Morgunblaðið - 20.03.1994, Side 27

Morgunblaðið - 20.03.1994, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994 B 27 Nokkrir farþeganna um borð í Gullfossi við brottför frá íslandi. SÍMTALID... ER VIÐ HILDIGUNNIÓLAFSDÓTTUR AFBROTAFRÆÐING Hvað erARA? 601713 Hildigunnur. — Góðan dag. Ég heiti Páll Þór- hallsson blaðamaður á Morgun- blaðinu. Hvað er ÁRA? Það er skammstöfun fyrir Áhugahóp um refsistefnur og af- brotafræði. Hópurinn var stofnaður 2. desember síðastliðinn og er markmiðið að auka áhuga á og koma af stað meiri umræðu um refsipólitík, viðurlagaúrræði og af- brotafræði. Þetta er faghópur sem er öllum opinn og á að vera vett- vangur fyrir að ræða þessi efni. I framkvæmdanefnd eru auk mín Hansína B. Einarsdóttir, sem einn- ig er afbrotafræðingur, og Ragn- heiður Bragadóttir lögfræðingur og lektor. — Hvað hefur hópurinn gert til þessa? Við höfum haldið tvo fundi. Á þeim fyrri flutti Jón Friðrik Sig- urðsson, sálfræðingur hjá Fang- elsismálastofnun, fyrirlestur sem hét: „Hvers vegna játar fólk afbrot við yfirheyrslur hjá lögreglu?“ Kom fram hjá honum að það er algeng- ara að grunaðir játi hér en í Eng- iandi til dæmis. Ein helsta ástæðan er sú að sakborningur telur að lög- reglan hafi það mikið af sönnunar- gögnum að það sé tilgangslaust annað en að játa. Þetta skýrist af því að við búum í litlu og fámennu þjóðfélagi hér þannig að lögreglu- vinna er væntan- lega auðveldari. Svo vorum við með ráðstefnu í vikunni um hræðslu við af- brot, brotaþola og forvarnir. — Ber stofnun þessa hóps vott um að mönnum finnist umræða um þessi efni hafa verið of litil? Hún ber kannski helst vott um að áherslan í umræð- unni sé ekki eins æskileg og hún gæti verið. Hér eins og kannski víðar vill fólk yfirleitt þyngja refs- ingar þegar það er spurt að óathug- uðu máli. En þegar farið er að fylgja því betur eftir áttar fólk sig oft á því að það vinnst ekkert með því að herða refsingar annað en það að hefndinni er fullnægt. Að minnsta kosti eru engar rannsókn- ir til sem mæla með hertum refsing- um. Einnig hafa íslendingar verið seinir að taka upp nýjar refsileiðir. Samfélagsþjónusta er til dæmis alls staðar orðin töluvert umfangsmikil en hefur ekki enn verið innleidd hér á landi. Svokölluð ágreiningsráð hafa einnig víða borið árangur. Þau eru vettvangur fyrir brotamann og brotaþola að sættast. Brotaþolinn fær þá eitthvað út úr afgreiðslunni. — Henta slíkar sáttanefndir fyrir öll afbrot? Það virðist vera mjög breytilegt eftir löndum hvaða mál eru valin til þess að fara fyrir slík ráð. Minni- háttar líkamsmeiðingar henta ágætlega, en líklega væri erfitt að koma því við þegar um efnahags- brot er að ræða, eins og þegar fyrir- tæki eða stofnun er völd að brotinu eða brotaþolinn er samfélagið í heild. — Hvað með nauðgunarmál? Þau gætu alveg komið til greina ekki síst vegna þess að í litlu samfélagi eins og á íslandi eru ætíð líkur á að fómarlamb hitti af- brotamanninn aft- ur. Það getur verið sársaukafullt og þá gæti verið ákjósan- legt að þau hefðu gert upp sakimar með öðmm hætti en nú er. FRÉTTA- LJÓS ÚR FORTÍÐ r Island danskt jarlsdæmi Dr. Knud Berlin, sérfræðingur Dana í íslenskum stjórnmálum uppúr síðustu aldamótum, ritaði árið 1910 grein í eitt af dönsku tímaritunum sem hann nefndi: Framtíðarstaða vor gagnvart íslandi, og leggur þar til að ísland verði gert að dönsku jarlsdæmi. ísafold birti laugardaginn 2. apríl 1910 útdrátt úr þessari grein „Með því að dr. Berlin, í Dana hóp, mun talinn spámaður mikill í þessum greinum", eins og segir í formála að grein dr. Berlin í ísafold. Igrein sinni getur dr. Berlin þess að íslendingar hafi sett sér hátt mark: fullvalda konungsríki, en heldur því fram að í raun réttri muni kjör Islands, undir jarli, gerð- um út af dönsku krúnunni, bæði frjálslegri og öruggari en þau, er í vændum væru, ef ísland gerðist sérstakt konungsríki eða lýðveldi - Hinn 11. júlí tók til starfa „Gasstöð Reykjavíkur". Gasstöðin stend- ur við Rauðarárlæk. — Carl Francke frá Bremen hefur samkv. samn- ingi við bæjarstjórn Reykjavíkur byggt gasstöðina og komið gasæð- unum fyrir í götum bæjarins. á kafi í flokkadráttum. ísafold getur þess jafnframt að dr. Berlin ætlist auðvitað til að jarlinn verði Dani og stöðu íslands, sem „hluta Danaveldis", verði ekki rift að neinu leyti. Dr. Berlin bend- ir á í grein sinni, að jarlsstjórn eða landstjórafyrirkomulag sé gömul Bæjarsamfélag er að vaxa upp. Krakkar á Vesturgötunni í Reykja- vík (Útg. Thomsens Magasin). myndinni 1907 af því að hann hafi þá búist við, að íslendingar myndu láta sér lynda status quo með smá- vegis formbreytingum. En eins og sakir standi nú, álíti hann að ástæða sé til að koma hreyfíngu á jarlsfyrirkomulag, ef íslendingar óski j)ess. í Isafold 7. maí 1910 segir frá því að félagið Landvörn hafi á fundi skömmu áður rætt um stjórnarfyr- irkomulag hér á landi með land- stjórn eða jarli. Jón Þorkelsson dr. phil. og Þorsteinn Erlingson skáld tóku þar til máls og leiddu báðir mörg rök að því að slíkt stjórnar- fyrirkomulag með dönskum jarli, sem ekki bæri ábyrgð fyrir neinu valdi innanlands, heldur fyrir kon- ungi einum, og sérstaklega mundi ætlað að reka hér erindi Dana og gæta hagsmuna þeirra á landi hér, „væri, eftir því sem nú væri komið stjórnarfari voru, afar viðsjárvert á marga vegu“. Loks var þess get- ið, að jarlsfyrirkomulaginu hefði enginn á fundinum lagt liðsyrði. _J---------------------------------- íslensk hugmynd, runnin frá sjálf- um Jóni Sigurðssyni og margsam- þykkt af alþingi í frumvarpsformi, og fer allhörðum orðum um nær- sýni Dana, er þeir neituðu sam- þykkt þess. Dr. Berlin klykkir út með því að lýsa því yfir, að hann hafi sjálfur ritað á móti jarlshug- Golfvörur til fermingargjafa Góð unglingasett: (1 tré, 3 jám, pútter og poki) £; Howson kr. 10.900 Tom Walker kr. 13.900 Góð byrjendasett: (2 tré, 5 járn, pútter og poki) Verðfrákr. 16.300 Góð merki og mikið úrval. Sendum í póstkröfu um land allt Póstverslun fyrir golf Sími/fax. 98-33363 í Kaupmannahöfn F/EST í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖDINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁÐHÚSTORGI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.