Morgunblaðið - 24.10.1993, Side 2

Morgunblaðið - 24.10.1993, Side 2
2 B Hefði ég ekki í snarheitum lagt saman 18 ár ungu baráttustúlkunnar og 60 árin sem liðin eru síðan, þá hefði ég ekki trúað því að þessi hvatlega kona, sem þama sat væri orðin 78 ára. Skyldi unga stúlkan hafa verið svona yfírveguð og róleg þegar hún stóð í baráttunni? Líklega hefur hún fengið skipulagshæfíleik- ana í vöggugjöf. Aðalheiður var í forustunni á fullu þar til hún flutti til Hollands með manni sínum, Wugbold Spans, 1946. Lífið bar hana í aðra átt. Það er mikill mun- ur á fjöllóttu, hryssingslegu og dyntóttu íslandi æsku hennar og þessu vota Hollandi, þar sem allt grær, kýr, kindur eða gæsir bíta grænan gróður í bithögum milli skurðanna. Hún hefur þó ekki fjar- lægst landið sitt meira en svo að hún var nýlega gerð heiðursfélagi í íslensk-hollenska félaginu í Hol- Iandi, sem hún átti mikinn þátt í að stofna, hefur þar stundum verið kölluð „ættmóðir íslendinga" vegna allrar þeirrar aðstoðar sem hún hefur veitt löndum sínum. Framlag hennar hefur líka verið metið hér, sem kemur fram í því að hún.var nýlega sæmd hinni íslensku fálka- orðu. En hver er þessi íslenska korta, sem ber eftirnafnið Hólm. Hún kveðst vera að vestan. Er fædd á Eysteinseyri við Tálknafjörð 1915. Þar bjuggu afí hennar og amma og foreldrar h<jnnar, Sigurgarði Sturluson farkennari af Rauðasandi og Viktoría Bjamadóttir, sem síðar rak m.a. prónastofu í Reykjavík og skrifaði bókina Vökustundir að vestan. Hún segir að Hólm sé skím- arnafn allra systkinanna. Föður hennar þótti nafn sitt stirt í og vildi ekki samsett eftirnafn. Móðir hans hét Hólmfríður, svo systkinin voru öll skírð Hólm að eftimafni. Á Ey- steinseyri bjuggu þau í 25 ár og fluttu svo til Reykjavíkur með við- dvöl á Bíldudal. „Pabbi dó 64 ára gamall, áður en við fluttum suður. Hafði þá leg- ið á spítala frá 1932. Ég var þá búin í unglingaskólanum á Bíldu- dal. Hafði aðeins verið tvö ár í bamaskóla, því við lærðum heima hjá pabba. Það var voðalega fínt að fá að fara í skóla þá. Allir voru fátækir. Ég vann mér fyrir skóla- gjaldinu í fiski. Helgi Konráðsson, síðar prestur á Sauðárkróki, var með unglingaskólann. Nei, það kom ekki til greina að halda áfram námi. Þó hefði það ugglaust verið hægt, ef nægilegur vilji hefði verið fyrir hendi. Þegar ég kom til Reykjavíkur fór ég að vinna á Álafossi hjá Sigur- jóni Péturssyni og var þar í hálft annað ár. Það var eiginlega besti skólinn í mínu lífí. Einu sinni í viku fór ég að heimsækja pabba á Landakot. Farið kostaði eina krónu í Fordbíl. Við pabbi lásum saman bækur. Það var svo gott að vera hjá honum. Hann var alltaf að kenna,“ segir Aðalheiður. Við tölum meira um það uppeldi sem hún fékk, en það telur hún eina ástæðuna fyrir því að hún var ekkert hrædd við að gera eitthvað í málinu þegar réttlætiskenndin kallaði. „Við vorum öll alin upp við að lesa og tala um hlutina. Og við fylgdumst með heimsmálunum í fréttum. Það var mikið rætt um framfarakenningar í heiminum. Pabbi átti gott bókasafn, safnaði bókum, t.d. var Krig og fred eftir Tolstoj safnað heima. Á kvöldin var ætíð lesið. Alltaf var verið að tala um bækur. Það virðist ekki venja nú á íslandi. Bók er bók, ef maður heldur henni í sér þá kemur hún ekki að gagni. Maður verður að ræða hvað þar er átt við. Þetta hefur gengið í gegn um mitt líf. Börnin mín og bamabörnin lesa líka og tala saman.“ Gangastúlka á Landspítalanum Strax á Álafossi, þegar Aðalheið- MORGUNBLAÐLD SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1993 Aðalheiður og maður hennar Wugbold Spans Hvar hifti hún ungon Hollending? Varla í félags- störfunum fyrir Sókn eða inni ó heimilinu? Jú, einmitt. Wugbold Spans var í kaupskipaf lotan- um. Þetta var ú stríósárunum og hann var í f lutningum til hersins. Ásgeir bróðir hennar og mágur hennar hittu hann á Hressingarskál- anum og komu með kauða heim. „Ég var ekk- ert hrifin af því, var ekkert í neinu hermanna- veseni, en mamma sagði að ef sonur hennar væri einn í erlendri borg, þá vildi hún láta taka honum vel. Þetta bara gerðist. Ég hefði þess vegna alveg eins getað orðið skotin í hermanni. En ég á mig sjálf og að vera hrædd við fordæmingu samfélagsins datt mér ekki í hug. ur var 16-17 ára, tók hún forustuna til að fá leiðréttingu mála. „Á ein- hveijum frídegi átti fólk í Reykja- vík að losna klukkan 12 á hádegi, en okkur var ætlað að vinna áfram. Ég safnaði þá undirskriftum og varð að fara með Kalla í bílnum í bæinn með þær. Siguijón Pétursson tók þessu vel. Hann kom sjálfur uppeftir með sítrón og gaf okkur frí. Þetta hafði aldrei komið fyrir hann fyrr. Mér fannst að við yrðum að reyna þetta og allar skrifuðu undir.“ Hún réð sig svo sem gangastúlku á Landspítalann. Þótt stúlkumar ynnu 10 tíma á dag höfðu þær ekki nema 40 krónur á mánuði, auk fæðis og húsnæðis. „Það var ailtof lítið kaup, ekkert til að byggja upp nokkurt líf. Maður gat bókstaflega ekkert. Ekki hægt að fata sig. Þeg- ar voru böll þá gengum við um beina. Það bjargaði málinu. Það var svo mikill órói meðal stúlknanna. Við bjuggum þijár saman í her- bergi í spítalanum. Meðan herbergi úti í bæ kostaði 20 krónur á mán- uði gat spítalinn þannig fengið 60 króna húsaleigu fyrir þessi her- bergi. Það var ansi há leiga. Sama var með matinn, hann var býsna hátt reiknaður. Á heimsóknartím- anum um miðjan daginn höfðum við tveggja tíma hlé. Þá hjólaði ég oft í Laugamar. Var svo lánsöm að eiga reiðhjól, sem ekki var al- gengt. Það hefur kannski verið fyr- irboði þess að ég settist að í Hol- landi,“, segir Aðalheiður. Ég sé að reiðhjólin þeirra hjóna standa til reiðu við bakdyrnar. Aðalheiður segir að ekki hafi verið um annað að gera en að stofna félag, óánægjan var svo mikil. Verkakvennafélagið Framsókn var komið, en þar vom aðallega konur sem unnu í físki. Allar aðrar voru utan félaga. „Við töluðum okkur saman, en urðum að fara laumu- lega. Hittumst fyrst úti í móa. Það var kreppa og atvinnuleysi fram- undan og maður varð að vera mat- vinnungur." Föstudaginn 20. júlí 1934 komu svo starfsstúlkur frá Landspítal- anum, Vífilsstöðum, Laugarnessp- ítala og Kleppi saman á fund í Reykjavík, 26 talsins, og stofnuðu með sér félag. María Guðmunds- í otj ysirísíitn fttiSÍcrdam , 2$Jebruí r Sti 'i' i r fSurlaw hvað eða fyrir eitthvert framtak. Og ég var ekki ein. Þarna vom margar góðar konur.“ En var ekki dálítið óvenjulegt að velja komunga stúlku til þessarar forustu í stað einhverrar fullorðinnar og reyndr- ar? Og þurfti sú ekki hugrekki til að taka það að sér? „Hlutimir verða að gerast og maður vill ekki láta þrykkja sér niður. Ég hefí nú aldrei hugsað út í þetta. Aldur er bara tilbúið kerfi. Ég hefí líklega haft skipulagshæfileika sem ég vissi ekki af. Og ég hefí aldrei verið feim- in eða hrædd við fólk. Ég færðist ekkert undan“, svarar Aðalheiður blátt áfram. „Við náðum sambandi við Krist- neshæli og Vífílsstaði, en ekki Landakot og Elliheimilið Grund, sem voru einkastofnanir. Við áttum auðvitað ekki nokkum eyri. Mig minnir að við höfum verið með fund í KR-húsinu. Þar var ódýrast og hlutlaus staður. í þá daga var bar- áttan svo pólitísk. Alþýðufokkurínn og Kommúnistaflokkurinn vom andstæðingar og hatrið svo mikið. Við urðum að gæta okkar. Ekki var ráðlegt að vera með fund á sama stað og kommúnistar, af því fékk maður óorð. Andrúmsloftið var þannig. Það fyrsta sem við gerðum var að biðja um viðtal við heil- brigðisstjórnina. Fómm þijár, Vil- borg Olafsdóttir, María Guðmunds- dóttir og ég að biðja um kauphækkun. Ég hafði orð fyrir þeim. Þetta kom bara hvað af öðru. Kom fram tillaga um þetta og maður vildi koma þessu áfram. En til þess að fá styttan vinnu- tíma þurftum við fyrst að ganga í Álþýðusambandið og urðum að passa okkur, því þá var Alþýðusambandið svo háð Alþýðu- flokknum. Ég hefi alltaf verið róttæk, en ég þurfti að vera hlutlaus til þess að geta setið á alþýðu- sambandsþingum. En ég kynntist líka konum úr öllum flokkum, því ég var — jafnframt í Mæðra- Islendingafélagið þakkar Aðalheiði Hólm fyrir styrksnefnd", skýr- áratuga fyrirgreiðslu og kærleik sýndan íslensk- ir Aðalheiður það um námsmönnum og öðrum löndum í Hollandi. undarlega andrúms- loft sem var á fyrstu árum Sóknar. Varð þeim eitt- hvað ágengt? Lentu þær nokkurn tíma í verkfalli á hennar árum? „Það var stundum æði hart þegar við vorum að stytta vinnudaginn í 8 tíma og hækka kaupið. Líka þegar við feng- um 14 daga sumarleyfí. Þá gerðum við þau mistök að taka ekki frarn að þetta væru „virkir dagar“. Ég fór svo með plaggið til Claessens, sem var fyrir ríkisnefndinni. Sagði honum að þeir gætu einfaldlega ekki gefið frí á helgidögum, því þá ættum við ekki að vinna. Hann sagði þetta vera augljóst hjá frúnni. Maður varð alltaf kynna sér vel málin og búa sig út með rökum. Aðeins einu sinni lá við verkfalli, líklega 1936-37. Okkur var sagt að ekki mætti gera verkfall á spítöl- um. Enda gerðum við það ekki fyrr en í síðustu lög. Við sátum í Alþýðu- húsinu og þeir í Amarhvoli. Við vorum ákveðnar og það var spenna í okkur. En við vorum með Alþýðu- sambandið á bak við okkur, sem lofaði samúðarverkfalli. Rétt fyrir klukkan 12 leystist málið." Hitti ungan Hollending Um þetta snerist tilvera Aðal- heiðar Hólm í 12 ár. Fyrir þessi störf fékk hún aldrei 10-eyring, eins $ptns.~ .V4II u<aírd<rtiu^t-it y»or h * 9« dóttir var fundarstjóri. Aðalheiður Hólm skráði fundargerðina og það var hún sem lýsti tilganginum með félagsstofnuninni og skýrði frá und- irbúningi að henni. Aðalheiður var svo kjörin formaður og stjóminni var falið að ganga á fund Iandlækn- is. Mánuði síðar kynnir hún lög félagsins, sem em samþykkt. Til- gangur þess er að gæta hagsmuna starfsstúlkna á sjúkrahúsum, bæta kjör þeirra, auka menningu þeirra og þroska. Rétt til inngöngu í félag- ið hafa allar þær stúlkur er vinna við matreiðslu, þvotta, hreingern- ingar og saumastörf. Aðalheiður segir að þetta hafí verið lægsta stéttin. „Þá vom vinnukonur, en þær hurfu í stríðinu," bætir hún við. Sókn sendi framvarp í þingið um að þær fengju sumarfrí og fastan vinnutíma. Vinnukonur áttu venjulega einn frídag, fímmtudag- inn, en sumar urðu jafnvel þá að taka til kvöldmatinn. Þetta frum- varp dagaði uppi, en þetta vakti umtal. „Ég var nú kosin bara til þess að tala fyrir þessu. Maður er kosinn fyrir tilviljun ef maður segir eitt-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.