Morgunblaðið - 26.11.1993, Side 5

Morgunblaðið - 26.11.1993, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993 C 5 Þær opnuðu fyrstu einkareknu sálfræðistofnunina ÞEGAR þær opnuðu Sálfræðistöðina fyrir 10 árum var það fyrsta sálfræðistofnunin í einkaeign hér. Margt hefur breyst síðan og nú eru einkareknar sálfræðistofur margar. Sálfræðistöðin er fyrirtæki Guðfinnu Eydal og Alfheiðar Steinþórsdóttur en þær eru báðar klín- ískir sérfæðingar í sálarfræði. Þeirra sérsvið eru sálræn vandamál, greiningar og meðferð. Báðar unnu þær hjá því opinbera áður en þær réðust í að opna eigin stofu fyrir tíu árum. „Hugmyndin var að starfa við stofnun með breiðan starfsvett- vang. Við vildum miðla þekkingu um sálfræðileg efni og leggja áherslu á fyrirbyggjandi. Þess vegna hefur fræðsla, bóka- og greinaskrif verið ríkur þáttur í starfsemi stofnunarinnar.“ Guð- finna segir að þær hafi fundið þörf fyrir að fólk gæti nálgast sálfræði- þjónustu beint en fyrir tíu árum voru sálfræðingar mest þekktir fyr- ir að vera innan veggja skóla og sjúkrahúsa. Þær Álfheiður og Guðfinna leit- uðu til að byija með til aðila innan kerfisins með hugmyndir sínar en þeim fannst hindranirnar margar og allskonar skilyrði sett svo að þær ákváðu að ráðast í þetta sjálfar. „Við tókum vissa áhættu því við sögðum upp öruggu starfi. Það kom þó fljótt á daginn að þörfin var mikil fyrir svona starfsemi og þegar við auglýstum til dæmis fyrsta nám- skeiðið voru línurnar uppteknar í marga tíma svo mikill var áhuginn. Þetta var mjög skemmtilegur tími.“ Fyrsta námskeiðið sem þær héldu Samskipti og fjölskyldulíf hefur breyst og þróast og það gengur núna undir nafninu Sjálfsþekking- sjálfsöryggi núna. Fólk var hikandi Hefur starfsemin breyst mikið á þessum tíu árum? „Já talsvert“, segir Álfheiður. „Það á bæði við hvenær er leitað, eðli vandamála og hverjir biðja um aðstoð. Nú er algengara að fólk leiti áður en vandinn er orðinn mik- ill. Það er oftar leitað útaf ýmsum samskiptavanda, fremur en einung- is vegna þunglyndis og kvíða. Það hefur líka orðið breyting á hlutfalli kynja sem leita aðstoðar. Karimenn leita til sálfræðings íauknum mæii Þær enu sammála um það Guð- finna og Álfheiður að karlmenn leiti í auknum mæli til þeirra með sín vandamál. „Fyrir fimm árum tókum við eftir að þetta var að breytast og það er enn að aukast.“ Konur eru þó í meirihluta þegar kemur að tengslavandamálum eins og eij- um hjóna eða öðru slíku. „Konur virðast fljótari að bregðastvið sam- skiptavanda og vilja fyrr bæta úr málunum.“ Þó að þær leiti fyrr þá bendir Guðfinna á iðulega vilji karl- mennirnir koma og takast á við vandann þegar konan er byijuð. - Hvað er fólk að meðaltali lengi í meðferð hjá sálfræðingi? „Það er afar mismunandi en þó má segja nokkrar vikur eða mán- uði. Ákveðinn fjöldi fólks er síðan í langtímameðferð en það eru miklu færri einstaklingar.“ Óstöðugleikinn kemurfram hjá börnunum - Er til sér íslenskur raunveru- leiki sem þið verðið varar við í starfi ykkar? „Streita vegna óstöðugleika má segja að sé sér íslenskt vandamál. Hraðinn í samfélaginu er mikill og fólk er að bjarga sér og sínum frá einum mánuði til annars og veit ekki hvernig hlutirnir verða að ári.“ Álfheiður og Guðfinna segja að þessi óstöðugleiki komi ekki síst fram hjá börnunum. Þau skortir oft hæfnina til að einbeita sér, eru óró- leg og streita kemur fram hjá þeim í mörgum myndum. „Börn skortir oft aga og innri staðfestu“, segja þær. „Þetta er mikið vandamál og við ættum að staldra við og spyija okkur hvert við erum að stefna í uppeldismálum. Hveijar eru fyrirmyndir barna okk- ar? Foreldrar sem eru stressaðir og stöðugt að flýta sér að hinu og þessu, kennarar sem eru að reyna að ráða við krakka sem ekki kunna að einbeita sér og ráðamenn í sjón- varpinu sem geta ekki rætt alvar- lega um vandamál án þess að rífast og skammast. Við á íslandi erum stöðugt að finna skammtímalausnir og reyndar má segja að ákvarðanir í samfélaginu einkennist af skamm- Morgunblaðið/Árni Sæberg Guðfinna Eydal og Álfheiður Steinþórsdóttir klínískir sérfræðingar í sálarfræði. tímalausnum. Það er þörf fyrir fyr- irmyndir sem eru sterkar, sam- viskusamar og stöðugar. Fólk vill breytingu strax Guðfinna og Álfheiður segja að hraðinn, streitan og óstöðugleikinn komi einnig ómeðvitað fram hjá þeim sem leita aðstoðar. „Fólk vill hraðar lausnir, það vill helst fá breytingu strax. En sálrænn vandi er þess eðlis að það tekur tíma að breyta til batnaðar. En það er hægt. Ef til vill er það sér vandi íslend- inga að geta ekki beðið og búist við árangri hægt og rólega." ■ grg Skrautleg afmælisdagabók BLÓM eru mjög áberandi í hinni nýju Afmælisdagabók sem bóka- útgáfan Krydd í tilveruna gaf út í íslenskri þýðingu fyrir skömmu. I bókinni er fjöldinn allur af myndum af hvers kyns blóma- skreytingum sem tengjast árstíð- um. Á blaðsíðum yfír desember eru þurrskreytingar, kerti og hnetur til dæmis áberandi meðan afskorin blóm og sumarblóm eru áberandi á júní-blaðsíðum. Uppskriftir eru á stöku stað í bókinni og einnig misjafnlega hag- nýtar upplýsingar. Við 18. júní stendur til dæmis að Paul Mc Cartn- ey hafi fæðst þennan dag árið 1942 og 5. janúar 1874 hafi stjórnarskrá íslendinga tekið gildi. Spakmæli fylgir öllum dagsetn- ingum og þar sem við á eru nokkur orð um stjörnumerki. Áhugaverður kafli um kínverska stjörnuspeki er aftarlega í bókinni en þar er jafn- Áfmœlisdagar, brúdhanfisaftnœli og áörir minnissiœóir dagar framt fjallað um táknmál eðalsteina og blóma. Jane Newdick hannaði blóma- skreytingar í bókinni, en hún hefur unnið áþekk verkefni fyrir tímaritin Good Housekeeping og Country Living. Neil Sutherland á heiðurinn af ljósmyndum í bókinni en að sögn útgefanda hafa verk hans birst í fyjlmörgum tímaritum. ■ BT Fyrir 500 krónur á mánuði getur þessi litli hnokki gengið í skóla og búið sig þannig undir lífið skóla í Úganda fyrir munaðarlaus börn og eyðnismitaðar ekkjur með ung börn. „Basarnum á laugardag er ætlað að fjármagna þessa upp- byggingu ásamt sölu á dagatölum og jólakortum." Basarinn verður að Hafnarstræti 4, á 2. hæð, fyrir ofan verslunina Blóm og ávexti. Þetta er í annað sinn sem ABC hjálparstarf stendur fyrir fjáröflun fyrir byggingar heimila fyr- ir munaðarlaus börn, en í fyrra var safnað fyrir heimili sem reist var fyrir 30 munaðarlaus börn og hefur það þegar verið tekið í notkun.“ ■ BT Edik má nota í matargerð, til hreingerninga og jafnvel lækninga EDIK er til ýmsissa hluta nytsamlegt,. Það er til missterkt með ýmis konar bragðefnum. Edik er lífræn sýra, sem ast við oxun etanóls, t.d. í víni. Það er selt þynnt en af ýmsum styrkleika. Edik sem notað er í mat er um 3-7% en ediksýra er seld um 14-15%. Edik hefur verið notað í matar- gerð, til drykkjar og lækninga frá tímum hinna fornu Egypta og Babýlóna. Edik er tilvalið til að sulta niður grænmeti og t.d. síld. Gerlar og bakteríur þrífast illa í súrum legin- um. Þegar sultað er niður, er lögurinn oft soðinn upp til að syk- ur, sem bætt er í, samlagist betur og til að lögurinn taki meira bragð úr því kryddi sem í hann er bætt. Best er að nota emaleraðan- eða stálpott. Gott er að sulta niður gúrkur, síld og rauðrófur, hvítlauk og annað grænmeti. En edik má nota á ýmsan hátt. Það er tilvalið til að losna við reyk- ingalykt, skál með ediki upprætir alla reyklykt. Edik má nota til að hreinsa kaffívélar. Tveir dl af ediksýru (14-15%) eru þynntir með 8 dl af vatni. Hellt í vatnsgeyminn og kveikt á vélinni. Þegar helmingur edikvatnsins hefur runnið í gegn er slökkt á vélinni og látið standa í henni í 10 mínútur. Edikvatninu sem fór í gegn um vélina er hellt í geyminn og „hellt upp á“ að nýju. Skolið svo kaffivélina með því að láta einn lítra af hreinu vatni fara þrisvar sinnum í gegn- um vélina. Gott er að pússa gler upp úr 'A dl ediksýru, 5 lítrum af vatni og dálitlu af uppþvottalegi. Hreinsilögur úr Vi dl af ediksýru og 5 dl vatns hentar vel til að hreinsa baðherbergi. Oblandað edik má nota til að ná burt ryði og kalkútfellingum. Edikið er látið liggja á í klukkustund áður en það er skolað af. Á erfíða bletti og útfellingar er gott að strá kartöflu- mjöli og hella dálitlu af óblönduðu ediki í. Skrúbbað rösklega og skol- að. Þessi lögur hentar ekki á marmara. Þegar grænmeti er skolað er ráð að hella dálitlu af ed- iki í vatnið og leggja grænmetið í. Séu skordýr í grænmetinu koma þau fljótt í ljós. Grænmeti til Skolið svo græn- metið í köldu vatni. Edik hentar einnig vel til þess að fá gljáa á parket. Borðediki er blandað í vatn og strokið yfir hreint parketið. ■ Sultaóur hvitlaukur 50 hvítlauksrif 1 lítri vatn 2 tsk. salt 1 knippi dill 1 knippi steinselja 14 dl olífuolía Ediklögur 114 dl hvítvin Vzdl ediksýra 12-14% 114 tsk. salt 1 tsk. sykur skrauts. Hvítlaukur í ediki. Hvítlauksrifin soðin í 4-5 mínút- ur í söltuðu vatninu. Síðan skoluð upp úr köldu vatni og flysjuð. Sax- ið dill og steinselju og leggið í hreint glerílát með hvítlauksrifun- um. Hitið edikslöginn að suðu- marki og hellið honum yfir hvítlauk- inn. Setjið olífuolíuna yfir, lokið og geymið á köldum stað. Hvítlauks- rifin eru tilbúin eftir viku geymslu og langt í frá eins sterk og hrá rif.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.