Morgunblaðið - 27.03.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MARZ 1994
17
'sm
Quality Mln s Wear
Quality Men's Wear
íflestum bestu herrafatadeildum landsins.
—þegar verð oggceði sameinast
A '’j.'lftin- '. "... 4 'vr > i* k ÍSÍlfii.h i jtf ♦it'&'W.Íi itíti Kvft S \WteA\ 1\ i i'Ví vlí ' \> \\ » v rf i 'i i ^ \«-h » > *• J » Lti n 5j»' *•„ t.uL
Hrafnkell
leiðír listann
Eskifirði.
HRAFNKELL A. Jónsson, for-
maður Verkalýðsfélagsins Ar-
vakurs, er efsti maður á lista
Sjálfstæðisflokksins Eskifirði
við bæjarstjórnarkosningarnar
í vor. Skipan fjögurra efstu
sæta listans er í samræmi við
niðurstöðu prófkjörs flokksins
á dögunum.
Andrés Elísson, rafíðnfræðing-
ur, skipar annað sæti listans, Skúli
Sigurðsson verkstjóri það þriðja
og Friðrik Þoi’valdsson kennari
það fjórða. í prófkjörinu varð
Katrín Gísladóttir í fimmta sæti,
en hún gaf ekki kost á sér á list-
ann og við það færðust næstu
menn upp.
Listinn er að öðru leyti þannig
skipaður: Árni Helgason forstöðu-
maður er í 5. sæti, Benedikt Jó-
hannsson yfirverkstjóri í 6. sæti,
Jóna Ingvarsdóttir húsmóðir í 7.
sæti, Elínborg Þorvaldsdóttir
skrifstofumaður í 8. sæti, Erna
Nielsen kaupmaður í 9. sæti,
Haukur Jónsson verkstjóri í 10.
sæti, Pétur H. Georgsson verslun-
armaður í 11. sæti, Berglind Ing-
varsdóttir nemi í 12. sæti, Hansína
Halldórsdóttir starfsstúlka í 13.
sæti og Guðmundur Auðbjörnsson
málarameistari í 14. sæti.
Benedikt.
-----» ♦ ♦------
■ UPPLÝSINGA- ogmenning-
armiðstöð nýbúa að Faxafeni
12 bíður alla velkomna mánudag-
inn 28. mars kl. 17-19 og 20-22.
Þetta mánudagskvöld verða máluð
1000 egg. Þessi eggjamálun er lið-
ur í undirbúningi fyrir eggjaleit í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
2. apríl nk. Það er félag nýrra
íslendinga (SONI), Upplýsinga-
og menningarmiðstöð nýbúa
ásamt Fjölskyldu- og húsdýra-
garðinum sem standa að þessum
páskaleik.
■ FRÆÐSL UKVÖLD á vegum
Iljónaklúbbs Laugarneskirkju
verður haldið mánudaginn 28.
mars í Laugarnesskólanum.
Grétar Sigurbergsson, geðlæknir
fjallar um efnið: Geðræn vandamál
í hjónabandi. Gefínn verður kostur
á fyrirspurnum. Boðið verður upp
á kaffiveitingar en klúbbfélagar
koma sjálfir með kaffibrauðið.
I fótspor Krists
í Háteigskirkju
Óþarfi að sækja ....yfir lækinn
EFNT verður til dagskrár í
Háteigskirkju mánudags-,
þriðjudags- og miðvikudags-
kvöld í dymbilviku um efni
tengt föstunni.
Mánudagskvöldið 28. mars, kl.
20.30, verður fjallað um viðhorf
kristinnar trúar til þjáningarinnar
í lífi annarra. Ræðumenn verða
dr. Sigurbjörn Einarsson biskup
og sr. Sigurður Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Hins íslenska biblíu-
félags.
Þriðjudagskvöldið 29. mars, kl.
20.30, verður fjallað um Hallgrím
Pétursson og Passíusálmana.
Ræðumaður verður Margrét Egg-
ertsdóttir cand.mag. og lesari Þor-
leifur Hauksson cand. mag.
Miðvikudagskvöldið 30. mars,
kl. 20.30 verður efnið Ný íslensk
trúarljóð, í umsjón dr. Njarðar P.
Njarðvík prófessors.
Á kirkjukvöldunum verður flutt
tónlist úr sálumessum eftir G.
Verdi og A. Lloyd-Webber, úr
messu eftir Duruflé, Ave Verum
Corpus eftir Mozart, úr óratoríu
eftir Saint Saéns, úr Passíusálm-
um og forleikir eftir J.S. Bach.
Flytjendur verða Ari Lárusson, 12
ára sópran, Þórunn Guðmunds-
dóttir, sópran, Þuríður Baxter,
mezzósópran og Sigurður Sigur-
jónsson, baritón, ásamt kór Há-
teigskirkju. Vera Gulazsiova, org-
anisti Óháða safnaðarins leikur á
orgel og sembal ásamt Pavel
Manasek, organista Háteigs-
kirkju, sem stjórnar flutningi tón-
listarinnar.
Fólk er hvatt til að gefa sér tíma
í kyrruviku og hugleiða innihald
og þýðingu píslarsögunnar og boð-
Úr Morgunblaðinu
Sumar Melkavörur
eru ódýrari hérlendis
Sænski MELKA-herrafatnaður
hefur verið á markaði hér í ald-
arfjórðung og í verðkönnun sem
Magnús Erlendsson, umboðs-
maður Melka lét gera nýlega á
sams konar vörum þess hér, í
Kaupmannahöfn, Amsterdam
og London kom i ljós að verð
var í öllum tilfellum lægst hér.
í Dar.mörku var verð athugað
í Magasin de Nord. Úlpa af tegund
220 kostaði 1.299 DKR eða
13.670 þar. Hjá Hagkaup í Kringl-
unni kostar sama úlpa 11.895 kr.
og munar 1.775 kr. Melka-peysa,
tegund 600, kostaði í Selfridges
við Oxfordstræti í London 59,95
pund eða 6.365 kr. Sama peysa
kostar hér 5.400 kr. Melka-skyrt-
ur kostuðu að jafnaðarverði
109,40 gyllini í Byerkorf í Amster-
dam eða 4.100 kr. Hérer jafnaðar-
verð á MELKA-skyrtum 3.800 kr.
Ástæðan mun vera að merkja-
vara erlendis er oft og einatt með
mun hærri álagningu en hér og
gilti það um fleiri merki en Melka.
Ódýrari á íslandi
í verðkönnun sem gerð var í
Englandi, Danmörku og Hollandi
kom í ljós að vandaði vinsæli
Melka herrafatnaðurinn er í öllum
tilfellum ódýrari í verslunum
hérlendis.
Dr. Sigurbjörn Einarsson
skapar föstunnar og ganga með
mönnum kynslóðanna og sam-
tíðarinnar í fótspor Krists.
STYRKilR TIL
TÓNLISTARNÁMS
Minningarsjóður Lindar hf. um Jean Pierre Jacquillat
mun á þessu ári veita tónlistarfólki styrk til
framhaldsnáms erlendis á næsta skólaári, 1994-95.
Einn styrkur verður veittur að upphæð kr. 500.000
Umsóknir, með upplýsingum um námsferil og
framtíðaráform, sendist fyrir 27. maí nk. til
forráðamanns sjóðsins, „ , , _
Erlendar Einarssonar,
Selvogsgrunni 27,
104 Reykjavík.
Tónlistarfólk, sem hyggur á nám í Frakklandi, kemur að
öðru jöfnu frekar til greina, en slíkt er þó ekki skilyrði.