Morgunblaðið - 20.03.1994, Side 15

Morgunblaðið - 20.03.1994, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994 B 15 sjálfsagt hefur Mrs. Doubtfíre verið talin heldur léttvæg, það skyggir þó ekki á stórkostlega frammistöðu eins langbesta gamanleikara okkar tíma. 1. Anthony Hopkins 2. Daniel Day Lewis 3. Tom Hanks Bcsli kvcnleikari í aóalhlutvcrki Hér stendur slagurinn á milli tveggja afburðaleikara. Hinnar virtu Emmu Thompson í Dreggjum dags- ins og Holly Hunter, sem bar Píanó- ið uppi. í mínum huga kemur engin önnur en Hunter til greina. Hún get- ur ekki notað tungutakið sér til fram- dráttar í hlutverki hinnar sorgbitnu konu sem neitar að tala í Píanóinu. Svo frammistaða hennar er enn stór- kostlegri fyrir bragðið. Hún lét þögn- ina tala, gnæfði yfir myndina og gaf henni reisn. Emma Thompson er frægari og virtari og stendur sig eftirminnilega í Dreggjum dagsins, en hverfur þar örlítið í skuggann af stórleik Hopkins og hlutverk hennar ekki jafn burðarmikið. Og aðeins tvö ár síðan hún fékk Óskarinn fyrir Hávarðsenda. Þar var hún í farar- broddi. Þá er Angela Bassett ótalin, en hún fór óaðfinnanlega með há- dramatískt hlutverk söngkonunnar hressu, Tinu Turner, í Tinu. Sú mynd, þó góð sé, er ekki í alveg sama gæðaflokki og Píanóið, að maður tali ekki um Dreggjar dagsins, en það er eins gott að afskrifa hana ekki alveg. Six Degrees of Seperation og Shadowlands eru veigaminni myndir, því ókunnari akademíumeðlimum sem öðrum. Þær Stockard Channing og Debra Winger, miklar ágætisleik- konur báðar tvær, eiga því hverfandi möguleika í ár. 1. Holly Hunter 2. Emma Thompson 3. Angela Bassett Bcsti karllcikari í aukahlutverki í þessum flokki getur svo sann- arlega allt gerst, fjórir af fimm koma sterklega til greina. Hér saknar mað- ur engu að síður Seans Penns sem stóð sig frábærlega vel sem kókfíkill- inn, lögfræðingur A1 Pacino, í Carlit- o’s Way og Bens Kingsleys í Lista Schindlers. En myndin hans Spiel- bergs á sinn fulltrúa hér, sem og í flestum öðrum flokkum í ár. Sá er Bretinn Ralph Fiennes, kunnur sviðs- leikari í heimalandinu og sýnir mögn- uð tilþrif sem Amon Goeth, SS-for- inginn illi, í afar neikvæðu hlutverki sem að öllu jöfnu er ekki í náðinni hjá akademíunni. Óskadrengurinn hennar í ár er að öllum líkindum Tommy Lee Jones og hann á ekkert nema gott skilið fyrir reffilega túlkun sína á lögregluforingjanum í Flótta- manninum. Og Jones er virtur og vinsæll fyrir vestan í dag. Engu að síður er sú skoðun ríkjandi á þessum bæ að Pete Postlethwaite standi sig best í þessum hópi. Það er aðdáunar- vert að sjá virðinguna og reisnina sem hann glæðir hlutverk föðurins í / nafni föðurins, á hverju sem geng- ur í lífi þessa lánlausa manns. Þá er kameljónsins Johns Malkovich enn ógetið, en þessi hæfíleikaríki leikari sýndi á sér margar hliðar í myndinni I skotlínunni, með góð gervi sér til fulltingis. En myndin sú var frum- sýnd i sumar og því farið að fenna yfir afrek Malkovich. Hann á þó engu að síður sína möguleika, en það verð- ur tæpast sagt um Leonardo DiCaprio sem hlaut þó mjög góða dóma fyrir þátt sinn í Hvað nagar Gilbert Grape?. 1. Pete Postlethwaite 2. Tommy Lee Jones 3. Ralph Fiennes Bcsti kvcnlcikari í aukahlutvcrki Hollt er að hafa í huga hvernig úrslitin fóru í þessum flokki í fyrra (og það á svo sannarlega við um alla flokkana ef útí þá sálma er farið). Þá skaut ung og óþekkt gamanleik- kona, Marisa Tomei, hinum virtu og góðkunnu Susan Sarandon, Judy Davis, Joan Plowright og Vanessu Redgrave, ref fyrir rass og gekk af hólmi með sigurinn. Rosie Perez er á svipuðum slóðum og Tsomei í fyrra. BESTI LEIKSTJORIARSINS Robert Jone Altmon Compion Short Cuts Pianóið James Ivory Dreggjar dagsins Jim Sheridon / nafni föðurins Steven Spielberg Listi Schindlers tilnefninéar 1994 BESTA MYND ARSINS Dreggjar dagsins (The Remains of the Day) FlóHamaðurinn (The Fugitive) í nafni föóurins (In iheName of theFather) Listi Sdiindlers (Schindlers list) Píanóió (The Piano) BESTIKVENLEIKARI í ADALHLUTVERKI Angela Bossett Tina Stockard Channing Six Degrees of Seperation Holly Hunter Pianóiö Emma Thompson Dreggjar dagsins Debra Winger Shadow- lands BESTIKVENLEIKARIIAUKAHLUTVERKI Holly Hunter - Fyrirtœkið Anna Paquin - Píanóið Rosie Perex - Óttalaus ' Winona Ryder - Öld saklevsisins Emma Thompson - / nafnifööurins BESTA FRUMSAMDA HANDRITIÐ Jane Campion - Pianóið Nora Ephron, David S. Ward, Jeffarch - Svefnlaus í Seattle Jeff Moguire - Ískotlínunni Ron Nyswaner - Philadelphia Gary Ross - Dave BESTA HANDRITIÐ BYGGTÁÁÐUR BIRTUEFNI Jay Cocks, Martin Scorsese - Öld sakleysisins Terry George, Jim Sheridan - ínafni foðitrins Ruth Prower Jhabvala - Dreggjar dagsins Willian Nicholson - Shadowlands Listi Schindlers - Steven Zai/lian BESTIKLIPPARINN Dennis Virkler, David Finfer, Dean Goodhill, Don Brochu, Richard Nord, Dov Hoenig - Flóttamaður- inn Anne V. Coates - í eldlinunni Gerry Hambling - / nafnifoðurins Veroniko Jenet - Pianóið Michael Kahn - Listi Schindlers BESTILISTRÆNI STJORNANDINN Ken Adams, Marvin March - Addamsfjölskyldu- gildin Luciona Arright, lan WhiHaker - Dreggjar dagsins Allan Starski, Ewa Braun - Listi Schindlers Ben Van Os, Jan Roeles - Orlando Danta FerreHi, Robert J. Franco - Öld sakleysisins BESTA ERLENDA MYND ARSINS Belle epoque Spánn Brúðkaupsveislan Taiwan. Far vel frillan mín HongKong Hedd wyn. Bretland llmurinn af grænum papæja Vietnam BESTI KARLLEIKARI í AÐALHLUTVERKI Daniel Day-Lewis / nafni föðurins Laurence Fishburne Tina Tom Hanks Phila- delphia Anthony Hopkins Dreggjar dagsins Liam Neeson Listi Schindlers BESTI KARLLEIKARIIAUKAHLUTVERKI Leonardo Dicaprio - Hvað angrar Gilbert Grape Ralph Fiennes - Listi Schindlers Tommy Lee Jones - Flóttamaðurinn John Malkovich - feldlinunni Pete Postlethwaite - fnafni föðurins BESTA FRUMSAMDA TÓNLISTIN Elmer Bernstein - Öld sakleysisins Dave Grusin - Fyrirtœkið James Newton Howard - Flóttamaðurinn Richord Robbins - Dreggjar dagsins John Williams - Listi Schindlers BESTI KVIKMYNDATÖKUSTJÓRINN Gu Chongwei - Far velfrillan min Michael Chapman - Flóttamaðurinn Stuart Dryburgh - Pianóið Conrad L. Hall - Leitin að Bobby Fischer Janusz Kaminski - Listi Schindlers BESTA BÚNINGAHÖNNUNIN Jenny Beaven, John Bright - Dreggjar dagsins Anna Biedrzycka-Sheppard - Listi Scltindlers Sandy Powell - Orlando Jonet PaHerson - Pianóið Gabriella Pescucci - Öld sakleysisins TILNEFNINGAR Á MYND Listi Schindlers 12 Dreggjar dagsins 8 Pianóið 8 FlóHamaðurinn 7 Í nafni föðurins 7 Philodelphio 5 Öld sakleysisins 5 A ystu nöf, Clrff hanger 3 í skotlínunni 3 Júragarðurinn, Jurassic Pnrk 3 Far vel frillan mín 2 Orlando 2 ÓHalaus 2 Shadowlands 2 Six Degrees of Seperation 2 Svefnlaus í SeaHle 2 Tina 2 Hún hlaut mikið lof fyrir leik sinn í Óttalaus, sem er ein örfárra til- nefndra mynda sem ekki er komin til landsins. Hún er því óséð og ungfrú Perez, sem stóð sig með prýði í Hvítir geta ekki troðið, til alls vís. Tilnefning Emmu Thompson kemur á óvart. Hún er vissulega vammlaus sem veijandinn í í nafni föðurins en >að er ekki kröfuhart hlutverk. Sama máli gegnir um hina níu ára gömlu Önnu Paquin í Píanóinu og Holly Hunter í Fyrirtækinu. Svo böndin berast að Winonu Ryder, sem er fín- leg og brothætt í Öld sakleysisins. Ryder er, ásamt Juliettu Lewis og " örfáum öðrum, í hópi langbestu leik- kvenna Hollywood af ungu kynslóð- inni. 1. Winona Ryder 2. Enitna Thompson Bcsta frumsamda handritið Ekki lagast það. Öll eru þessi hartdrit ágæt útaf fyrir sig en ekkert )eirra framúrskarandi. Með því að beita útilokunaraðferðinni ætla ég að strika strax út Dave, Philadelphiu og í skotlínunni. Halla mér þess í stað að Píanóinu og Svefnlaus í Se- attle og spái Píanóinu naumum sigri. 1. Jane Campion/Píanóið 2. Nora Ephron/Svefnlaus í Seattle Bcsta handritið byggt á áður birtu clni Hér kljást fjórir, snjallir handrits- höfundar um sigurinn. Þau Jim Sheridan, Steven Zaillian og Ruth Prawer Jhabvala fyrir / nafni föð- urins, Lista Schindlers og Dreggjar dagsins. Og þá er ógetið þeirra Mart- ins Scorseses og Jay Cocks sem gera afar góða hluti í kvikmyndagerð skáldsögu Edith Wharton, Öld sak- leysisins. Ef ég hitti naglann á höfuðið ætti akademían að senda mér svosem eins og einn Óskar, takk fyrir. Hér getur verðlaunasópskenningin spilaða inní, en ég tek allshugar ofan fyrir frú Jhabvala. Þó hún hafi handijatlað verðlaunin síðast í fyrra og sé hér eina ferðina enn að kafa í bók- menntaverk, þá gerir hún það af slíkri snilld og smekkvísi að ég set Zaillian í annað sætið. Scorsese og Cock ekki langt undan. Skil William Nicholson (Shadowlands) eftir úti í kuldanum. 1. Ruth Prawer Jhabvala/Dreggjar dagsins 2. Steven Zaillian/Listi Schindlers 3. Martin Scorsese ogJay Cocks/ÖId sakleysisins 4. Jim Sheridan og Terry George/I nafni föðurins Bcsti kvikmvndatökustjórinn Hér fer einvalalið, sem annars staðar. Fyrst skal frægan telja Mich- ael Chapman, sem vísast verður get- ið sem „íslandsvinar" um ókomna framtíð — ef Saga Kjartans verður að veruleika! Chapman hefur verið, ásamt keppinaut sínum í ár, Corad L. Hall, í fylkingarbijósti tökusnill- inga vestan hafs um langt skeið. Janusz Kaminski er hins vegar lítt þekktur líkt og Stuart Dryburgh. Hin undurfagra taka og lýsing Gu Changwei í Far vel frillan mín, á litla möguleika í orrustunni við hákarl- ana. Hér er mjótt á mununum sem annars staðar en það má mikið vera ef Kaminski hinn pólski hrósar ekki sigri. Kvikmyndatöku Conrads Hall er viðbrugðið, hinir afturámóti færri sem þekkja til myndarinnar Leitin að Bobby Fischer, sem kolféll og dó drottni sínum á örfáum vikum. Slíkar myndir hafa aldrei þótt vænlegar til vinnings. 1. Janusz Kaminski/Listi Schindlers 2. Michael Chapman/Flóttamað- urinn 3. Conrad L. Hall/Leitin að Bobby Fischer Þá eru allir helstu flokkamir upp- taldir en ekki kæmi á óvart þó Listi Schindlers hirði að auki Óskarsverð- launin fyrir bestu búningana, listræna stjómun og tónlistina. Verðlaun fyrir besta lagið fellur { hlut Philadelphiu en Mrs. Doubtfire fyrir förðun, Á ystu nöf, fyrir sjónrænar brellur (a.m.k. ærði hún eftirminnilega upp lofthræðslu undirritaðs). Og þá er að þrauka framá þriðjudaginn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.