Morgunblaðið - 27.03.1994, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MARZ 1994
11
Styrkir vegna landbúnaðar
millj. ECU
NOREGUR:
1995 1996 1997 1998 ALLS
Aðlögunarstyrkur 46 0 0 0 46
Verðjöfnunarstyrkir 155 128 52 26 361
ALLS 201 128 52 26 407
ÞJÓÐ: 1995 1996 1997 1998 ALLS
Aðlögunarstyrkur 285 0 0 0 285
Verðjöfnunarstyrkir 203 432 76 31 742
ALLS 488 432 76 31 1027
NLAND: 1995 1996 1997 1998 ALLS
Aðlögunarstyrkur 280 0 0 0 280
Verðjöfnunarstyrkir 196 163 65 33 457
ALLS 476 163 65 33 737
Margbrotið styrkjakerfi
EVRÓPUSAMBANDIÐ veitir upphafsstyrki til Iandbúnaðar og síðan
árleg framlög til að laga verð afurða að verðlagi innan ESB.
styrkja vegna staðsetningar í norðri
geta einnig hlotið ríkisstyrki til við-
bótar því sem kemur úr sjóðum ESB
og er samkvæmt ríkjandi landbúnað-
arstefnu sambandsins. Styrkir mega
þó ekki vera umfram það styrkjastig
sem nú gildir.
Um 85% norskra og finnskra bú-
jarða verða styrkhæfar sakir harð-
býlis og um helmingur sænskra
jarða. Þessa styrki er hægt að veita
hvort sem er á grundvelli stærðar
jarða, eða fjölda húsdýra og greiðir
ESB fjórðung en ríkissjóður viðkom-
andi lands 75%. Harðbýlisstyrkir
mega ekki raska samkeppnisstöðu
og munu ekki miðast við framtíðar-
uppbyggingu heldur verður lögð til
grundvallar stærð ræktarlands, fjöldi
húsdýra eða framleiðsla fyrri ára.
Til að auðvelda aðlögun Finnlands
og Noregs að landbúnaðarstefnu
ESB verða bæði löndin styrkhæf
fyrir norðurhjarastyrki, bæði ríkis-
styrki og stuðning frá ESB.
Stuðningur sem ekki samræmist
hinni sameiginlegu landbúnaðar-
stefnu ESB verður lagður af á næstu
fimm árum. Styrkjakerfi Iandbúnað-
arstefnunnar vegna akuryrkju mið-
ast við flatarmál akra. Finnar eiga
um 1,6 milljónir hektara akra, Svíar
1,8 milljónir hektara og Norðmenn
tæplega 0,4 milljónir hektara akra.
ESB greiðir styrki til að gera land-
búnað vistvænan, viðkomandi land
leggur sömu upphæð á móti. Þannig
verður veitt árlega 135 milljónum
ECU (1 ECU er 82,40 krónur) til
finnsks landbúnaðar í þessu skyni,
55 milljón ECU til norsks landbúnað-
ar og 165 milljón ECU til þess
sænska.
Utanríkis- og öryggismál
Sem kunnugt er hafa Svíar og
Finnar fylgt yfirlýstri hlutleysis-
stefnu en Norðmenn verið aðilar að
Atlantshafsbandalaginu. Við inn-
gönguna í ESB munu þjóðirnar ger-
ast aðilar að utanríkis- og öryggis-
málastefnu Evrópusambandsins.
Norski utanríkisráðherrann, Björn
Tore Godal, benti á að loknum samn-
ingaviðræðum Norðmanna, að smá-
ríki græddu mest á því samstarfi i
utanríkis- og öryggismálum sem
skuldbindi bæði litlar og stórar þjóð-
ir. Sömuleiðis kæmi það harðast nið-
ur á smáríkjum ef öryggis og varnar-
má! yrðu einkamál hvers ríkis. Land-
fræðileg staðsetning Noregs væri
enn sem fyrr hernaðarlega mikilvæg.
Með aðild að ESB og þátttöku í utan-
ríkis- og öryggismálastefnu sam-
bandsins væri tryggt að ástandið
milli Noregs og Rússlands yrði hluti
af afstöðunni milii Rússlands og sam-
einaðrar Evrópu, en ekki milli stór-
veldis og smáríkis. Þannig kæmi
aðildin að ESB til viðbótar, en ekki
í staðinn fyrir, aðildina að Atlants-
hafsbandalaginu.
Samkvæmt Mastrichtsamkomu-
laginu mun ESB móta sameiginlega
varnarstefnu sem í framtíðinni kann
að leiða til sameiginlegs varnarliðs.
Þetta á að endurskoða 1996. Bent
hefur verið á að ef Evrópusambandið
hyggst koma sér upp her þá mun
það væntanlega auka útgjöld aðildar-
landanna til varnarmála allverulega.
Umhverfismál
í samningunum var tekið tillit til
ólíkra umhverfisþátta og samið um
mismunandi vernd hinna ýmsu þátta
lífríkis og náttúru eftir aðstæðum í
hveiju landi. Til dæmis eru ólík
ákvæði um fuglavernd og veiðar,
eftir því hvert landið er. Norðmenn
geta því áfram nýtt ýmis hefðbundin
náttúruhlunnindi svo sem með fugla-
véiðum og eggjatínslu. Norski við-
skiptaráðherrann lýsti ánægju sinni
með umhverfismálalið samningsins
og sagði samningsuppkastið gera ráð
fyrir að Norðmenn fengju áfram
gert harðar kröfur á þessu sviði,
einnig í þeim tilvikum sem Norðmenn
gera meiri kröfur en reglur ESB
kveða á um. Norðmenn munu laga
sig að þeím sviðum þar sem ESB
gerir harðari kröfur en þeir nú. Ólík-
ar reglur hafa gilt um endurvinnslu
og förgun hættulegra efna, þær
verða nú samræmdar reglum ESB.
Orkumál
ESB er aðalmarkaður Norðmanna
fyrir olíu og gas. Norðmenn halda
fullum yfirráðum yfir olíu- og gas-
lindum sínum. Þeir ráða vinnslu-
hraða, skattlagningu og ráða þátt-
töku ríkisins í olíuvinnslunni. Finn-
land fékk eins árs aðlögunarfrest til
að koma sér upp þeim lágmarksolíu-
birgðum sem krafíst er af aðildarríkj-
um. Þá voru gerðar samþykktir varð-
andi rekstur kjarnorkuvera að hann
lyti Euratom - sáttmálanum um
hagnýtingu kjarnorku.
Sjávarútvegur
Talsvert hefur verið fjallað um
fiskveiðisamninga Norðmanna við
ESB og þykir ekki ástæða til að tí-
unda þá hér. Tollur fellur niður af
sjávarafurðum til ESB - landa frá
fyrsta degi aðildar og benda norskir
talsmenn inngöngu í ESB á það sem
mikilvæga röksemd fyrir því að
Norðmenn eigi að ganga í samband-
ið. Finnar og Svíar munu fá aðgang
að fiskimiðum með svipuðum hætti
og kveðið er á um í aðgöngusamning-
um Spánar og Portúgals. Þessi sér-
stöku ákvæði falla úr gildi um leið
og fyrirkomulag Spánar og Portúg-
als verður lagað að hinu almenna
fyrirkomulagi ESB.
Ákvörðun léyfilegrar heildarveiði
og kvóta aðildarríkja, bæði nýrra og
gamalla, tekur mið af því jafnvægi
sem nkir þegar samningar voru gerð-
ir. Á þeirn grunni verður deilt út
veiðiheimildum og teknar til viðmið-
unar veiðar á áiunum 1989 til 1993.
Varðandi Svíþjóð verður einnig tekið
tillit til samninga milli Svíþjóðar og
EB 1978 varðandi Skagerrak og
Kattegat og ríkjandi samkomulagi
um Eystrasalt.
BAÐSLOPPAR fyrir stráka og
stelpur. Verð frá kr. 2.600,-
ÖLL HELSTU
GREIÐSLUKJÖR:
VISA
WBKKBm
malAin
Glæsilegur PACINO
sófi og svefnsófi
á ótrúlega lágu verði!
Á stóru myndinni má sjá
PACINO sófann (svefnsófa),
vandaðan koparlampa og
þægilega púða.
Verð:
Pacino-sófinn kr. 39.900,- stgr.
Pacino-svefnsófinn kr. 51.900,- stgr.
Koparlampinn á tilboði kr. 6.895,- stgr.
Púðar frá kr. 1.450,-.
Í3,
- SV:
habitat
VIÐSKIPTAVINIR
ATHUGIÐ!
OPIÐ VIRKA DAGA
10.00 - 18.00
OG LAUGARDAGA
10.00 - 14.00
LAUGAVEGI 13 - SÍIVll (91) 625870
Tilboð á TOTI leirlampa
á kr. 5.565,-
Nýtt greiðslukortatímabil er hafið!
ESB bannar síldveiðar til annars
en manneldis. í samningunum var
veittur þriggja ára aðlögunartími og
vegna veiða í bræðslu. Finnar munu
halda óbreyttum síldarkvóta í Eyst-
rasalti og fá þeir og Svíar að veiða
síld í Eystrasalti, til annars en mann-
eldis, um þriggja ára skeið, verða
veiðarnar þá endurskoðaðar. Að
sama tíma liðnum verða brislings-
veiðar Svía einnig endurskoðaðar.
Svíar verða að láta af að selja niður-
soðinn brisling sem sardínur og finna
framleiðslunni annað nafn.
Norðurlöndin leggja af
mörkum
Framlög aðildarríkjanna til ESB
byggjast á fjórum liðum, til dæmis
má taka Svía. Af söluskatti rennur
1,4% til ESB. Allar tollatekjur sem
innheimtar eru við ytri tollmörk Evr-
ópusambandsins, það er vegna inn-
flutnings frá löndum utan ESB, fara
til Brussel. Tollar af landbúnaðarvör-
um sem fluttar eru frá þriðja landi
og gjald af offramleiðslu landbúnað-
arafurða rennur í sjóði ESB. Einnig
er greitt ákveðið hlutfall af þjóðar-
framleiðslu til ESB.
Tekjur af virðisaukaskatti nema
umTielmingi af tekjum ESB, en toll-
ar og gjald af landbúnaðarfram-
leiðslu annars vegar og þjóðarfram-
leiðslugjaldið hins vegar nema hvort
sínum fjórðungnum af tekjum.
Endurgreiðslur ESB til aðildar-
landanna eru einkum í formi styrkja
til landbúnaðar og byggðastyrkja,
framlaga til rannsókna og atvinnu-
uppbyggingar. Framlög til ESB
skerða tekjur ríkissjóðanna og þeir
fá ekki endurgreiðslurnar heldur
renna þær fyrst og fremst til bænda,
atvinnulífsins og rannsóknastofnana.
Reiknað er með að þegar dæmið
verður gert upp leggi Norðurlöndin
þijú meiri fjánnuni til ESB en þau
þiggja. Ekki er að marka framlögin
fyrstu árin meðan verið er að greiða
„inntökugjaldið". Frá 1997 er þannig
talið að Svíar leggi árlega milli 6 og
7 milljarða sænskra króna til ESB,
(um 55 til 65 milljarða ísl. króna).
AFRICA og CAMP leikstjóra-
stólarnir eru komnir aftur! Africa
kr. 3.400,- og Camp kr. 2.600,-
MYNDA-
RAMMAR utan
um fermingar-
myndirnar.
habitat
HtlSGÖON EINGÖNOU
ÚR RÆKTUDUM SKÓQI!
RÚMTEPPI í fjölmörgum litum
og stærðum. Verð frá kr. 2.900,-
SÆNGURVERASETT og
SÆNGUR í miklu úrvali.
HABITAT ÍSLANP - ENGLAND - FRAKKl AND SPÁNN - HOLLAND - BELCÍÍA - MARTINIQUE - SINGAPORE - BANDARÍKIN