Morgunblaðið - 27.03.1994, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 27. MARZ 1994
AKSTURSIÞROTTIR / FORMULA 1 KAPPAKSTUR
Sirkusinn
aftur við
rásmarkið
SIRKUSINN fer af stað í dag, sunnudag.
Hvaða sirkus? Jú, sá dýrasti og tækni-
væddasti, Formula 1 kappakstursheimur-
inn í öllu sfnu veldi. Þetta er samansafn
af keppendum og keppnisliðum, sem
ferðast milli sautján landa á hverju keppn-
istímabili, með fagurskreytta og tækni-
vædda vélfáka. Leikurinn snýst um að ná
árangri og hver keppni dregur að sér 200
milljónir áhorfenda f sjónvarpi, þannig að
það eru miklir peningar f auglýsingum
kringum þennan sirkus, sem margir vilja
svo kalla, þó trúðar, börn og dýr séu ekki
í aðalhlutverki.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Nýji Wiiliams Renault Ayrton Senna hefur reynst hraðskreiður á æfingum, þrátt fyrir að flókinn tækjabúnaður frá fyrra ári sé
nú bannaður. Williams bíllinn náði 320 km hraða á Estroil kappakstursbrautinni þegar Senna fór prufuhringi á honum.
Gunnlaugur
Rögnvaldsson
skrifar
Heimsmeistaratitill ökumanna
og bílahönnuða er í húfi ár
hvert og hundruð milljóna í verð-
launafé, og enn
hærri fjárhæðir í
auglýsingafé til
handa keppnisliðun-
um. Vegna reglu-
breytinga er búist við jafnari keppni
en síðustu ár, þar sem ríkustu liðin
gátu beitt aliskyns framúrstefnu-
tækni um borð í bílum sínum. Ferr-
ari, Williams og McLaren notuðu
öll flókin tölvukerfi til að stýra út-
búnaði bílanna á margan hátt á
meðan þeir voru á ferð, fjöðrun,
dempurum, virkni vélar og fleiri
þáttum, þannig að ökumaður þurfti
lítið annað að gera en stýra bílnum
af kostgæfni. Þessi tölvubúnaður
hefur nú verið bannaður, þannig
að uppstilling bílsins fyrir keppni
er orðin lykilatriði til að ná árangri.
Því er mikilvægt fyrir liðin að hafa
reynda ökumenn um borð, sem hafa
vit á því hvernig á að stilla fjöðrun,
bremsur, vindskeiðina, og afstöðu
þeirra þátta sem ráða aksturseigin-
leikum bílanna dagana þijá, sem
liðin fá fyrir keppni til undirbúnings
á hverri braut.
6 sekúndur að skipta
Það er ekki aðeins að flókin tækni
hefur verið bönnuð, heldur mega
liðin nú bæta eldsneyti á bílana
hvenær sem er i keppni, sem ekki
hefur mátt í mörg ár. Af þeim sök-
um þurftu liðin að hanna vélar sem
skiluðu góðri nýtingu eldsneytis
miðað við 300 lítra tank. Nú geta
liðin notað aflmeiri vélar og bensín-
þyrstari, en tapa aftur á móti tíma
í hvert skipti sem keppnisbíll þarf
að koma inn á viðgerðasvæðið til
—óið bæta eldsneyti á tankinn. Um
leið og slíkt er gert, skipta liðin um
dekkin fjögur. Líklegt er að þetta
tvennt taki um 10 sekúndur, en
rúmar 6 sekúndur tekur að skipta
um dekkin íjögur. Áfylling elds-
neytis þykir nokkuð áhættusöm og
var af þeim sökum bönnuð fyrir
nokkrum árum, en er nú leyfð aftur
til að skapa spennu fyrir áhorfend-
ur, eins og reglubreytingarnar varð-
andi tæknibúnaðinn aflagða.
Áhorfendur á hverri keppni eru
um tvö hundruð þúsund, eftir því
hvar keppnin fer fram. Á Silver-
stóne í Englandi kostar aðgöngu-
miði að helstu svæðunum um tíu
þúsund krónur, en hægt er að kaupa
miða á áhorfendapalla við brautina,
í stúku við rásmarkið, inn á við-
gerðasvæðið og að tjaldabaki, sem
eru dýrustu svæðin og takmörkuð
við ákveðna daga. Að tjaldabaki
þyrpast áhorfendur að stjörnunum
sírium, en vinsælustu kapparnir í
dag eru Ayrton Senna, Michael
Schumacher og Damon Hill. Bret-
inn Nigel Mansell var sannkölluð
stjarna í sínu heimalandi, en keppir
nú í Indy kappakstri í Bandaríkjun-
um, þar sem hann varð meistari í
fýrra á fyrsta ári, heimamönnum
til sárrar gremju. Mikill metingur
er á milli aðstandenda Formula 1
og Indy kappaksturs, en síðar-
nefndu greininni hefur vaxið fiskur
um hrygg, ekki síst með tilkomu
Mansells auk annarra fyrrum Form-
ula 1 ökumanna. í breska kapp-
akstrinum í fyrra minnkaði áhorf-
endasókn um 30%, þar sem Mans-
ell var ekki á meðal keppenda. Hill
hefur tekið við hlutverki Mansells
sem breska stjarnan, en hann ók
Williams í fyrra og varð þriðji til
heimsmeistara, á eftir Prost og
Senna.
Óþekkt Senna ekki lengur liðin
Þetta þríeyki ásamt öðrum topp-
ökumönnum frá síðasta ári munu
þó þurfa að hafa sig alla við, því
bílarnir eru orðnir jafnari og fátæk-
ari liðin hugsa gott til glóðarinnar.
Frakkinn Alain Prost varð heims-
meistari í fyrra á Williams, en ákvað
að draga sig í hlé. Williams réð því
Senna til sín fyrir metfé, talað er
um meira en 20 milljóna dollara
árslaun auk auglýsingasamninga.
Hjá Ferrari ráða Jean Alesi og
Gerhard Berger ríkjum, en fyrir-
tækið ítalska hefur smíðað glænýj-
an bíl undir stjórn hönnuðarins John
Barnard, sem meðal annars hefur
unnið fyrir McLaren. Þjóðveijinn
Schumacher er á sínu þriðja ári í
Formula 1 kappakstri og brosmildi
hans og jákvæðni hefur unnið hon-
um fylgi um allan heim. Fyrir utan
það að aka snilldarlega oft og tíðum
er hann fulltrúi heilbrigðrar og já-
kvæðrar hugsunar, auglýsir ósjald-
an einhveijar heilsuvörur í sjónvarpi
og er vinsæll sem slíkur. Misjafnt
orð fer af mönnum og Senna er
kannski hvað umtalaðastur fyrir að
vera oft eins og snúið roð í hunds-
kjaft, þykir stundum láta eins og
prímadonna.
Það getur verið erfiður titill að
bera að vera talinn fljótasti öku-
maður heims, eins og honum hefur
verið hampað síðustu ár. Senna og
Prost hafa eldað grátt silfur saman
síðustu ár, ekið hvorn annan útúr
brautum til að ná settu marki og
hafa látið ófögur orð falla hvor um
annan. í nýju keppnisliði er þó lík-
legt að hann láti prúðmannlega,
auglýsendur keppnisliðsins krefjast
þess einfaldlega að hann sýni lit á
brautinni og í orði.
í fyrra voru þrímenningarnir
Senna, Prost og Hill nær einráðir
á kappakstursbrautunum, en hætt
er við þvi að reglubreytingamar
muni valda breytingu á því. Æfing-
ar keppnisliða í mars á brautum
víðsvegar í Evrópu sönnuðu það að
bilið milli ríkari liðanna og þeirra
efnaminni hefur snarminnkað, sem
gleður vafalaust áhugamenn um
Formula 1 kappakstur mikið.
Fyrsta keppnin er í dag í Brasilíu
og verður fróðlegt að sjá hvort sig-
urvegarar síðasta árs verða að láta
í minni pokann fyrir minni spá-
mönnum, hvort bylting verður eður
éi. Formula 1 heiminn vantar víta-
mínsprautu. Menn telja að hún sé
nú tilbúin og reglurnar nýju hristi
upp í keppendum sem keppnisliðum
í mótum ársins.
Helstu keppendur í Formula 1:
Rásnúmer:
0 Damon Hill, Englandi,
................Williams/Renault
1 Ayrton Senna, Brasilíu,
................Williams/Renault
4 Mark Blundell, Englandi,
Tyrell/Yamaha
5 Michael Schumacher, Þýskal.,
..................Benetton/Ford
6 JJ Letho, Finnlandi,
Benetton/Ford
7 Mika Hakkinen, Finnlandi,
McLaren/Peugeot
11 Johnny Herbert, Englandi,
Lotus/Honda
12 Pedro Lamy Lotus, Portúgal,
Honda
14 Rubens Barichello, Brasilíu,
Jordan/Hart
15 Eddie Irvine, Englandi,
.....................Jordan/Hart
25 Eric Bernard, Frakklandi,
..................Ligier/Renault
27 Jean Alesi, Frakklandi,
Ferrari
28 Gerhard Berger, Austurríki,
Ferrari
29 Karl Wendlinger, Austurríki,
Sauber/Mercedes
30 Karl-Heinz Frentzen, Þýskal.,
............... Sauber/Mercedes
ttCIMW
Bk
Það er ekki mikið pláss fyrir Senna í keppnisbílnum. Taka verður stýrið úr
bílnum á meðan hann kemur sér fyrir ofan í ökumannsklefanum.
Þannig fer Formula 1 fram
Fjórum dögum fyrir hveija
keppni mæta liðin á kappaksturs-
brautina, sem keppt er á. Hvert lið
hefur marga flutningabíla til að
flytja keppnisbíla og tækjabúnað
milli staða. í flutningabílunum eru
fullkomin verkstæði og varahlutir
til taks.
Tvo fyrstu dagana nota Iiðin til
að stilla bílunum upp fyrir viðkom-
andi braut. Velja réttu gír- og drif-
hlutföll, stilla vindskeiðar bílanna
að framan og aftan, stilla vélarnar
miðað við loftslagið og prófa virkni
dekkjanna miðað við hitastig braut-
arinnar. Good Year sér flestum lið-
um fyrir dekkjum og er með þús-
undir dekkja meðferðis og sérútbúin
dekkjaverkstæði á hjólum. Formula
1 keppni fer alltaf fram á sunnu-
degi og á föstudegi fara keppendur
í fyrstu tímatöku sem ákvarðar
hvar bílar þeirra eru í rásröð í
keppninni. Á laugardegi fer loka-
tímatakan fram og það getur stund-
um reynst erfitt að ná góðum braut-
artíma, ef margir eru í brautinni í
einu. Þá gildir að vera útsjónarsam-
ur.
Klukkan 14 að staðartíma á
sunnudegi hefst kappaksturinn og
26 Formula 1 bílar fá að keppa í
hverri keppni. Yfirleitt eru eknir
um 300 km á hverri braut, 60-75
hringir, eftir því hve langar braut-
irnar eru í hveiju landi. Aksturinn
tekur yfirleitt rúma klukkustund.
Fyrir sigur eru veitt 10 stig til
heimsmeistaratitils, 8 fyrir annað
sætið, síðan 6, 5, 4, 3, 2 og 1 stig
fyrir næstu sæti á eftir. Af þeim
sautján mótum sem haldin eru á
hveiju ári gilda 11 til lokastiga,
keppendur og keppnisliðin fá stig
úr 11 bestu mótunum.
Milljarðamaðurinn
Brasilíumaðurinn Ayrton er fljót-
astur, ríkastur og hefur þótt erfiður
í umgengni. í fyrra labbaði hann
inn í viðgerðaskýli Jordans og sló
Eddie Irvine kaldan með berum
hnúum. Honum fannst ökumaður-
inn nýi hafa ekið illa í brautinni og
ekki hleypt fram úr. í nokkur ár
hefur hann þjarkað við heimsmeist-
arann Alain Prost í gegnum íjöl-
miðla og keppt af hörku við hann
í mótum. Báðir hafa keyrt hvor
annan út af viljandi til að skemma
fyrir í titilsókninni. Ayrton Senna
er blóðheitur og að sama skapi eld-
fljótur um borð í Formula 1 kapp-
akstursbíl, talinn sá fljótasti í dag.
Hefur þroskast sem ökumaður
Senna gæti í ár breytt um stíl í
nýju liði. Með nýjum húsbændum í
Williams liðinu er líklegt að hann