Morgunblaðið - 27.07.1993, Blaðsíða 5
4 D
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 27 JÚLÍ 1993
+
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1993
D 5
HJOLREIÐAR / TOUR DE FRANCE
Indurain sigraði
með yfirburdum
Abdoujaparov sigraði á síðasta leggnum
ÞAÐ fór eins og allir bjuggust við; Spánverjinn og vélmennið
Miguel Indurain, eins og hann er stundum kallaður, sigraði í
Tour de France hjólreiðakeppninni á sunnudaginn, og vann þar
með í keppninni þriðja árið í röð. Hann er aðeins fjórði maðurinn
í 90 ára sögu keppninnar til að vinna þrisvar í röð, og gerði það
nú með miklum yfirburðum; það vantaði aðeins ejna sekúndu
upp á að hann væri með fimm mínútna betri tfma en næsti
maður, sem varTony Romingerfrá Sviss. Rominger sigraði í
fjallastigakeppninni og Úsbekistinn Djamolidine Abdoujaparov i
stigakeppninni. Abdujaparov sigraði líka á síðasta legg keppninn-
ar, þegar hjólaðir voru rúmlega 196 km um götur Parísarborgar.
etta var erfið keppni, en ekk-
ert erfiðari en tvö síðustu ár,“
sagði Miguel Indurain eftir sigurinn
í gær, augsýnilega mjög þreyttur.
„Eg geri mér grein fyrir að þnr
sigrar í röð er góður árangur. Ég
ætla að reyna að vinna aftur á
næsta ári, en það er farið fram á
of mikið að biðja mig um að ná
fimm í röð,“ sagði Indurain. Hann
sigraði á tveimur leggjum í keppn-
inni, í báðum tilfellum þar sem
keppt var við klukkuna. Flestir
bjuggust við að hann myndi sigra
á 19. leggnum, sem var képpni við
klukkuna, en Tony Rominger kom
á óvart og sigraði örugglega.
Ekki síður sigur Banesto
liðsins
Þrátt fyrir að Indurain hafi náð
góðu forskoti í hraðakeppninni á
9. legg, var það frábær frammi-
staða hans í Ölpunum og Pýrenea-
fjöllunum sem tryggði honum sig-
urinn. Hann átti svar við öllum
árásum andstæðinga sinna og hélt
sér alltaf í efstu sætunum. Hann á
hins vegar sigurinn ekki alveg einn,
án félaga sinna í Banesto liðinu
hefði hann ekki náð að sigra. Þeir
hafa séð um að kljúfa fyrir hann
vindinn til að byrja með á hverjum
legg, svo hann eigi nóga orku eftir
þegar kemur að lokasprettunum.
Mikilvægur sigur
Sigur Abdoujaparovs á síðasta
leggnum var honum mjög kær, en
í keppninni fyrir tveimur árum datt
hann af hjólinu einmitt á síðasta
keppnisdeginum í París, og við-
beinsbrotnaði. Abdoujaparov kom
aðeins framgjörðinni á undan
næstu mönnum í mark, Frakkanum
Frederic Moncassin og ítalanum
Stefano Colage, og náði þar með
í þriðja sigur sinn á legg í keppn-
inni. Allir hafa þeir verið eftir æsi-
legan endasprett, en hann virðist
nær ósigranlegur í snöggum sprett-
um. „Ekkert færir mér jafn mikla
hamingju og sigra á Champs Elyse-
es, sérstaklega eftir það sem gerð-
ist fyrir tveimur árum. Ég er
ánægður með sigurinn á leggjunum
þremur og grænu treyjuna, en jafn-
vel enn ánægðari með að hafa klár-
að keppnina. Hún var mjög erfíð,“
sagði Abdoujaparov.
■ Úrslit / D6
Þeir bestu á ferð í París
MIGUEL Indurain, í gulu treyjunni, hlær þegar Djamilidine Abdoujaparov, sá í grænu treyjunni, segir honum brandara á síðasta leggnum á sunnudaginn. Indurain sigraði
í keppninni, Abdoujaparov sigraði á síðasta leggnum og í stigakeppninni, og Tony Rominger sem er til vinstri í rauðdoppóttu treyjunni, sigraði í fjallastigakeppninni og varð annar
í heiidarkeppninni.
Tour de France1993
Helstu atriðin í Tour de France hjólreiðakeppninni 1993:
Sigurvegari: Miguel Indurain (Spáni)
Annar: Tony Rominger (Sviss)
Þriðji: Zenon Jaskula (Póllandi)
Flest stig (græna treyjan): Djamolidine Abdoujaparov (Úsbekistan)
Konungur fjallanna (rauðdoppótta treyjan): Rominger
Besti nýliðinn: Antonio Martin (Spáni)
Besta liðið: Carrera (Ítalíu)
Sigurvegarar á leggjunum 20:
Forkeppni (Le Puy-du-Fou) - Indurain (keppni við klukkuna)
1. leggur (Les Sables d’Olonne) - Mario Cipollini (Italíu)
2. leggur (Vannes) - Wilfried Neiissen (Belgíu)
3. leggur (Dinard) - Abdoujaparov
4. leggur (Avranches) - GB MG (Ítalíu) (keppni liða við klukkuna)
5. leggur (Evreux) - Jesper Skibby (Danmörku)
6. leggur (Amiens) - Johan Bruyneei (Beigíu)
7. leggur (Chaions-sur-Mame) - Bjame Riis (Danmörku)
8. leggur (Verdun) - Lance Armstrong (Bandar.)
9. leggur (Lac de Madine) - Indurain (keppni við klukkuna)
10. ieggur (Serre Chevalier) - Rominger
11. leggur (Isola) - Rominger
12. leggur (Mareeilie) - Fabio Roscioli (Ítalíu)
13. leggur (Montpellier) - Olaf Ludwig (Þýskalandi)
14. leggur (Perpignan) - Pascal Lino (Frakklandi)
15. leggur (Andorra) - Oliveiro Rincon (Kólumbíu)
16. leggur (St Lary Soulan) - Jaskula
17. ieggur (Pau) - Claudio Chiappucci (Ítalíu)
18. leggur (Bordeaux) - Abdoujaparov
19. leggur (Montlhery) - Rominger (keppni við klukkuna)
20. ieggur (Paris) - Abdoujaparov
Hveijir hjóluðu í gulu treyjunni:
Indurain - forkeppni og 1. legg
Nelissen - 2. og 3. legg
Cipollini - 4. legg
Nelissen - 5. legg
Cipollini - 6. iegg
Johan Museeuw (Belgíu) - 7. og 8. legg
Indurain - 9. til og með 20. legg
Fjöldi kílómetra: 3.714
Meðalhraði sigurvegarans: 38,7 km/klst.
180 hjólreiðamenn hófu keppnina, 136 tókst að ljúka henni.
GOLF / EINHERJAR
Formaðurinn bestur
Kjartan L. Pálsson, formaður Einheijaklúbbsins, þeirra sem hafa náð
þeim áfanga að fara holu í höggi, varð sigurvegari á meistaramóti
klúbbsins, sem fór fram í Leiru á laugardaginn. Kjartan L. lék á 78 högg-
um, sem gaf honum 39 punkta. Halldór Sigurðsson, GR, var annar með
38 punkta og Eyjólfur Bergþórsson, GR, var þriðji með 37 punkta.
Kjartan L. fékk hinn fagra Röðuls-bikar, sem hefur verið keppt um
frá 1967 og er þetta í þriðja skipti sem hann er handhafi bikarsins. Eng-
inn fór holu í höggi í mótinu, en Ólafur Skúlason var næstur því — kúla
hans hafnaði einum metri frá holu á sextándu braut.
KNATTSPYRNA
lan Rush fyrir-
liði Liverpool
Ian Rush verður fyrirliði Liverpool næsta keppnis-
tímabil og er hann sjöundi leikmaður félagsins
sem gegnir því starfi á síðustu tveimur árum —
frá því að Graeme Souness tók við stjórninni í
apríl 1991. Þeir sem hafa verið fyrirliðar undir
stjórn Souness, eru John Bames, Ronnie Whelan,
Steve McMahon, Jan Mölby, Mark Wright og Steve
Nicol.
lan Rush.
Þeir fara til Færeyja
Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir í drengjalandslið Islands
sem keppir á Norðurlandamótinu í Færeyjum 4.- 8. ágúst:
Gunnar Magnússon, Fram, Tómas Ingason, Val, Amar Viðarsson, FH, Rúnar
Ágústsson, Fram, Sigurður Elí Haraldsson, Fram, Sigurður Guðmundsson,
Stjörnunni, ívar Ingimarsson, KBS, Ásgeir Ásgeirsson, Fylki, Valur F. Gísla-
son, Fram, Eiður Guðjohnsen, Val, Jón F. Magnússon, Grindavík, Lárus Long,
FH, ívar Benediktsson, ÍA Jón Þór Hauksson, ÍA, Þorbjöm Sveinsson, Fram
og Arngrímur Amarsson, Völsungi.
Á mótinu leika átta þjóðir í tveimur riðlum. í A-riðli leika fsland, Finn-
land, Færeyjar og Wales og f B-riðli Danmörk, Noregur, Svíþjóð og England.
KAPPAKSTUR
m Koutpr
Oheppnm ettir Hill
ALAIN Prost sigraði í þýska kappakstrinum á sunnudaginn. Félagi hans í Williams-liðinu, Damon Hill, hafði örugga forystu þar til á næst síðasta hring
og virtist stefna á fyrsta grand prix sigur sinn, er annað afturdekkið sprakk eins og sést á myndinni. Þetta er í annað sinn í röð sem Hill verður af sigri
vegna óhapps, en hann varð að hætta képpni í breska kappakstrinum fyrir skömmu vegna vélarbilunar. Prost kom í mark rúmum sextán sekúndum á
undan næsta manni, heimamanninum Michael Schumacher. Prost hefur nú 27 stiga forystu í stigakeppninni um heimsmeistaratitilinn.
Lynsendi
ÍAbréf
Félagið vili fá Ólaf Þórðarson í haust
JOHN Fiskavik, framkvæmdastjóri norska úr-
valsdeildarliðsins Lyn, sendi í gær bréf til knatt-
spyrnudeildar ÍA, þar sem hann lýsir yfir áhuga
á að fá Ólaf Þórðarson aftur til félagsins. í
bréfinu kemur fram að óskað er eftir að Ólafur
komi út 1. nóvember nk. og leiki með félaginu
næstu tvö keppnistfmabil.
John Fiskavik sagði að mikill áhugi væri á því að
fá Ólaf aftur til Lyn, og þess vegna hefði hann
sent þetta bréf til ÍA. Lyn á sölurétt á Ólafi út næsta
ár, en hann er þó ekki skuldbundinn
Eriingur til að leika með félaginu á sama tíma.
Jóhannsson Fiskavik sagði að Olafur hefði sýnt
skrifarfrá þessu áhuga.
Noregi Þegar norska úrvalsdeildin er rúm-
lega hálfnuð eru nýliðar Bodö/Glimt frá norður Nor-
egi efstir með 24 stig. Lyn er í fimmta neðsta sæti
með þrettán stig. Tromsö og Molde eru neðst með tíu
stig. Lyn hefur átt erfítt uppdráttar í deildinni í sum-
ar og augljóslega saknað sterkra miðjumanna.
Southall hættur að
leika með Wales
Allt bendir til að Neville Southall, markvörður
Everton, sé búinn að leika sinn síðasta leik fyr-
ir Wales, en hann þarf aðeins fimm landsleiki til að
setja nýtt landsleikjamet, sem er 68 leikir. Ástæðan
fyrir þessu er að Southall vill ekki kljúfa fjölskyldu
sína, en honum fínnst of mikill tími fara í knattspyrn-
una. „Ég hef gaman að leika og vil vera með áfram,
en ég hugsa um hagsmuni fjölskyldunnar," sagði
Southall.
Landslið Wales hefur góða möguleika á að komast
í heimsmeistarakeppnina í Bandaríkjunum næsta sum-
ar. „Ef við komumst til Bandaríkjanna kostar það að
ég verð minnst sex vikur frá fjölskyldu minni,“ sagði
Southall, sem er 35 ára.
MÉUMFERÐAR ÁFENGISVARNARÁÐ
ÉP RÁÐ