Morgunblaðið - 21.07.1993, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1993
35*
FRJÁLSÍÞROTTIR
KNATTSPYRNA / BIKARKEPPNIN
Einvígi Lewis
og Christie í
100mhlaupi
Sagðirfá andvirði 10,7 milljóna króna
hvor fyrir 10 sekúndna vinnu í Englandi
CARL Lewis, heimsmethafi og
Ólympíumeistarinn f rá því í
Barcelona, Linford Christie,
mætast í 100 m hlaupi á sér-
stöku boðsmóti sem haldið
verður í Gateshead í Norður
Englandi 30. júlí næstkomandi.
Mikið hefur verið rætt um hugs-
anlegt einvígi þeirra en ekkert
orðið af þvf fyrr en nú. Þeir
hafa ekki mæst í 100 m hlaupi
síðan á heimsmeistaramótinu í
Tókýó fyrir tveimur árum, er
Bandaríkjamaðurinn Lewis
sigraði með því að setja heims-
met, 9,86 sek., og Bretinn
Christie varð þá annar á 9,92
sek. sem reyndist nýtt Evrópu-
met.
Breskt dagblað greindi frá því í
að gær að hvor hlauparinn um
sig fengi 100.000 pund fyrir hlaup-
ið, andvirði 10,7 milljóna króna.
Launin verða því ríflega ein milljón
króna fyrir hvern hlaupinn metra.
Lewis, sem er orðinn 32 ára,
keppti ekki á Ólympíuleikunum í
Barcelona. Hann var veikur meðan
úrtökumótið fyrir leikana fór fram
í Bandaríkjunum, keppti þó, en
komst ekki í liðið. Hann sigraði
hins vegar í greininni á Ólympíu-
leikunum 1984 og 1988. Christie,
sem er ári eldri, er taplaus í 100 m
hlaupi á árinu — á sjö sigra að
baki. Lewis hefur hins vegar ekki
tekist að sigra í 100 m hlaupi á
árinu í fjórum tilraunum, en hann
hefur engu að síður stöðugt verið
að bæta sig.
Til stóð að Lewis og Christie
mættust í 100 m hlaupi í Tókýó í
september sl. en ekkert varð úr og
ekkert varð heldur af fyrirhuguðu
einvígi þeirra í Las Vegas í maí.
Lewis hefur kallað Christie lævísan
bragðaref; segir hann hafa komið
sér undan því að mæta sér á hlaupa-
brautinni, en Bretinn vísar því á
bug. Segist aldrei hafa forðast að
mæta neinum og Andy Norman,
enskur mótshaldari, segir Lewis
fjórum sinnum hafa neitað að taka
þátt í móti í Bretlandi sem honum
var boðið á. Christie hefur einungis
einu sinni sigrað í þau tólf skipti
sem hann hefur mætt Carl Lewis
í 100 m hlaupi. Það var í Mónakó
fyrir fjórum árum.
Skagamenn
19sinnum
komist í und-
anúrslit
■ Skagamenn hafa oftast
leikið f undanúrslitum bikar-
keppninnar í knattspymu,
alls 19 sinnum. 13 sinnum
komust þeir áfram í úrslita-
leikinn og hafa 5 sinnum orð-
ið bikarmeistarar.
■ Valsmenn eiga 17 undan-
úrslitaleiki að baki, hafa 11
sinnum leikið til úrslita og 8
sinnum fagnað bikar-
meistaratitli. Þeir eru núver-
andi bikarmeistarar sem
kunnugt er og hafa sigrað í
keppninni þrjú síðustu ár.
■ Kefivikingar hafa leikið
15 sinnum í undanúrslitum,
5 sinnum til úrslita en aðeins
einu sinni fagnað sigri í
keppninni; eftir úrslitaleik
gegn ÍA 1975.
■ KR-ingar hafa 14 sinnum
komist í undanúrslit bikar-
keppninnar, 9 sinnum alla
leið í úrslitin og hafa 7 sinn-
um orðið meistarar.
MIHAJLO Bibercic, serbneski framheqinn hjá ÍA, hefur staðið sig vel í sumar og verið iðinn við að skora. Hann
skoraði einu sinni gegn HK í 16-liða úrslitum mjólkurbikarkeppninnar og síðan gerði hann þrennu í átta liða úrslitun-
um gegn Víkingi í fyrrakvöld. «
Carl Lewis, heimsmethafí og Ólympíumeistarinn frá því í Barcelona,
Linford Christie, mætast 30. júlí í Englandi.
Fimm úr 1. deild í bann
Ánægður að sleppa
við Skagamenn
- sagði Sævar Jónsson, iyrirliði bikarmeistara Vals
Fimm leikmenn í fyrstu deild voru
úrskurðaðir í eins_ leiks bann á
fundi Aganefndar KSÍ í gær. Ingi
Sigurðsson ÍBV og Sævar Jónsson
Val fara í bann vegna fjögurra gulra
spjalda, en Magnús Sigurðsson IBV,
bróðir Inga, Stefán Ómarsson Vík-
ingi og Sveinbjörn Hákonarson Þór,
vegna brottvísunar.
Magnús og Stefán hafa þegar
tekið út bannið, en Sveinbjöm verð-
ur í banni gegn FH á morgun. Sæv-
ar missir hins vegar af leiknum gegn
Víkingi í tíundu umferð og Ingi miss-
ir af leiknum gegn Fram.
Fjórir leikmenn í þriðju deild voru
einnig úrskurðaðir í bann. Einar
Tómasson og Eiríkur Þorvarðarson
HK fá eins leiks bann vegna brottvis-
unar, sem og Örvar Eiríksson Dal-
vík, en Gylfi Siguijónsson Selfossi
vegna fjögurra gulra spjalda.
BIKARMEISTARAR Vals fengu
heimaleik í undanúrslitum
mjólkurbikarkeppninnar er
dregið var í gær; fá Keflvíkinga
í heimsókn, og KR-ingar taka á
móti Islandsmeisturum Akur-
nesinga. Leikurinn á KR-velli
verður miðvikudaginn 4. ágúst
en viðureign Vals og ÍBK daginn
eftir, annað hvort að Hlíðarenda
eða á aðalleikvanginum f Laug-
ardal. Valsmenn vilja leika í
Laugardalnum en þurfa að
sækja sérstaklega um það.
Nafn bikarmeistaranna kom fyrst
upp úr mjólkurbrúsanum þeg-
ar dregið var í gær og Theodór Hall-
dórsson, formaður knattspymudeild-
ar Vals, dró síðan miða með nafni
ÍBK. KR dróst síðan á undan ÍA og
liðin mætast því í Reykjavík.
„Aðalatriðið var að fá heimaleik.
Það vom allt sterk 1. deildarlið sem
eftir vom í keppninni, þannig að ör-
uggt var að leikurinn yrði erfiður og
því er gott að leika heima,“ sagði
Sævar Jónsson, fyrirliði Vals, við
Morgunblaðið eftir dráttinn. Hann
sagðist vissulega ánægður með að
vera laus við að mæta Islandsmeist-
umnum: „Skagamann em með lang
sterkasta lið landsins í dag að mínu
mati, og ég er því ánægður með að
sleppa við þá, en mér var alveg sama
hvort við fengjum KR eða Keflavík.
Aðalatriðið var að fá heimaleik."
Pressan á þeim
„Ég átti mér draum; að fá Vals-
menn á heimavelli," sagði Sigurður
Björgvinsson Keflvíkingur. Sigurður
og félagar mæta Valsmönnum en
verða að fara til Reykjavíkur. „Lið
virðist þurfa að vinna Val til að kom-
ast eitthvað í bikarkeppninni," bætti
Sigurður við og sagði tap gegn Val
í deildinni fyrr í sumar jafnvel herða
menn suður með sjó. „Bikarinn er
allt annar handleggur og kannski
verður það kostur fyrir okkur að
hafa tapað fyrir þeim í deildinni.
Pressan verður öll á þeim — þeir
hafa unnið alla bikarleiki síðustu
þijú árin og við höfum því engu að
tapa. Við ætlum að skemmta okkur
með því að vera áfram í bikarkeppn-
inni,“ sagði Sigurður.
Veröur erfið vika
„Mér líst ljómandi vel á þetta. Það
voru fjögur mjög sterk lið í pottinum
og við þurftum að spila við eitt þeirra,
þannig að vitað mál að þetta yrði
erfítt. En aðalmálið var að fá heima-
leik, ég er mjög ánægður með það,“
sagði fyrirliði KR, Rúnar Kristinsson.
Hann sagðist telja, eins og fleiri, að
Akurnesingar væru með besta lið
landsins í dag; frammistaðan í deild-
inni til þessa — sjö sigrar og aðeins
eitt tap — sýndi það. „Það er engin
spuming, en við sjáum hvað setur.
Hvort við getum veitt þeim keppni,
eða þeir okkur! Við erum ekki í góðri
stöðu í deildinni einsog er, en ætlumr*
að bæta úr því í næstu tveimur leikj-
um.“ Rúnar sagði bikarkeppnina
skipta KR-inga miklu máli vegna
stöðunnar í deildinni, en þannig vill
til að strax helgina eftir bikarleikinn
mætast KR og ÍA í deildinni, aftur
á KR-velli. „Þetta verður erfíð vika,
en leikirnir tveir ættu að geta orðið
skemmtilegir," sagði fyrirliði KR.
Guðjón Þórðarson, þjálfari Skaga-
manna, sagði að það skipti þá engu
máli hver mótheijinn sé. „Við hefðum
þó viljað fá heimaleik, en til að vinna
bikarinn verðum við að leika í
Reylqavík — þannig að það er ekk-
ert verra leika þar í undanúrslitum,
heldur en úrslitaleikinn. Við leikum
tvo leiki gegn KR-ingum í Reykjavík -
á fjórum dögum og munum sjá til
þess að leikmenn KR eigi eftir að
svitna," sagði Guðjón við Morgun-
blaðið.
Alltaf tapað
Sigurður Björgvinsson, leikmaður
og aðstoðarþjálfari ÍBK, hefur
fimm sinnum leikið til úrslita í bikar-
keppninni og alltaf tapað. „Ætli ég
verði ekki settur út úr liðinu ef við
komumst í úrslit núna,“ sagði hann
í gríni eftir dráttinn í gær.
Sigurður hefur fyívegis tapað í
úrslitum gegn Val og á því harma
að hefna. Hann tapaði fyrir Vals-
mönnum með ÍBK 1988 og síðan
1990 með KR, eftir vítaspymu-
keppni. Fari Keflvíkingar í úrslit von-
ast Sigurður til að KR verði mótheij-
inn. „Já, það yrði að gaman að mæta
mínum mönnum," sagði hann, e.n
Sigurður lék með KR í nokkur ár,
þar til í fyrra.
Þjátfari má koma fyrir-
mælum til leikmanna
Breytingar hafa verið gerðar á
knattspymulögum þess efnis
að þjálfari má, á meðan leik stend-
ur, koma tæknilegum fyrirmælum
til leikmanna sinna. Dómaranefnd
KSÍ hefur ákveðið að ákvörðun
Alþjóðanefndarinnar taki í gildi í
meistaraflokki karla og kvenna 1.
ágúst.
Þjálfarar og aðrir fulltruar liðs
á varamannabekknum verða þó að
halda sig innan marka tæknisvæð-
is, þar sem sem slíku svæði er
ætlaður staður. Þeir verða að koma
vel fram og af ábyrgðarkennd ailan
tímann.
Tæknisvæði er svæðið sem sam-
svarar lengd varamannabekkjar
að viðbættum einum metra við
hvom enda. Það nær frá vara-
mannabekknum aftanverðum og
allt að einum metra samsíða hlið-
arlínu. Svæðið verður ekki merkt
sérstaklega.