Morgunblaðið - 27.03.1994, Page 6
6 FRETTIR/INIULENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MARZ 1994
Arni Sigfússon borgarstjóri um Húsatryggingar Reykjavíkur
Yerið að meta kosti og galla
breytíngar á fyrirkomulaginu
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir vill að fyrirtækið starfi áfram
ÁRNI Sigfússon borgarstjóri segir að með tilliti til hagsmuna borg-
arbúa sé verið að meta kosti þess og galla að breyta fyrirkomulagi
Húsatrygginga Reykjavíkur. Þá segir hann að til athugunar sé að
þrengja hlutverk Húsatrygginga til samræmis við samninginn um
Evrópska efnahagssvæðið. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgar-
stjóraefni R-listans, segir að Húsatryggingar Reykjavíkur eigi að
starfa áfram. Þeim sem vildu tryggja annars staðar ætti hins vegar
að vera það heimilt ef þeir gætu sýnt frain á að eignin væri tryggð
hjá öðru tryggingafélagi.
Árni Sigfússon sagði í samtali
við Morgunblaðið að málefni Húsa-
trygginga Reykjavíkur hefðu verið
í skoðun undanfarið ár, og væri þá
bæði verið að meta kosti þess og
galla að gera á fyrirkomulaginu
miklar breytingar.
„Málið hefur verið í skoðun með
tilliti til þess hvað breytingar þýði
í kostnaði fyrir íbúana. Það liggja
enn ekki fyrir nákvæmar niðurstöð-
ur þeirrar skoðunar, og hver endan-
leg ákvörðun um framtíð Húsa-
trygginga Reykjavíkur verður bíður
því þeirra niðurstaðna," sagði Árni.
Hann sagði að eins og skipulag
Húsatrygginga Reykjavíkur væri
nú samræmdist það ekki EES-
samningnum, en það kynni hins
vegar að gera það ef hlutverk Húsa-
trygginga yrði þrengt, og verið
væri að skoða hvernig og hvort
ástæða væri til að fara í slíkar
breytingar.
Hægt verði að segja sig undan
tryggingu
„Mín skoðun er sú að það eigi
ekki að leggja niður Húsatrygging-
ar Reykjavíkur," sagði Ingibjörg
Sólrún. „Á síðasta þingi var geit
ráð fyrir að þær yrðu aflagðar eftir
tiltekinn tíma og það átti að gerast
í samræmi við kröfur EES. Mín
skoðun er sú að ekki þurfi að af-
leggja Húsatryggingar Reykjavíkur
vegna þeirra reglna. Það fékkst
reyndar sérstök undanþága fyrir
Húsatryggingar Reykjavíkur í
samningnum um EES fyrir húsa-
tryggingar vegna þess að sambæri-
leg tryggingastarfsemi er starfandi.
í ýmsum aðildarlöndum ESB. Þann-
ig að við erum ekki ein á báti. Þar
að auki væri nægjanlegt, ef menn
vildu endilega auka þetta svokall-
aða frelsi í vátryggingamálum, að
breyta Húsatryggingum Reykjavík-
ur þannig að einstaklingar, sem
vilja tryggja annars staðar, geti
sagt sig undan tryggingu hjá Húsa-
tryggingum Reykjavíkur," sagði
hún.
TUkynnt
um þrjú
innbrot
BROTIST var inn í fjölbýl-
ishús við Frakkastíg
snemma í gærmorgun,
laugardag, og var farið
inn í 13 geymslur og ýms-
um hlutum stolið.
Einnig var brotist inn í veit-
ingastað á Klapparstíg á laug-
ardagsmorguninn og höfðu
þjófarnir á brott með sér pen-
inga, tóbak og áfengi. Þá
barst lögreglunni tilkynning á
í gærmorgun um innbrot í
íbúðarhús í Mosfellsbæ en þar
hafði verið stolið hljómflutn-
ingstækjum og geisladiskum.
Lögreglunni hafði ekki tekist
að hafa upp á þjófunum í gær.
Nefnd fjalli um verndun íslenska fjárhundsins
Formaður landbúnaðar-
nefndar er einn á móti
FORMAÐUR landbúnaðarnefndar Alþingis stendur ekki að áliti
meirihluta nefndarinnar um að samþykkja eigi tillögu frá Guðna
Ágústssyni þingmanni Framsóknarflokks um að skipa nefnd til
að fjalla um aðgerðir til að vernda íslenska fjárhundinn.
Allir nefndarmenn nema Egill
Jónsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokks, mæla með því að tillagan
verði samþykkt, þar á meðal tveir
fulltrúar Sjálfstæðisflokks og full-
trúi Alþýðuflokksins í nefndinni.
í nefndarálitinu er lögð áhersla
á að nefndin sem skipuð verði hafi
í störfum sínum náið samráð við
Búnaðarfélag íslands og Hunda-
ræktarfélag
íslands. Tveir nefndarmanna
skrifa undir álitið með fyrirvara,
sem, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins, mun einkum
snúa að þeirri spurningu hvort
verið sé að taka fram fyrir hend-
urnar á Búnaðarfélaginu.
*
Ogrynni af bókum
Morgunblaðið/Þorkell
Á BÓKAMARKAÐI Félags íslenskra bókaútgefenda er að finna 10
þúsund titla. Á myndinni sjást f.v. Benedikt Kristjánsson, Vilborg
Harðardóttir og Jóhann Páll Valdimarsson, formaður Félags ís-
lenskra bókaútgefenda.
Lífleg byijun
á bókamarkaði
BÓKAMARKAÐUR Félags íslenskra bókaútgefenda, seni hafinn er í
Mjódd í Reykjavík, byrjaði með talsverðri söluaukningu frá fyrra ári
að sögn Benedikts Kristjánssonar. Uum 10 þúsund titlar eru í boði.
Verð er svipað og í fyrra og meira framboð er á gömlum bókum en áður.
Eins og í fyrra skipuleggur Félag
íslenskra bókaútgefenda markaðinn
sjálft. Benedikt segir að titlum í ár
hafí fjölgað úr átta þúsund í 10 þús-
und og þessi aukning sé merki um
að nú virðist ríkja meiri samstaða
meðal .bókaútgefenda um að láta
bækur á markaðinn.
Hann segir að helstu breytinguna
frá í fyrra vera að hlutfall gamalla
bóka hafi aukist, en aðsókn í fyrra
hafí sýnt að verulegur áhugi sé á
þeim. Meðal þeirra sé að finna hand-
innbundnar og sjaldgæfar bækur, en
elsta bókin á markaðinum var gefin
út árið 1877.
Nýjustu bækurnar þriggja ára
Líkt og í fyrra eru nýjustu bæk-
urnar frá 1991. Þá var ákveðið að
selja ekki nýrri bækur en tveggja
ára en nú séu þær nýjustu þriggja
ára. Er stefnt að því í framtíðinni
að svo verði áfram. Benedikt segir
að þrátt fyrir þetta hafí framboð titla
aukist, útgefendur hafi greinilega
tínt fleiri titla úr hillum sínum.
Sama verð er á bókunum og í
fyrra, þrátt fyrir að virðisaukaskatt-
ur hafi verið lagður á þær í júlí á
síðasta ári, segir Benedikt.
Markaðurinn er til húsa á annarri
hæð í Þönglabakka 1 í Mjóddinni. Á
meðan á honum stendur verður efnt
til uppboðs á fágætum bókum auk
þess sem boðið er upp á leikkrók
fyrir börn. Hann verðu opinn frá kl.
10-19 daglega til 10. apríl.
Vetrargarður í tívolíhúsi
Á ÞESSARI skissu eru hugmyndir að vetrargarði útfærðar lauslega. í þessari útfærslu er gert ráð
fyrir miklum gróðri, íþróttavöllum fyrir tennis, blak, badminton og körfubolta með áhorfendabekkjum
í kringum stærsta völlinn, hálfhringlaga sviði, hlaupabraut, trampólíni, glímuvelli, búningsklefum, veit-
ingasölu og fleira. Rétt er að taka fram að þetta eru frumhugmyndir og ekki endanleg teikning.
Hveragerðisbær kaupir
tívolí af Búnaðarbanka
SAMNINGAR náðust í fyrradag milli Hveragerðisbæjar og Bún-
aðarbankans um kaup bæjarins á tívolíhúsinu svokallaða og lóð:
inni sem það stendur á. Kaupverðið er rúmar 13 milljónir. í
kaupsamningi er kveðið á um að afhending verði eins fljótt og
hægt er og að við afhendingu verði búið að rýma það, en ein-
hver leik- eða tívolítæki eru enn í húsinu.
Bæjarstjórn Hveragerðis hefur
haft ýmsar hugmyndir um nýtingu
hússins eins og greint hefur verið
frá í Morgunblaðinu. Hugmynd
um vetrargarð þar sem hægt væri
að stunda íþróttir með allri fjöl-
skyldunni hefur orðið ofan á og
er bæjarfélagið í samvinnu við
ýmsa aðila um útfærslu og fjár-
mögnun hennar.
Að sögn Hallgríms Guðmunds-
sonar, bæjarstjóra í Hveragerði,
mun bærinn eiga húsið áfram og
hafa umsjón með því að móta
reksturinn og hafa forgöngu um
að mynda rekstrarfélag á grund-
velii þeirra hugmynda sem nú
liggja fyrir. Hann sagði að bærinn
myndi sækja um framlag úr At-
vinnuleysistryggingasjóði til að
hrinda einhveijum þáttum verk-
efnisins af stað.
Hallgrímur sagðist gera ráð
fyrir að fyrstu framkvæmdir
myndu ganga hratt fyrir sig og
ef það gengi eftir að húsið fengist
afhent upp úr miðjum apríl þá
yrði stefnt að því að opna það
fyrir Hvergerðingum í maí eða
júní.
í húsinu á að vera mikill gróður
og það á bera þess glögg merki
að það stendur í gróðursælum bæ.
Þar á að vera aðstaða til ýmiss
konar íþróttaiðkunar og segir
Hallgrímur að þar verði haldin
ýmis námskeið í heilsueflingu. Til
stendur að einangra eitt liorn
hússins og þar á m.a. að vera
búningsaðstaða, leikfimisalur og
veitingasala.
Hallgrímur segir að 1 húsið eigi
að geta komið hópar og einstakl-
ingar og ekki síst fjölskyldufólk.
Þá væri m.a. hægt að samræma
æfingar keppnisliða og samveru
með fjölskyldu þannig að keppnis-
lið geti verið í æfingabúðum og
fjölskyldur liðsmanna geti verið á
staðnum og nýtt sér aðstöðuna
einnig.
-----♦ ♦ ♦----
Rannsóknarstofa
mjólkuriðnaðarins
Flutiiiiig-iir
út á landið
í UNDIRBÚNINGI er flutningur
Rannsóknarstofu mjólkuriðnað-
arins annaðhvort til Akureyrar
eða í Borgarnes, en rannsóknar-
stofan hefur nú aðsetur í húsi
gömlu mjólkurstöðvarinnar við
Laugaveg.
Að sögn Sævars Magnússonar,
framkvæmdastjóra rannsóknar-
stofunnar, var samþykkt á aðal-
fundi hennar nýlega að flytja starf-
semina til Akureyrar eða í Borgar-
nes, en hann sagði að það myndi
skýrast á næstu vikum hvor
staðurinn yrði fyrir valinu.