Morgunblaðið - 24.10.1993, Page 12

Morgunblaðið - 24.10.1993, Page 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ MENNIIMGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1993 + Fólk MÁ nýlega afstaðinni heimildar- og stuttmynda- hátíð í Kristianstad í Sví- þjóð hreppti Inga Lísa Middleton verðlaun fyrir hreyfímynd sína Ævin- týri á okkar tímum í flokki tilraunamynda. Var það eina íslenska myndin sem hlaut verðlaun á há- tíðinni en Finnar komu mjög sterkir útúr henni með verðlaun fyrir bestu heimildarmyndina og bestu stuttmyndina og áhorfendaverðlaunin að auki. ■ Bandaríski leikstjórinn Tim Burton mun ekki gera þriðju myndina um Leðurblökumanninn („Batman 3“) heldur Joel Schumacher sem áður hefur gert myndir eins og „Dying Young“ og „Flatliner". Er sagt að kvikmyndaverið Warner Bros. hafi ekki verið alls- kostar ánægt með mynd númer tvö og því talið ráðlegast að skipta um leikstjóra. Ekki erþar með sagt að Burton, sem er einhver frumlegasti leik- stjóri sem Hojlywood hef- ur á að skipa, hafí sagt skilið við seríuna því hann hefur í hyggju að búa til bíómynd um einn af óþokkunum í sögunum þ.e. Kattarkonuna, sem Michelle Pfeiffer lék svo eftirminnilega í númer tvö. Perueftirlitið; úr myndinni „Byron“ eftir Guðmund Karl Björnsson. „BYRON“ EFTIR GUÐMUND KARL Guðmundur Karl Björns- son vinnur nú við loka- frágang á stuttmynd sem hann hefur gert og heitir „Byron“. Guðmundur skrif- ar handritið, framleiðir og leikstýrir en myndin er byggð á sögukafla úr bók- inni „Gravity’s Rainbow" eftir Thomas Pynchon. Með aðalhlutverkin í henni fara Þröstur Guð- bjartsson, Ragnar Ágústs- son, Guðmundur Rúnar Lúð- víksson, Þóra B. Valdimars- dóttir, Kristinn Pétur Magn- ússon, Jón Frosti Tómasson og Skúli Skúlason. Kvik- myndataka og klipping er í höndum Þorvarðar Arnason- ar, Magnús S. Guðmundsson sér um myndræna hönnun, Þorkell Sigurður Hjartars- son um leikmynd og Stein- grímur E. Guðmundsson um tónlist. Alf Bower sér um hljóð. Guðmundur lýsir mynd- inni sem „ótrúlegri reynslu- sögu ódauðlegrar ljósa- peru“. Segir hann myndina greina frá hetjulegri baráttu ljósaperu sem í leynist ódauðleg sál við þröngsýn hagsmunasamtök er reyna að útrýma langlífum ljósa- perum og stendur hún frammi fyrir ógnvænlegu samsæri. í sem stystu máli gerist það að klerkur í hefndarhug stelur ljósaperum til að klekkja á Lionsmönnum, sem hann telur þjóna myrkrahöfðingjanum. Trú- ardeilur magnast upp og perustuldsfaraldur grípur um sig og við tekur æsi- spennandi eltingaleikur við útsendara perueftirlitsins. Myndin verður væntan- lega sýnd í kvikmyndahúsi um miðjan næsta mánuð. 74.000 HAFA SÉD JÚRAGARÐINIM Alls hafa nú um 74.000 - manns séð Júragarð- inn eftir Steven Spielberg í Háskólabíói og Sambíóun- um og kvikmyndahúsum og úti á landi. . Þá sáu um 6.600 manns spennumyndina Fyrirtækið í Háskólabíói og Sambíóun- um fyrstu sýningarhelgina og 13.500 manns hafa séð „Sliver“ í báðum bíóunum. Um 6.500 hafa séð Við árbakkann í Háskólabíói, 5.000 frönsku stórmyndina Indókína og 2.500 kín- versku myndina Rauða lampann. Næstu myndir Háskóla- bíós eru „Benny & Joon“ með Johnny Depp, „Hard Target“ með Jean-Claude van Damme en hún verður einnig í Laugarásbíói, „The Damme harður; úr „Hard Target“ sem sýnd verður í Háskólabíói og Laugarásbíói Real McCoy“ með Kim Bas- inger og Val Kilmer, „The Young Americans“ með Harvey Keitel en lag Bjark- ar Guðmundsdóttur, „Play Dead“, er í myndinni og loks „For Love Or Money“ með Michael J. Fox. I desember frumsýna svo Háskólabíó og Sambíóin framhaldsmyndina „Add- ams Family Values“. TAYLOR LEIKURISTEIN- ALDARMÖNNUNUM Jabbadabbadúúúú. Rick Moranis og Rosie O’Donnell leika foreldra ís- lensku drengjanna Marínós og Hlyns Sigurðssona í bíó- myndinni Steinaldarmönn- um, sem gerð er eftir sam- nefndum sjónvarpsþáttum. Þau leika Barney Rubbles og frú en íslensku strákarnir skiptast á um að leika son þeirra, Bam Bam. Eins og kunnugt er fer John Goodman með aðal- hlutverkið í myndinni, leikur Fred Flintstone, en með önn- ur hlutverk fara Elizabeth Perkins, sem leikur Wilmu, og Elizabeth Taylor, sem leikur tengdamömmu Freds ceeeJCVIKMYNDIRkeed Hvaba myndirgengu best íBandaríkjunum? Metsölusumar Síðasta sumar var metsölusumar í bíóaðsókn í Bandaríkjunum og þakka menn það góðu úrvali af spennandi sumarmyndum en kannski ekki síst Júra- garðinum sem orðin er næst mest sótta bíómynd seinni tíma á eftir annarri Steven Spielbergmynd, „E.T.“ (399 milljónir dollara). Júragarðurinn sló „Star Wars“ úr öðru sætinu en miðar á eðlumyndina hafa verið seldir fyrir rúmlega 326 milljónir doilara í Bandaríkjunum sem gera tæpa 23 milljarðar ísl. króna. Ekki áttu allir jafngóðan dag. Disneyfyrir- tækið frumsýndi níu myndir sl. sumar en engin þeirra fór yfir 40 milljón dollara markið. Aðsóknin vestra í sumar er fímm prósentum meiri en hún var metsölu- sumarið 1989 og er áætlað að miðar hafi selst fyrir 2,1 milljarð dollara þá rúmu þijá mánuði sem sumarver- tíðin stendur. Það gerir 147 íslenska milljarða. Þær myndir sem báru sumarið uppi þóttu óvenju kræsilegar og virtust höfða til breiðs hóps áhorfenda eins og Fyrirtækið með Tom Cruise, í skotlínu með Clint Eastwood og Á ystu nöf með Sylvester Stallone en meira að segja Sha- kespeare-mynd eins og Ys og þys út af engu eftir gekk mjög vel. Það var þó einn sumarskellur fyrir hvern sumarsmell. Amold Schwarzenegger rann á rassinn með Síðustu ■■■■■■■■■■■ hasar- myndar- hetjuna (gekk bet- ur í Evr- ópu, ágætlega hér heima m.a.) og kyntáknið gerði þau krossleggja skiptið eftir Amald Indriðason Sharon Stone mistök að hendumar í þetta og eyðilagði „Siiver“. Flestar stórstjörnurnar máttu vel við una nema Arnold en Stallone var sig- urvegarinn. Ekki af því áhorfendur tók hann fram- yfir Harrison Ford, sem ásamt Tommy Lee Jones gerði Flóttamanninn (170 milljónir dollara) að næst- mest sóttu mynd sumars- ins. Eða Cruise sem gerði Fyrirtækið (155 milljónir) að metsölumynd. Eða Eastwood sem treysti sig enn í sessi með í skotlínu (105 milljónir), þeirri vin- sælustu sem hann hefur nokkurntíman leikið í. Nei, Stallone var sigurvegarinn af því fjallatryllirinn Á ystu nöf (81 milljón) gerði hann aftur að hasarmynda- stjörnu eftir að margar aðr- ar tilraunir höfðu mistekist hrapalega. Tveir leikstjórar komu mest á óvart. Andrew Da- vis sem hélt uppi ótrúlegri keyrslu í Flóttamanninum og er nú ásamt Renny Harl- in eftirsóttasti spennu- myndaleikstjóri Hollwyood- kerfisins eftir að hafa hannað sparkatriði fyrir Steven Seagal og Chuck Norris í mörg herrans ár. Og Nora Ephron gerði Sve- fnlaus í Seattle að óhemju vinsælli rómantískri gamanmynd uppúr sögu um fólk sem kynnist fyrst þegar tvær mínútur eru eftir af myndinni. Þá komu hinir óháðu leikstjórar og bræður, Allen og Albert Hughes, virkilega á óvart með sinni fyrstu mynd, Hinum óæskilegu, sem sýnd er í Laugarásbíói. Michael J. Fox á í mikl- um erfiðleikum með að fóta sig eftir að hann fór að leika í fullorðinsmyndum og varð ekkert ágengt með „Life -With Mickey" og „Coneheads" með Dan Aykroyd vegnaði illa og sýndi að myndir byggðar á laustengdum grínatriðum í sjónvarpi ganga ekki allar eins vel upp og Veröld Waynes. Hrollvekjan um helvítisför Jasons var í eina viku á topp 10 listanum en hrundi svo gersamlega, Woody Allen náði engum vinsældum með Morðgátu á Manhattan þrátt fyrir lof- samlega gagnrýni og Tina Turner kveikti engan neista í miðasölunni þótt ævisögu- lega myndin hennar væri mjög góð. en Taylor hefur ekki leikið árum saman í bíómynd. í myndinni leikur einnig Kyle MacLachlan yfirmann Freds sem fær einkaritara hans, leikin af Halle Berry, til að plata jabbadabbadúinn út í vafasöm og hættuleg viðskipti. Tökurnar voru ekki eintómur dans á rósum: „Við erum að kvikmynda oní þessari grjótnámu í 40 stiga hita,“ er haft eftir Goodman sem er þó rétt klæddur fyrir tilefnið. „Ég er í antílópu- skinni." IBIO Metsölumynd sumars- ins á íslandi er eins og flestum mun kunnugt Júragarðurinn eftir Ste- ven Spieiberg. En það er ekki aðeins hér á landi sem myndin hefur notið geysilegra vin- sælda, hún er vinsælasta myndin um allan heim og jarðaði t.d. samkeppnina í Bandaríkjunum. Fáa óraði fyrir vinsældum myndar- innar en svo kom á daginn að kappar eins og Sylvest- er Stallone, Harrison Ford, Tom Cruise og Arn- old Schwarzenegger áttu lítið í Tyrannosaurus rex. Langt er síðan mynd hefur hlotið aðra eins að- sókn á Islandi en nú hafa um 74.000 manns séð hana samanlagt í Há- skólabíói og Sambíóunum og kvikmyndahúsum úti á landi. Ef sá íjöldi er marg- faldaður með miðaverðinu sem er 500 krónur kemur í ljós að miðar á myndina hafa verið seldir fyrir meira en 37 milljónir króna eða yfir hálfa millj- ón dollara. Dágóður biti það.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.