Morgunblaðið - 24.10.1993, Side 15
MORGU NBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1993
B 15
EUireying'arnir, sem sáu um Lundaballið að þessu sinni.
Sjúkra- og íþróttanuddari
Hef opnaó sjúkra- og íþróttanuddstofu
á Grensásvegi 5, Reykjavík.
Tímapantanir í síma 811590.
Þuríður Valdimarsdóttir,
löggiltur sjúkranuddari.
VESTMANNEYJAR
Lundaballið lukkaðist vel
Arshátíð Bjargveiðimannafé-
lags Vestmannaeyja, Lunda-
ballið, var haldin fyrir skömmu. í
Týsheimilinu í Eyjum. Fjölmenni
var á ballinu, sem Ellireyingar sáu
um að þessu sinni, og var mikið
sungið, hlegið og trallað fram eft-
ir nóttu.
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri
og Ellireyingur, var veislustjóri og
sá um að dagskráin gengi á eðli-
legan hátt, með tilheyrandi skot-
um og skensi á Iéttu nótunum.
Árni Johnsen mætti með gítarinn
að vanda og stjórnaði fjöldasöngn-
um sem var kraftmikill enda mik-
ið ijör í fólki. Reyktur og steiktur
lundi ásamt hangikjöti var á mat-
seðlinum og tóku lundakarlar
hraustlega til matarins.
Vanir smáum fugli
Einhverjir lundar þóttu full lítið
soðnir og voru lundakallar úr
Vestureyjunum fljótir að finna
skýringu á því. Þeir sögðu að fugl-
inn sem Ellireyingarnir veiddu
væri svo smár, að þeir þyrftu ekki
að sjóða hann meir en í klukku-
tíma. Þegar þeir ættu svo að fara
að matreiða alvöru lunda úr öðrum
eyjum þá áttuðu þeir sig ekki á
því að hann þyrfti minnst þriggja
tíma suðu, þar sem hann væri mun
stærri og meiri en Ellireyjarlund-
inn.
Ellireyingar voru með ýmis
skemmtiatriði á dagskránni og
slógu þeir bræður Ólafur og Stefán
Erlendssynir í gegn í hlutverkum
sveitamannanna Magnúsar og
Gísla.
Veiðimenn heiðraðir
Tveir veiðimenn í eldri kantin-
Morgunblaðið/Sígurgeir Jónasson
„Neeeeieiei.“ Ólafur og Stefán fóru á kostum í hlutverkum sveita-
mannanna á Lundaballinu.
Árni Johnsen
heiðrar þá Hall-
grím Þórðarson og
Hjörleif Guðnason
fyrir þeirra fram-
lag til fjalla- og
veiðimennsku.
um, Hjörleifur Guðnason, veiði-
maður úr Ellirey, og Hallgrímur
Þórðarson, veiðimaður úr Ysta-
kletti, voru heiðraðir af Bjargveiði-
mannafélaginu fyrir fyrirmynd
þeirra og framlag til fjalla- og
veiðimennsku.
Lundakarlar dönsuðu síðan
fram á rauða nótt við undirleik
hljómsveitarinnar Hálft í hvoru og
að vanda var borin fram kraftmik-
il miðnætursúpa til að gefa aukna
orku fyrir næturstuðið.
Grímur
KONGAFOLK
Konunglegur
vínbóndi
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur
Um þessar mundir stendur vín-
uppskeran sem hæst. Víðast
á frönskum vínekrum er búið að
tína berin eða verið er að ljúka því
verki. Vínbændumir bíða spenntir
eftir að sjá hver útkoman verður,
bæði varðandi magn og gæði. Dan-
ir hafa sérstakan áhuga á einni vín-
fjölskyldunni, nefnilega Monpezat-
fjölskyldunni, Hinrik drottningar-
manni og vínrækt hans. Um daginn
heimsótti danska sjónvarpið prins-
inn og fræddist af honum um ví-
nyrkjuna.
Prinsinn keypti fyrir tuttugu
árum vínekrur rétt hjá bænum
Cahors í Frakklandi, sem samnefnd
vín eru kölluð eftir og þaðan sem
hann er ættaður. Slotið heitir Caix.
Þar ræktar hann vínber og fram-
leiðir um 110 þúsund flöskur á ári.
Að sjálfsögðu er það selt í útvöldum
verslunum í Danmörku.
fréttaritara Mbl.
„Vínið sem er að geijast þessar
vikurnar verður tilbúið eftir þtjú
ár,“ sagði prinsinn þar sem hann
stóð úti á vínekrunni og virti upp-
skeruna fyrir sér. Hann sagði ekki
mikið við sjónvarpsmanninn, enda
hefur hann aldrei náð sérstaklega
góðu valdi á móðurmáli konu sinnar
og heimilismálið er franska. Hann
sagði þó að drottningin nyti þess
eins og hann að koma á búgarðinn.
„Hér verður drottningin kona,“
sagði hann á dönsku með franskri
hugsun og andblæ.
Þau hjónin koma venjulega á
búgarðinn 2-3 sinnum á ári. Bæj-
arbúar í næsta bæ verða þess alltaf
varir, því drottningin gerir innkaup-
in á markaðnum. Og þar vita allir
hver hún er þessi hávaxna og ljós-
leita kona, sem gengur um með
tágakörfuna í fylgd einnar af
lnrðdömunum.
W a.
Villibmðarhlaöborö
i Blomasal
Helgamar29. og30. okt. og5. og6. nóv.
Palmi Gunnarsson er t
hlutverki gestgjafa,
leikur "villibráðarblús"
og segir lygasögur af
sjálfum sér og öðnim
frœgum veiðiklóm.
FORRETUR
sjávarréttapaté • villibráðarseyði
hreindýrapaté • villigœsakœfa
reyksoðinn lundi • grafinn lax eða silungur
reykt og sesamgrafin gœsabringa • ogfleira
, ■: mt
.
ADALRHTFIR
hreindýrasteikur steiktar í salnum
pönnusteiktar gæsabringur • rjúpur
villikryddað fjallalamb • villiandasteik
svartfugl • hreindýrapottréttur • súla
hreindýrabollur í títubeijasósu • skarfur
gœsapottréttur • ogfleira
EFTIRRETHR
blábeijaostaterta
heit eplabaka með ijóma
ostabakki • ogfleira
ggsg§
Borðhald hefst með fordrykk kl. 20.00
HOTEL LOFTLEIDIR
BLOMASALUR
borðapantanir í síma 22321 - fax 627573