Morgunblaðið - 24.10.1993, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.10.1993, Blaðsíða 23
MOltGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ sUNNUDAGUH 24. OKTÓBER 1993 B 23 Yfirlitsmynd af Seltjarnarnesi. í forgrunni eru vestustu hverfi Reykjavíkur. Greina má Faxaskjól boga- dregið, Ægisíðuna og Nesveg út á Seltjarnarnes. Nokkur byggð er merkjanleg í Lambastaðahverfi. Grótta. Viti var þar fyrst reistur 1897 og endur- byggður nokkrum sinnum, síðast 1947. Þórbergur Þórðarson kvað: „Hjá Gróttu svarr- ar sjórinn / við sorfin þarasker ... “ o.s.frv. MEISTARAKOKKARNIR ERU ÓSKAR OGINGVAR Morgunblaðið/Sverrir GRÉTAR Örvarsson tónlistarmaður var ófeiminn við að gefa meist- arakokknum Ingvari Sigurðssyni að smakka á hreindýrapottréttinum. Hmndým- pottréttur GESTUR meistarakokkanna að þessu sinni er Grétar Örv- arsson tónlistarmaður. Auk þess að laða fram ljúfa tóna er Grétari einkar lagið að kitla bragðlaukana eins og eftirfarandi uppskrift ber með sér. Hreindýrapottréttur fyrir 5 1 kg hreindýragúllas 6 msk. ólífuolía 4 stk. laukar, gróft saxaðirfmeðal stórir) 4 stk. gulraetur, skornar í strimla 4 stk. græn epli, gróft söxuð 4 stk. mandarínur, afhýddar og saxaðar 10 stk. ólífur, saxaðar I ds. sýrður rjómi Kryddblanda 2 msk. karrý 6 stk. einiber, mulin 2 stk. lórviðarlauf, mulin 1 tsk. sjóvarsalt Brúnið kjötið í ólífuolíunni. Bæt- ið við lauknum, eplunum, gulrótun- um, kryddið með blöndunni og hrærið vel í. Látið krauma í 30 mínútur og bætið við vatni ef kjöt- ið verður of þurrt. Setjið mandarín- urnar og ólífurnar saman við. Hrærið sýrða rjómann og setjið matskeið af honum á hvern disk. Meðlæti: Með réttinum er gott að hafa soðin hrísgrjón og grænt salat. FRÉTTALJÓS • ÚR FORTÍÐ Leifur Eiriksson í ókominni tjörn Á Skólvörðuholti 1932 ÁSGEIR Ásgeirsson forsætis- ráðherra þakkaði kærkomna gjöf 17. júlí 1932: „Og sem einn vott þess vil jeg ljúka máli mínu með því að fara með vísu, sem mjer barst á þessari stundu, frá einu af góðskáldum okkar. Hún hljóðar svo: Með viljans styrk og stál í hönd. Þú starir fram á hafíð. Þú sjerð í anda ónumd lönd, en allt er þoku vafið. Þú horfir yfír holt og mó og harkan hvessir svipinn. Já, þar fer saman þrek og ró við þökkum kostagripinn. A* Alþingishátíðinni 1930 var greint frá því að Bandaríkja- menn jgæfu íslendingum styttu af „syni Islands" Leifi heppna Eiríks- syni. Nokkrar tafir urðu á því að gjöfin yrði afhent en í júní 1932 kom hið fyrirheitna eirlíkneski til landsins og auglýst var að sendi- herra Bandaríkjanna í Danmörku og á íslandi myndi afhenda styttuna sunnudaginn 17. júlí. Sama dag birti Morgunblaðið viðtal við sendi- herrann, F.W.B. Coleman: „Jeg er mjög glaður yfir því, að hafa átt kost á að heimsækja land Leifs heppna, sagði sendiherrann og bauð sæti með þeirri látlausu ljúfmensku, sem er aðalsmark góðra og tiginna manna.“ I samtalinu við Morgunblaðið lét sendiherrann í ljós mikla ánægju með Islandsveru sína og yndislegt veður á Þingvöllum og í Reykjavík. En á sunnudeginum hafði veður skipast í lofti. Þriðjudaginn 19. júlí greindi Morgunblaðið frá afhjúpun minnisvarðans: „Drungalegt veður var á sunndagsmorguninn og gekk á með rigningarskúrum af austri. Leit því ekkert vel út með hátíða- höldin á Skólavörðuhæð. Betur fór þó, en á horfðist. Rjett um hádegis- bilið stytti upp, og hjelst veður úr- komulaust uns afhjúpunin og ræðu- höldin voru um garð gengin. En bæjarbúar ljetu það lítt á sig fá, Dösmyndasafii Rejdqavíkur/Magnús Ólaíæson „Meðan sendiherrann talaði lýsti heldur í lofti, en jók jafnframt á austankaldann, svo snarplega tók í hjúpinn er sveipaður var utan um líkneski Leifs.“ þó ískyggilegt væri veður og úr- komulegt. Hafa e.t.v. farið að heim- an með orðtakið gamla á bak við eyrað að enginn sje verri þó hann vökvi.“ Endurgjald Fyrstur hélt ræðu F.W.B. Colemann sendiherra Bandaríkj- anna. Hann fór lofsamlegum orðum um Leif Eiríksson „djarfan og hug- rakkan Islending." Sendiherrann sagði einnig: „Vjer höfum ekki látið fund Leifs Eiríkssonar á landi voru þakklætislausan. Nær þúsund árum síðar færðum vjer íslandi símann, sem í dag tengir yður við umheim- inn og rafmagnsljósið sem þjer unið yður við á vetrarkvöldum. Uppgötvanir sem gerðar eru á I )ósmyndasafn Reylqavíkur/Magnús Ólafesson „Bæjarbúar ljetu það lítt á sig fá, þó ískyggilegt væri veður og úrkomulegt. Hafa e.t.v. farið að heiman með orðtakið gamla á bak við eyrað að enginn sje verri þó hann vökvi." vorum stóru rannsóknarstofum eru yður jafnan til nota og gagns. Og þannig endurgjöldum vjer yður.“ Sendiherrann upplýsti einnig: „Heimurinn hefir ætíð litið með undrun og aðdáun á harðsnúinn vilja íslendinga til lífs og fram- þróunar og vilja þeirra til að vera framarlega í röðinni meðal annara þjóða. Megum vjer ekki vænta þess, að yður verði að finna meðal þeirra sem kjörið hafa sjer þetta ijettláta einkunarorð: Lifið og látið lifa.“ Undir þessari ræðu veitti blaða- maður Morgunblaðsins þvi eftir- tekt: „Meðan sendiherrann talaði lýsti heldur í lofti, en jók jafnframt á austankaldann, svo snarplega tók í hjúpinn er sveipaður var utan um líkneski Leifs. Var sem hinn hressi- legi andsvali vildi gefa myndinni mál, eða minna þá á, sem viðstaddir voru, að stormasamt hefði verið um þann, sem heiðraður var með minn- ingarathöfn þessari. Jafnframt því, sem sendiherrann lauk máli sínu tók hann í band það er hjúpnum hjelt um Leifsmyndina svo það fjell á svipstundu." „í óbygð“ Ásgeir Ásgeirsson forsætis- ráðherra bað sendiherra Bandaríkj- anna að færa þjóð sinni og forseta hinar innilegustu þakkir íslendinga. Það kom fram í ræðu for- sætisráðherrans að: „Við höfum sett styttu Leifs þar sem hæst ber í höfuðborginni, en þó í hálfgerðri óbygð. Umgerð náttúrunnar er glæsileg, en mannanna verk eiga hjer eftir að vaxa. í kring um styttuna er eftir að gera tjörn — til samræmis við stallinn, sem er stafn af skipi. og í minningu um afburða sjómensku forfeðra okkar. Hjer eiga eftir að vaxa vegleg hús hring um torgið. Stytta Leifs verður miðdepill eins þess staðar í þessum bæ, sem bæjarbúar munu leita til að hressa sig við útsýn og endur- minningar." Lítið á Leif Knud Zimsen borgarstjóri Reykjavíkur hélt síðustu ræðuna: „Nú stendur hjer hið veglega og fagra líkneski Leifs heppna og gjæfir hátt við himinin. Líkneskið er fullkomið listverk, og það hlýtur að vekja fagrar og góðar tilfinn- ingar í brjósti hvers góðs drengs, er það lítur ... Lítið á Leifi. Einbeitni og kjarkur lýsir úr augliti hans og kraftur er einkenni alls líkneskisins, en með krossmarkið í hendi vinnur hann bug á öllum erfiðleikum.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.