Morgunblaðið - 05.01.1994, Side 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR S. JANÚAR 1994
BLAD
Fiskeldi
3 Álaeldisstöð á
Spáni heimsótt
Aflabrögð
4 Aflayfirlit og
staðsetning fiski
skipanna
Vélar
5 Aðalvélin í nýju
Gugguna prufu-
keyrð
RÚSSAFISKUR TIL EYJA
Morgunblaðið/Sigurgeir
Fiskurinn sem Rússarnir komu með til Vinnslustöðvarinnar er nú til
vinnslu í stöðinni og er unnið með lágmarksmannskap, einungis fast-
ráðnu fólki, en einnig er verið að vinna karfa sem Breki VE landaði
2. janúar. Breki var úti um hátíðarnar og átti að sigla á Þýskaland
en hætt var við sökum lítils afla. Reiknað er með að sá afli sem nú er
i Vinnslustöðinni dugi til að halda uppi vinnu fram i miðjan janúar en
þá verður að hætta sökum hráefnisskorts verði verkfall sjómanna
ekki leyst.
Markaðír í hættu standi
verkfaU gómanna lengi
SÍF hf. íhugar saltfiskkaup
erlendis til að vernda markaði
SOLUSAMBAND
íslenskra fiskfram-
leiðenda, SÍF, hef-
ur það til athugun-
ar að kaupa salt-
fisk erlendis frá dragist verkfall á langinn til að vernda saltfiskmarkaði
sína. Gunnar Orn Kristjánsson forstjóri SIF segir saltfiskmarkaði í hættu
ef verkfallið stendur lengur í viku til tíu daga. Friðrik Pálsson forstjóri
SH óttast að síldarvertíðin fari forgörðum og að verkfallið hafi áhrif á
loðnufrystinguna.
t
Gunnar Örn segir það taka ákveðinn
tíma að framleiða saltfiskinn og drag-
ist verkfallið á langinn geti SIF þurft
að leita eftir hráefni annars staðar frá.
í því sambandi væri bæði horft til
Noregs og eins til Rússafisks. „Við
getum staðið frammi fyrir því að tapa
mörkuðum ef verkfallið dregst á lang-
inn en þar eru í húfi öll þau verðmæti
sem eru í saltfiskvinnslunni hérlendis,"
sagði Gunnar Örn.
Gunnar Örn sagði það allt eins koma
til greina að kaupa fullunninn saltfisk
eða hráefni erlendis frá burtséð frá
verkfallinu. Menn horfðu upp á minnk-
andi kvóta innanlands og SÍF myndi
reyna að útvega sínum viðskiptavinum
fisk hvort sem hann er íslenskur,
norskur eða rússneskui'.
Loðnufrystingin
Friðrik Pálsson forstjóri SH sagði
birgðastöðu fyrirtækisins þokkalega
og það ætti í fæstum tilvikum að lenda
í erfiðleikum standi verkfallið stutt.
Vonir hefðu staðið til að auka mætti
töluvert síldarframleiðsluna en vænt-
anlega færi síldarvertíðin forgörðum
með verkfallinu. „Japanskir kaupendur
treysta mjög á okkur varðandi loðnu
sem þeir hafa ekki fengið annars stað-
ar frá. Það væri mikið áfall ef verkfall-
ið drægist það lengi að það hefði áhrif
á loðnufrystinguna," sagði Friðrik.
Að öðru leyti taldi Friðrik að verk-
fall sem stæði í fáeinar vikur ætti ekki
að skipta neinum sköpum. „Kvótastað-
an í mörgum tegundum er þannig Það
það verður sjálfsagt nægur tími til að
ná þeim afla sem þeir hafa kvóta fyr-
ir, þó það yrði síðar á kvótaárinu,"
sagði Friðrik.
Friðrik sagði að margir smærri
samningar hefðu verið gerðir og það
verði erfitt að standa við þá ef verkfall-
ið dregst mikið á langinn. „Við munum
að sjálfsögðu gera allt sem við getum
í því að útvega kaupendum þann fisk
sem þeir þurfa. í flestum tilfellum erum
við að selja íslenskan fisk undir okkar
eigin vörumerki þannig að það er ekki
hægt að leita hófanna erlendis í öllum
tilvikum," sagði Friðrik.
Þurfum á öllu okkar að halda
Benedikt Sveinsson forstjóri ís-
lenskra sjávarafurða kveðst ekki sjá
neitt svigrúm í íslenskum sjávarútvegi
til þess að hlaupa upp á. „Það er ljóst
að minnkandi kvótar og erfið staða hér
heima og auk þess erfiðir markaðir
gera það að verkum að sjávarútvegur
og -afurðaivinnsla er í töluvert miklum
erfiðleikum. Það voru heldur minnk-
andi birgðir hjá okkur fyrir áramótin
og okkur kann að vanta ýmsar pakkn-
ingar til sölumeðferðar á fyrra hluta
þessa árs. Ég held að í stöðunni sé það
hreinn glæpur að missa af því. Okkut'
veitir ekkert af því sem við getum feng-
ið. Fastan í Bandaríkjunum er góður
sölutími og Norðmenn munu fljótlega
ná sér á strik með sinn mikla þorsk-
kvóta og þykir mér því afleitt að missa
nokkra sölu,“ sagði Benedikt.
Fréttir Markaðir
Tollarnir á
flökum lækka
■ GUNNAR Örn Kristjáns-
son forsljóri SÍF teiur að
tollalækkanir á fersk flök
vegna EES-samningsins
muni leiða til frekari vinnslu
sjávarafurða hérlendis. Frið-
rik Pálsson forstjóri SH telur
hins vegar að samningurinn
muni ekki leiða til mikillar
magnaukningar á útflutn-
ingi. ToIIabreytingar vegna
samningsins snerta einkum
fersk flök. Þannig Iækkar
tollur á þorsk- og ufsaflök
úr 18% í 0. Benedikt Sveins-
son hjá íslenskum sjávaraf-
urðum telur líklegt að kaup-
endur knúi á um verðlækk-
anir í kjölfar tollalækkan-
anna./2
----»-»-♦-
Portúgalir
salta sjálfir
■ PORTÚGALIR hafa á
þessu ári flutt inn um 60.000
tonn af rússaþorski sem síð-
an er saltaður þar syðra.
Norska sjávarútvegsblaðið
Fiskeribladet skýrði frá
þessu í desember síðastliðn-
um. Samkvæmt Fiskeriblad-
et er þessi fiskur seldur á
lágu verði og getur hann
valdið norskum útflytjendum
miklum skaða. Því framleiða
Portúgalir nú sinn eigin salt-
fisk úr frystum rússaþorski
í stað þess að kaupa hann af
Norðmönnum./2
-----------
Saltfiskur frá
Noregi sækir á
■ NORSKUR saltfiskur
sækir nú á á spænska mark-
aðnum að sögn fiskimálafull-
trúa Noregs á Spáni. Hann
segir í samtali við norska
sjávarútvegsblaðið Fiskeri-
bladet&ð gæði norska salt-
fisksins séu vaxandi og það
ráði úrsIitum./3
—1—»--♦-«--
Minna utan
af ísfiskinum
■ ÚTFLUTNINGUR á ísuð-
um fiski til Bretlands og
Þýzkalands hefur dregizt
verulega saman milli ára. Að
sama skapi hefur sala helztu
fjögurra nytjategunda okk-
ar, þorsks, ýsu, ufsa og karfa
á innlendum mörkuðum auk-
izt mikið. Miðað við meðal-
verð á þorskinum ytra, hefur
verðmæti útflutnings á hon-
um lækkað úr 1,8 miRjarði
króna í 1,1 eða um 700 millj-
ónir króna./8
Þorskverðið
lækkar ytra
■ VERÐ á isuðum þorski
héðan á fiskmörkuðunum í
Hull og Grimsby í Bretlandi
hefur lækkað nokkuð milli
ára eða um 5% sé talið krón-
um, en þar dregur gengis-
lækkun nokkuð úr verð-
lækkuninni. Verðið er að
jafnaði hæst í upphafi árs,
en nú fór það reyndar hæst
í desember, eða í 168 krónur
að meðaltali. Verðið hér
heima er alltaf nokkru
lægra, en talið að að kostn-
aður við útflutning og sölu
ytra geti numið 30 til 40
krónum á kíló og er þá
kvótaskerðing vegna út-
flutningsins ótalin. Mjög
svipaðar sveiflur eru á verð-
inu hér heima og ytra eftir
mánuðum.
Sala þorsks á
fiskmörkuðum 1993
50 H—I—5—I—I—I—I—í—!—i—i—r
J FMAMJ JÁSOND
Verð á ýsu
lækkar meira
Sala ýsu á
fiskmörkuðum 1993
JFMAMJJÁSOND
■ VERÐ á ýsu ytra hefur
lækkað um 15,9% á síðasta
ári og var að meðaltali 124
krónur á kíló. Verðið hér
heima lækkaði aðeins um
2%, þrátt fyrir að magnið
ykist um 20,5% og var að
meðaltali 100 krónur. Verð-
ið sveiflast með svipuðum
hætti bæri ytra og heima,
en þessi verðmunur bendir
til þess að meira hafi feng-
ist í raun fyrir ýsuna hér
heima en ýtra./6