Morgunblaðið - 27.03.1994, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MARZ 1994
Pólveijum opnast áður
óþekktir möguleikar
MEÐ samkomulagi við lána-
drottna sína 10. mars sl., við Lund-
únaklúbbinn svonefnda, opnaðist
Pólverjum að nýju aðgangur að
alþjóðlegum peningamarkaði.
Með því hefur verið rutt úr vegi
helstu hugsanlegu hindruninni
fyrir aukinni hagsæld í Póllandi,
stærsta hagkerfi Mið-Evrópu og
ríki sem er einkar vel í sveit sett
varðandi viðskipti bæði til austurs
og vesturs. Er jafnvel talið að
samningarnir eigi eftir að marka
vatnaskil í efnahagslegu tiiliti þar
sem þeir eru taldir kunna að leiða
til mikils uppgangs í landinu, ekki
síst vegna mjög vaxandi áhuga
vestrænna fjárfesta á að ávaxta
fé sitt í Evrópu austanverðri.
Pólveijar skulduðu bönkum sem
aðild eiga að Lundúnaklúbbnum 13,2
milljarða dollara, jafnvirði 950 millj-
arða króna. Með samkomulaginu við
bankana tókst þeim hins vegar að
fá 42,5% skuldanna felldar niður.
Því sem eftir stendur var skuld-
breytt og fá Pólverjar 30 ár til að
borga eftirstöðvamar upp. Forsenda
fyrir samkomulaginu var að pólska
þingið hafði skömmu áður samþykkt
ný fjárlög sem einkennast af spam-
aði í opinberum rekstri og aðhaldi á
sviði ríkisútgjalda. Alþjóðagjaldeyr-
issjóðurinn (IMF) átti hlut að máli
og lagði blessun sína yfir fjárlögin.
Að þeim samþykktum gat sjóðurinn
látið verða af seinni hluta 50% niður-
fellingar skulda Pólveija við erlend
ríki, Parísarklúbbinn svonefnda, sem
samkomulag náðist um í apríl 1991.
Þessar skuldið hljóðuðu upp á 33
milljarða dollara, jafnvirði 2.376
milljarða króna.
Nýtt samgöngukerfi til að
endurnýja undirstöður
efnahagslífsins
Ágæti samkomulags Pólveija við
lánadrottna sína, Lundúna- og París-
arklúbbana, liggur í þeim möguleik-
um sem þessi áfangi opnar Pólveijum
til þess að fjármagna nýtt sam-
göngukerfi sem er forsenda þess að
varanlegur hagvöxtur geti orðið að
veruleika í landinu.
í undirbúningi er gerð hraðbrauta-
kerfis frá austri til vesturs og norðri
til suðurs í Póllandi. Jafnframt verða
endurnýjaðar járnbrautalínur sem
liggja um landið frá austri til vest-
urs og tengja Berlín og Moskvu.
Sömuleiðis verður úreltu fjarskipta-
kerfí landsins umbylt svo það geti
mætt kröfum tímans. Flugfélagið
Lot hefur þegar orðið sér úti um
vestrænar farþegaþotur í stað úr sér
genginna sovéskra flugvéla.
Það er hvorki á
færi pólska ríkisins
eða þarlendra
banka, sem flestir
hveijir gangast um
þessar mundir
undir endurfjár-
mögnun og jafnvel
samruna, að íjármagna þessi við-
fangsefni, hvorki eitt þeirra sér eða
öll saman. Og það eru fleiri verkefni
sem bíða Pólveija. í frumvinnslu og
þungaiðnaði er notast við úreltan
tækjabúnað. Gífurlegra fjárfestinga
er þörf til þess að færa kola- og stál-
vinnsluna og ann-
an þungaiðnað
nær nútímanum,
bæði til þess að
draga úr mengun
og til þess að fyr-
irtæki, sem áður
bjuggu við mið-
stýringarhagkerfi frá tímum komm-
únista, geti aðlagast markaðsbúskap
með eðlilegum hætti.
Áætlað er að 3,5 milljarða dollara
þurfi til að íjármagna smíði 700 kíló-
metra langrar gasleiðslu sem ætlun-
in er að verði hluti af afkastamikilli
leiðslu sem fyrirhugað er að leggja
frá Jamalskaga á norðurströnd Sí-
beríu til Þýskalands og annarra ESB-
ríkja.
Líklegt þykir að fyrirtæki sem
fjárfesta í viðeigandi framleiðslu-
starfsemi í Póllandi njóti forgangs
þegar ráðist verður í framkvæmdir
við framangreind verkefni. Stjórn-
völd hafa til að mynda sett það sem
skilyrði fyrir aðild að endurnýjun
ijarskiptakerfisins að viðkomandi
aðilar hafi fjárfest í skyldri starfsemi
í landinu.
Snara skrifræðisins
Erlendar Ijárfestingar í Póllandi í
fyrra námu 600 milljónum dollara
eða talsvert minna en í grannríkjun-
um. Ekki hefur slæmri skuldastöðu
verið einni um að kenna. Skrifræði
hefur staðið í vegi fyrir íjárfestingum
og kæft marga tilraunina, að sögn
vestrænna bankamanna. Legið hefur
í loftinu að erlendir fjárfestar myndu
streyma til Póllands og nú þykja lík-
ur á flæði erlends ijármagns þangað
hafa stóraukist.
Þó fjárfestingabylgjan sem búist
hefur verið við hafi enn ekki skollið
á hefur mikill þróttur verið í pólsku
efnahagslífi síðustu misseri. Hag-
vöxtur nam 4% í fyrra og gert er
ráð fyrir 5% aukningu landsfram-
leiðslunnar á þessu ári. Markaðsbú-
skapur sem hafinn var í landinu,
fyrst gömlu kommúnistaríkjanna í
Áustur-Evrópu, í janúar 1990 er far-
inn að skila árangri. Pólland er fyrst
gömlu austantjaldsríkjanna til að
rísa úr rústum þess hagkerfis sem
hrundi af alvöru eftir fall Berlínarm-
úrsins.
Breytingarnar sem átt hafa sér
stað hafa að sjálfsögðu verið sárs-
aukafullar, a.m.k. þegar til skamms
tíma er litið. Opinberar niðurgreiðsl-
ur til atvinnustarfsemi hafa verið
afnumdar, gjaldmiðillinn zloty er
orðinn gjaldgengur á alþjóðamarkaði
og því mun verðminni en á tímum
opinbers falsgengis og viðskipti við
austantjaldsríkin hrundu við dauða
Comecon, viðskiptabandalags
kommúnistaríkj anna.
BAKSVIÐ
Eftir Ágúst Ásgeirsson
auglýsingor
Til sölu
vinsaelu, þýsku bréfin Joker 88.
Upplýsingar í síma 91-75883.
Aðstoða við f rágang og sendingu.
Til styrktar starfi
Gunnars Guðlaugssonar,
Hjallavegi 33, Reykjavík
Hópur fólks sem notið hefur
hjálpar Gunnars Guðlaugssonar
vill vekja athygli á að hafin er
fjársöfnun tii styrktar starfi hans,
svo að honum sé gert kleift að
starfa áfram hér á landi. Þeir
sem vilja leggja þessu málefni
lið er góðfúslega bent á reikning
nr. 110630, bankanr. 0301,
Búnaðarbanka íslands, Austur-
stræti 5, Reykjavík.
I.O.O.F. 10 = 1743288 = Dn.
□ HELGAFELL 5994032819 VI
2
□ MÍMIR 5994032819 I 1 Frl.
□ GIMLI 5994032819 III = 1
I.O.O.F. 3 = 1743288 = SP.
Ungt fólk
með hlutverk
SgTgS YWAM - ísland
Samkoma í Breiðholtskirkju í
kvöld kl. 20.30. Halldóra Ólafs-
dóttir prédikar. „Þar sem andi
drottins er, þar er frelsi".
Allir hjartanlega velkomnir.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Barnablessun og niðurdýfingar-
skírn. Fíladelffukórinn syngur
undir stjórn Óskars Einarssonar.
Barnagæsla og barnasamkoma
á sama tíma. Allir hjartanlega
velkomnir.
FERÐAFELAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Ferðir Ferðafélags íslands
um helgina:
Sunnudaginn 27. mars
verða þessar ferðir:
1. Kl. 10.30: Bláfjöll—Kleifar-
vatn, skfðaganga. Gönguleiðin
frá Bláfjöllum að Kleifarvatni
hallar til suðurs. Gangan tekur
um 5 klst. og er kjörin æfing
fyrir skíðaferðir F.í. um páskana.
2. Kl. 13.00: Langahlíð-Vatns-
skarð, skfðaganga. Ekið um Blá-
fjallaveg vestari og gengið með-
fram Lönguhlíð í Vatnsskarð.
Verð kr. 1.100,-
3. Kl. 13.00 Stórstraumsfjöru-
ferð í Straumsvík. Þægileg ferð
fyrir fólk á öllum aldri. Straums-
vík er rétt sunnan við Hafnar-
fjörð, einkar sérstæð náttúru-
með slnu fjölbreytta lífi.
Verð kr. 800.
Brottför í ferðirnar frá Umferðar-
miðstöðinni, austanmegin og
Mörkinni 6. Frítt fyrir börn í fylgd
fullorðinna.
Ferðafélag fslands.
VEGURINN
Vsgf y Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Fjölskyldusamvera kl. 11.00.
Eitthvað við allra hæfi.
Almenn samkoma kl. 20.00.
Allir velkomnir.
Munið biblíulestur sr. Halldórs
S. Gröndal miðvikudag kl.
18.00. Þeir eru öllum opnir.
„Þegar þér leitið mín af öiiu
hjarta, vil ég láta yður finna
mig - segir Drottinn - “
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
l dag kl. 11.00 Helgunarsam-
koma með ungbarnablessun.
Kapt. Anna María og Harold
Reinholdtsen syngja og tala.
Kl. 20.00 Hjálpræðissamkoma.
Kapt. Anna María og Harold
Reinholtdsen syngja og tala.
Major Daníel Óskarsson stjórnar.
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í dag kl. 16. Fjöl-
breyttur söngur. Barnagæsla.
Samhjáiparvinir vitna um
reynslu sína af trú og kórinn
tekur lagið. Kaffi að lokinni sam-
komu. Allir velkomnir.
Dagskrá Samhjálpar
um páskana verður •
sem hér segir:
Föstudagurinn lagi:
Almenn samkoma kl. 16.00.
Laugardagur 2. aprfl:
Opið hús kl. 14-17.
Páskadagur:
Hátíðarsamkoma kl. 16.00.
Sjá nánar auglýst á skírdag.
Samhjálp.
Orð lífsins,
Grensásvegi8
Almenn samkoma og sunnu-
dagaskóli kl. 11.00. Sten Nilsson
prédikar. Allir hjartanlega vel-
komnir! Sjónvarpsútsending á
OMEGA kl. 16.30.
Atulóirfcfeú 2 . Kóptn'oaur
Almenn samkoma í dag kl.
16.30.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
Mánudagur 28. mars kl. 20.30:
Félagsfundur
í Mörkinni 6 (risi)
Skipulagsmál
Fjallabakssvæðisins
Gísli Gíslason, landslagsarki-
tekt, kynnir stefnumörkun í
byggingar- og skipulagsmálum
Fjallabaksvæðisins 1993-2003.
Áhugavert efni fyrir allt ferða-
fólk. Frjálsar umræður að erindi
loknu. Heitt á könnunni.
Ferðafélag íslands.
SÍK, KFUM/KFUK, KSH
Háaleitisbraut 58-60.
Pálmasunnudagur
Samkoma í Kristniboðssalnum í
kvöld kl. 20.00. Helgi Elíasson
hefur upphafsorð en prédikun
heldur Hrönn Sigurðardótir.
Nýr framkmvæmdastjóri KFUM
og KFUK boðinn velkominn til
starfa.
Þú ert hjartanlega velkomin(n) á
samkomuna.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Páskaferðir
Ferðafélagsins:
1. 30/3-4/4 kl. 9.00: Kjölur,
skföagönguferð. Gengið á milli
sæluhúsa á Kili og lýkur ferðinni
á 6. degi í Haukadal.
2. 31/3-4/4 kl. 9.00: Land-
mannalaugar, skfðagönguferö,
fimm eða þrír dagar. Ekið að
Sigöldu og gengið þaðan á skíð-
um í Laugar. Jeppar flytja farang-
ur. Samhliða þessari ferð er
einnig gönguferð á skfðum um
„Laugaveginn". FÍmm daga
ferð - aðeins 10 komast með.
3. 31/3-4/4 kl. 9.00: Miklafell-
Síðujökull-Lakagfgar í sam-
vinnu við heimamenn á Klaustri.
Á skíðum að Miklafelli, Síðujökli
og Lakagígum. Gist í skála og
séð verður um flutning á far-
angri á milli skála.
4. 31/3-2/4 (3 dagar): Snæ-
fellsnes-Snæfellsjökull. Geng-
ið á Snæfellsjökul, 7-8 klst.
ganga, einnig verða skoðunar-
ferðir á láglendi. Gist á Lýsuhóli
í Staðársveit.
5. 2/4-4/4 kl. 9.00: Þórsmörk.
Gist í Skagfjörðsskála/Langadal.
Tilvalin fjölskylduferð. Göngu-
ferðir um Mörkina.
Nánari upplýsingar og farmiða-
sala á skrifst. í Mörkinni 6.
Ferðafélag íslands.
UTIVIST
Hallveigarstíg l • simi 614330
Dagsferð sunnud. 27. mars
Kl. 10.30: Afmælisganga á Keili.
Tunglskinsganga 28. mars
Kl. 20.00: Kjalarnestangi.
Rómantfsk ganga á fullu tungli.
Kveikt verður fjörubál.
Verð kr. 700/800.
Dagsferð á skfrdag 31. mars
Kl. 10.30 Selvogur-Þorlákshöfn.
Skemmtileg ganga með strönd-
inni, um 18 km löng.
Dagsferð föstudaginn langa
Kl. 10.30 söguferð f Reykholt.
Brottför í dagsferðirnarer frá
BSÍ, bensínsölu, frítt fyrir börn
15 ára og yngri. Miðar við rútu.
Lengri ferðir um páskana
31. mars-4. apríl:
Sigalda-Landmannalaugar-
Básar. Skíðagönguferð, örfá
sæti laus.
Esjufjöll. Skíðagönguferð, full-
bókað er í ferðina.
1.-3. aprfl: Básar við Þórsmörk.
Gönguferðir fyrir alla fjölskyld-
una.
Nánari uppl. og miðasala á skrif-
stofu Útivistar.
Útivist.