Morgunblaðið - 21.07.1993, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1993
Brún eðla dvelur í góðu yfirlæti á Náttúrufræðistofnun
Meinleysisgrey sem
lifir á skordýrum
NOKKUÐ stór brún eðla fannst við höfnina í Holtagörðum í
Reykjavík fyrir skömmu og tók nokkurn tíma fyrir starfsmenn
þar að ná henni. Eðlan er nú í góðu yfirlæti á Náttúrufræðistofn-
un þar sem Erling Ólafsson dýrafræðingur hefur hana í fóstri.
Óvist er hvort eðlan verður langlíf í nýju heimkynnunum.
Erling sagði að hann hefði ekki
séð svona stóra eðlu lifandi hér á
landi. Hann sagði að eðlan væri
um það bil 25 sm á lengd. Erling
giskaði á að hún hefði borist frá
Suður-Evrópu og taldi ólíklegt að
svona stórar eðlur gætu lifað í
Norður-Evrópu.
Meinleysisgrey
Vart varð við eðluna fyrir
nokkrum dögum á athafnasvæði
Samskipa við Holtagarða en ekki
gekk vel að ná henni. Erling sagði
að menn hefðu sýnt henni ótta-
blandna virðingu og ekki tekið
neina áhættu við að fanga hana.
Hann sagði að eðlan væri mein-
leysisgrey og lifði á flugum og
litlum skordýrum.
Eðlan hafði ekki enn fengist til
að éta í gær og fúlsaði við skor-
dýrunum sem henni voru færð á
Náttúrufræðistofnun í gær. Erl-
ing sagði að hún væri sjálfsagt
langsoltin en þessi dýr þola að
vera lengi án fæðu. Úthaldið á
hafnarbakkanum hefur öruglega
verið kuldalegt fyrir eðlu af suð-
rænum slóðum en Erling sagði
að eðlur þyldu kuldann nokkuð
vel. Eðlur hafa misheitt blóð, í
kulda hægist á líkamsstarfsem-
inni og getur íslandsheimsóknin
Morgunblaðið/Þorkell
í tröllahöndum
EÐLAN var hin sprækasta á Náttúrufræðistofnun í gær þótt hún
hefði ekki enn fengist til að éta.
því allt eins framlengt líf eðlunnar
ef vel tekst til. Erling kvað óvíst
hvort eðlan lifði eða dræpist, og
færi það eftir ástæðum. En ef hún
lifír skiptir hún sjálfsagt fljótlega
um ham, kastar ellibelgnum og
gengur í endurnýjun lífdaganna á
Islandi.
Húsbréf
Avöxtun-
arkrafan
lækkar ört
ÁVÖXTUNARKRAFA húsbréfa
hélt áfram að lækka í gær og fór
úr 7,25% í 7,19% hjá Landsbréfum,
viðskiptavaka húsbréfa. Að sögn
Sigurbjöms Gunnarssonar, deild-
arstjóra, hefur verið ny'ög lítið
framboð af húsbréfum að undan-
förnu en eftirspurn á hinn bóginn
mikil. Jafnframt er nú lítið fram-
boð af öðmm bréfum.
Sigurbjörn sagði að lítið hefði ver-
ið gefíð út af húsbréfum í júlí og
stefndi í að útgáfan yrði um 400
milljónum krónum minni en í júlí í
fyrra. Á sama tíma hefði ráðstöfun-
arfé lífeyrissjóða vaxið enda þótt það
væri minna en spár gerðu ráð fyrir.
Þá væri einnig töluverð eftirspum
frá t.d. verðbréfasjóðum. Önnur
verðbréfafyrirtæki hafa lækkað sína
ávöxtunarkröfu og var hún sömuleið-
is 7,19% hjá Kaupþingi og Verð-
bréfamarkaði íslandsbanka í gær.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 21. JUU
YFIRLIT: Skammt austur af Færeyjum er amálægð sem þokast austur,
en lægðardrag fyrir Suðuriandi. Yfir Grænlandi er 1025 mb hæð.
SPÁ: Hæg austan- og norðaustanátt. Lítilsháttar þokusúld á annesjum
norðanlands og við au3turströndina, en bjartvíðri sunnan- og vestan-
lands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG, FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Fremur hæg
norðlæg eða norðaustlæg átt. Dólítit súld eða rigning öðru hverju og
5-10 stiga hiti á Norður- og Austurlandi en yfirleitt þurrt og 12-17 stiga
hiti að deginum sunnaniands og vestan.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 10.30,
22.30. Svarsfmi Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 090600.
O tik A
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað
* * * •
V
r r r * r * * * *
/ / * / * *
r r r r * / ***
Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél
Sunnan, 4 vindstig.
Vindðrin sýnir vindstefnu
09 fjaðrimar vindstyrk,
Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig.
* 10° Hitastig
V V Súld
Él = Þoka
FÆRÐÁ VEGUM:
Greiðfært er um þjóðvegi landsins og flestir hálendisvegir orðnir færir
fjallabflum. Nyrðri-Fjallabaksleið er fær en gert ráð fyrir að Syðri-Fjalla-
baksleíð opnist í vikunni. Gæsavatnaleið og Sprengisandsleið úr Skaga-
firði og Eyjafirði eru enn ófærar. Víða er unnið við vegagerð, og eru
vegfarendur af gefnu tiiefni beðnir að virða þær meridngar sem þar eru.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
I grænni iínu 99-6316. Vegagerðín.
VEÐUR VÍÐA OM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri
Reykjavík
hiti
11
14
voftur
skýjeð
léttskýjað
Bergen 13
Helslnki 22
Kaupmannahöfn 16
Narssarsniáq
Nuuk
OskS
Stokkhölmur
Þórshöfn
11
10
17
23
10
skýjað
léttakýjað
rignirtg
léttakýjað
léttskýjað
akýjeð
úrk.igrennd
Stild
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Beriín
Chicago
Feneyjer
Frankfurt
GlflftflOW
London
LosAngelea
Lúxemhorg
Madrid
Maiaga
Mallorca
Montreal
NewYork
Ortando
Parfet
Madelra
Róm
Vfct
Waahington
Winnipeg
29
18
23
20
19
19
17
18
17
17
28
27
34
20
21
26
17
24
17
26
12
heiðakírt
skýfað
akýjað
skýfað
'SUöKyjOÖ
skúrísíð. klst.
skyjað
þrumuveður
•kýjað
aMcýjað
tóttskýjað
heiðskirt
mistur
akúr
slskýjað
alskýjað
skúrásíð.klst.
akýjsð
vantar
rigning
þokumóða
skýjað
Heimild: Vsðuratola Islands
(Byggtá veSurapá kl. 16,151 g»r)
ÍDAGkl. 12.00
Beiðni viðskiptaráðherra til stofnana
Starfsmenn sem eru
í fullu starfi annars
staðar ekki ráðnir
SIGHVATUR Björgvinsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sendi í
gær til allra þeirra stofnana sem undir hans ráðuneyti heyra umburð-
arbréf með beiðni um að forstöðumenn þeirra ráði ekki fólk í störf,
hvorki til tímabundinna verkefna né lengri tíma, sem þiggi full laun
annars staðar. Hann beinir því til forstöðumannanna að þeir sem
ekki hafi atvinnu, verði látnir sifja fyrir um þau störf sem ráða þurfi í.
Sighvatur sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hann hefði
að gefnu tilefni sent ofangreint
umburðarbréf til allara stofnana sem
heyri undir ráðuneyti hans, því brögð
væru að því í opinbera geiranum,
að menn þægju laun fyrir fullt starf
hjá ákveðinni stofnun, en tækju svo
að sér tímabundið eða til lengri tíma
störf hjá annarri stofnun.
Aðspurður hvort hann ætti von á
því að fleiri ráðherrar ríkisstjórn-
arinnar myndu beina sambærilegum
tilmælum til þeirra stofnana sem
undir þá heyra, sagði viðskiptaráð-
herra: „Það er mjög óeðlilegt að
opinberar stofnanir séu að ráða fólk
í störf, sem er á launum hjá öðrum
opinberum stofnunum, það er að
segja ef um full laun er að ræða.
Ég vona að aðrir ráðherrar beini
svipuðum tilmælum til þeirra stofn-
ana sem undir þá heyra. Ég held
að það sé mjög æskilegt, ekki síst
á tímum sem þessum, að menn reyni
að stuðla að því að þau störf sem
eru til, geti gengið til þeirra sem eru
atvinnulausir."
Menningarsjóður
Bessí for-
maður
sljórnar
Menntamálaráðherra hef-
ur skipað Bessí Jóhanns-
dóttur formann sljórnar
Menningarsjóðs.
Aðrir í stjórn eru Áslaug
Brynjólfsdóttir fræðslustjóri
og Hlín Daníelsdóttir fulltrúi.
Varamenn eru Sigurður
Björnsson óperusöngvari,
Unnur Stefánsdóttir fóstra og
Hildur Kjartansdóttir verslun-
armaður.
í stjóm sjóðsins er kosið á
Alþingi.
Lánskjaravísitala hækkar um 0,76%
Hækkimin jafngild-
ir 9,5% verðbólgn
Lánskjaravísitalan hefur hækkað um 0,76% frá fyrra mánuði, sam-
kvæmt útreikningum Seðlabankans. Þetta jafngildir 9,5 prósenta
verðbólgu á ári.
í frétt frá Seðlabankanum kemur
fram að ef miðað sé við hækkun
vísitölunnar síðustu þrjá mánuði
jafngildi hún 3,6% ársverðbólgu en
sé miðað við síðustu tólf mánuði
jafngildi hún 2,3% verðbólgu. Láns-
lqaravísitalan 3.307 stig gildir fyrir
ágústmánuð.
Launa- og byggingarvisitala
Samkvæmt útreikningum Hag-
stofunnar er launavísitala júlímán-
aðar, sem miðuð er við meðallaun
í júnímánuði síðastliðnum, 131,3
stig. Hún hefur hækkað um 0,1
prósent frá fyrra mánuði.
Vísitala byggingarkostnaðar,
sem Hagstofan hefur gefíð út fyrir
ágústmánuð, hefur hækkað um 1,3
prósentustig frá fyrra mánuði. Vísi-
talan, reiknuð eftir verðlagi um
miðjanjúlí, reyndist vera 192,5 stig.
Síðastliðna þijá mánuði hefur vísi-
talan hækkað um 1,4 prósent en
sú hækkun jafngildir 5,8 prósent
hækkun á ári.