri
tekið á því að ökumenn ækju
skikkanlega í brautinni og rækist
bíll utan í dekk eða á annan bfl
væri ökumanni umsvifalaust vísað
útaf. Sá ökumaður verður þá að
kaupa nýjan miða til að komast á
brautina aftur.
Hlöðver sagði að sæmilega hefði
gengið að halda bílunum gangandi
og síðdegis í gær voru fíórir bílar
af sex í gangi. Hann sagði að lítið
hefði verið um óhöpp á brautinni
og engin alvarleg óhöpp hefðu orð-
ið. Hlöðver sagði að lang flestir
unglingar hefðu lag á að aka bílun-
um vandræðalaust og hefði starf-
semin þama gengið vel. íþrótta-
og tómstundaráð Reykjavíkur leigir
brautina út fyrir þessa starfsemi.