Morgunblaðið - 21.07.1993, Síða 33

Morgunblaðið - 21.07.1993, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1993 33~ Ennþá um hjólreiðar Frá Margréti Sæmundsdóttur: JÓRUNN Sörensen sendi mér ádrepu í bréfí til blaðsins sunnudag- inn 18. júlí. Jórunn hefur því misskil- ið mig algjörlega þegar ég hvet hjól- reiðamenn til þess að hjóla á réttum vegarhelmingi, þ.e. hægra megin. Ég var ekki að kvarta yfir hjólreiða- mönnum sem hjóla samhliða mér þegar ég ek á bíl heldur þeim sem hjóla á móti umferðarstraumnum. Ég gat nú ekki annað en hlegið að fullyrðingu Jórunnar um reynslu- leysi mitt sem hjólreiðakonu og að ég viti ekkert um hvemig er að vera á hjóli á höfuðborgarsvæðinu. Að vísu hjóla ég ekki á milli bæjarfélaga en sl. 10 ár hef ég hjólað í vinnuna á sumrin flesta daga vikunnar. Ég verð því að hryggja Jómnni með því að hún hefur rangt fyrir sér um reynsluleysi mitt sem hjólreiða- manns. Hins vegar er ég innilega sammála Jómnni að það er ekki allt- af auðvelt að hjóla á íslandi og of lítið gert til þess að gera fólki fært að nota þennan ferðamáta. Það þarf vissulega að stórbæta aðstöðu hjól- reiðamanna. Mér er annt um líf mitt, þess vegna hjóla ég ekki á akbrautum ef ég get komist hjá því, en læt mér nægja að hjóla á gangstéttum, t.d. meðfram Miklu- braut eða Kringlumýrarbraut sem er á leið minni í vinnuna. Sumstaðar er ástand gangstétta slæmt en á löngum köflum bará nokkuð gott. Hins vegar vandast málið þegar ég þarf að fara yfír á gatnamótum en það em þeir staðir sem em hættuleg- astir fyrir hjólreiðafólk. Ökumenn sem beygja á gatnamótum taka ekki oft eftir gangandi og hjólandi fólki. Ég reyni því að horfa framán í öku- manninn og fer ekki fyrr en ég veit að hann sér mig. Sem fulltrúi í umferðarnefnd Reykjavíkur hef ég m.a. barist fyrir því að meira sé gert fyrir hjófreiða- menn og gangandi vegfarendur. Sem dæmi má nefna tillögu um undirgöng á Miklubraut við Réttar- holtsveg/Rauðagerði. Þetta eru mjög hættuleg gatnamót en jafn- framt fjölfarin af hjólreiðamönnum og gangandi fólki sem er á leið í Skeifuna. Ennfremur hef ég bent á illa gerða fláa og fláaleysið á gang- stéttunum og að gera verði við gang- stéttar sem em brotnar. Því eins og Jómnn hef ég marg oft verið næst- um þvi floginn á hausinn þegar ég kem allt í einu að stórri holu í gang- stéttinni eða hellu sem er brotin. Hjólreiðastígar em mjög fáir í borg- inni og enda oft snögglega eins og það hafi verið ákveðið að malbika einhveija vissa lengd síðan hafi þeirri lengd verið náð og þá er bara stoppað og hjólreiðastígurinn endar í einhveiju tilgangsleysi. Undirgöng og góðir hjólreiðastígar em að mín- um dómi það sem hjólreiðamenn og gangandi vegfarendur vanhagar mest um. Akbrautir með mikilli bí- laumferð verða aldrei heppilegar fyrir hjólreiðar, slysahættan er ein- faldlega of mikil. Að mínum dómi þarf að aðskilja umferð gang- andi/hjólandi sem mest frá bílaum- ferð. Það gemm við best með því gera hjólreiðastíga og undirgöng undir erfíðustu gatnamótin. Ég vona að hin mikla baráttukona Jómnn Sörensen beiti kröftum sínum til þess að hjálpa mér og öðmm hjól- reiðamönnum við að vinna að bættri aðstöðu hjólreiðamanna. Því ef margir hjálpast að er von um árang- ur. MARGRÉT SÆMUNDSDÓTTIR, fræðslufulltrúi Umferðarráðs. Pennavinir ísraelskur frímerkjasafnari sem getur ekki um aldur: Sam Baum, P.O. Box 1316, 52113 Ramat-Gan, Israel. Fimmtán ára japönsk stúlka með áhuga á lestri og matargerð: Hiromi Ogasawara, 1-15-22 Yokota, Matsumoto-shi, Nagano, 390Japan. Tvítug Ghanastúlka, háskóla- nemi, með áhuga á ferðalögum: Macellinda Andzie-Quainoo, P.O. Box 0100, University Post Office, University of Cape Coast, Cape Coast, Ghana. Átján ára ítölsk stúlka með bull- • andi áhuga á íslandi. Vill skrifast á við 18-20 ára íslensk ungmenni: Teresa Giulianelli, Borgo S. Groce 3, 62010 Appignano (MC), Italy. Franskur frímerkjasafnari sem getur ekki um aldur vill stofna til bréfasambands við íslenska safn- ara: Alain Bonnet, 18 Bd Davzac, F. 13004 Marseille, France. Frá Ghana skrifar 25 ára karl- maður, verkfræðingur, með áhuga á borðtennis og útiveru: Mark Andzie-Quainoo, P.O. Box 08, U.C.C. Post Offíce, Cape Coast, Ghana. VELVAKANDI TAPAÐ/FUNDIÐ Goretex-jakki FJÓLUBLAR Goretex-jakki tapaðist af reiðhjóli í vestubæ Kópavogs föstudaginn 16. þ.m. í vasa á jakkanum voru slæða og reiðhjólalás. Jakkinn er merktur með nafni, heimilis- fangi og símanúmeri. Heiðar- legur finnandi vinsamlega hringi í símann sem gefínn er upp inni í jakkanum. Týnd sólgleraugu SOLGLERAUGU í gylltri um- gjörð af gerðinni Laura Biagi- otti töpuðust á Gull- og silfur- mótinu á Kópavogsvelli, annað- hvort á vellinum eða á göngu- stíg milli vallanna, síðdegis sl. föstudag. Finnandi vinsamlega hringi í síma 656270. Fundar- laun. Týnt úr GYLLT kvenúr með svartri leðuról tapaðist í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt Iaugar- dagsins 17. júlí. Fundarlaun. Upplýsingar í síma 658112. Tjaldhiminn tapaðist APPELSÍNUGULUR tjaldhim- inn tapaðist úr bíl á leiðinni upp í Þórsmörk, frá vegamótunum við Stóru-Mörk, laugardaginn 16. júlí sl. Upplýsingar í vinnu- síma 624250 og heimasíma 642855. Steinþór. Fundarlaun. Myndavél tapaðist LÍTIL Canon-myndavél, 35 mm, tapaðist á Bæjarættarmóti á Drangsnesi 2.-4. júlí sl. Finnandi vinsamlega hringi í síma 95-13221. Myndavél tapaðist SJÁLFVIRK myndavél í gráum poka með fílmu í tapaðist í leigubíl frá Hótel Sögu að Perl- unni skömmu eftir miðnætti aðfaranótt sunnudags. Upplýs- ingar í síma 643121. Hjólkoppur tapaðist HJÓLKOPPUR af Toyota-bif- reið tapaðist við Glæsibæ rétt fyrir kl. 14 sl. mánudag. Finnandi vinsamlega hringi í síma 656218. Dóra. GÆLUDYR Týndur páfagaukur LITILL ljósblár páfagaukur tapaðist frá Kársnesbraut I Kópavogi sl. sunnudag. Hafí einhver orðið hans var er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 41847. Kettlingar ÁTTA vikna kassavanir kettl- ingar fást gefíns. Upplýsingar í síma 41637 eða 40386. Týndur köttur UNGUR síamsköttur hvarf frá Stórholti 39, Reykjavík, laugar- daginn 10. júní. Hann var með gula hálsól, nafnspjald með nafninu Nick og auk þess er hann eyrnamerktur. Hafí ein- hver orðið hans var er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 29428. Fundarlaun. Doppa er týnd NÍU ára gömul, þrílit læða tapaðist frá Sæviðarsundi 82 um hádegisbilið sl. laugardag. Hún var með hvíta hálsól. Þeir sem hafa orðið hennar varir eftir þann tíma eru vinsamlega beðnir að hringja í síma 36532 eða hafa samband við Katta- vinafélagið. Einnig væri gott ef íbúar í nágrenninu myndu líta inn í bílskúra eða kjallara sína og gæta að hvort hún hafi lokast inni. Týndur köttur BRÖNDÓTTUR þriggja ára högni hvarf frá heimili sínu, Nökkvavogi, fyrir rúmri viku. Hafí einhver orðið hans var er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 682964. Týndur köttur á Selfossi SVARTUR og hvítur högni tap- aðist frá Sunnuvegi 14 á Sel- fossi mánudaginn 12. júlí sl. Hann var með fjólubláa ól og gult merkispjald sem á stóð Kolbeinn. Hafi einhver orðið hans var er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 98-22536. Selfyssingar eru vin- samlega beðnir að athuga í gleymslur og kjallara og athuga hvort hann gæti hafa lokast inni. Kettlingur fannst ÞRIGGJA til fjögurra mánaða gamall fresskettlingur gerði sig heimakominn á Suðurgötu í Hafnarfírði sl. laugardag. Eig- andi kettlingsins má hafa sam- band í síma 50327. Ég úndirritaöur þakka öllum þeim, er glöddu mig á áttrœÖisafmœli mínu. GuÖ blessi og varÖveiti ykkur öll. Þorsteinn Á. Hraundal. Til sölu Cadillac Eldorado, órg. 1979, rauður, 8 cyl., 350 EFI, sjálfsk., vökvast., svínsleður á sætum og stýri, stáltoppur með topp- lúgu, ekinn 79.000 km. frá upphafi. Verð kr. 1.470.000. Skoðaður '94. Ath. Skipti, dýrari eða ódýrari. -------(ajuiiqilak^)-------------- V mr OF NORWAY^ -----^ SUMARTILBOÐ ^ ÍJÚLÍ Sæng Hollofil 4 140x200 cm jSr4ÖÖ 5.120 Sæng Hollofil 4 100x140 cm 3í6ÖÓ 2.880 Sæng Hollofil 4 80x100 cm 2í5Ö0 2.000 Sæng Hollofil 4 65x 80 cm JAIÖÖ 1.520 Koddi Hollofil 4 50x 70 cm ^300 1.840 Koddi Fiberfill 40x 60 cm Tr250 1.000 Koddi Fiberfill 35x 40 cm ^900 720 FALKINN Síðumúla 22, Suöurlandsbr. 8, s. 814670 Skólavörðust. 21a, sími 812244. Mjóddinni, sími 670100. sími 14050. .......—--- vi\ Vi6 bjó&um ykkur.velkomin í 7 daga hvíldar- og uiessiuyuiuvui i |uu Þar verða kynntar lei&ir til a& bæta heilsuna og ö&last meiri lífsgle&i og frið •'9 St /I ■' ’ tji aðsóknor: 15322. ágöst mm • Heilsufæ&i (fullt fæSi’ m: 4 • Fræðsluerindi • Rúmgóð 2ja manna herbergi * Uppskriftir • Líkamsæfingar, jóga • Tónleika •Gönguferðir • Nudd • Hugkyrrð, slökun Sérstakir fyrirlesarar og lónlistarmenn verða á hverju námskei&i. Á sfoðnum er glæsileg sundlaug og nuddpottur. Nánari upplýsingar veita Sigrún og Thor í síma 668489 á milli kl. 8.00 og 10.00 tyrir hódegi til 6 júlí. Eftir jxið á Reykhóium í síma 93-47805 SigrúnOlsen *“'**'»* Thor Barðdal Þú svalar lestrarþörf dagsins ásúíum Moggans!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.