Morgunblaðið - 24.10.1993, Síða 4

Morgunblaðið - 24.10.1993, Síða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1993 og hún segir, nema hvað maður stakk einu sinni að henni 25 krónum á alþýðusambandsþingi svo að hún gæti fengið sér kaffi. En þingin stóðu í hálfan mánuð og voru mik- ið puð. Á hveiju lifði hún þá? Hún kveðst hafa stofnað og haldið heim- ili fyrir fjölskyldu sína. „Ég hafði lofað pabba að hjálpa mömmu. Mamma rak Prjónastofuna Iðunni. Hafði byrjað með að kaupa sér pijónavél og svo tók hvað við af öðru. Hún flutti pijónastofuna út í bæ, hafði síðast 15 stúlkur í vinnu, en ég sá um heimilið. Þar var mik- ill gestagangur og mikið að gera. Ég get ekki verið svo fölsk að segja að ég hafí verið sátt við þetta og ég mundi ekki vilja að mitt bam gerði þetta. En mamma var dríf- andi kona. Og afí minn gamli var á heimilinu. Ég held að ég hafí gert þetta mest hans vegna. Svo hitti ég manninn minn.“ Hvar hitti hún ungan Hollending? Varla í félagsstörfunum fyrir Sókn eða inni á heimilinu? Jú, einmitt. Wugbold Spans var í kaupskipaflot- anum. Þetta var á stríðsárunum og hann var í flutningum til hersins. Ásgeir bróðir hennar og mágur hennár hittu hann á Hressingar- skálanum og komu með kauða heim. „Ég var ekkert hrifín af því, var ekkert í neinu hermannaveseni, en mamma sagði að ef sonur henn- ar væri einn í erlendri borg, þá vildi hún láta taka honum vel. Þetta bara gerðist. Ég hefði þess vegna alveg eins getað orðið skotin í her- manni. Ég átti sæti í Mæðrastyrks- nefnd og vissi því vel hvernig ástandið var. En ég á mig sjálf og að vera hrædd við fordæmingu sam- félagsins datt mér ekki í hug. Við ætluðum að gifta okkur um haust- ið, en þá fékk hann ekki leyfi. Victoria dóttir okkar fæddist heima. Hann kom ekki fyrr en eftir tvö ár og við gátum gift okkur. Wug- bold var í tvo mánuði á íslandi og fór svo. Kom ekki aftur fyrr en 1946. Þegar maður er ástfanginn þarf ekki svo mikinn tíma. Hann var Ioftskeytamaður á skipum í flutningum um allan heim. Það var bara að bíða og vona að hann kæm- ist af. Við vissum aldrei hvar hann var. En ég var heppin. Ég hefði getað orðið ekkja áður en ég gifti mig.“ Framandi umhverfi Hikaði Aðalheiður ekkert við að sleppa öllum sínum viðfangsefnum og fylgja manninum til Hollands, þegar hann loksins kom? „Maður er aldrei ómissandi og ég treysti þeim vel sem tóku við. Ég var orð- in þrítug og allt er breytingum undirorpið. Það var ákveðið að við færum til Hollands. Wugbold var búinn að vera 6 ár að heiman. Við fórum með fraktskipi, sem hafði viðdvöl í Middleborough og kom 11. september 1946 til Hollands. Hann var búinn að vera í burtu í sex ár og vissi í raun og veru lítið um Holland eftirstríðsáranna. Við sett- umst að hjá foreldrum hans. Hann var heima í 10 daga. Svo var hann farinn í siglingu til Suður-Ameríku.“ Aðalheiður viðurkennir að það hafí verið gífurleg viðbrigði fyrir unga athafnasama konu að vera þama allt í einu ein með fjögurra ára barn á framandi slóðum. Þar höfðu geisað svo mörg stríð og óskaplegt að sjá eyðilegginguna í Rotterdam og Arnheim. „I Kampen þar sem ég bjó hjá foreldrum hans var kalvínismi ríkjandi, allir í kristi- legum félögum. Allt mjög strangt og mér erfitt. Ólíkt hafnarborginni Reykjavík." Hvernig brást hún við? „Ég bara hætti að tala. Ég man að á leiðinni las ég bók um Moses, sem væri fyrsti byltingarmaðurinn sem sögur færu af. Hann hafði bara lagt af stað með allan hópinn og enginn af þeim sem fóru frá Egyptalandi komst alla leið. Að segja þetta þarna var voðaleg synd. Á sunnudögum jnátti ekki pijóna eða gera nokkun hlut, varla þvo manns.“ Aðalheiður segir mér frá freyjufundunum, sem efnt er til hjá henni með saltkjöti, baunum og brennivíni. Það er svo gaman að hittast. Aðalheiður hefur fá orð um framlag sitt, en 1988 gerði félagið Island-Holland hana að heiðursfé- laga fyrir áratuga fyrirgreiðslu og kærleika sýndan íslenskum náms- mönnum og öðrum löndum í Hol- landi, fyrir að hafa verið einn af frumkvöðlum Vinafélags íslands og Niðurlanda, fyrir að hafa verið góð- ur og gestrisinn meðstjórnandi og fyrir öll mikils metin störf fyrir fé- lagið. Starfssstúlkur í eldhúsi Vífilsstaðaspítala um það leyti sem Starfstúlknafélagið Sókn var stofnað. Heiðursfátækt Á 40 ára afmæli Sóknar 1974 voru þau hjónin boðin til íslands og höfðu mikla ánægju af. En Aðal- heiður kveðst hafa látið vera að hafa mikið samband. „Ég vil alls ekki vera eins og eitthvert monu- ment. Ég hefi aldrei gert neitt ein, þær sem með mér voru eiga ekki síður heiðurinn af stofnun félags- ins. Ég var bara svo ung að ég er ein á lífí,“ segir Aðalheiður með nokkrum formönnum Sóknar: Margrét Auðunsdóttir 1956- 1972, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir 1976-1987, Aðalheiður 1934-1946 og Guð- munda Helgadóttir 1973-1975 Aöalheiður segir aö ekki hofi veriÖ um annaö aö gera en aö stofna félag, óónægjan var svo mikil. Verkakvennaf élagið Framsókn var kom- iö, en þar voru aöallega konur sem unnu í fiski. Allar aörar voru utan félaga. Viö töluöum okkur saman, en urðum aö fara laumulega. Hittumst fyrst úti í móa. Þaö var kreppa og atvinnuleysi framundan og maöur varö aö vera matvinnungur. upp. Ég gerði allt vitlaust, fór að tala um dans, sagði að það hefði verið dansað hjá Salomon. Og ég sótti ekki kirkju. Svo ég bara þagn- aði, sagði ekkert." Þama bjó Aðalheiður í fjögur ár og átti drengina sína tvo, Sturlu og Pétur. Sturla er lögfræðingur og býr í Hollandi, en Pétur er fram- kvæmdastjóri stofnunar fyrir þroskahefta í Frislandi. Báðir eiga þeir fjölskyldur og tvo stráka og eina stelpu hvor. Og svo dóttirin, Victoría Spans, sem er þekkt söng- kona og býr í Hollandi. Hún er Is- lendingum vel kunn, hefur m.a. sungið íslensk lög erlendis og hald- ið tónleika á íslandi. Aðalheiður hefur því alla fjölskylduna í kring um sig. Hún kveðst auðvitað hafa saknað fjallanna á íslandi þegar hún var komin f hið flata Holland. Þegar strákarnir hennar fóru fyrst heim til íslands 12-14 ára gamlir spurði hún þá hvernig þeim hefðu fundist fjöllinn. Svarið var: Við viss- um þetta alveg, þú hafði teiknað þau svo oft. „Það var ekkert gaman fyrir Aðalheiði þegar ég kom í land 1947,“ skýtur Wugbold maður hennar glettnislega inn í, þar sem við sitjum við eldhúsborðið þeirra. „Ég var búinn að vera árum saman loftskeytamaður á skipum, þar sem ailt er gert fyrir mann, tveir þjónar bera manni matinn og vita hvað maður vill. Maður hugsar ekki sjálf- ur fyrir neinu. Aðalheiður gekk ekki beint inn í það hlutverk“. Hún tekur undir það. Wugbold og Aðalheiður sátu ekki afskiptalaus um málefnin eftir að þau settust að í Hollandi. Aðalheið- ur hafði alltaf verið róttæk. Hún kveðst hafa þekkt Héðin Valdimars- son — „alveg einstakt í veröldinni að vera olíukóngur og verkalýðsfor- ingi í senn“, segir hún og segist hafa gengið í Sólsíalistaflokkinn þegar hann tók við af Kommúnista- flokknum. Það var þá breiðara hug- tak og þama var margt fræðandi fólk. I Hollandi héldu þau hjónin svo áfram að taka afstöðu í heims- málunum. Þau eru í PSP, Pasi- fístich Socialistich Partei og voru virkir þátttakendur í mótmæla- göngum á 7. áratugnum, gegn kjamorkuvopnum og slíku. Þau tóku virkan þátt í kosningabaráttu í bænum sínum, lögðu heimilið sitt undir hana. Wugbold Spans átti sæti í borgarstjórninni fyrir PSP í 8 ár. Wugbold starfaði ámm saman við upplýsingadeild Háskólans í Utrecht. Þau era að sjálfsögðu bæði hætt störfum, en enn ákaflega virk í lífínu. Lesa mikið, allt milli himins og jarðar. „Ég er af kyn- slóð, sem hafði gaman af samræð- um og maður vill hafa eitthvað til að tala um. Alls staíar má hitta áhugavert fólk sem á við mann. Mér fínnst samt eins og íslendingar sem koma hingað út úr mennta- skóla á íslandi geti ekki komið hugsun sinni í form. Eins og það sé einhver stífla í þessu unga fólki. Það þyrfti að vera meira um kapp- ræður í skólunum. Ekki bara hlust- að á fyrirlestra heldur samræður um efnið. Ég fór oft með Sturlu syni mínum í kappræður í háskólan- um hér. Fólk notar ekki þetta merkilega sem manneskjan ein hef- ur, að geta talað. Maður á að geta leikið á höfuðið eins og á tölvu. Og að það komi eitthvað út úr þeirri tölvu“, segir Aðalheiður. Ættmóðir íslendinganna Aðalheiður hefur alltaf haft sam- band við íslendinga í Hollandi. í fyrstu var hún eini íslendingurinn þar, en eftir 10 ár kom Jón Kristins- son byggingafræðingur qg prófess- or, sem nú er formaður íslendinga- félagsins. Svo íjölgaðt „Fólk sem vildi vitá eitthvað um Island leitaði til okkar. Undarlegt hvernig það fékk heimilisfangið. Þetta var oft mikið umstang og gaman ef vel tókst til. Svo kom önnur kynslóð. Sturla sonur minn er í stjórn. Nú eru árleg þorrablót með 160-170 hún. Og bætir við að það hafi verið mikið fyr- irtæki hjá Sókn að byggja húsið sitt í Skipholti. „Við áttum ekkert." Það leiðir hugann að hin- um gífurlegu breytingum á þessum tæpum 60 árum síðan Sókn var stofn- uð. „Það var svo mikil fá- tækt, en fólk bar fátæktina betur. Við fund- um ekki svona til þess að vera fátækar. Ekki var það okkur að kenna. Það var aldrei barlómur í kring um okkur. Alltaf verið að gera eitthvað", segir hún og notar orðið „heiðursfátækt", þegar fólk bar\þöfuðið hátt. „Mér fínnst svo mikil uppgjöf í öllu núna. Það hefur orðið bylting á íslandi, andleg og líkamleg. Fólkið hefur breyst sjálft. Það er orðið svo mikið einstefnu- fólk, hugurinn bundinn við það sjálft — og bankann sinn. Áður var færra sem við þurftum að taka til- lit til. Eftir að stríðið kom fór fólk að hafa næga peninga. Og fólk er fólk, enginn tók lengur upp tíkall. Þá breyttist mikið. Verkalýðsfélög- in vora hagsmunafélög, hugsjóna- félög, við tókum aldrei neitt fyrir að leggja lið. Nú era þetta stórfyrir- tæki. Lífeyrirsjóðirnir á íslandi era bull. Þar á að vera einn lífeyrissjóð- ur fyrir landsmenn. Verkalýðsfélög- in eiga ekkert að reka þetta. Eins fínnst mér fráleitt að blanda saman stjórnvöldum og verkalýðsforustu. Menn verða að geta tekið á ef þörf krefur, óheftir af stjórnmálunum." Meðan við eram að tala saman hefí ég litið í kring um mig. Það leynir sér ekki að heimili þeirra Aðalheiðar Hólm og Wugbolds Spans í úthverfí Utrecht í Hollandi á íslenskar rætur. Þar eru margir grónir íslenskir munir. Þarna er nálarhús úr hvalbeini, sem Sturla Einarsson, afí Aðalheiðar, skar út og einnig netanálar og útskorin hilla eftir Bjarna Friðriksson, hinn afa hennar. Svo og útskorinn askur með áletraninni A.W. Spans. Falleg andlitsmynd eftir Kjarval prýðir vegginn og einnig stórt veggteppi, sem Aðalheiður saumaði sjálf eftir fyrirmynd úr Þjóðminjasafni. Loks dregur Aðalheiður fram pijóna- stokk með höfðaleturs áletrun sem á svo ijarska vel við hana: í þörf skal vina leita! Aðalheiður hefur ætíð brugðist ótrauð við þörfinni þegar til hennar var leitað.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.