Morgunblaðið - 21.07.1993, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1993
Meintar iðnaðarnjósnir framleiðslustjóra Volkswagen
Spiegel heimilt að
segja Lopez sekan
Hamborg. Reuter.
DÓMSTÓLL í Hamborg kvað upp þann úrskurð í gær að vikuritinu
Der Spiegel væri heimilt að skrifa á ný um meintar iðnaðarpjósnir
Jose Ignacio Lopez de Arriorta framleiðslustjóra Volkswagen-verk-
smiðjanna (VW) og halda fram sekt hans. Blaðið hélt því fram að
hann hefði stolið leynilegum skjölum um nýjar bílategundir sem
General Motors-verksmiðjumar áformuðu að smiða á næstu árum
áður en hann réði sig til Volkswagen í mars sl.
Herráðið sátt við stefnu Clintons
Samkynhneigðir
segja engu breytt
Washington. Reuter.
ÞEIRRI stefnubreytingu Bandaríkjasljómar að heimila samkyn-
hneigðum að ganga í bandaríska herinn, með því skilyrði að kyn-
hneigð sé haldið leyndri, hefur verið andmælt harðlega af hálfu
þeirra sem beijast fyrir rétti samkynhneigðra. Hins vegar hafa for-
ystumenn í hemum lýst yfir stuðningi við þessa „málamiðlun" forset-
Fann til
með lækn-
inum eftir
uppskurð
NORSKUR lífeyrisþegi, Othar
Olsen, var lagður inn á sjúkra-
hús í Kristiansand til aðgerðar
á vinstra hné en. vaknaði með
verki í báðufn hnjám því fyrir
mistök hafði hægra hnéð verið
skorið upp. Olsen sagðist í
blaðaviðtali finna til með lækn-
inum sem iðrast hefði og beðist
afsökunar margsinnis áður en
hann réðst til atlögu við veika
hnéð.
Skruggur
drepa 111 naut
SKRUGGUM laust niður í rúss-
neskt samyrkjubú í Bashkort-
ostan í ÚralQöllum á mánudag
með þeim afleiðingum að 111
naut brunnu til bana, að sögn
fréttastofunnar Itar-Tass.
Hafði stjórnandi búgarðsins
skirrst við áskorunum um að
setja upp eldingavara. A árinu
hafa 27 samyrkjubú eyðilagst
í eldsvoða af völdum eldinga
og hundruð nautgripa drepist.
Umdeild úr-
slit í Eistlandi
RÚSSAR í Eistlandi sögðust
hafa unnið sigur á stjómvöldum
er 97% kjósenda í borginni
Narva og 98,6% í Sillamae í
austurhluta landsins studdu
nær einróma tillögu um að
landshlutinn fengi sjálfsforræði
í atkvæðagreiðslu um helgina.
Eistnesk yfirvöld lýstu at-
kvæðagreiðsluna ólögmæta og
sökuðu aðstandendur hennar
um kosningasvik. Kjörsókn var
aðeins 54%.
Eðlumynd
slær öll met
KVIKMYNDIN Jurassic Park
hefur slegið öll aðsóknarmet
fyrr og síðar í Bretlandi og ír-
landi því fyrstu sýningarhelg-
ina keypti 1,75 milljón gesta
sig inn á sýningar myndarinnar
og námu telqur af aðgangseyri
tæpum fimm milljónum punda
eða 530 milljónum króna.
Mannýg naut
drepa bændur
ÍRSKIR dýralæknar hvöttu
bændur til þess í gær að af-
homa griðunga á fengitíma þar
sem naut hafa stangað þrjá
bændur til bana í sumar. Dýra-
læknar segja nautin fyllast af
afbrýðisemi á þessum árstíma
og þoli hvorki menn né skepnur
nálægt kúnum.
Svipta
Brundtland
verðlaunum
VEGNA hvalveiða Noi-ðmanna
hafa samtök 150 evrópskra
umhverfísvemdarsamtaka
svipt Gro Harlem Brundtland,
forsætisráðherra Noregs, um-
hverfisverðlaunum sem henni
voru veitt árið 1988. Ákvörðun-
inni var mótmælt í Noregi.
Skuldjafna
með þotum
RÚSSAR hafa ákveðið að
grynnka á skuldum sínum við
Slóvaka með því að láta þeim
í té fimm MIG-29 herþotur
ásamt varahlutum. Sömu að-
ferð beittu þeir til að grynnka
á skuldum við Ungveijaland.
Talsmenn samkynhneigðra segja
þessa varfæmu stefnu vera brot á
kosningaloforði Clintons um að
banni við vem samkynhneigðra í
hemum yrði skilyrðislaust aflétt,
og að þeir muni reka málið fyrir
dómstólum. „Þessari stefnu verður
á endanum hafnað af dómstólum,"
segir Kevin Cathcart, formaður
réttindahóps samkynhneigðra.
„Stefnan felur í sér að samkyn-
hneigðir verða að sveija eið um
þagmælsku og varanlegt skírlifí ef
þeir vilja þjóna í hemum.“ Annar
talsmaður samkynhneigðra lýsti
vonbrigðum sinum með stefnuna
og sagði: „Hingað til hafa menn
verið reknir úr hemum fyrir að
ljúga. Nú verður maður rekinn ef
maður segir satt. Ég sé ekki hveiju
þetta breytir."
Yfírmenn í land- sjó- og flugher
sögðust sáttir við stefnuna og reiðu-
búnir að fylgja henni. „Þetta er
lausn sem allir geta sæst á og
vemdar herinn, vemdar einkalíf
allra þeirra sem þar þjóna, en er
um leið skref í átt til meira fijáls-
ræðis," sagði Colin Powell, herráðs-
forseti. Stefnubreytingin kemur til
framkvæmda 1. október, daginn
eftir að Powell, sem hefur verið
andvígur breytingunni, hyggst láta
af embætti.
Dómstóllinn tók til greina kröfu
Der Spiegel um að lögbanni, sem
VW hafði fengið sett í síðasta mán-
uði á frekari skrif vikuritsins um
meintar njósnir Lopez, yrði aflétt.
Úrskurðaði rétturinn að blaðinu
væri heimilt að endurtaka ásakanir
um að Lopez hefði tekið leyniskýrsl-
ur sem hann fékk afhentar á fundi
Adam Opel, dótturfyrirtækis Gen-
eral Motors í Þýskalandi, í mars.
„Fulltrúar Lopez höfðu kerfisbundið
safnað leyniskýrslum um margra
mánaða skeið. Samkvæmt ásökun-
um á hendur honum voru afrit tekin
og varðveitt á tölvudiskum frá í
nóvember 1992,“ skrifaði Der Spi-
egel 24. maí sl. er það færði fyrstu
fregnimar af ásökunum á hendur
Lopez.
Með lögbanni Volkswagen var
Der Spiegel bannað að skrifa um
málið þar til kveðinn hefði verið upp
dómur um það hvort blaðið hefði
brotið reglur um prentfrelsi með frá-
sögn sinni af meintum iðnaðamjósn-
um Lopez. Réttarhöld í því mála
hafa ekki verið dagsett.
Forsvarsmenn Der Spiegel hrós-
uðu sigri í gær og sögðust myndu
á næstunni birta ný gögn um meint-
ar iðnaðarnjósnir Lopez og sam-
verkamanna hans. Talsmenn
Volkswagen viðurkenndu að tekið
hefði verið tillit til allra sjónarmiða
Der Spiegel í lögbannsmálinu en
sögðu að úrskurðurinn í gær hefði
ekkert með sekt eða sakleysi Lopez
að gera. Hafin er opinber rannsókn
á meintu glæpsamlegu athæfi hans
bæði í Þýskalandi og Bandaríkjun-
um.
Þegar fréttin um úrskurðinn barst
inn á verðbréfamarkaðinum í Frank-
furt í gær lækkuðu hlutabréf í
Volkswagen snarlega í verði.
Reuter
Grínisti með
keiluhaus
GRÍNLEIKARINN Dan Aykroyd
mætti til frumsýningar nýjustu
kvikmyndar sinnar, „Coneheads", í
Hollywood í gær með heldur óvenju-
legan höfuðbúnað. Má reyndar
segja að höfuðbúnaðurinn hafi verið
í stíl við titil myndarinnar sem í
lauslegri þýðingu gæti þýtt keilu-
haus. Einnig virðist slifsið vera í
stíl við annað.
EB-aðild Finna þáttur í
sjálfstæðisbaráttunni
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morfpinblaðsins.
ÞAÐ hefur komið flestum ef ekki öllum á óvart hversu fljótt og
snurðulaust aðildarviðræður Finna við Evrópubandalagið (EB) hafa
þokast áfram. Þegar Svíar sóttu um aðild að EB fyrir tveim árum
voru Finnar varla búnir að átta sig á því að Sovétríkin áskildu sér
ekki lengur rétt til að leggjast gegn óskum Finna í utanríkismálum.
Helsinki
FINLANDIA-húsið í Helsinki, höfuðborg Finnlands, á blíðviðrisdegi.
Nú telja margir að Finnar séu
lengst komnir þeirra þjóða sem
hyggjast ræða um EB-aðild. Svíar,
Austurríkismenn og einkum Norð-
menn virðast eiga erfíðari samn-
ingslotur framundan.
Hvernig á að veija
sjálfstæðið?
í Finnlandi hefur umræðan um
EB-aðild verið dræm en helst hefur
hún snúist um hvaða áhrif EB-
aðild gæti haft á sjálfstæði þjóðar-
innar. Fylgismenn Keijos Korhon-
ens, eins af forsetaframbjóðendun-
um á næsta ári, halda þeirri skoðun
fram að nú sé verið að færa sjálf-
stæðið í hendur embættismönnum
í Brussel. EB-sinnar segjast hins
vegar veija sjálfstæði þjóðarinnar
með því að nálgast sterkasta efna-
hags- og hemaðarbandalag í heimi.
Skýringin er ef til vill fólgin í
því að Finnar hafa vanist því að
ræða ekki utanríkismál nema í
heimahúsum. Sú stefna sem forset-
inn og ríkisstjómin velur verður
einnig stefna þjóðarinnar. Fram-
kvæmd hennar er svo í höndum
nokkurra toppembættismanna ut-
anríkisráðuneytisins.
Hugsanleg aðild Finna að EB
var fyrst nefnd í áramótaávarpi
Maunos Koivistos forseta 1992.
Fram til þessa tíma var það álitið
vægast samt vafasamt að ræða
málið opinberlega vegna samskipt-
anna við Rússa.
Stefna Finna í aðildarviðræðum
við EB hefur verið nokkuð ólík
stefnu Svía, Austurríkismanna og
Norðmanna. Finnar hafa gert lítið
af því að setja alls konar fyrirvara
við almennar reglur EB. Svíar og
Austurríkismenn hafa lýst því yfir
að þeir mættu hætta við inngöngu
í EB ef sérskilyrði þeirra yrðu ekki
samþykkt af hálfu bandalagsins.
Nýlegar skoðanakannanir sýna
að jafn margir Finnar séu með og
á móti EB-aðild. Það sem ræður
úrslitum á þessu stigi er að nærri
því allir valdamenn, þ.e. stjóm-
málamenn, verkalýðsleiðtogar, for-
sprakkar efnahagslífsins og síðast
en ekki síst núverandi formaður
bændasamtakanna vilja EB-aðild.
Þjóðin getur formlega ekki skor-
ið úr um EB-aðildina. Samkvæmt
finnskum lögum eru þjóðarat-
kvæðagreiðslur aðeins ráðgefandi.
Þingið og forsetinn skera úr um
hvort samningur um EB-aðild verði
samþykktur.
Undraland í augum Rússa
Finnland er nokkurs konar
undraland í augum margra Rússa.
Allmargir Rússar hafa áhuga á því.
að flytjast vestur eða vinna sér inn
fé í Finnlandi. Finnska landamæra-
gæslan hefur þegar gert sínar ráð-
stafanir. Áður sáu sovéskir iand-
mæraverðir um að enginn kæmist
vestur um, nú reyna finnskir verð-
ir að halda gamla jámtjaldinu lok-
uðu. Finnsk yfirvöld hafa einnig
hafnað ósk Rússa um að afnema
skylduna á vegabréfsáritun á
landamærum ríkjanna.
Nú þegar mörg ríki innan EB
hafa tekið upp nokkurs konar ein-
angrunarstefnu gagnvart þjóðum
utan EB má telja eðlilegt að Finnar
vilji tryggja sér sæti í þessari fri-
múrarareglu ríkustu þjóða heims.
Enda eru Finnar langtum líkari
Vestur-Evrópuþjóðum hvað varðar
stjómarfar og efnahag en til dæm-
is fjarskyldir frændur þeirra, Ung-
veijar.