Morgunblaðið - 27.03.1994, Page 1
96 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
Borís Jeltsínoceros
Heimur stjórn-
máladýranna
TÍMARITIÐ Colors, sera gefið er út af
Benetton-fyrirtækinu ítalska, hefur oft
valdið hneykslan. Er þess skemmst að
minnast að í fyrra var Elísabet Breta-
drottning með aðstoð tölvutækni gerð
að svertingja og
söngvarinn Mich-
ael Jackson var
gerður hvítur. I
nýjasta hefti Col-
ors er tölvutækn-
in notuð til að
breyta ýmsum
þekktum þjóðar-
leiðtogum í dýra-
líki. Þannig eru
þau Margaret
Thatcher og Ron-
ald Reagan gerð
að risaeðlunum Thatchersaurus og Ron-
ald Reagansaurus. Borís Jeltsín er breytt
í nashyrninginn Borís Jeltsínoceros og
Bill Clinton Bandaríkjaforseta í flóðhest-
inn Bill Clintopopamus.
Algeng veikindi
frískra Þjóðverja
ÞÝSKA dagblaðið Bild greindi frá því á
föstudag að blaðamanni þess hefði tekist
að fá fimm lækna til að skrifa upp á
samtals 41 veikindadag, þrátt fyrir að
hann hafi tjáð þeim að ekkert amaði að
honum. Að sögn blaðamannsins sáu
læknarnir ekkert athugavert við það að
skrifa veikindavottorð handa honum
þrátt fyrir að hann lýsti því yfir að hann
vildi bara fá smá frí úr vinnunni. Þökk-
uðu meira að segja sumir læknarnir
honum fyrir að vera svona hreinskilinn
og vonuðust til að hann hefði það gott
í fríinu. Þýskir atvinnurekendur hafa
árum saman kvartað yfir fjölda veikinda-
daga starfsmanna sinna. Mest eru veik-
indin á föstudögum og mánudögum.
Telja sérfræðingar að allt að 900 þúsund
fullfrískir Þjóðverjar taki sér veikindafrí
á hveijum degi.
Spillir aukið
hreinlæti heilsu?
BRESKIR vísindamenn segja hugsanlegt
að aukið hreinlæti á Vesturlöndum á
undanförnum áratugum sé skýringin á
aukinni útbreiðslu ákveðinna sjúkdóma,
s.s. Chrohn’s-veiki og þarmabólgum.
Byggja þeir á niðurstöðum könnunar,
sem unnin var við Salisbury-spítalann í
suðurhluta Englands og greina frá nið-
urstöðum sínum í nýjasta hefti læknarits-
ins Lancet. Segja þeir litla skammta af
bakteríum og veirum hafa svipuð áhrif
á fólk og mótefnasprautur er setji
ónæmiskerfi likamans í gang. Almennur
þrifnaður og hreinlæti á heimilum hafi
aftur á móti stóraukist á síðustu fimmtíu
árum og þar með dregið úr snertingu
manna við bakteríur.
72. tbl. 82. árg.
SUNNUDAGUR 27. MARZ 1994
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
Óvissa um úrslit eftir ó-
vægua kosningabaráttu
Róm. Reuter.
ÍTALSKIR kjósendur fengu sólarhrings hvíld frá kosningabaráttunni í gær til að
gera endanlega upp hug sinn fyrir þingkosningarnar, sem fram fara í dag, sunnu-
dag og á mánudag. Er kosningaáróður bannaður daginn fyrir kjördag á Italíu, en
kosningabaráttan er talin hafa verið sú óvægnasta í marga áratugi. Þetta eru fyrstu
kosningarnar, sem haldnar eru samkvæmt nýrri kosningalöggjöf, og að mati flestra
þær mikilvægustu, sem haldnar hafa verið í landinu í 45 ár. Fjölmörg spillingarmál
á undanförnum árum og uppljóstranir um tengsl stjórnmálamanna við inafíuna
hafa gert það að verkum að nær allir þeir flokkar og sljórnmálamenn, sem áber-
andi hafa verið á síðustu árum, eru nú horfnir af sjónarsviðinu.
Engin reynsla er af nýja kosningakerfinu
og því hefur verið mjög erfitt að spá fyrir
um úrslit. í stað hlutfallskosningakerfis er
nú kosið samkvæmt kerfi sem byggist fyrst
og fremst á einmenningskjördæmum. Millj-
ónir kjósenda áttu samkvæmt skoðana-
könnunum enn eftir að gera upp hug sinn
fyrir helgi, en almennt er talið að hægri-
bandalag Silvios Berlusconis muni vinna
nauman sigur á framboði vinstrimanna, sem
Achille Occhetto, fyrrum leiðtogi ítalska
kommúnistaflokksins, er í forystu fyrir. Það
er þó ekki heldur talið óhugsandi að engin
ein fylking nái meirihluta á þingi að loknum
kosningum. Ef svo færi óttast menn að
næsta ríkisstjórn Ítalíu, sem yrði sú 53. frá
því síðari heimsstytjöldinni lauk, verði ekki
langlíf.
Þeir Berlusconi og Occhetto héldu síð-
ustu kosningafundi sína á föstudagskvöld
og ávörpuðu kjósendur í sjónvarpi. Auðjöf-
urinn Berlusconi, sem hóf afskipti af stjórn-
málum fyrir tveimur mánuðum til að koma
í veg fyrir að vinstriflokkarnir næðu völdum
í landinu, sagði að þetta væru mikilvæg-
ustu kosningarnar, sem haldnar hefðu verið
frá 1948 er kommúnistar biðu ósigur. „Við
ítalir stöndum nú á vegamótum rétt eins
og árið 1948. Kjósendur verða að velja á
milli frelsis og ánauðar, velmegunar og
örbirgðar," sagði Berlusconi í ávarpi á sjón-
varpsstöðinni Retequattro, sem er í hans
eigu. Occhetto sagði aftur á móti í ávarpi
í ríkissjónvarpinu að ítalir óttuðust að missa
ýmis grundvallarréttindi sín, réttinn til
vinnu, öryggis og samstöðu. í ræðu í borg-
inni Flórens hvatti hann einnig erlenda fjár-
festa til að styðja ítali ef vinstrimenn ynnu
sigur.
Sjá einnig bls. 12.
Morgunblaðið/RAX
HUNDUR VIÐ STÝRIÐ
Þingkosningarnar á Ítalíu sagðar þær mikilvægustu frá 1948
>
NNGKOSNINGARNAR
Á ITALÍU /12
ÞAÐ STEFNŒ
20 í BARDAGA
SVAR
VIÐ
KALLI
TÍMANS
18
DAGUR
í DRAUMASMIÐJUNNI