Morgunblaðið - 21.07.1993, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1993
3
Mosabruni í Arnes- og Skaftafellssýslum
Talið að þyrla
hafi valdið eld-
inum við Útlilíð
„ÞAÐ er mikil mildi að hér varð ekki stórkostlegt umhverfisslys í
Úthliðarlandi í Biskupstungum," sagði Björn Sigxirðsson bóndi í
Úthlíð en mikill eldur gaus upp í landi hans um klukkan hálftvö í
gær og eyðilagði mosagróður á hálfum hektara lands. Það voru
athugulir göngumenn sem urðu eldsins varir en líklegt er talið að
þyrla í lágflugi hafi kveikt í skraufþurrum mosanum. Mosagróður
varð einnig eldi að bráð í Skaftáreldahrauni á svæði austan við
Dyngjur. Bjarni Matthíasson oddviti Skaftárhrepps segir slökkvi-
starf hafa gengið farsællega en telur að um einn hektari lands hafi
eyðilagst í brunanum.
„Ég tel það ótrúlega lukku að
fólk hafi verið á göngu á því svæði
þar sem eldurinn gaus upp en það
er nokkuð langt frá bæjum um tíu
kílómetra inn í landi,“ sagði Björn
í Úthlíð, „Fólkið sá til þyrlu þar sem
hún flaug lágt og varð vart mikils
reyks rétt í þann mund er þyrlan
hóf sig á loft og hvarf.“ Hann seg-
ir fólkið hafa gert sér og lögreglu
viðvart og að umsvifalaust hafi ver-
ið gengið í slökkvistörf.
Björn segir að menn hafi drifið
að af nærliggjandi bæjum og að-
stoðað við slökkvistörf. Vatni var
Fjárframlög
til atvinnumála
Umsóknir
skoðaðar
áfram
EKKI er komin niðurstaða
um hvernig frekari fjárfram-
lögum til atvinnuuppbygg-
ingar á Suðurnesjum verður
úthlutað. Undirbúningsnefnd
íslenskra aðalverktaka, full-
trúar frá Eignarhaldsfélagi
Suðurnesja og frá Hitaveitu
Suðurnesja funduðu um fjár-
framlögin sl. mánudag en
endanlegar ákvarðanir verða
væntanlega teknar á þriðju-
dag í næstu viku.
A fundinum var farið yfir
þær beiðnir sem lagðar hafa
verið fram og óskir hafa verið
um að allir þessir aðilar taki
þátt í. „Við höfum notað tímann
til að bera saman bækur okkar
og leggja mat á þessi verkefni.
Við ákváðum að skoða betur
gögn sem við skiptum á milli
okkar og á þriðjudag í næstu
viku verða menn vonandi í
stakk búnir að taka endanlegar
ákvarðanir," sagði Jón Sveins-
son sem situr í undirbúnings-
nefnd íslenskra aðalverktaka.
veitt úr Brúará og til þess var notað-
ur átta tonna tankbíll. „Björgunar-
störf gengu mjög vel og ég vil koma
á framfæri sérstökum þökkum til
ungra slökkviliðsmanna úr sveitinni
og bænda í nágrenninu, sem stóðu
sig allir með mikilli prýði,“ sagði
Bjöm Sigurðsson bóndi að lokum.
Slökkvistarf gekk vel í
Eldhrauninu
Bjarni Matthíasson oddviti í
Skaftárhreppi sagði í samtali við
Morgunblaðið að farsællega hefði
tekist að slökkva mosabrunann í
Skaftáreldahrauni en það hafi verið
mikið happ að veður var mjög lygnt.
Að sögn hans fréttist af brunanum
um klukkan tólf á hádegi og eru
líkur leiddar að því að kviknað hafi
í út frá sígarettu sem kastað hafi
verið í mosann við vegarkant þjóð-
vegarins í nýja Eldhrauninu rétt
austan við Dyngjur.
„Það er rík ástæðá til þess að
vara fólk við þeirri hættu að kasta
logandi sígarettum eða eldspýtum
frá sér og ekki síst í hinum langvar-
andi þurrki sem ríkt hefur undan-
farið,“ sagði Bjarni. Hann segir það
hafa getað valdið óbætanlegu tjóni
ef vindur hefði verið meiri.
Hann segir að um fjögurleytið
hafí slökkvistarfi að mestu verið
lokið en tekur fram að svæðið verði
vaktað eitthvað áfram og að sjálf-
boðaliðar muni vinna við afmörkun
þess svæðis sem brann.
Ökumaður bílsins sem hafnaði í Hvítá í Borgarfirði
Morgunblaðið/Magnús Kolbeinsson
Bjargað úr ánni
ÁSMUNDUR Ólafsson málarameistari frá Borgarnesi kom fyrstur fólkinu í bílnum til bjargar, en
hann fór ásamt manni frá Kirkjubóli á dráttarvél að bílnum. Drengnum var bjargað út um skut bílsins.
Missti sljórn á bíln-
um í mikilli lausamöl
SKÚLI Þór Kjartansson ökumaður bílsins sem
lenti út í Hvítá í Borgarfirði á móts við bæinn
Bjarnastaði í Hvítársiðu sl. sunnudagskvöld seg-
ir að mikil lausamöl á veginum hafi valdið því
að hann missti stjórn á bílnum. Skúli Þór var
ásamt eiginkonu sinni, Hrefnu Guðbjörgu Há-
konardóttur, og átta ára syni þeirra i bilnum,
en þeim var bjargað eftir að hafa verið um
klukkustund í ánni.
Skúli Þór sagðist hafa verið á um 40 km hraða
þegar hann missti skyndilega stjórn á bílnum sem
kastaðist í fyrstu út í móa og snerist í hring áður
en hann fór yfir háan árbakkann og þaðan út í ánna.
„Ég var ekki á mikilli ferð vegna þess hve vegur-
inn var harður og á honum mikil lausamöl, en ég
var áður búinn að fara þessa leið fyrr um daginn.
Ég lenti í hálfgerðum skafli af lausamöl og hafði
þá enga stjórn á bílnum sem tókst á loft og fór
heilan hring. Þetta fór þó allt mikið betur en á horfð-
ist,“ sagði hann í samtali við Morgunblaðið í gær.
Skúli Þór var fluttur á Sjúkrahúsið á Akranesi
og við rannsókn þar kom í ljós brot í hryggjarlið,
Komin á land
BILLINN var dreginn upp á eyri þar sem björg-
unarsveitarmenn tóku við fólkinu.
en að öðru leyti sagðist hann hafa sloppið ómeidd-
ur. Hann sagðist eiga von á því að fá að fara heim
af sjúkrahúsinu í dag.
OECD spáir nýju atvinnuleysismeti í aðildarlöndum sínum 1994
Reiknað með að 8.000 ís-
lendingar verði án vinnu
OECD, Efnahags- og framfara-
stofnunin í París, spáir því að í
lok þessa árs verði 36 milljónir
manna atvinnulausar í aðildar-
löndunum, á móti innan við 25
milljóna árið 1990, og að á fyrri
hluta ársins 1994 verði atvinnu-
leysið meira en verið hefur frá
lokum seinni heimsstyijaldarinn-
ar. Stofnunin spáir 5,3% atvinnu-
leysi hér á landi í ár og 6,2% á
næsta ári og er það heldur meira
atvinnuleysi en Þjóðhagsstofnun
, 1 - , gerir ráð fyrir. Samsvarar þetta
Kaup Hitaveitu Keyk]avíkur a eignarhluta Kopavogs t»ví að rúmU^a átta Þúsund
Sammngur samþykktur
BORGARRÁÐ og bæjarstjórn Kópavogs samþykktu í gær hvort fyr-
ir sitt leyti samning um að Hitaveita Reykjavíkur kaupi eignarhluta
Kópavogskaupstaðar í Hitaveitunni. Umsamið kaupverð er 300 millj-
ónir en eignarhlutur Kópavogs nemur tæplega 2%. Á fundi bæjar-
sljómar Kópavogs í gær kom fram að féð kæmi sér vel til að greiða
niður skuldir bæjarins.
Umsamið kaupverð eignarhluta
Kópavogs er samtals 300 milljónir
króna. Að frádregnum skuldum
bæjarins við Reykjavík vegna kaupa
á heitu vatni og lagningar sameig-
inlegs frárennsliskerfis, samtals að
upphæð 200 milljónir króna, er
gert ráð fyrir að Hitaveitan greiði
Kópavogi rúmlega 100 milljónir
króna á sjö árum.
Ánægja
Sigurður Geirdal bæjarstjóri í
Kópavogi sagðist fagna því að
samningurinn væri í höfn. „Þetta
er að gerast um allt land að hita-
veita og rafmagnsveita kaupi hluti
sveitafélaga. Það er í tilgangslaust
fyrir sveitarfélög að liggja með pen-
ing í þessu. Eftir sem áður munum
við fá sömu þjónustu. Það eina sem
við gerum er að losa það fé sem í
þessu var og á móti kemur að Hita-
veitan mun eiga þetta ein,“ sagði
Sigurður í samtali við Morgunblað-
ið. „Bæjarstjórnin var sammála um
þessa sölu og því var almennt fagn-
að að þetta var leyst á farsælan
og friðsamlegan hátt,“ sagði hann.
Samningurinn • var samþykktur
án umræðu með 5 samhljóða at-
kvæðum í borgarráði Reykjavíkur
og með 11 samhljóða atkvæðum í
bæjarstjórn Kópavogs.
manns verði án atvinnu að meðal-
tali árið 1994.
OECD spáir því að atvinnuleysi
í aðildarlöndunum verði að meðal-
tali 8,5% í ár og 8,6% á næsta ári
en atvinnuleysið var 7,9% á síðasta
ári. Stofnunin telur að Evrópa verði
verst úti í þessari þróun sem sögð
er stafa af litlum hagvexti. í Evr-
ópuríkjum innan OECD var 9,9%
atvinnuleysi í fyrra en útlit er fýrir
það verði 11,6% í ár og fari í 12,1%
árið 1994. Sérstök athygli er vakin
á vandamálum vegna fólks sem
hefur verið án atvinnu meira en ár,
en í Evrópu er það helmihgur allra
atvinnulausra, og aðildarlöndin
hvött til að grípa til sérstakra ráð-
stafana vegna þessa fólks.
Þjóðhagsstofnun bjartsýnni
Þjóðhagsstofnun spáir því að at-
vinnuleysið verði 5% í ár en það
samsvarar því að um 6.500 manns
séu atvinnulaus allt árið, en OECD
segir útlit fyrir 5,3% atvinnuleysi
sem samsvarar 6.900 ársstörfum.
Sigurður Snævarr, hagfræðingur
hjá Þjóðhagsstofnun, segir að
reynslan það sem af er árinu, þar
sem atvinnuleysið hefur verið að
meðaltali um 4lh%, bendi til að spá
Þjóðhagsstofnunar sé nálægt lagi.
Varðandi árið 1994 er Þjóðhags-
stofnun einnig bjartsýnni en O.ECD
og spáir 5'/2 til 6% atvinnuleysi á
móti 6,2% hjá OECD. Spá OECD
samsvarar því að 8.100 manns verði
án vinnu allt árið en samkvæmt spá
Þjóðhagsstofnunar verða 7.100 til
7.800 atvinnulausir.
Sigurður sagði að ýmsar ástæður
væru fyrir þessum mismun í at-
vinnuleysisspám. Hann vakti at-
hygli á því að spá OECD væri gerð
áður en gengisfellingin var ákveðin
hér á landi. Þá sagði hann að erfitt
væri að spá um atvinnuleysi hér á
landi vegna þess hvað það hefði
verið lítið þar til nú og erfitt að
meta viðbrögð fólks og stjórnvalda.