Morgunblaðið - 27.07.1993, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.07.1993, Blaðsíða 8
FOLK I BA YERN Miinchen hefur selt aðalmarkaskorara sinn Roland Wolfarth til franska félagsins St. Etienne á 105 millj. ísl. kr. Hann skrifaði undir þriggja ára samning. ■ KARL-heinz Riedle, miðherji Dortmund, sem félagið keypti frá Lazio á Ítalíu, meiddist um helg- ina — vöðvaþræðir í nára slitnuðu, þannig að hann verður frá keppni í þijár vikur. ■ GÚNTHER SchUfer, varnar- maður Stuttgart fer í uppskurð á næstunni vegna meiðsla á hásin. ■ EKKERT varð úr því að Stutt- art seldu Serbann Slobodan Dubajic, eins og til stóð. Hann mun því leika með félaginu í vetur. ■ KÖLN hefur fengið Austur- ríkismanninn Tony Polster til liðs við sig. Hann er 29 ára og hefur síðustu ár leikið með Tórínó á Ítalíu, Sevilla og Rayo Vallec- ano á Spáni. Vallecano á eftir að gefa Polster lausan, þannig að hann geti leikið með Köln. ■ STUTTGART vann Freiburg í úrslitaleik í móti fjögurra liða um sl. helgi. Stuttgart vann 7:6 í víta- spymukeppni. Stuttgart vann utandeildarlið, 6:0, og skoraði Eyj- ólfur Sverrisson eitt af mörkun- um. ■ DANSKI landsliðsmaðurinn Bent Christensen hjá Schalke hefur verið lánaður til gríska fé- lagsins Olympiakos Pireus, sem borgar 8,4 millj. ísl. kr. á mánuði fyrir hann. ■ BASILE Boli skoraði sigur- mark, Marseille 1:0, á heimavelli gegn Lens í fyrstu umferðinni í frönsku 1. deildarkeppninni. 40 þús. áhorfendur sáu leikinn. KNATTSPYRNA Bemes hættur hjá Marseille Jean-Pierre Bernes fram- kvæmdastjóri Marseille, sem hefur verið ásakaður um að hafa mútað leikmonnum Va- lenciennes til að tapa leik gegn Marseille, hefur sagt upp starfi sínu. Bemes skrifaði stjórnar- formanni félagsins Bemard Tapie bréf þar þar sem hann segir að meðan sakleysi hans sé ósannað, geti Marseille ekki verið gísl þeirra sem vilji eyði- leggja félagið, eins og það er orðað í bréfínu. Bemes var leystur úr gæslu- varðhaldi í síðustu viku, og flaug þá strax niður að Miðjarðarhaf- inu, til hafnarinnar í Hyeres, þar sem snekkja stjórnarformanns beið hans. Sjónvarpsmenn frá franskri sjónvarpsstöð mynduðu þegar Bemes steig um borð í snekkjuna, en Tapie réðst þá á myndatökuhópinn og fleygði myndatökuvélinni í sjóinn. Full- trúar sjónvarpsstöðvarinnar segja vélina þriggja milljóna króna virði og ætla að höfða mál á hendur Tapie vegna at- viksins. Bernes fylgdist með fyrsta leik Marseille, gegn Lens, í deildakeppninni þetta tímabil sl. laugardag, og hljóp hring í kringum leikvanginn fyrir fram- an 40 þúsund áhorfendur, áður en leikurinn byijaði. Marseille sigraði með einu marki gegn engu. Morgunblaðið/Þorkell Elnar Sigurgeirsson sýndi mikið öryggi og var íslandsmeistari í einliðaleik fimmta árið í röð. hún er aðeins 15 ára og vann einnig telpnaflokkinn. Reynslan hafði sitt að segja Reynslan kom Einari til góða á mótinu en hann hefur verið nánast ósigrandi síðustu fimm ár. „Það hef- ur verið erfitt að æfa mikið und- anfarið því ég er mikið að þjálfa sjálfur. Eg er í skóla í Alabama í Bandaríkjunum og fer út í septem- ber. Næsta ár ætla ég að reyna fyr- ir mér á alþjóðlegum tennismótum þar sem leikið er um peninga. En ég kem aftur á íslandsmótið næsta ár,“ sagði Einar en bætti við að róð- urinn gæti farið að þyngjast því það væru komnir margir efnilegir strák- ar í tennis á Islandi. Dómaramálin voru með nýju sniði á mótinu. Notaðir voru línudómarar eins og tíðkast á alþjóðlegum mótum og er að sögn forráðamanna tennis- sambandsins liður í að undirbúa sig fyrir stærri mót hér á landi, jafnvel alþjóðleg. Fara á í saumana á alþjóð- legum reglum og fylgja þeim fast eftir þó svo mótafyrirkomulag fyrri ára hafi gengið ágætlega að sögn tennisfólks. ■ Úrslit / D6 Hrafnhildur og Einar aft ur þrefaldir meistarar VEÐURGUÐIRNIR voru heldur betur hliðhollir tennisfólki í síð- ustu viku þegar íslandsmót þeirra fór fram. Mótið stóð ítíu daga og var leikið á tennisvelli Víkinga í Fossvogi í stórkostlegu veðri allan tímann, nema á fimmtudagskvöldið því vegna bleytu varð að flytja mótið inná velli Þróttara við Sæviðarsundið. Leikn- ir voru um 220 leikir í 24 flokkum og voru keppendur um 130. Úrslitin voru eftir bókinni; Einar Sigurgeirsson, TFK, varð íslands- meistari ífimmta sinn á jafn mörgum árum og Hrafnhildur Hann- esdóttir úr Fjölni í þriðja sinn á þremur árum en þau tvö eru punktahæst f einliðaleik hjá Tennissambandinu. Að auki unnu þau tvíliðaleikina sína og tvenndarleikinn saman. Stefán Stefánsson skrifar Engu að síður þurfti Einar að hafa fyrir sigrinum í einliða- leiknum því sautján ára piltur, Níels Sigurðsson, saumaði svo að honum að úrslitaleikur þeirra stóð í nærri þijár klukkustundir. Einar vann fyrstu hrinuna auðveldlega 6:1 en Níels næstu 5:7 eftir að hafa haft 5:0 forskot. Því varð að leika ' oddahrinu og Níels hélt 1:1 en þá tók Einar sig til, náði 4:2 sem var of mikið fyrir Níels og Einar vann 6:3. „Ég sótti í byijun fyrstu lotu en í þeirri næstu fór ég að pota svo hann náði yfirhöndinni og ég varð að byija á sóknarleiknum á ný,“ sagði Einar eftir leikinn. Einar vann Fjölni Pálsson í undanúrslitum 6:2 og 6:3 og Níels vann Christian Staub með sama mun í undanúrslitum. Yfirburðir Hrafnhildar Hrafnhildur hafði talsverða yfir- burði í kvennaflokkunum enda lang punktahæst í einliðaleik kvenna. I úrslitaleiknum vann hún Stefaníu Stefánsdóttur 6:1 og 7:6 en Stefanía hafði 4:5 og 5:6 í seinni hrinunni en þá fór Hrafnhildur að spila var- lega og náði að gera útum leikinn. Þær stöllur urðu íslandsmeistarar saman í tvíliðaleik er þær lögðu Evu Hlín Dereksdóttur, TFK, og Höllu Björg Þórhallsdóttur að velli 6:4 og 6:2. „Stefna var sett á sigur og það hafðist. Ég var svolítið stressuð í seinni lotu úrslitaleiksins en það bjargaðist," sagði Hrafnhildur en Morgunblaðið/Þorkell Níels Slgurðsson, ungur og efnilegur spilari, lék til úrslita gegn Einari. Ekkert ókeypis hjá Einari Silfurhafínn í einliðaleik karla á íslandsmótin.u í tennis heitir Níels Sigurðsson og er að verða sautján ára. Hann býr í Svíþjóð og spilar tennis á hveijum degi auk þess að keppa um helgar. „uti leik- um við á möl svo að viðbrigðin voru talsverð því þó gott sé að spila hér í Fossvoginum er það svo ólíkt mölinni. Leikurinn gegn Einari var mjög erfiður. Einar er mjög öruggur og það má aldrei gera mistök gegn honum því hann nýtir sér þau. Maður þarf að hafa fyrir stigun- um og hjá honum er ekkert ókeypis," sagði Níeis. TENNIS / ISLANDSMÓTIÐ GETRAUNIR: 222 222 221 2222 LOTTO: 1 10 30 33 36/29

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.