Morgunblaðið - 21.07.1993, Side 32

Morgunblaðið - 21.07.1993, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JULI 1993 // ~TöLur Okkar Sd/nOL, O.Ó Þ^i StxrrL SCm Lampannireru þd -er bg%mthni lHajr d þ\/i a&þjófiar steLL þeim.» Með morgunkaffinu Hættu þessu röfli, Hómgeir! Hvað um allar þessar he- statruntur sem ÞÚ kaupir? Eins og þú sérð hefur orðið mikil hagræðing í rekstrin- um. Við erum búnir að stækka skóflurnar til muna. HÖGNI HREKKVÍSI BRÉF TTL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 Sorpgámar í Hveragerði Frá Ingvari Sigurðssyni: ÞAÐ VAR mikil hagræðing fyrir Hvergerðinga þegar bærinn tók á leigu sorpgáma og fólk þurfti ekki að aka með rusl á haugana á Sel- fossi. Gámunum var valinn staður inni í miðju íbúðarhverfi við hliðina á áhaldahúsi bæjarins, sem stend- ur við Bláskógagötu. Af skiljan- legum ástæðum dregur staðsetn- ing áhaldahússins að sér mikla umferð, en sú umferð er aðallega á venjulegum fótaferðatíma. Með tilkomu gámanna jókst umferð um götuna til muna og er hún langt fram á nætur, sérstaklega á vorin. Gatan er ekki lögð bundnu slitlagi og á góðviðrisdögum er ekki líft utanhúss vegna rykmengunar. Um helgar yfirfyllast gámarnir gjarnan og standa þeir þá opnir. Fólk raðar rusli umhverfis þá sem síðan fýkur inn á nálægar lóðir þegar vind hreyfir. Fáir gera sér grein fyrir þeirri eldhættu sem getur stafað af þessu samansafn- aða rusli. Þess má geta að aðeins 20 metrar eru að næsta íbúðar- húsi. Þessu ástandi una íbúar ekki. Á síðasta ári mótmæltum við íbúar við Bláskóga og nágrenni staðsetningu gámanna og fórum fram á að þeir yrðu fjarlægðir. Við fengum jákvæðar undirtektir og benti bæjarstjóri á að sam- kvæmt ákvæðum heilbrigðisreglu- gerðar væri staðsetning gámanna ólögleg. En duglítil bæjarstjórn hefur ekkert aðhafst í málinu enn- þá. Hluti af gámasvæðinu er inni á hverasvæðinu og er það ekki til fegrunar. Auk þess að hverasvæð- ið sé notað til orkunýtingar er það notað sem aðstaða fyrir gáma, bílflök og malarhauga og að end- ingu má geta þess að forseti bæj- arstjórnar notar hluta af svæðinu til blómaræktunar. Gárungarnir eru farnir að kalla hverasvæðið „Ingvelli“, Ingibjörgu forseta bæj- arstjórnar til háðungar. Það er von mín og annarra íbúa í nágrenni við gámana að bæjar- stjórn standi við gefin loforð. Þó að ástandið sé óviðunandi má ekki gleyma að geta þess að yfirverkstjóri bæjarins hefur reynt að halda svæðinu umhverfis gám- ana eins hreinu og unnt hefur verið. INGVAR SIGURÐSSON, Hveragerði. Athugasemd frá Ferðaskrifstofu BSÍ Frá Gunnari Sveinssyni: ÞJÓNUSTA og skipulagning ferða um ísland fyrir erlenda ferðamenn er oft og tíðum flók- in og margbrotin athöfn þar sem margir ólíkir aðilar með mismunandi skoðanir koma að málinu. En ferðaþjónustan er sú atvinnugrein sem hvað mest- an vaxtarbrodd hefur sýnt und- anfarin ár enda skilar hún í þjóðarbúið 12,5 milljörðum á ári. Það er því ekki óeðlilegt að þjónusta þessi sýni ákveðna vaxtarverki í þróun sinni og viðgangi þar sem ólíkar skoð- anir og sjónarmið takast á. Einn slíkur átakapunktur hefur verið starfsemi erlendra fararstjóra hér á landi fyrir erlendar ferða- skrifstofur. í blaðagrein í Morgunblaðinu 11. júlí síðastliðinn varðandi erlenda fararstjóra er haft eftir mér að formaður Félags leið- sögumanna hafi „nálgast þýska fararstjórann og gefið í skyn að hann yrði handtekinn og honum vísað úr landi“. Ofangreindar upplýsingar hafði ég frá hinni þýsku ferða- skrifstofu en í samtali sem ég hef átt við formann Félags leið- sögumanna kom réttilega fram að hinum erlenda fararstjóra hafi einungis verið bent á, að hann hefði eigi tilskilda pappíra til fararstjórastarfa hér á landi og hefði honum verið bent á að stjórn félagsins myndi koma upplýsingum um ferðir hans til viðkomandi yfirvalda. Vil ég góðfúslega óska eftir að Morg- unblaðið leiðrétti þetta. í framhaldi af þessum at- burði, sem hér um ræðir, hefur verið ákveðinn fundur á næst- unni milli Studiosus Reisen, Félags leiðsögumanna, Ferða- málaráðs og Ferðaskrifstofu BSÍ til að ræða þessi mál og finna viðunandi lausn á málum sem slíkum. Fulltrúi Studiosus mun gagn- gert koma til íslands til þessara viðræðna enda miklir hagsmun- ir í húfi fyrir íslenska ferðaþjón- ustu. F.h. Ferðaskrifstofu BSÍ, GUNNAR SVEINSSON. Víkveiji skrifar að er ekkert nýtt í því að þeg- ar einhver nýjung er kynnt hér á landi, þá rjúka margir upp til handa og fóta og beinlínis verða að prófa. Þetta hafa dæmin sýnt og sannað í gegnum tíðina, og eng- in breyting virðist í vændum á þjóð- arsálinni í þessum efnum. Menn eru ekki að velta fyrir sér kostnaði þeg- ar þörfin grípur þá til þess að prófa eitthvað nýtt. Teygjustökksæðið sem greip um sig, og kostar að því er Víkverja hefur skilist fleiri þús- und krónur, er talandi dæmi um æði það sem rennur á menn, er nýjungar eru annars vegar. Annað nýlegt dæmi er reynsluakstur í svo- kölluðum „go kart“ bílum, sem ný- lega var boðið upp á, á svæði því í Laugardalnum, sem á veturna er nýtt fyrir skautaíþróttina og átti að því er Víkveija skildist að vera fyrir línuskautaiðkendur á sumrin. Nú hefur aðgangur línuskautaiðk- enda verið takmarkaður að svæð- inu, þar sem Reykvíkingar og gest- ir þeirra þurfa nú í gríð og erg að fullnægja nýjungagirni sinni með hringakstri „go kart“ bílanna. Hvorki meira né minna en fimm hundruð manns urðu að prófa farar- tækin þegar fyrsta daginn, sem slíkur ökutúr stóð til boða, enda varð að loka staðnum eftir það, þar sem hjólbarðarnir beinlínis spænd- ust upp samdægurs og bíða þurfti annarrar hjólbarðasendingar er- lendis frá. x x x Ekki sæi Víkveiji svo sem neitt sérstaklega athugavert við þessa eilífu nýjungagirni borgar- anna, ef ekki væri sú stáðreynd, að umhugsunarlaust og án nokkurr- ar gagnrýni láta þeir þá sem fyrir nýjungunum standa arðræna sig á ótrúlegan hátt. Teygjustökkið, sú manndrápsíþrótt sem það nú virðist vera, er talandi dæmi um slíka rán- starfsemi og nú síðast eru „go kart“ bílarnir annað dæmi. Það mun vera Suzuki-umboðið sem stendur fyrir þessu arðráni, sem beinist þá vænt- anlega aðallega að börnum og for- eldrum þeirra, sem borga jú brús- ann fyrir börn sín. Suzuki-umboðið leigir af Reykjavíkurborg þá að- stöðu sem hún hefur byggt upp í Laugardalnum fyrir skautaiðkend- ur, frá kl. 14 daglega og selur síð- an aðgang að „gó kart“ bílum sínum og þar eru engir útsöluprísar í gangi, því ferðin sem varir í þijár mínútur kostar 300 krónur. Ein mínúta undir stýri á tryllitækinu kostar sem sagt 100 krónur. Miðað við að aðsókn í þessa spennandi nýjung haldist óbreytt, gæti umboð- ið tekið inn rúmlega eina milljón króna á viku, það sem eftir lifir sumars. xxx Reykjavíkurborg tók þá ákvörð- un þegar Fjölskyldugarðurinn í Laugardal var opnaður 24. júní að hafa aðgang að garðinum, Hús- dýragarðinum og skautasvæðinu ókeypis fyrsta mánuðinn sem garð- urinn væri opinn, eða til næstkom- andi laugardags. Víkveiji telur þá ákvörðun hafa verið af hinu góða og vel til þess fallna að kynna sem flestum þá möguleika sem aðstaðan í Laugardal býður upp á. Nú skýtur hins vegar skökku við, að borgin ákveði að leigja einkafyrirtæki að- stöðu þá sem byggð hefur verið upp með almannafé, til þess að sama fyrirtæki geti okrað í stórum stíl á barnafólki. xxx Prentvillupúkinn virðist hafa verið í skrattans miklu stuði þegar sunnudagsblað Morgunblaðs- ins var unnið, því hann læddi sér inn með ærið skondnum hætti í auglýsingu frá skattstjóranum í Vesturlandsumdæmi um skatt- skrár. Skattskrárnar voru í auglýs- ingunni nefndar „skrattskrár" sem ugglaust mörgum finnst vera rétt- nefni!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.