Morgunblaðið - 27.03.1994, Síða 5
GOTT FÓLK/SlA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MARZ 1994
5
FJÖLSKYLDAN FERÐAST SAMAN í ÁR
JökuUinn skríður
í átt að Klaustri um
páskana
SNJOSLEÐAFERÐIR
Skemmtun og náttúruskoðun í
snjósleðaferð frá Klaustri að
hinum stórbrotna og hraðskreiða
Síðujökli.
Boðið verður
upp á dagsferðir
um páskahelgina þar sem
ferðalöngum gefst tækifæri á að
berja þessa hrikalegu
náttúrufegurð augum.
GONGU- O G
SKÍÐAFERÐIR
Boðið verður upp á fjögurra daga
göngu- og skíðaferð með viðkomu
í Miklafelli, Síðujökli, Laka
og í Blágili. Gengið verður
frá Klaustri á skírdag og
verða gengnir um 20-30 kr
á dag. Gist verður í
Miklafelli og komið til baka
að Kirkjubæjarklaustri á páskadag.
Á laugardeginum verður farið í
tveggja daga ferð að Miklafelli og
gist í leitarmannaskálanum.
Þá verður einnig boðið upp á léttar
síðdegis- og morgungöngur um
nágrenni Klausturs.
SKEMMTANIR
Kvöldskemmtun Ungmenna-
félagsins Ármanns á
laugardeginum verður
Kirkjuhvoli, en eftir
miðnætti á páskadag verour a
sama stað brugðið upp balli að
hætti heimamanna.
Síðujökull er eitt athyglisverðasta sjónarspil
íslenskrar náttúru þessa stundina.
SKOÐUNARFERÐIR
Skoðunarferð um Síðuna með
viðkomu í þremur sögufrægum
sveitakirkjum á föstudaginn langa.
Einnig verður helgistund í
minningarkapellu Jóns
Steingrímssonar, eldklerks. Á"
laugardeginum verður um tveggja
klukkustunda skoðunarferð um
Núpsstaðarskóg.
3 R N
Á laugardeginum verður páska-
föndur fyrir yngstu kynslóðina á
HotelEddu vi- v
G I S T I N G
Gistimöguleikar eru fjölmargir.
Á Hótel Eddu á Klaustri eru tveggja
manna herbergi með baði auk
svefnpokaplássgistingu í herbergjum.
Á hótelinu er setustofa og bar og
verður veitingasalurinn opinn alla
páskana.
Hótel Edda s: 98-74799
Bændagisting:
Tveggja manna herbergi auk
sumarhúsa með eldunaraðstöðu eru
fáanleg á Geirlandi, Efri Vík og á
Hunkubökkum.
Geirland s: 98-74677
Efri-Vík s: 98-74694
Hunkubakkar s.98-74681
Allar nánari upplýsingar eru gefnar í
símum 98-74799, 98-74840 og
98-74677.
Páskahelgin er að ganga í garð og þá
er tilvalið að njóta samveru
með fjölskyldunni, burtu frá
erli skóla og vinnu.
Frá Kirkjubæjarklaustri eru aðeins
um 20 km að rótum Síðujökuls.
Frá Klaustri er auðvelt að komast
að jöklinum á vel búnum jeppum
eða vélsleðum.
Gleymum ekki hlýjum klæðnaði því
enn er vetur á íslandi.
Við hjá OLÍS ætlum að vera unnendum
íslenskrar náttúru innan handar við
Síðujökul á páskunum.
Olís hefur tímabundið staðsett
þjónustumiðstöð við hinn
hraðskreiða skriðjökul.
Þar geta ferðalangar fylgst með
náttúruundrinu og fengið eldsneyti á
farartæki sín og notið léttra veitinga.
Við hvetjum alla til að sýna tillitssemi
og aðgæslu á ferðum um landið.
Hafðu landið þitt í huga þegar þú setur bensín á bílinn.
Olís óskar þér gleðilegra páska.
GRÆÐUM LANDIÐ MEÐ