Morgunblaðið - 24.10.1993, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 24.10.1993, Qupperneq 22
22 B MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1993 DRAUMALAND... SIGRÍÐAR ERLU SIGURBJÖRNSDÓTTUR ER.. ÁinNU AF MÖRGUM stöðum sem Sig- ríður Erla Sigurbjörnsdóttir kennari, gæti hugsað sér að ferð- ast til, hafa áin Níl og söguslóðir við hana mest aðdráttarafl. Mig langar til að upplifa þessa kyngimögnuðu, fjögur þús- und ára gömlu sögu sem átti sér stað við ána Níl, einkum í Egypta- landi, segir Sigríður Erla. „Maður- inn minn' hefur nú reyndar verið að benda mér á að margt sé breytt síðan Agatha Christie var þarna, en það breytir engu! Ég hef hins vegar dregið að fara í þessa ferð út af ólátunum sem hafa verið á þessum svæðum síðan 1968. Þegar ég var í barnaskóla ferðað- ist ég um í biblíusögunum og lang- aði alltaf að sjá staðina þar sem atburðir þeir sem sagt er frá í Gamla testamentinu áttu að hafa gerst. Draumurinn er að sigla eftir ánni með bát og skoða þessa sögu- staði. Þama má sjá mestu og merk- ustu fomminjar sem heimurinn á. Vinkona mín ein sagði mér frá því er hún reið á fáki kringum píramíd- ana fyrir tuttugu og fimm ámm og fannst mér sú frásögn ógleym- anleg. Ég verð nú að viðurkenna að íbúar staðarins hafa ekkert sérstakt aðdráttarafl á mig, hins vegar man ég að þegar ég fór til Bombay um árið, fannst mér mannlífið þar ákaf- lega áhugavert. Annars er það allt sem heillar mig við staðinn, um- hverfíð, náttúran, jarðsagan og dýralífið. Þeir sem hafa áhuga á íslenskri náttúm hafa einnig áhuga á náttúm annarra landa. En há- punkturinn yrði þó sagan og þetta sérstaka andrúmsloft sem ég held að sé við ána.“ ÚR MYNDASAFNINU ÓLAFUR K. MAGNÚSSON HjáGróttu smrrar sjórinn órbergur Þórðarson kvað árið 1923: „Seltjarnamesið lítið og lágt / íbúar fáir ... “ os.frv. Með því að líta á þessar yfir- litsmyndir sem Ólafur K. Magnússon tók um 1950 geta Morgublaðslesendur sjálfir metið hvort Sel- tjarnarnesið sé „lítið og lágt“ eða „stórt og hátt“. En samkvæmt manntali bjuggu 686 manns á nes- inu þetta ár. 1947 var ákveðið að skipta hinum foma Seltjarnarneshreppi, í Kópa- vogshrepp og nýjan Seltjarnarnes- hrepp. Þessi ákvörðun tók gildi í ársbyijun 1948. íbúar í hinum nýja Seltjarnarneshreppi voru um 500, flestir bjuggu í Lambastaðahverfi en einnig allmargir á Framnesinu. Við Tryggvastaðabraut sem nú heitir Lindarbraut voru komin nokkur hús, þar sem búið var allt árið. Seltjarnarneshreppur varð að Seltjarnarnes- kaupstað 9. apríl 1974. Þá vora íbúar tæplega 2.500. Árið 1978 urðu nokkrar breytingar á lögsagnarumdæmi kaupstaðarins. Sel- tjarnanes fékk stóran hlut af landi Eiðis en á hinn bóginn fékk Reykjavík lögsögu yfir eyjum í Faxaflóa. Nú um stundir er landstærð Sel- tjarnarneskaupstaðar um 160-170 hektarar og íbúatala 1. desember 1992 var 4333. Fjöldi íbúða á nes- inu er um 1.400. Lengst til hægri er Sörlaskjól í Reykjavík en svo tekur Lambastaða- hverfið á Seltjarnarnesi við. Fáein hús eru risin undir Valhúsahæð og nokkur hús eru vestar við Tryggvastaðabraut sem í dag heitir Lindarbraut. ÉGHEITI FREGN BJÖRGFINSDÓTTIR FREGN Björgvinsdóttir á ekki neina alnöfnu svo vitað sé, hvorki fyrr né síðar. Aðeins er vitað um eina aðra konu sem ber Fregnar-nafnið, en það er Jórunn Fregn, dóttur- dóttir Fregnar eldri og heitir hún eftir ömmu sinni. Fregn er fædd og uppalin austur í Jökulsárhlíð. Faðir hennar, Björgvin Vigfússon bóndi á Ketilstöðum, átti mörg systkini. Þeirra á meðal vora þijár systur sem látnar vora heita Guðbjörg, Ekki fylgdi lang- lífi Guðbjargar-nafninu því syst- umar létust allar ungar. Björg- vin hafði einmitt nýlega frétt lát yngstu Guðbjargar systur sinnar þegar honum fæddist dóttir. Hann vildi gefa nýfæddri dóttur sinni nafn sem minnti hann á systurnar, sem hann hafði misst, en taldi óráðlegt að storka for- lögunum með því að gefa henni nafnið Guðbjörg. Björgvin datt í hug að gefa dóttur sinni nafnið Fregn, og minna þannig á fregn- ina sem honum barst um það bil sem dóttirin fæddist. Séra Siguijón Jónsson prestur á Kirkjubæ sá ekkert því til fyrir- stöðu að gefa stúlkunni þetta nafn. Fregn Björgvinsdóttur þykir vænt um nafnið sitt. „Ég hef aldrei verið uppnefnd né orðið fyrir aðkasti vegna þess,“ segir hún. Fregn sótti farskóla fyrir austan og því var ef til vill minni Morgunblaðið/Júlíus Fregn Björgvinsdóttir. hætta á stríðni vegna nafnsins en ef hún hefði verið í fjölmenn- um skóla. Hún er löngu hætt að kippa sér upp við það þótt fólk hvái þegar hún kynnir sig. „Fólk hefur ekki almennilega viljað taka þessu. Ég hef oft þurft að stafa nafnið og það er feykilega mikið hváð.“ Fregn er sjö barna móðir og segir flest böm sín heita ósköp venjulegum nöfnum en tveimur dætrum gaf hún nöfnin Vordís og Frigg sem eru fremur sjald- gæf. HVERNIG... er þetta eiginlega hcegl? Að sporðrmna heilu hreindýri og hjólkopp með Það er ekki að ástæðulausu að mannskepnunni hefur staðið stuggur af hákörlum frá ómuna- tíð. Astæðan er einfaldlega sú að þeir eru stórir, ófrýnilegir og sem meira er, sumir eru sólgnir í mannakjöt. Það eru þó til allrar hamingju fremur fáar tegundir sem hafa kynnt sér kosti mannakjöts. íslendingar þurfa ekki að hafa slíkar áhyggj- ur af þeim hákörlum sem sveima hér í Norðurhöfum. Sú stærsta þeirra, beinhákarlinn, sem nær allt að tólf metra Iengd, er nán- ast grænmetisæta. Hákarlinn sjálfur nær mest 8 metrum sem er auðvitað engin smásmíði. Hann snæðir aftur annað og meira heldur en svifþörunga. Hann er alæta eins og sagt er og táknar trúlega að ef hann kæmi svangur að svamlandi manni myndi hann vart hika. Að minnsta kosti mætti ætla það miðað við hversu fjölbreytilegt það er sem í iðrum þeirra finnst. Skal nú sumt af því týnt til hér og er úr ýmsum bókum: Selir, allt að heil dýr. Meira að segja blöddar og útselir sem eru gríðarstór dýr. Skötur, þorskar og fleiri stórfiskar. Svartfuglar og fleiri fuglar sem synda á söltum sjó, æðarfugl, múkki, skúmur. Þetta telst þó varla í frásögur fær- andi og við flytjum okkur því yfir í auka- og eftirrétti: Olíutunnur, oft ryðgaðar. Hjólkoppar, ýmsar tegundir. Keðjur, bárujárnsplötur, bjarghringir af ýmsum skipum, hamrar, sundgleraugu, stígvél, klof- og hné-, auðvitað strigaskór. Við höldum áfram á líkri línu, en færum okkur yfir í hluti sem skrásetjari hefur heyrt nefnda í eintölu: Bílhurð, trúlega af ein- hveijum jeppa. Pústkerfi, drauga- net með nokkrum hálfmeltum físki- hræjum, þriggja metra garð- slöngubútur með krana á endanum. Rekaviðsdrumbur upp á tæpan meter. I einum stórum draug var meira að segja heilt hreindýr! Flest af þessu er þó dæmigert rusl sem berst frá mönnunum í sjó fram. Sjón hákarla er mjög léleg og hann treystir því meira á lykt heldur en sjón og því getur það greinilega hent hann að éta alls konar drasl sem ef til vill lyktar rétt. Ekki er þó spurning um, að matarsmekkur hákarlsins er ekki sá sem menn myndu yfir höfuð til- einka sér. Þannig var og er oft haft til hákarlabeitu úldið kjöt eða selspik, sem legið hefur í rommi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.