Morgunblaðið - 25.03.1994, Page 23

Morgunblaðið - 25.03.1994, Page 23
B 23 MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1994 Sumarbústaðaeigendur Höfum öruggan kaupanda að vönduðum sumarbústað ca 50-100 km frá Reykjavík. Nánari upplýsingar gefur Fasteignasalan Hafnargötu 27, Keflavík, s. 92-11420 eða 92-14288. Verðbréfafyrirtækin þyrftu síðan að finna markað fyrir þessi bréf. Ljóst er að slík bréf yrðu vel tryggð og sáralítil áhætta fólgin í kaupum á þeim. Hér er ekki haft í huga að draga úr starfsemi Húsnæðis- stofnunar heldur auka hlutverk verðbréfafyrirtækja og annarra lánastofnana. Hótel mamma — fyrsta íbúðin Nokkur breyting hefur orðið á kaupendahópnum. Ungt fólk virð- ist vera lengur heimá hjá sér en fyrr og nýtt hugtak hefur mynd- ast í tungunni — Hótel mamma. Fækkun ungra kaupenda á mark- aðnum hefur leitt til aukins fram- boðs á 2ja herbergja íbúðum. Sennilega hefur aldrei verið meira framboð af slíkum íbúðum fyrr og verðið er gott, kjörin hagstæð og útborgun oft lág. En hvað veldur? Eflaust hefur mikið atvinnuleysi og neikvæðar fréttir almennt sín áhrif. Kannski vill unga fólkið lifa lífinu. Kaupa góð föt, borða úti og eiga fallegan bíl fremur en spara fé til kaupa á fasteign a.m.k. ef allt fæst frítt hjá Hótel mömmu. En af og til fréttir maður af ungu fólki sem býr frítt, tekur námslán, fjárfestir í ýmiss konar verðbréf- um og bætir þannig lausafjárstöðu sína. Hvað sem þessum hugleið- ingum líður er sparnaður dyggð. Á síðustu áratugum hefur gleymst að hvetja til sparnaðar og sparnað- ur hefur e.t.v. ekki átt uppá pall- borðið í þjóðfélagi sem nokkuð hefur einkennst af flottræfils- hætti. Sú kreppa sem nú ríkir mun kenna okkur öllum að spara fé til mögru áranna og aukinn spamað- ur mun hafa jákvæð áhrif á lána- markaðinn og fasteignaviðskipti. En betur má ná til unga fólksins með því að nýta fulla heimild í lögum og lána 75% til kaupa á fyrstu íbúð eins og ráðherra þessa málaflokks hefur vikið að. Kjarni málsins er sá að þegar búið er að kaupa fyrstu íbúðina verður auðveldara að stækka við sig. Lengi býr að fyrstu gerð. Fjárfesting í atvinnuhúsnæði Ég vík nú nokkrum orðum að atvinnuhúsnæði. Fyrir 10-25 árum voru kaup á verslunar- og atvinnuhúsnæði ein eftirsóttasta og besta fjárfesting hér á landi. Framboð var lítið en eftirspurn þeim mun meiri. Allir sem áttu fé svo einhverju nam vildu fjárfesta í steinsteypu. Leiga eigna gaf góð- an arð og sjaldnast þurfti að greiða nema hluta kaupverðsins. Opinber gjöld og skattar vom lægri en nú. Þetta leiddi af sér mikla eftirspurn eftir byggingarlóðum undir slíkar eignir og byggingum fjölgaði. Stórum iðnaðarhverfum — hverfum sem ætluð voru fyrir iðn- aðarhús — var smám saman breytt í verslunar- og þjónustuhverfi. I þessu sambandi má nefna Múla- hverfi og Skeifuna. Framboð á slíku húsnæði náði sennilega há- marki fyrir u.þ.b. þremur árum ekki síst eftir byggingu Kringlunn- ar, nýju Kringlunnar og margra bygginga í Fenjum, Skeifunni og víðar. I framhaldi af þessu tók verð á verslunarplássi t.d. í gamla miðbænum að falla. í kjölfarið fylgdi einnig víða lækkandi verð á verslunar-, skrifstofu- og þjón- usturými. í framhaldi af gjaldþrot- um fyrirtækja og einnig samein- ingu fyrirtækja jókst framboð enn og sala minnkaði. Nú kom einnig mikið af hvers kyns iðnaðarhúsnæði á markað- inn. En sala var treg. Eigendur urðu að lækka verðið ef salan átti að takast. Nú hefur töluvert af öllu þessu húsnæði verið leigt, selt eða því ráðstafað með öðrum hætti. Á fyrri hluta síðasta árs var sala fremur treg en eftir vaxta- lækkun á seinni hluta ársins jókst sala og hefur verið góð frá þeim tíma. Betri greiðslukjör Kjör á atvinnuhúsnæði hafa líka breyst verulega frá því sem var á fyrri árum. Útborgun er nú minni, í sumum tilvikum aðeins 20-30% og lánstími er lengri en var, eða 10-15 árogvextir lægri eða5-7% í mörgum tilvikum. Stundum getur jafnvel verið um ennþá betri kjör að ræða, minni útborgun, lengri lánstíma og lægri vexti. Fyrir nokkrum árum var út- borgun oft 50-70% og eftirstöðvar til 5-8 ára verðtryggðar og báru háa vexti. Eftir síðasta skeið á þessum vettvangi, aukna sölu og ráðstöfun atvinnuhúsnæðis og mun færri nýbyggingar hefur framboð minnkað. Lægra verð og góð kjör hafa örvað sölu. Eftir- spurn í gamla miðbænum t.d. við Laugaveg hefur aukist og allt stefnir í átt til jafnvægis. í mörg- um tilvikum vantar meira að segja ákveðnar stærðir og gerðir at- vinnuhúsnæðis. Framboð er þó enn allmikið, a.m.k. 100.000-150.000 fm eru til leigu eða sölu. Engu að síður eru góð teikn á lofti á þessum markaði. Miðað við allt það lými sem til er af hvers kyns atvinnu- húsnæði er þetta framboð ef til vill ekki óeðlilega mikið. Umbrotaskeiði lýkur Niðurstaða þessara hugleiðinga er sú að eftir mikið umbrotaskeið hafi orðið jákvæð þróun á fast- eignamarkaðnum og að lítil verð- bólga og lágir vextir síðustu mán- uði eigi dijúgan þátt í þeirri þró- un. Það er því full ástæða til bjart- sýni þrátt fyrir tímabundna örð- ugleika sem ríkt hafa í eyðsluþjóð- félagi, örðugleika sem við skulum öll draga lærdóm af. Höfundur er löggiltur fasteigna- sali og stjórnarmaður í Félagi fasteignasala. ------» ♦ ♦----- Siglufjörður 150 niillj. i fram- kiæmdir næstu þrjúárin Stærstu verkefni í þriggja ára framkvæmdaáætlun Siglfirðinga eru á sviði gatnagerðar, holræsa- Iagna- og skólaviðhalds. Til þess- ara framkvæmda er áætlað að verja um 60% af framkvæmdafé bæjarins næstu þijú árin, 1995 - 1997. Samkvæmt framkvæmdaáætlun Siglufjarðarkaupstaðar 1995- 1997 er áformað að veita 35 millj- ónum króna til gatnagerðar, 30 m.kr. til viðgerðar á skólahúsum og 25 m.kr. til holræsa- og frá- rennslislagna á þessu tímabili að sögn Björns Valdimarssonar bæjar- stjóra. Til þessara þriggja verkefna er áformað að veita um 60% af framkvæmdafé bæjarins á þessum þremur árum. Aðrar framkvæmdir, sem áform- aðar eru, eru hafnarframkvæmdir (12 m.kr.), endurbætur í sorpeyð- ingu (8 m.kr.), viðgerð á sundhöll (6 m.kr.) og endurbætur á vatns- veitu (5 m.kr.) Hagnaður eftir rekstur er áætl- aður 175 m.kr. þessi árin. Þar af er áætlað að veija til framkvæmda um 150 m.kr. Félag Fasteignasala Karl Gunnarsson sölustjóri, hs. 670499 Kjartan Ragnars, hæstaróttariögmaður, löggittur fasteignasali Fasteignasala - Sufiurlandsbraut 14 Sími 678221 Fax 678289 SKOÐUNARG JALDINNIFALIÐ í SÖLUÞÓKNUN Opið laugardag og sunnud. kl. 12-14 Mýrarkot 6, Álftanesi opið hús laugardag og sunnudag frá kl. 14—16 Aratún 18, Gbse. Goncai27fm einbhús á einni hæð ásamt 39 fm bílsk. Mikið endurn. eign á góðum stað. V. 12,9 m. Reynilundur 5, Gbæ. Einstakl. glæsil. 200 fm hús á einni hæð + ca 50 fm bílsk. Parket o.fl. Fallegur garður. V. 21,5 m. Hléskógar, Rvík. Ca 200 fm einb. á tveimur hæðum + tvöf. bílsk. Séríb. á jarðh. Tilb. óskast. Jakasel 6, Rvik. Einb. á tveimur hæðum + bílsk. Góðar stofur, 4-5 herb. V. 14,2 m. Hrauholtsvegur, Gbæ. Ca 190 fm einb. á einni hæð. Mikil stands. + ca 50 fm bilsk. V. 14,5 m. Urriðakvísl 2, Rvfk. Fullb. og glæsil. ca 190 fm einb. á tveimur hæðum + ca 48 fm bílsk. V. 18,5 m. Ti! sölu gott ca 140 fm einbýli á einni hæð. Skiptist m.a. í góðar stofur, 4 svefn- herb. Suðurgarður. Verð 10,5 millj. IMeðstaleiti 6, Rvik. Ca 117 fm endaib. á 1. hæð. Góð aökoma fyrir hreyfi- hamlaða. V. 11,2 m. Laufengi 12, Rvfk. Til sölu í þessu húsi ca 90 fm 3ja-4ra herb. endaíb. á2. hæð. Til afh. strax. Verð tilboð. Efstasund 66, Rvfk. Ein- stakl. glæsil. 80 fm efri hœð í tvíb. auk oa 30 fm biisk. Áhv. góð lang- timal. ca 6,7 m. V. 8,9 m. Ásendi 7, Rvík. Tll sölu ca 140 fm einb. á einni hæð + 35 fm bflsk. Verð 13,5 millj. Hamrahlfð, Rvfk. Neshamrar 18, Rvík. Fráb. staðs. ca 220 fm einb. á tveimur hæðum. Tvöf. bilsk. V. 16,9 m. Bleikargróf, Rvfk. 220 fm einb. auk 70 fm bilsk. m. góöri vinnuaðst. Háagerði, Rvík. *«v s—arí ‘ . .wudMta Vorum að fá i söiu mjög skemmtíl. efri hæð (ris) í endahúsi við Háagerði 69 i Rvik. Ib. er öll nýstandsett og húsið í topp ástandi. Áhv. veðd. ti! 40 ára ca 3,3 mitlj. V. 6,3 m. Mjög sæt fb. Grafarvogur, Rvík. Til sölu parh. við Berjarima. Björt og skemmtil. íb. Ein- stakt útsýni. Hvassaleiti 127, Rvfk. Glæsil. 230 fm endaraðh. Arinn o.fl. V. 15,9 m. Glæsil. efri hæð + ris. Hæðin er mikið end- urn. Góð áhv. lán. V. 10,2 m. Sjón er sögu rfkari. Krókabyggð 3, Mos. Tii sölu 220 fm parh. við Krókabyggð 3. Mosfellsbæ. Húsíð er fullb. og vandað á állan hátt. Göð éhv. lán. V. 14,5 m. Logafold, Rvfk. Dúfnahólar 2, Rvík. 80 fm ib. ú 2. hæð i lyftuh. Sklpti mögut, á 4ra-5 herb. Ib. é sömu slóðum. Áhv. góð !án ca 3,1 millj. v. 6,3 m. Fffusel 10, Rvfk. 240 fm endaraöh. Sóríb. í kj. V. 12,5 m. Framnesvegur 3, Rvík. Nýl. íb. i fjórbh. á 1. hæð + bílskýli. Laus strax. V. 6,9 m. Til sölu ca 100 fm neðri sérh. i þessu húsl. Laus strax. Áhv. veðd. lán tll 40 ára ca 4,5 míllj. Tilboð óskast. Lyklar á skrifst. Hrísrimi 1, Rvfk. 90 tm lúx- usib. á 3. hæð. V. 8,3 m. Hamraborg 24, Kóp. 77 fm ib. + bílskýii. V. 6,8 m. Ástún 8, Kóp. Ca 90 fm góð ib. á 1. hæð. Tilboð. Engihjalli 3, Kóp. Góð ca 80 fm íb. á 5. hæð I lyftuh. V. 6,3 m. Álftahólar 2, Rvík. 70 fm ib. á 1. hæð. V. 6,3 m. Hamraborg 18, Kóp. 80 fm ib. á 3. hæð I lyftuh. Tilvalin íb. fyrir eldra fólk. Laus fljótl. V. 6,3 m. Ánaland 6, m. bílsk., Rvík. Til sölu ca 110 fm 4ra herb. ib. f þessu nýl. húsi. Góö eign á vinsælum stað. Laus strax. Lyklar á skrifst. V. 10,8 m. Álftamýri 36, Rvfk. Góð ca 100 fm endaíb. ásamt bilsk. V. 7,9 m. Furugrund 40, Kóp. 4ra herb. íb. á 2. hæð. Skipti mögul. á minni eign. íb. getur losnað fljótl. Verð: tilboð. Asparfell 8, Rvfk. nofmíb. á 2. hæð. Mögul. skipti á raðh. í Fellunum. V. 7,3 millj. Hvassaleiti 1Q, Rvfk. 180 fm parh., ekki fullb. en vel Ibhæft. V. 11,5 m. Miðhús 2, Rvfk. 70 fm parh. fullb. Til afh. strax. V. 6,8 m. Hrfsrimi 19 og 21 Rvfk. Parh. I bygg. ca 175 fm. V. 8,5 m. Reyrengi 17, Grafarv. Vandað ca 195 fm einb. á eínni hæð. Afh. fultb. að utan, fokh. að innan, Teikn. á skrifst. V. 9,6 m. Háaleitisbraut 113, Rvfk. Huldubraut 26, Kóp. Ca 111 fm neðri sérhæð i tvib. Afh. fullb. að utan, fokh. að inna. V. 7,3 m. Ca 60 fm ib. á 2. hæð. Suðvestursvalir. V. 5,7 m. Espigerði 8, Rvfk. Góð 2ja herb. ib. á jarðh. m. sérsuðurgaröi. Eignask. mög- ul. á dýrari eign. íb. er laus 1 .apríl. V. 5,9 m. Öldugrandi 13, Rvík. Einstakl. glæsil. 2ja herb. (b. á 1. hæð. Parket. Sér- garður o.fl. Áhv. veðd. ca 2,2 m. V. 6,2 m. Hamraborg 22, Kóp. 2ja herb. ca 70 fm ib. á 3. hæð. Áhv. veðd. 3,0 m. V. 5,7 m. Skipti mögul. á dýrari eign, allt að 8,0 m. Suðurhlfðar, Kóp. Góð 4ra herb. íb. á 3. hæð ásamt bílsk. Laus strax. V. 7,7 m. Flúðasel 42, Rvík. Falleg endaíb. + bilskýli. V. 7,7 m. Seilugrandi 1, Rvik. 5 herb. góð eign. Verð tilboð. Engihjalli 19, Kóp. Falleg ca 100 fm endaíb. V. 7,7 m. Laufengi 12, Rvík. Fullb. ný íb. án gólfefna. V. 8,3 m. Stekkjarhvammur 28, Hf. Hraunbær 180, Rvik. Góð 4ra herb. íb, á 2. hæð. Suðursv. Göð- ar stofur. V. 7,3 m. Sklpti mögul. á ódýrari. Glæsil. ca 126 fm efri sérh. auk bilsk. Suð- ursv. Getur losnað fljótl. Áhv. veðd. til 40 ára ca 5,0 millj. Tilb. óskast. Leitið uppl. Safamýri, Rvfk. Efri sórh. 145 fm + 35 fm bílsk. V. 12,5 m. Vorum að fá í sölu glæsil. (b. ó 1. hæð ca 60 fm v. Trönuhjalla 2. Verölaunalóð. Áhv. veðd. ca 5,0 millj. 40 ára lán. V. 7,0 m. Sumarbústaðaland. Tii sölu ca 1 ha eignarland í næsta nágr. v. Borgir í Grímsn. V. 320 þús. Ellert Róbertsson, sölumaður hs. 45669. Karl Gunnarsson, sölustjóri hs. 670499. Ef þú vilt selja og njóta góðrar þjónustu hafðu þá samband við okkur. Hraunteigur. Ca 70 fm góð ib. i kj. Sérinng. Mikiö endurn. Áhv. veðd. 3,3 m. V. 6,5 m. Vesturberg 52, Rvfk. Góð 3ja herb. ib. á 1. hæð. Sér garður. V. 5,9 m. Hringbraut 71, Rvfk. Efri sórh. ca 80 fm í mjög góðu ástandi. Laus strax. Lyklar á skrlfst. V. 7,4 m. Alfhólsvegur 109, Kóp. Ca 125 fm neðri sérh. Góðar stofur. 3 herb. V. 8,9 m. Vantar eignir á söluskrá Hæðir § i \ ■ \ ■{<íú \* Hbfxm m u i, 1; .ít ■ v ♦ Lerkihlfð 11, R vík. c Læsil. ondoraðh. ca 220 fm 4 bílsk . Sjón er sögu rlkari. V. 13,9 m. '

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.