Morgunblaðið - 21.07.1993, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1993
23
Morgunblaðið/Kjartan P. Sigurðson
Keppendur
KEPPENDUR í mótinu, talið frá hægri: Ámi Gunnarsson, íslandsmeistari, Sveinn Ásgeirsson, Ágúst
Kristjánsson, Einar Eiriksson, 2. sæti, Ingólfur Bruun, Haukur Sigurðsson og Krisiján Richter.
fljúga upp í Hrauneyjafossvirkjun;
Ámi Gunnarsson, Einar Eiríksson
og Jón Rósmann Mýrdal, þeir vom
í 1.500 m. hæð yfir Hrauneyjafossi
í skýjabotnum og hefðu þess vegna
getað haldið áfram inn á háiendið.
Nokkuð margir ákváðu að fljúga
frekar inn í sundlaug og náðu fimm
menn á áfangastað.
Fimmti dagur: Menn mættu von-
góðir á fjall, í suðurátt lá skýjabraut
niður að strönd, en illúðlegir svartir
skýjabakkar hótuðu rigningu rétt
norðan okkar. Verkefni dagsins var
að fljúga niður að strönd neðan
Þykkvabæjar. Áður en nokkur komst
í loftið náðu rigningarbakkarnir okk-
ur og dró þar með verulegu úr von-
um okkar um nýtanlegt hitaupp-
streymi. Nokkrir fóm í loftið og
börðust við tættar bólur en urðu að
iáta í minni pokann og var dagurinn
ógildur.
Kári tók mótið í sínar hendur
Þegar hér var komið við sögu tók
Kári mótið í sínar hendur og frest-
aði áformum okkar eins og margra
annarra þessa daga sem hugðu á
útivist. Norðan rok hamlaði öllu flugi
og pökkuðu menn saman á föstudeg-
inum og héldu til síns heima.
Sunnudaginn 11. júlí var kepp-
endum hóað saman og haldið í Blá-
fjöll. Ennþá var stíf norðvestan átt
í lofti og ákveðið að hafa opið yfir-
landsflug, þ.e. leyfilegt að fljúga
hvert sem menn vildu, og er þá
mæld vegalengdin frá flugtaksstað
að lendingarstað og sá sem flýgur
lengst vinnur. Menn flugu yfirleitt
frá Bláfjöllum inn yfir Vífilfell við
Sandskeið og þaðan reyndu menn
ýmist að komast í austur með þjóð-
veginum í átt að Selfossi eða í Heng-
il og norður að Þingvallavatni. Sigur-
vegari þennan dag var Ámi Gunn-
arsson (34 km), sem flaug að Þing-
vallavatni og lenti við Heiðarbæ, í
öðru sæti var Bjami Þórðarson (16,5
km) og í þriðja sæti Sveinn Ásgeirs-
son (15,8 km).
Niðurstöður mótsins urðu því sem
hér segir.
stig _
1. Árni Gunnarsson 671
2. Einar Eiríksson 564
3. Jón Rósmann Mýrdal 408
4. BjarniÞórðarson 372
5. Haukur Sigurðsson 355
6. Kjartan Pétur Sigurðsson 268
7. Lárus Halldórsson 256
8. Ágúst Kristjánsson 253
9. Ingólfur Bruun 244
10. Sveinn Ásgeirsson 231
Mikill tækjabúnaður
í dag em svifdrekaflugmenn mjög
vel tækjum búnir miðað við þann
framstæða búnað sem notaður var
hér áður fyrr. Venjulegur svifdreka-
flugmaður hefur nú yfír að ráða
svifdreka sem hefur mjög góða flu-
geiginleika. Þar má nefna: Tvöfald-
an væng með sömu eiginleika og
bestu vængir flugvéla nútímans,
sterka álröragrind, ýmis ný efni til
að gera væng léttari (kevlar, car-
bon), svifhom 1/12, þ.e. getur t.d.
svifíð 12 km vegalengd úr eins km
hæð. Flugvesti/poki sem hægt er
að loka og heldur hita á flugmann-
inum. Eitt mikilvægasta tæki við
svifdrekaflug er fall- og klifurmælir
sem segir hvort maður er á upp- eða
niðurleið og hversu hratt. Notast er
við talstöð svo hægt sé að koma
boðum á milli einstakra flugmanna
um aðstæður í lofti, tilkynningum
til annarra flugfara og upplýsingum
til flugtums. Talstöðin kemur sér
einnig vel við að koma skilaboðum
til þeirra sem sækja menn sem lenda
á víð og dreif, oft yfir stór land-
svæði. Annan búnað mætti nefna,
svo sem seguláttavita, hæðarmæli
og hraðamæli. í framtíðinni má jafn-
vel eiga von á að GPS staðsetningar-
búnaður teljist til almenns búnaðar
í svifdrek.
Öryggisbúnað mætti nefna:
hjálm, gleraugu, varafallhlíf, vind-
heldan hlífðarfatnað og hanska.
Svifdrekaflugmaður þarf helst að
hafa góðan íjorhjóladrifmn bíl til
umráða, þ.e. mikið er um keyrslu
á erfiðum fjallavegum.
Félagið
í Félagi SDFR era skráðir um 50
félagsmenn og þar af eru um 30
manns mjög virkir. Félagið hefur
starfað í 15 ár. Markmið félagsins
er að kynna svifdrekaflug á íslandi
og sjá um kennslu og fræðslu á svif-
drekaflugi almennt. Félagið sér um
skipulagningu á ýmsum mótum og
ferðum félagsmanna á keppriir bæði
innanlands og erlendis. Félagar alls
staðar að.
Félagið hefur yfir að ráða aðstöðu
í sumarbústáð rétt suðvestur undir
Úlfarsfelli. Félagsmenn koma þar
saman reglulega fyrsta fimmtudag
í byrjun hvers mánaðar. Þar er að-
staða öll -hin besta fyrir félagsmenn.
Þar er hægt að vera með verklega
og bóklega kennslu, fræðslufundi
ýmiss konar og viðhald og prófun á
búnaði. Félagið hefur komið sér upp
aðstöðu fyrir vélflugdreka og til
þessa hefur verið smíðað flugskýli
og viðhaldsaðstaða. Einnig hafa ver-
ið lagðar tvær flugbrautir. I kringum
félagsheimilið er búið að gróðursetja
mikið af tijám og gera aðstöðuna
skemmtilega fyrir félagsmenn og
fjölskyldur þeirra. Aðstaða er fyrir
útigrill og hvers kyns samkomuhald
í hálfrar aldar gömlum trjálundi bak
við félagsheimilið.
Helstu flugstaðir
Hafrafell: Eitt vinsælasta flug-
svæði svifdrekamanna, bæði fyrir
byijendur og þá sem lengra era
komnir. Þar era aðstæður allar hinar
ákjósanlegustu, góður flugtaksstað-
ur, góð staðsetning gagnvart haf-
golu, stutt frá Reykjavík ög félags-
heimili SDFR. Úlfarsfell: Svipaðar
aðstæður og við Hafrafell. Búrfell:
Fjall sem er hvað þægiíegast að
skipuleggja
Einnig mætti nefna staði sem
flogið hefur verið á, s.s. Hvolsfjall
við Hvolsvöll, Bláfjöll, Esjuna,
Skálafelí, Ingólfsfjall, Kamba, Strút
við Húsafell, Kerlingarfjöll, Reynis-
flall við Vík. Ýmis fjöll á Vestfjörðum
og fyrir norðan í Blöndudal, við
Akureyri, Húsavík og austur á Hér-
aði.
Helstu flug: 93 km - Úlfarsfell -
Holtavörðuheiði (1990 / 4 kl.st. /
Árni Gunnarsson, íslandsmet; 80 km
- Strútur - Mýrar (1992 / 3 kl.st. /
Einar Eiríkssson); 63 km - Úlfars-
fell - Reykjanesviti (1986 / 3 klst /
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, íslands-
met.
Félagar í SDFR vilja að lokum
þakka öllum þeim sem veitt hafa
félaginu stuðning í gegnum árin.
Valt í lausamöl
ólafsvík.
UMFERÐARÓHAPP varð við Hnausahraun í Breiðuvíkurhreppi
um hádegisbilið á sunnudag, er fólksbifreið fór út af veginum,
valt og kastaðist nokkra metra og lenti utanvegar.
Ökumaður bifreiðarinnar slapp
með minniháttar meiðsl en að sögn
lögreglunnar var mesta mildi að
ekki fór verr. Talið er að ökumaður
hafí misst vald á bifreiðinni í lausa-
möl og vill lögreglan vara ökumenn
sem leggja leið sína á Snæfellsnes-
ið á lausamölinni. Talsverð umferð
var á Nesið um helgina og varð
þetta eina umferðaróhappið að sögn
lögreglunnar í Ólafsvík.
- Alfons.
Engeyjarvitinn skoðaður
Morgunblaðið/Alfons.
Rauði kross-
inn kennir
skyndihjálp ^
EINS og mörg undanfarin ár
gengst Reykjavíkurdeild RKÍ fyr-
ir námskeiði í skyndilijálp fyrir
verslunarmannahelgina. Nám-
skeiðið hefst í dag, miðvikudaginn
21. júlí. Kennsludagar verða 21.,
22., 26., og 27. júlí. Kennt verður
frá kl. 20 til 23. Námskeiðið telst
vera 16 klst. Námskeiðið verður
haldið í Fákafeni 11, 2. hæð. Þátt-
taka er heimil öllum 15 ára og eldri.
Námskeiðsgjald er kr. 4.000.
Skuldlausir félagar í RKÍ fá 50%
afslátt. Hægt verður að ganga í fé-
lagið á staðnum. Einnig fá nemenduí'-
í framhaldsskólum 50% afslátt. Þetta
gildir einnig um háskólanema gegn
framvísun á skólaskírteini.
Meðal þess sem kennt verður á
námskeiðinu er blástursmeðferðin,
endurlífgun með hjartahnoði, hjálp
við brana, blæðingum úr sáram og
mörgu öðra. Einnig verður fjallað
um það hvernig koma megi í veg
fyrir helstu slys.
Að námskeiðinu loknu fá nemend-
ur skírteini sem hægt er að fá metið
í ýmsum skólum.
Tekið skal fram að Reykjavíkur-
deild RKI útvegar leiðbeinendur til
að halda námskeið í fyrirtækjum og
hjá öðram sem þess óska.
(Fréttatilkynning) ju
DEMPARAR
Sendum í póstkröfu.
Gott verð.
Gæðaþjónusta.
ísetning á staðnum.
Verslið hjá
fagmanninum.
BíbvörubúÖin
FJÖÐRIN
Skeifunni_2,
Sími 81 29 44
t
í KVÖLD, miðvikudagskvöld, fer Ilafnargönguhópurinn kl. 21 frá
Hafnarhúsinu í fjórðu ferðina til kynningar á sjóleiðum, vitum
og sjómerkjum á höfuðborgarsvæðinu.
Farið verður frá bryggju neðan
við Hafnarbúðir og sigld gamla
sjóleiðin úr Grófínni út í Engey.
Lent verður við Austurvörina og
gengnar traðimar upp að bæjarr-
ústunum á háeynni og síðan að
gamla vitasvæðinu þar norður af.
Þaðan verður gengið með strönd-
inni á Vestureyna og vitinn skoðað-
ur. Áfram verður haldið með
strönd eyjunnar að Austurvör.
Ferðinni lýkur svo við Hafnarhús-
ið. Öll ferðin tekur um tvo og hálf-
an tíma. Allir eru velkomnir í ferð
með Hafnargönguhópnum. Báts-
ferðin kostar 800 kr.
Eitt af fyrstu ljósmerkjum við
Faxaflóa til leiðbeiningar skipum
var sett upp í Engey. Viti var þar
byggður 1902 og endurbyggður
1937 og stendur enn.
ÚTSALAN
hefst
SKÓVERSLUNIN
SKÆÐI ■ dag mÍlanÓ
KRINGLUNNI 8-12 S. 689345