Morgunblaðið - 24.10.1993, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1993
B 5
Rauða skikkjan viðruð
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabíó:
Rauða skikkjan
Leikstjóri Gabriel Axel. Aðalleik-
endur Gitte Hænning, Oleg Vidov,
Eva Dahlbeck, Gunnar Björn-
strand, Gísli Alfreðsson, Borgar
Garðarsson. Dönsk - íslensk. Edda
Film 1967.
Rauða skikkjan er aftur komin á
tjaldið (um takmarkaðan tíma) „til
upprifjunar og gamans“, eins og
Indriði G. Þorsteinsson sagði í aðf-
ararorðum á undan forsýningunni,
þar sem hann benti m.a. á þátt
myndarinnar í „vorkomu" íslenskrar
kvikmyndagerðar. En Rauða skikkj-
an var dansk/íslenskt samvinnu-
verkefni, þriðja kvikmynd Edda
Film, sem áður hafði verið eitt af
framleiðendum Sölku Völku og 79
af stöðinni. Þó „vorið“ hefðist ekki
fyrr en eftir röskan áratug voru
þessar þrjár myndir undanfari og
að einhverju leiti hvatar þess.
Það var afar forvitnilegt að sjá
þessa umtöluðu, liðlega aldaríjórð-
ungsgömlu mynd, ekki síst í saman-
burði við það sem er að gerast í list-
greininni í dag. Og víst er að mynd-
in hefur sérstöðu, ekki aðeins í ís-
lensku kvikmyndaflórunni heldur
janvel þó leitað væri langt útfyrir
landsteinana. Þó ekki sé fyrir annað
en að gallar hennar og kostir liggja
óvenjulega ljóst fyrir. Myndmálið,
kvikmyndatakan, stendur vel fyrir
sínu, er listræn og fögur, langsam-
lega besti hluti myndarinnar. Sum-
arið ’66 var með eindæmum úrko-
musamt og olli kvikmyndargerðar-
mönnum umtalsverðum vandræðum.
Tökustjórinn fangar engu að síður
grámóskuna og þokuloftið sér til
tekna, iætur það gefa myndinni vel-
viðeigandi, oft yfirnáttúrlegan blæ.
Þá er til efs að Náttúruverndarráð
væri tilbúið í dag að opna hlið Ás-
byrgis, Hljóðakletta og Dimmuborga
fyrir kvikmyndargerðarmönnum i
dag (!). En hér eru þessar náttúru-
perlur okkar stórbrotinn rammi um
litla sögu.
Akkilesarhællinn er textinn.
Hann er með ólíkindum upphafinn,
stuttaralegur, gjörsneyddur kímni,
persónusköpun, kryddi. Harðlífislegt
og vanmáttugt daður við Söguritun
forfeðranna. Minnir helst á niður-
soðna, ritaða textann sem skotið var
á milli atriða í þöglu myndunum á
sínum tíma. Og vafalaust mundi
Rauða skikkjan njóta sín mun betur
þögui. Ekki nóg með að hið talaða
orð sé tilgerðarlegt heldur er mynd-
in talsett á íslensku og það hefur
tekist illa. (En hafa ber í huga að
tækninni hefur fleygt fram á þessu
sviði sem öðrum síðustu 26 árin).
Raddirnar passa misvel við persón-
urnar, en það sem verra er að þar
bólar talsvert á þeim misskilningi
að verið sé að flytja Gullaldartexta,
menn beita gjarnan röddinni af mikl-
um, dramatískum áhersluþunga.
Líkt og þeir væru að kytja sjálfan
Shakespeare á sviði. Að einhveiju
leiti má kenna þetta tíðarandanum
Þetta sakleysislega atriði
hneykslaði margan manninn árið
1967. Gitte Hænning og Oleg
Vidov í aðalhlutverkunum, hinna
ógæfusömu elskenda, Hagbarðar
og Signýjar.
og verið var að gera eina dýrustu
mynd sem filmuð hafði verið á Norð-
urlöndum. Menn tóku sig hátíðlegar
í þá daga. Eins var hugsunarháttur-
inn sakleysislegri á tímum er tólf
manna kaffistell voru eftirsóknar-
verðastir bingóvinninga. (Þó segir
Ólafur Sigurðsson í gagnrýni sinni
á myndinni í Mbl. í feb. 67., að það
hefði verið sagt í Danmörku að
myndin væri betri á íslensku. Og
telur það....hreint ekki ólíklegt því
þá losna þeir við að skilja það sem
sagt er...“. Svo það er ljóst að text-
inn fór fyrir bijóstið á mönnum þá
sem nú).
Þetta eru helstu kostir og gallar
þessarar misjöfnu myndar sem ann-
ars segir frá atburðum á Söguöld.
Afbrýði, ættarvígum, ást og hatri
sem ná út fyrir gröf og dauða.
Skandinavísk útgáfa af Rómeó og
Júlíu sem þau Oleg Vidov og Gitte
Hænning leika með litlum tilþrifum.
Bergman-leikarinn Gunnar Björn-
strand er broslega hátíðlegur í hlut-
verki Sigvarrs konungs og maður
hefur á tilfinningunni að hin uppstr-
ílaða Eva Dahlbeck sé að leika í Lux
sápuauglýsingu. Tveir íslenskir leik-
arar koma nokkuð við sögu, Borgar
Garðarsson og Gísli Alfreðsson og
skila þeim eins vel og efni standa
til. En yfir höfuð ber allur ieikur of
mikin keim af leiksviðsreynslu.
Maður greinir varla ástæðurnar í
dag fyrir þeirri umræðu og írafári
sem Rauða skikkjan olii hér á sínum
tima, en myndin var „marglofuð og-
löstuð" - og stranglega bönnuð innan
tólf ára, jafnvel í fylgd foreldra.
Hneykslunarhellurnar einkum sex
berrassaðir karlmenn, sætu bijóstin
hennar Gittu Hænning og afhausun
vígamanna. Allt boðlegt fjölskyldu-
fóður í sjónvarpi samtímans. Myndin
hlaut dágóða aðsókn hérlendis og í
Bandaríkjunum var hún lofuð uppí
hástert. Ein besta erlenda mynd árs-
ins ’67 og hafa bardagaatriðin, sem
þóttu ofurraunsæ á þeim tíma, átt
dijúgan þátt í því vali. Myndin á það
fylliega skilið að vera gefin út á
myndbandi því hún er ágæt skemmt-
un - ef maður stingur uppí eyrun.
iRAIMGUR
fyrir jólin!
þú æfir 3-5x í viku
þú brennir fitu
þú styrkir vöðvana
og mótar lögulegan vöxt
skráning í síma:
68 98 68
þú verður fitumæld og viktuð
• Við hugsum vel um þig
- þú nærð góðum árangri
fitubrennslu-
námskeið
Hefst 30. okt.
þú færð góðar uppskriftir af léttu fæði
þú færð möppu með
fróðleik og upplýsingum
þú heldur matardagbók og við
komum með góðar ábendingar
• þú færð fræðslu og gott aðhald
Morgunhópur
Daghópur
Kvöldhópar
Barnagæsla
r r
AGUSTU OG HRAFNS
SKEIFAN 7 108 REYKJAVÍK S. 689868