Morgunblaðið - 21.07.1993, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1993
Islandsmót í hesta-
íþróttum að hefjast
ÍSLANDSMÓT í hestaíþróttum hefst á morgun á Akureyri, á nýju,
vallarsvæði hestamannafélagsins Léttis í Hlíðarholti. A svæðinu er
mjög góð keppnisaðstaða auk aðstöðu fyrir keppnishross og ferða-
hross, góðir hagar rétt við keppnissvæðið og gefinn kostur á að
hrossa verði gætt um nætur. Þess er vænst að flestir bestu knapar
landsins, hestamenn og áhugamenn um hestaíþróttir verði á þessu
landsmóti.
Á Hlíðarholtsvelli eru tveir hring-
vellir, 250 og 300 m langir auk 400
m beinnar brautar og hlýðniæfinga-
gerðis. Þar er og aðstaða góð fyrir
keppendur og gesti. Unnið hefur
verið að undirbúningi íslandsmóts-
ins frá því í vetur undir forystu
Jónsteins Aðalsteinssonar for-
manns íþróttadeildar Léttis. Yfír-
dómari á mótinu verður Pjetur Pjet-
ursson en mótsítjóri Einar Orn
Grant.
Fjölbreytt fjögurra daga mót
íslandsmótið hefst á morgun.
Fyrsta keppnisgreinin verður fjór-
gangur fullorðinna og hefst klukk-
an 18. Á föstudag hefst keppni
klukkan 8 að morgni og verður þá
keppt í fjórgangi ungmenna, ungl-
inga og barna. Eftir hádegi verður
keppt í fímmgangi í öllum flokkum.
Á laugardag verður hlýðnikeppni í
öllum flokkum klukkan 8 að morgni
og tölt unglinga og barna hefst
klukkan 10.30. Eftir hádegi verður
keppt í hindrunarstökki, en sú
keppni fer fram á flötinni neðan
við Samkomuhúsið á Akureyri.
Klukkan 16 hefst svo keppni í tölti
fullorðinna en um kvöldið verður
slegið upp grillveislu við KA- húsið.
Sunnudagurinn hefst með gæð-
ingaskeiði klukkan 9 að morgni.
Klukkan 11 verða úrslit í fjór-
gangi, klukkan 13.30 úrslit í fimm-
gangi og úrslit í tölti hefjast klukk-
an 15. Verðlaunaafhending og
mótsslit verða svo klukkan 16.30.
Klippt íkllldatíð Morgunblaðið/Golli
MENN spranga ekki léttklæddir um garða sína á er kappdúðaður að klippa grasið i kringum húsið sitt
Akureyri í súldinni og kuldanum. Það er þrátt fyrir í Kringlumýrinni og notar við það gömlu ullarklippurn-
allt stutt í brosið hjá Níels Halldórssyni þar sem hann ar en engin nútímaraftæki.
Gítarhátíð
Einar Kristján
Einarsson
leikur í kvöld
GÍTARTÓNLEIKAR eru haldnir
öll kvöld á meðan Gítarhátíð 1993
stendur á Akureyri. í gærkvöld
lék Arnaldur Arnarson fjölbreytta
spænska og íslenska gítartónlist á
fyrstu tónleikunum. I kvöld mun
Einar Kristján Einarsson leika á
tónleikum Gítarhádðar 1993. Tón-
leikarnir eru í Akureyrarkirkju
og hefjast klukkan 20.00
Einar Kristján Einarsson er Akur-
eyringur. Hann stundaði nám í gítar-
leik á Akureyri og í Reykjavík og
var síðan við nám á Englandi, þar
sem hann lauk einleikaraprófí og
kennaraprófí frá Guildhall School of
Music árið 1987. Síðan hefur hann
sótt námskeið víða, kennt gítarleik
í Reykjavík og komið fram á tónleik-
um víða hérlendis svo og á Spáni og
Englandi. Áður hefur hann iðulega
leikið á Akureyri, meðal annars með
Kammerhljómsveit Akureyrar 1991.
Hafnasamband sveitarfélaga vill lækka almenn hafnagjöld um 3%
10% lækkun
á lýsi og mjöli
__ _ .. Morgunblaðið/Golli
Hafnamenn þmga
STURLA Böðvarsson formaður Hafnasambands sveitarfélaga og
Guðmundur Sigurbjörnson hafnarstjóri á Akureyri á fundi um gjald-
skrár hafna á Akureyri í gær.
FORSVARSMENN hafna á Norðurlandi hittust á fundi á Akureyrí í
gær. Fjallað var um hugmyndir um breytingar á gjaldskrármálum
hafna. Sambærilegur fundur var með forsvarsmönnum hafna á Austur-
landi í fyrradag og hafði áður verið haldinn á Vesturlandi.
Sturla Böðvarsson formaður
Hafnasambands sveitarfélaga kom á
fundinn og kynnti fyrir fundarmönn-
um hugmyndir um breytingar á
gjaldskrám. Hann sagði að gjald-
skrárbreytingamar væru til komnar
vegna beiðni hagsmunaaðila í sjáv-
arútvegi um verulegar lækkanir. í
framhaldi af því hefði hann farið og
kynnt fyrir forsvarsmönnum hafn-
anna hugmyndir stjómar Hafnasam-
bandsins. Þær fælust í því að koma
til móts við sjávarútveginn með því
móti sem hér segir: í fyrsta lagi verði
almenn gjöld lækkuð um 3%. í öðra
lagi að ekki verði breytt aflagjöldum.
í þriðja lagi að sú breyting verði á
vörugjaldi á lýsi og mjöli að það
lækki um 10%. Hið síðasttalda sagði
Sturla að væri nýmæli sem stjórn
Hafnasambandsins myndi beita sér
fyrir að fá samþykkt af samgöngu-
ráðherra.
Teflt á tæpasta vað
Sturla sagði að með þessum sam-
þykktum stjómar Hafnasambandsins
væri komið eins og unnt væri til
móts við sjávarútveginn og því væri
ekki að leyna að hér væri teflt á
tæpasta vað. Sumar hafnir kynnu
því að þurfa að fara fram á frestun
á einhveijum Iána sinna af þessum
sökum.
Framkvæmdastjóri Rekstrarfélags íslensks skinnaiðnaðar
Rétt að kanna sameiningai
skinnaiðnaðarfyrirtækjanna
Á FUNDUM Eyjólfs Sveinssonar, aðstoðar-
manns forsætisráðherrá, með hagsmunaaðil-
um i skinnaiðnaði á Sauðárkróki og á Akur-
eyri um helgina munu meðal annars hafa ver-
ið viðraðar hugmyndir um sameiningu skinna-
verksmiðjanna beggja. Ekki mun eining ríkja
um hugmyndir af þessu tagi. Bæjaryfirvöld á
Sauðárkróki eru andvíg sameiningu og hafa
lýst yfir vilja til að tryggja að rekstur Loð-
skinns þar á staðnum haldi áfram. Rekstrarfé-
lag ÍSI á Akureyri er rekið af hálfu Landsbank-
ans fram til hausts. Þar á bæ er ekki talið
fráleitt að kanna möguleika á sameiningu ef
það gæti orðið til þess að tryggja framtíð þessa
iðnaðar hér á landi.
Bjarni Jónasson, framkvæmdastjóri Rekstrarfé-
lags ÍSI á Akureyri, sagði þá skoðun uppi í fyrir-
tækinu að kanna beri allar leiðir sem gætu orðið
til að bjarga skinnaiðnaði hér á landi og þá jafn-
framt möguleika á sameiningu skinnaiðnaðarfyrir-
tækjanna, þótt ekki virðist það auðsótt miðað við
viðbrögð á Sauðárkróki. Hann sagðist telja að
ekki væri óeðlilegt að skoða gaumgæfílega hvort
æskilegt væri að stokka skinnaiðnaðinn upp og
athuga hvort rétt sé að hafa hér á landi fleiri en
eitt fyrirtæki í þessum iðnaði. Á það sé að líta
að hráefni fari minnkandi og einnig þurfí vinnslan
á báðum stöðum að fara í gegnum mikla endurfjár-
mögnun. Ríkisbankamir og hálfopinberir sjóðir
komi til með að þurfa að taka þátt í þeim aðgerð-
um að einhveiju leyti og eins liggi fyrir að ríkis-
valdið sé tilbúið að aðstoða þennan iðnað að ein-
hveiju marki í sambandi við hráefnisöflun, þótt
ekki liggi fyrir enn í hvaða formi það verður. Af
þeim sökum væri eðlilegt að kanna þessa hlið
málsins ofan í kjölinn ekki síður en aðrar. Verk-
smiðjur Loðskinns á Sauðárkróki og ÍSI á Akur-
eyri vinni úr sams konar hráefni og búi til sams
konar vöru.
Skammur timi tíl stefnu
Bjami sagði að málefni skinnaiðnaðarins væru
nú öll í höndum Iðnþróunarfélags Eyjafiarðar.
Hins vegar héldi Rekstrarfélag ÍSI uppi starfsemi
í verksmiðjunni sem stæði að óbreyttu til 30. sept-
ember. Tilgangur með Rekstrarfélaginu sé fyrst
og fremst sá að vinna úr því hréfni sem til er og
áætlað sé að því verði lokið í septemberlok. Rekstr-
arfélagið hafí ekki í hyggju að vera með neina
vinnslu eftir þann tíma.
Af þessum sökum sagði Bjami ljóst að ef menn
hugsuðu sér að halda áfram starfsemi af þessu
tagi hér í bæ yrðu þeir að gera upp hug sinn
afar fljótt. Ekki megi það dragast á langinn því
sláturleyfíshafar þurfí að fá að vita fyrr en seinna
hvort þeir geta selt gærur sínar hérlendis eða
þurfa að koma þeim í verð annars staðar.
Að sögn Eyjólfs Sveinssonar, aðstoðarmanns
forsætisráðherra, er stefnt að því í samvinnu
stjómvalda og hagsmunaaðila í skinnaiðnaði að
fínna leiðir til lausnar þessara mála á næstu tveim-
ur vikum eða svo.
■Miðvikudagur 21. júlí.
Gítarhátíð á Akureyri. Einar
Kristján Einarsson leikur í
Akureyrarkirkju klukkan 20.
Dans- og tónlistarspuninn
Höfuðverk í Deiglunni klukk-
an 20.30. Fram koma Anna
Richardsdóttir og Karl Ped-
ersen ásamt höfuðskúlptúram
eftir Brynhildi Kristinsdóttur
■Fimmtudagur 22. júlí.
Gítarhátíð á Akureyri i
Akureyrarkirkju klukkan 20.
Símon H. ívarsson leikur á
gítar og Hlíf Sigurjónsdóttir
á fíðlu.
Rokksirkus í Samkomuhús-
inu klukkan 20.30. Fram koma
hljómsveitimar Skrokkaband-
ið, Limlest ég er limlest, Frú
Roosevelt segir frá, Hún and-
ar og Barningur.