Morgunblaðið - 24.10.1993, Qupperneq 7
B 7
MORGUNBLAÐIÐ MANNLIFSSTRAUMAR SUNNUÐAGUR 24. OKTÓBER 1993
olíuskip eða her-
búnað, heldur
verður um að
ræða umhverfis-
slys með skaða
sem snertir heilar
þjóðir, og náttúru
margra landa.
Forritin sem stýra
t.d. kjarnorkuveri eru þeirrar
stærðar, að ógerlegt er að sjá
fyrir að þau starfi eins og ætlast
er til í öllum kringustæðum. Ekki
eru alltaf allar kringumstæður
fyrirsjáanlegar, og forritin eru
samsett úr milljónum eininga.
Útilokað er að hreinsa þau alger-
lega af villum. Vitaskuld er með
vandaðri vinnu reynt að tryggja
gegn villum, en reynt er að bregð-
ast við vandanum með því að lifa
við hann, þar sem svo erfitt er
að útrýma honum. Trygging gegn
villum fæst einna helst með því
að hafa kerfíð margfalt, þ.e. þijú
eða fleiri tölvukerfí eru öll hvert
um sig látin um að stýra umrædd-
um tæknibúnaði, og kerfið er að-
eins „keyrt“ ef allar tölvumar eru
sammála um niðurstöðuna, þ.e.
um hvernig á að stýra, t.d. kjarn-
orkustöðinni. Þessar þijár tölvur
eða fleiri eru venjulega eins, og
eins forritaðar, og ættu alltaf að
vera sammála ef allt væri með
felldu. Þegar meira er haft við,
eru keyrðar margar „systurtölv-
ur“ samhliða á þennan hátt, en
ein „móðurtölva“ er yfir þær sett
og kemur til skjalanna, hvenær
sem systurnar eru ekki allar sam-
mála. Þessi móðurtölva er til ör-
yggis annarrar gerðar (þ.e. hug-
búnaðurinn) en hinar, og því óháð
þeim forritavillum sem kunna að
valda vandræðum í sjálfum stýr-
iútbúnaðinum. Það er svo háð for-
rituðu mati móðurtölvunar hvort
hún hleypir stýriskipunum í gegn-
um sig og út í kerfið, jafnvel þótt
systurtölvurnar séu ekki allar
sammála. Oft er þá stýring töl-
vanna látin verka þótt ein til tvær
tölvur séu í minnihluta, ef meiri-
hluti tölvanna er sammála. Þetta
er nefnt á slæmri íslensku „of-
sóknarlýðræði“ (paraniod
democracy), vegna þess að tölv-
urnar standa vörð hver um aðra.
Með þessu komast menn miklu
nær fullkomnu öryggi en með því
að eyða ógnar tíma og vinnu í að
hreinsa hugbúnaðinn af villum.
Setjum svo að líkurnar á að ein-
falt tölvukerfi kjarnorkuvers geri
villu innan eins mánaðar séu einn
deilt með hundrað þúsund. Það
eru verulegar líkur, þegar tekið
er tillit til íjölda kjarnorkuvera í
heiminum og að þær líkur fara
nærri því að tólffaldast yfir árið.
Sé tölvukerfið þrefaldað, fer nærri
því að líkurnar á tölvubilun innan
hvers mánaðar verði einn á móti
hundrað þúsund í þriðja veldi, eða
talan 1/1000.000.000.000.000
eftir Egil
Egilsson
STANGVEIÐIÆr A tlantshafslaximi
t útrymingarhcettu?
Kvótakaupin
LJÓST MÁ VERA af skýrslum um veiði á Atlantshafslaxi
undanfarin ár að afli hefur dregist stórlega saman. Svo er
um stangveiði í Noregi, á Bretlandseyjum og Islandi, einnig
úthafsveiði þrátt fyrir tilraun til veiðistjórnunar. Brátt sér
þó vonandi fyrir endann á þeim veiðum. Talið er að hér á
landi hafi laxveiði dregist saman um 25% síðustu fjórtán árin
þrátt fyrir öflugt ræktunarstarf. Sumir kenna það úthafsveið-
unum.
Það hefur lengi verið áhugamál
íslenskra stangveiðimanna
að koma í veg fyrir úthafsveiðar
á laxi. íslensk löggjöf leggur blátt
bann við slíkri veiði og hafa ís-
lendingar fyrir
það vakið at-
hygli annarra
þjóða.
Baráttan hef-
ur því beinst út
á við og fyrst og
fremst að þvi að
fá bannaðar
veiðar Færey-
inga og Grænlendinga. Þar var
við ramman reip að draga því að
þessar þjóðir töldu það stofna
atvinnumálum sínum í voða.
Sama var þótt stjórnvöldum væri
sýnt fram á að hætta væri á að
sjómennirnir veiddu sig út á gadd-
inn og legðu einnig í rúst stang-
veiðarnar í þeim löndum þar sem
laxinn gengi í árnar til að hrygna.
Jafnvel Norðmenn voru lengi
að skilja að það er ekki hægt að
veiða sama laxinn bæði í sjó og
uppi í ánum. Þeir hafa nú bannað
reknetaveiðar meðfram ströndum
lands síns en eiga samt við nóga
erfíðleika að stríða vegna sjúk-
dóma og annarra vandræða sem
rekja má til verksmiðjueldis á
laxi.
Nú hefur það gerst fyrir at-
beina eins manns, Orra Vigfús-
sonar, að búið er að semja við
Færeyinga um að veiða ekki lax
í sjó í þijú ár og nú Grænlendinga
að leggja ekkilaxanet í sjó næstu
fimm ár. Þó með örfáum undan-
tekningum í hreinræktuðum
veiðimannabyggðum. Samning-
amir skulu endurskoðaðir árið
1995.
Orri hefur kunnað að notfæra
sér það að svo fór sem spáð var
að sjávaraflinn hraðminnkaði og
svo að verðhrun varð á laxi vegna
tilkomu fiskeldis. Útgerðin ein-
faldlega borgaði sig ekki.
Stjórnvöld, útgerðir og sjó-
menn voru þó ekki tilbúin að af-
sala sér sínum rétti fyrr en Oití
og samstarfsmenn hans í Norður-
Atlantshafslaxasjóðnum gerðu
þeim tilboð sem þeir töldu sér hag
í að ganga að: Greiða útgerðar-
mönnum og sjómönnum í Færeyj-
um árlega i peningum andvirði
þess ársafla sem bestur hafði orð-
ið síðustu fimm árin_ fyrir gildis-
töku samningsins. í Grænlandi
er tekið mið af kvóta og veiðum
undanfarinna ára.
Orri hefur verið óþreytandi að
fá fjársterka aðila bæði vestan
hafs og austan til að fjármagna
þessar aðgerðir og orðið vel
ágengt, einnig hafa ríkisstjórnir
hagsmunalandanna lagt fram
sinn skerf og síðast en ekki síst
stangveiðimenn og veiðiréttareig-
endur.
Það sem hefur vakið athygli
við þessa samninga er að komið
var til móts við menn sem sums
staðar voru að missa vinnuna og
útgerðir sem víða sáu fram á
bullandi tap og lagt á ráðin með
að byggja upp veiðar annars sjáv-
arfangs í staðinn.
Þama fóru ekki blindir friðun-
arsinnar sem létu sig engu varða
afleiðingar gerða sinna á veiði-
þjóðir heldur menn sem skildu
þarfir þeirra og vildu milda óhjá-
kvæmilegar breytingar á lífshátt-
um þeirra en vinna í staðinn fylgi
við þarfan málstað.
Nú er bara að bíða og vona
að þessi árvekni, frumkvæði og
óþreytandi baráttuhugur Orra
Vigfússonar beri árangur, laxinn
skili sér í ríkara mæli í heimaárn-
ar. Ötult starf hans er þeim líka
hvatning sem þar ráða til að
rækja hlutverk sitt af kostgæfni
og vera vel á verði gegn þeim
hættum öðrum sem kunna að
steðja að laxinum.
eftir Gylfa
Pólsson
MALASKOLI REYKJAVIKUR Tungumálakennsla í sérflokki - fyrir alla
ÍNNRITUN HEFST 25 Október sími: 62 88 90
VISA EliRO Brautarholti 4 105Reykjavík
Enska Einkatímar í dönsku, sænsku, spænsku
Fullorðnir: Námskeið í janúar
Almenn enska, Bókmenntahópar, Samtalshópar, Viðskiptaenska, Einkatímar, Sérsniðin kennsla Erlendir Skólar upplýsingar í simí 628850
Námskeið hefst 1. nóvember VRo.O.
-sniöin að
mannleöum
l pörfum
Ml
KORTAKERFIG
I Rautt kort.
Rauða kortið eru likast þvi serrt áður gerðist
hjá okkur í JSB. Þetta kort hentar þeim konum
■ sem eru tilbúnar að binda sig við tvo
ákveðna tima i viku, en auk þess geta
þær svo mætt í tvo frjálsa tima á fóstu-
dögum og laugardögum. Rauð kort hafa
forgang i þann flokk sem viðkomandi
skráir sig í. Skráning er takmörkuð.
■ Grænt kort.
Grænt kort gildir i alla flokka alla daga
vikunnar þar til flokkarnir eru fullsetnir. Þessi
kort eru miðuð við þarfir þeirra sem vilja hafa
sveigjanleika á mætingu og ástundun.
TOPPI TIL TÁAR
Uþpbyggilegt lokað námskeið.
Fimm timar í viku,
sjö vikur í senn.
Strangur megrunarkúr sem
fylgt er eftir daglega með and-
legum stuðningi, einkaviðtölum
og fyrirlestrum um mataræði
og hollar lifsvenjur.
Heilsufundir þar sem farið er
yfir fórðun, klæðnað, fram-
komu og hvernig á að efla
sjálfstraustið.
Þetta námskeið er eingöngu
ætlað þeim konum sem berjast
við aukakílóin.
ægSffiS'
Barnapössun
í Suðurveri
alla daga
frá kl. 9-16.
Leikhorn fyrir
krakkana
I Hraunbergi.
Hringið og
pantið kort
eða skráið
ykkur i flokka.
Sími 813730
og 79988.