Morgunblaðið - 21.07.1993, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.07.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1993 17 Lester C. Thnrow hagfræðingur svartsýnn Engin álvinnsla á Vesturlöndum? BANDARÍSKI hagfræðingur- inn Lester C. Thurow spáir því að álframleiðsla á Vesturlönd- um heyri brátt sögunni til. Það er reyndar fráleitt eina blikan sem hann sér á lofti í efnahag Vesturlanda; hann segir að bú- ast megi við að á næstu tíu árum muni hinn kapítalíski heimur breytast, rétt eins og sá kommúníski, sem nú er hrun- inn. Thurow er forseti stjórnunar- deildar Massachusetts Institute of Technology (MIT) og þekktur fyrir skarpa greiningu á efna- hagsmálum. Hann segir í viðtali við Berlingske Tidende að eftir þær stjórnarfarsbreytingar sem orðið hafa á stórum svæðum í heiminum standi Vesturlönd nú frammi fyrir gífurlegum hag- og landfræðilegum vanda. Sovétríkin hafi lengi verið stærsti málmfram- leiðandi í heiminum. A því muni ekki verða breyting, og nú muni erlent fjármagn koma þar til skjal- anna. Þess vegna spáir Thurow því að álframleiðsla muni leggjast af á Vesturlöndum. Eins og reiðhjól Thurow segir að kapítalisminn' sé eins og reiðhjól; gengur vel þegar leiðin liggur fram á við, en ekki til nokkurs gagns ef þarf að bakka. Um það hvers vegna GATT-við- ræðurnar virðist hafa siglt í strand er Thurow beinskeyttur: „Vegna þess að kerfið er hrein- lega ónýtt. Það vilja allir sitt eig- ið. Þegar kalda stríðinu lauk hættu menn að vinna saman. Það er ekki lengur neitt til sem heitir vinir eða fjandmenn. Japanar Mafíuskelfir tekur við FBI BILL Clinton Bandaríkjaforseti útnefndi í gær Louis Freeh 43 ára alríkisdómara í New York sem yfir- mann alríkislögregunnar FBI. Fre- eh var um tíma starfsmaður FBI en bæði þar og síðar sem saksókn- ari og dómari í New York fékkst hann við baráttuna gegn skipu- lagðri glæpastarfsemi. Hefur hann tekið hart á mafíósum og fengið orð á sig sem mafíuskelfir. Á hann m.a. heiðurinn af því að uppræta umfangsmikla glæpastarfsemi tengda höfninni í New York. Lester C. Thurow. þurfa ekki lengur á Bandaríkja- mönnum að halda; því síður öfugt. Gangverkið er horfið og það er ekkert sem getur tekið við.“ Hugmyndir um viðbrögð Thurow varar við því að Vest- urlönd sofni á verðinum vegna sjálfumgleði yfir unnum sigrum í efnahagsmálum. Hann segir að svo snúa megi við blaðinu vérði Bandaríkjamenn að draga úr neyslu og auka útflutning; Japan- ar verði að auka neyslu; Þjóðveij- ar þurfi að hækka skatta. En Thurow segir að þessar lausnir eigi ekki upp á pallborðið hjá stjórnmálamönnum. Þá dreymi um kapítalisma að japanskri fyrirmynd. Norma afhjúpar Major STUÐNINGSMENN breska íhaldsflokksins í Huntingdon, kjördæmi Johns Majors forsætisráðherra, hafa látið gera bijóstmynd af leiðtoga sínum. Var hún afhjúpuð í gær og var myndin tekin af forsætisráðherrafrúnni, Normu, við það tækifæri. Norski flotínn stöðv- ar veiðar Zaandam Stjórn Færeyja andvíg því að togararnir landi í Færeyjum NORSKA strandgæsluskipið Senja skaut viðvörunarskoti að togaranum Zaandam á fiskverndarsvæði Norðmanna við Svalbarða í fyrrinótt. Brugðust skipverjar við með því að draga inn vörpuna og sigla út af svæðinu. Talsmaður norska flotaris sagði í_ samtali við blaðið Aftenposten í Ósló í gær, að komið yrði í veg fyrir veiðar utanaðkomandi skipa á fiskverndarsvæði Norðmanna við Svalbarða með öllum ráðum. Venjulegum reglum hefði verið fylgt og þannig hefði ekki verið skotið að Zaandam fyrr en skip- veijar hefðu hundsað öll fyrri til- mæli um að hætta veiðum. Skotið hefði verið fyrir stefni togarans en ekkert sprengiefni verið í kúl- unni. Hefði hann tafarlaust hætt veiðum og tekið stefnuna í suð- vestur og fylgdi Senja honum út fyrir verndarsvæðið. Samkvæmt upplýsingum blaðs- ins Dimmalætting í Færeyjum hefur færeyska landsstjórnin kom- ið til móts við óskir Norðmanna um að hindra veiðar Zaandam og Atlantic Margaret með því að leggjast gegn því að þeir landi afla í Færeyjum. Tummas Arabo sjávarútvegs- ráðherra Færeyja vísar því á bug í samtali við Dimmalætting að togararnir stundi veiðar við Sval- barða með velþóknun færeysku landsstjórnarinnar. Togararnir eru í eigu Færeyinga en skráðir í Dóm- iníkanska lýðveldinu, smáríki í Karíbahafinu. Segir Árabo að af þeim sökum skorti færeysk stjórn- völd lagastoð til þess að geta bann- að veiðar þeirra við Svalbarða. Hefur landsstjórnin hins vegar heitið á færeysk fiskvinnslufyrir- tæki að taka ekki við afla frá skip- unum. 21.670 i turavia Vikulegt flug 7. júlí - 25. ágúst. | Aukagjöld: Flugvallarskattar og forfallagjöld kr. 3.090. ' HEIMSFERÐIR hf. Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600 air europa NÝJA BÍL.AHÖLLIN FUNAHÖFÐA 1 S:672277 Toyota Landcruser turbo árg. 1987, brún- sans, 35“ dekk. Toppbíll, skoöaöur ’94, ek. 148 þ. km. Verð kr. 1.990.000,- skipti. MMC Galant 2000 GLSi árg. 1991, hvítur, sjálfskiptur, rafm. í rúðum, skoðaður 1994. Verð kr. 1.180.000,-. Góð kjör. Jeep Willys CJ5 árg. 1982, gulur og svart- ur, 38" dekk, 350 cub., Buick-spil, mikið breyttur, skoðaður 1994. Verð kr. 950.000,-. Daihatsu Feroza DX árg. 1991, rauður, ekinn 44 þ. km., skoðaður 1994. Verð kr. 1.000.000,-. i/dmaibu unaraae iö grænn, skofiaður 1994, ekinn 68 þ. km. Verð kr. 360.000,-. FRA KL. Ford Econoline 150 4 x 4 árg. ’84, ek. 137 þ. km, blár, hár toppur, gas/rafm., miðstöð, svefnaðstaða, sjónvarp, myndband, hljóm- flutningstæki. Verð kr. 2.790.000,- stgr. Ath. skipti. Sjón er sögu ríkari. Renault Nevada 4WD árg. ’91, ek. 32 þ. km., sægrænn. Verð kr. 1.350.000,- stgr. Ath. skipti. MMC Lancer GLX árg. ’89, ek. 49 þ. km., blár, sjálfsk. Verð kr. 780.000,- stgr. Ath. dýrari bfll, station 4WD. Hyundai Pony 1500 GLSi árg. ’92, ek. 5 þ. km., rauður. Verð kr. 850.000,- stgr. Bein sala. Subaru Legasy 1.8 árg. '91, ek. 56 þ. km., grár. Verð kr. 1.350.000,- stgr. Ath. skipti. L

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.