Morgunblaðið - 21.07.1993, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1993
Til sölu
• Þjónustufyrirtæki (útleiga).
• Útgáfufyrirtæki (bækur, blöð).
• Fataverslun v/Laugaveg.
Fyrirtækjasalan .
Baldur Brjánsson
Laugavegur 95, 101 Reykjavík Sfmi 62 62 78
Akurgerði
Húsið er parhús, sem er kjallari og tvær hæðir eða um 129
fm og sérgarður. Húsið er í góðu ástandi og getur losnað fljót-
lega. Staðsetning er mjög góð á friðsælum stað nálægt nýja
miðbænum. Makaskipti möguleg.
Bergstaðastræti
Einbhús um 250 fm, ásamt 20 fm bílskúr. Húsið er tvær
hæðir og kjallari. Mjög góð staðsetning í nágrenni Landspítal-
ans. Gæti losnað fljótlega.
Fagrabrekka - Kóp.
Einbýlishús, íbúðarhæð um 133 fm og í kj. eru 90 fm.
24 fm bílsk. Upphituð innkeyrsla. Skipti möguleg.
Keilugrandi
Falleg 85 fm 3ja herbergja íbúð á 3. hæð. Svalir í norður og
suður ásamt stæði í bílskýli. Húsið er nýuppgert að utan.
Laus fljótlega.
Lögmannsstofan Síðumúla 1, Reykjavík, simi 688444.
Hafsteinn Hafsteinsson hrl., Hrund Hafsteinsdóttir hdl.
Stórhöfði - atvinnuhúsnæði
Til sölu mjög vel staðsett atvinnuhúsnæði í nýju húsi
við Stórhöfða. Húsið er tvær hæðir og eru báðar hæð-
irnar jarðhæðir. Neðri jarðhæð er sjö einingar, hver um
154 fm, lofthæð 4,5 metrar og stórar innkeyrsludyr.
Skrifstofa og snyrting er í hverri einingu. Efri jarðhæð
er jarðhæð frá Stórhöfða og er þar hægt að hafa 3-4
einingar. Lofthæð er um 4 metrar. Hæð þessi hentar
vel fyrir verslun og þjónustu. Húsið selst fullfrágengið
að utan, tilbúið að innan, lóð malbikuð og frágengin.
Hagstæð áhv. langtímalán. Húsnæðið er til afh. strax.
<f ÁSBYRGI if
Su&urlandsbraut 54, 108 Reykjavik,
sími: 682444, fax: 682446.
INGILEIFUR EINARSSON, löggiltur fasteignasali.
SÖLUMAÐUR: Þórður Ingvarsson.
011R0 01 07H LÁRUS Þ. VALDIMARSSON FRAMKVÆMDASTJORI
Cm I I vU'L I 0 I W KRISTINNSIGURJ0NSS0N. HRL. loggilturfasteignasau
Til sýnis og sölu - eignir sem vekja athygli:
í gamla góða Vesturbænum
Parhús við Ránargötu með 6 herb. íb. á tveimur hæðum. Nýtt eldhús.
Nýtt bað o.fl. ( kjallara sér einsherbergis íbúð. Grunnflötur hússins er
60 fm auk forstofu og bakinngangs. Glæsilegur blóma- og trjágarður.
Skipti möguleg á góðri 4ra herb. íb. á 1. hæð með bílskúr.
Endaíbúð við Háaleitisbraut
Mikið endurnýjuð 4ra herb. íb. á 4. hæð í suðurenda. Svalir. Góð innr.
Sameign endurbætt. Góður bílskúr. Frábært útsýni. Verð aöeins kr.
8,7 millj.
Hæð og ris í Hlíðunum
Efri hæð'3ja herb. 86,5 fm. Svalir, sérhiti. Þríbýli. Bílskúr 28 fm. I risi
fylgja 4 herb. undir súð. Gott verð.
Skammt frá Hlemmtorgi
Ódýr 3ja herb. neðri hæð í tvíbýlishúsi. Nýlegt eldhús. Geymsla o.fl.
í kjallara. Laus strax. Nánari upplýsingar á skrifstofu.
Eignaskipti - einstakt tækifæri
í Smáíbúðahverfi óskast 2ja herb. íb. á 1. hæð í skiptum fyrir raðhús
skammt frá Réttarholtsvegi. Teikning og nánari uppl. á skrifstofu.
í Garðabæ - skipti möguleg
Nýleg 4ra herb. íbúð á 2. hæð við Lyngmóa. 3 svherb. Góður bílskúr.
Útsýni. Skipti möguleg á 2ja herb. íbúð í vesturborginni.
• • •
í Hliðum - vesturborginni
óskast góð 3ja herb. íb.
Opið á laugardaginn.
AIMENNA
FASTEIG WASAL AN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
„Hvirfilvindar" eftir Evu Stephenson-Möller frá Svíþjóð
Rjarvalsstaðir
Sjötti norræni text-
ílþríæringnrinn
Sossa sýnir
á Akranesi
LISTAKONAN Sossa, Margrét
Soffía Björnsdóttir, opnaði 15.
júlí sl. myndlistarsýningu að
Skólabraut 31, Akranesi, í
Listahorni upplýsingamiðstöðv-
ar fyrir ferðamenn, og stendur
sýningin til 15. ágúst. Þar sýnir
hún níu olíumyndir.
Margrét Soffía, sem er fædd
1954 á Akranesi, býr nú á Sauðár-
króki. Hún stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1977 til 1979, 1979-1984
var hún við nám í grafískri list í
Kaupmannahöfn og frá 1989 hef-
ur hún nuimið við listaskóla í Bos-
ton í Bandaríkjunum, þaðan sem
hún lýkur prófi (Master of Fine
Arts) nú í haust.
Margrét Soffía hefur haldið
sýningar á verkum sínum bæði
erlendis, í Danmörku, Noregi og
Bandaríkjunum, og víða innan-
lands.
Margrét Soffía hefur óskipt
gefíð sig að iist sinni frá árinu
1986.
LAUGARDAGINN 24. júlí nk. kl.
16 opnar á Kjarvalsstöðum sjötti
norræni textílþríæringurinn, og
stendur sýningin til sunnudagsins
15. ágúst.
Að þessu sinni eru sýnd 52 verk
eftir 36 listamenn frá fimm Norður-
löndum. Fulltrúi íslands á sýning-
unni er Guðrún Gunnarsdóttir og á
hún þrjú verk. Guðrún er fyrir löngu
orðinn viðurkennd textíl-listakona
og hefur haldið einkasýningar á Is-
landi og tekið þátt í fjölda samsýn-
inga erlendis, m.a. þremur norræn-
um textílþríæringum, Scandinavia
Today í Japan o.fl. Hún á verk í
opinberri eigu m.a. hjá Listasafni
íslands, Reykjavíkurborg (Ráðhús
Reykjavíkurborgar) og Savaria-
safninu í Ungverjalandi.
Norræni textílþríæringurinn á
rætur sínar að rekja til ársins 1974
þegar norrænir textíllistamenn rufu
einangrun landa sinna og settu sam-
an sýningu sem átti eftir að verða
fyrirmynd annarra textílsýninga á
Norðurlöndum. Fyrstu fjórar sýning-
arnar voru skipulagðar og reknar
af litamönnum sjálfum, sem eins og
gefur að skilja kostaði mikið erfíði.
Það var því töluverður sigur fyrir
textíl-listamenn þegar Norðurlanda-
ráð mælti með því að norræna ráð-
herranefndin úthlutaði styrkjum til
að styðja við bakið samnorrænum
sýningum á borð við norræna textíl-
þríæringinn. Þetta komst í gagnið
fyrir fimmta norræna textílþríæring-
inn sem var einnig sá fyrsti sem
skipulagður var af Norrænu lista-
miðstöðinni og hefur hann nú unnið
sér fastan sess meðal þeirra sýninga
sem Norræna listamiðstöðin skipu-
leggur.
Fyrir löngu hefur hinn hefðbundni
„vefnaður" vikið fyrir hugtakinu
„textíl", sem spannar miklu fjöl-
breyttara svið og er sýningin að
Kjarvalsstöðum frá bæði vefhönnun
og nytjalist og færist þannig nær
„fagurlist". Textílþríæringurinn hef-
ur ekki heldur farið varhluta^ af
breytingum í landafræði og stjórn-
málum í Evrópu á síðustu árum en
til marks um það kemur sýningin
til Reykjavíkur frá Vilnius, Riga og
Tallinn en hin nýfrjálsu Eystrasalts-
ríki eiga ef til vill jafnmikla kröfu á
því að vera kölluð „norræn“ og t.d.
Finnland.
------» ♦ '4-----■
Sýning á
Mokkakaffi
BJARNI H. Þórarinsson sjón-
háttafræðingur opnar sýningu á
Mokkakaffi sunnudaginn 18. júlí.
í tilkynningu um sýningunar seg-
ir um verk höfundar að þau séu „til-
raunir til endurreisnar íslenzkrar
handritagerðar í formi vísihandrila.
Þeim fylgir og nýjung, svokölluð vísi-
myndrit. Á Mokka gefur að líta
nokkur sýnishorn hinna nýju hand-
rita og myndrita. Verkin eru unnin
í nýjum liststíl, vísíolistastíl, sem
Bjarni er frumkvöðull að.“
TÆLENSKUR MATUR
TÆLENSKT UMHVERFI
Rétt við Háskólann
Tjl sölu 2ja-3ja herb. íbúð á besta stað við Brávallagötu
í góðu ásigkomulagi. Einstakur garður. Einstaklega
skjólgott og friðsælt. Verð ca 6 millj.
Upplýsingar í síma 623441.
Bar á Spáni
Til sölu er fallegur og nýinnréttaður vínbar og
veitingastaður á einum vinsælasta ferða-
mannastað íslendinga á Spáni, þar sem þeir
koma saman, njóta veitinga og lesa blöðin.
Öll leyfi til staðar. Gott verð.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
SUÐURVE R I
SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Hæðargarður
Glæsileg 3ja-4ra herb. neðri sérhæð (jarðhæð). Sér-
inng. Suðurverönd út frá stofu. Sólpallur. Eignin er öll
endurnýjuð. Falleg lóð. Laus fljótlega. Verð 7,5 millj.
4313.
Opið virka daga frá kl. 9-18.
S: 685009-685988
ÁRMÚLA21
DAN V. S. WIIUM, LÖGFRÆÐINGUR,
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, SÖLUSTJ.,
DAVÍÐ SIGURÐSSON, SÖLUMAÐUR
Hlíðarsmári - Kóp.
3. hæðin í þessu glæsilega húsi er til sölu. Hæðin er
samtals 760 fm að grunnfleti. Möguleiki að selja í allt
að þrennu lagi. Til afhendingar strax. Lóð og sameign
fullfrágengin.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Fasteignamarkaðurinn hf.,
Óðinsgötu 4, símar 11540 og 21700.
✓