Morgunblaðið - 29.04.1994, Side 15

Morgunblaðið - 29.04.1994, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994 B 15 Örn Kjærnested, framkvæmdastjóri Álftáróss. í baksýn er byggingasvæðið við Skeljatanga í Mos- fellsbæ, en framkvæmdir við permaform-hverfið þar eru þegar hafnar. upphafi mikið umtal. — Það hafði bæði kosti og galla, en vegna þess hve þessi byggingaraðferð er góð, tel ég, að þetta mikla umtal hafi ein- ungis orðið til góðs, segir Örn. - Nú vita nánast allir, sem nálægt bygg- ingum koma, hvað permaform er. Fyrst héldu margir, að verið væri að innleiða lélega og ómerkilega byggingaraðferð. Nú hafa flestir sannfærzt um það gagnstæða, ekki hvað sízt kaupendur og þeir eru fyrst og síðast dómarar um, hvað gengur og hvað ekki. Framkvæmdir eru þegar hafnar af krafti í permaform-hverfinu við Skeljatanga og er nú unnið að því að steypa upp sökkla undir fyrstu íbúðirnar. — Salan hefur gengið von- um framar, enda er mikill áhugi á þessum íbúðum, segir Örn. — Nú er búið að selja 15 íbúðir af þeim 64, sem þarna verða byggðar með permaform- aðferðinni og það á rúm- um mánuði. Það er mikið um fyrir- spurnir og búið að senda út tugi teikninga og verklýsinga til fleiri hugsanlegra kaupenda. Eg geri mér því vonir um, að flestar permaform- íbúðirnar í þessu hverfi seljist í sum- ar en þó þannig, að þær verða afhent- ar smám saman fram á mitt næsta ár, eftir því sem framkvæmdum mið- ar áfram. Hverfið er unnið í alverktöku og Álftárós annast því alla gatnagerð og frágang opinna svæða. Því verki verður að sjálfsögðu að ljúka óháð því, hvemig gengur að selja íbúðirn- ar. í hveiju húsi eru hins vegar að- eins fjórar íbúðir. Það er því hægt að auka framkvæmdahraðann við þær allt eftir því, sem markaðurinn segir fyrir um. Nýjar hefðbundar íbúðir of dýrar En hver er skýringin á góðum viðbrögðum markaðarins við þessum íbúðum? — Kaupendur ráða ekki lengur við hefðbundnar, nýjar íbúðir, en ný 4ra herb. íbúð í blokk kostar nú um 8-8,5 millj. kr., segir Örn. — Hún er yfirleitt um 110-115 ferm. með sameign, en nýtanlegir fermetr- ar innan við eitt hundrað. Nýtanleg- ir fermetrar í 4ra herb. permaform- íbúðum eru einnig um 100 ferm, en þær kosta innan við 7 millj. kr. Þetta gerir gæfumuninn. Það er sameignin, sem gerir íbúð- ir í venjulegum fjölbýlishúsum svo dýrar. í permaform-húsunum er því sem nær engin sameign. Allir gangar og aðkoma að útidyrahurðum er sér. Þessi hús eru því miklu nær því að vera sérbýli en ljölbýli, enda íbúðirn: ar tiltölulega fáar í hveiju húsi. í húsunum með stærri íbúðunum eru aðeins fjórar íbúðir en átta í þeim, þar sem minni íbúðirnar eru. Þetta er kostur, sem margir meta mikils. — Þetta eru mjög aðlaðandi íbúð- ir að mörgu leyti, segir Örn. — Sval- irnar eru t. d. mjög stórar eða um 10 ferm. Þar er því góða aðstaða fyrir grill og annað af því tagi fyrir efri íbúðirnar og þar sem gengið er upp í þær, er hægt að hafa hjól og barnavagna í vari. Efri íbúðirnar hafa að þessu leyti vissa kosti fram yfir neðri íbúðimar. Neðri íbúðirnar njóta þess hins vegar, að það er hægt að ganga úr þeim beint út í garð. íbúarnir þar eru því í meiri tengslum við garðinn. Enn má nefna, að hljóðeinangrun í þessum íbúðum er mjög góð. Rann- sóknarstofnun byggingariðnaðarins hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að hljóðburður á milli þessara íbúða er með því lægsta sem þekkist og mun minni en er í hefðbundnum blokkum. Loftþéttleikinn - hefur líkar verið mældur og hann er mjög góður, en hann segir til um, hvemig einangrun reynizt í þaki. íbúar í þeim permaform-íbúðum, sem þegar er búið að taka í notkun hér, hafa tjáð mér, að hitakostnaður þar sé mjög lágur, enda ekki að ástæðulausu. Húsin eru mjög vel ein- angruð og rekstrarkostnaður þeirra því lítill. Að mínu mati verður við- haldsþörfín á þessum húsum mjög lítil vegna plastklæðningarinnar, sem er utan á þeim. En þrátt fyrir þær góðu viðtökur, sem permaform-íbúðirnar hafa feng- ið, telur Örn það af og frá að perma- form eigi eftir að verða ráðandi bygg- ingaraðferð á íslandi. — En perma- form-íbúðirnar eru góður valkostur fyrir ungt fólk, sem vill eignast eigin íbúð og að þurfa þannig ekki að fara inn í félagslega íbúðakerfið, segir hann. — Þær er líka góður valkostur fyrir eldra fólk, sem býr í stórum húsum en vill minnka við sig og eiga þannig peninga í annað á sínum efri árum. Það er ekki að ástæðulausu, að á meðal kaupenda okkar er vel efnað fólk, sem er að minnka við sig í þessu skyni. Stöðnun á ný- byggingamarkaðnum Sú spurning vaknar, hvort ekki hefði átt að innleiða þessa bygging- araðferð fyrr hér landi, úr því að markaðurinn tekur henni svo vel og raun ber vitni. — Það ríkir mikil stöð- unun og íhaldssemi á íslenzka ný- byggingamarkaðnum, segir Örn. — Jón Siguijónsson, yfirverkfræðingur hjá Rannsóknarstofnun byggingar- iðnaðarins, hefur látið svo um mælt opinberlega, að permaform sé kraft- mesta nýjungin hérlendis í áratugi til lækkunar á byggingarkostnaði. Það getur vel verið, að efnahags- ástandið í landinu sé nú þannig í dag, að það krefjist þess, að verð á nýjum íbúðum lækki og það má vel líta á þetta sem svar okkar við því. Til þessa hafa einungis verið byggðar permaform-íbúðir í Grafar- vogi og Mosfellsbæ, en að sögn Arn- ar er stefnt að því að reisa perma- form-íbúðir á fleiri stöðum á höfuð- borgarsvæðinu og ekkert því til fyrir- stöðu, að íbúðir verði byggðar með þessari aðferð úti á landsbyggðinni. — Byggingaverktökum úti á landi stendur til boða að byggja með þess- ari aðferð. Við hér gætum útvegað þeim mót og teikningar sem umboðs- menn. En þeir yrðu auðvitað að full- nægja þeim gæðakröfum, sem við setjum, þannig að þeir yrðu að sæta ströngu eftirliti af okkar hálfu. En Álftárós byggir fleira en permaform-íbúðir. Fyrirtækið hefur tryggt sér rétt á byggingu fimm svæða í Mosfellsbæ og á þeim er gert ráð fyrir 300-400 íbúðum alls, sem skulu byggðar á næstu tíu árum. Fyrir skömmu lauk fyrirtækið fram- kvæmdum við nýju sundlaugina í Árbæ, sem er mikið og glæsilegt mannvirki. Að sögn Arnar stóðust allar áætlanir þar, en kostnaðaráætl- unin var 400 millj. kr. Jafnframt byggir Álftárós í al- verktöku tvo miðbæjarkjarna, annan í Mosfellsbæ og hinn í Garðabæ. í báðum þessum kjörnum hafa bæjar- félögin keypt húsnæði undir starf- semi sína. Heildarkostnaður við þess- ar framkvæmdir er áætlaður um 1.500 millj. kr. — Þessi verkefni eru langtímaverkefni, segir Örn. — En framkvæmdir þokast vel áfram og það verður hafinn verzlunarrekstur á báðum þessum stöðum á þessu ári, enda þótt húsin verði ekki fullbú- in. Af öðrum verkefnum má nefna 20 ibúðir, sem Álftárós er að byggja við Ingólfstorg ofan á húsið Aðal- stræti 9, en gert er ráð fyrir, að þessar íbúðir verði teknar í notkun í sumar. — Ég geri ráð fyrir þvi, að hér hjá okkur muni starfa 70-80 manns í sumar og sennilega 120-150 manns, ef undirverktakar eru taldir með. Það er svipað og undanfarin sumur, seg- ir Örn Kjærnested að lokum. FAST6IGNASALA VITASTÍG 13 Lindarberg - Hf. mi ssss ^ 11 i mÆi Til sölu glæsil. parh. á tveimur hæðum, 214 fm, sem skiptist þannig: Á jarðh. er rúmg. bílsk. með góðri loft- hæð, forstofa, 3 rúmg. barnaherb., baðherb., rúmgott hol. Á efri hæð er stofa, borðst., hjónaherb., barna- herb., eldh. og baðherb. Garðstofa. Glæsil. útsýni. Tvennar svalir. Húsið selst fullb. að utan, fokh. að inn- an. Teikn. á skrifst. Verð 9,8 millj. Gunnar Gunnarsson, FA FÉLAG n FASTEIGNASALA lögg. fasteignasall, hs. 77*10. Fífusel. 4ra herb. ib. á 1. hæö 104 fm auk 28 fm bílskýli. Góö sameign. Góö lán áhv. Verö 7,9 millj. Vfðimelur. 2ja herb. íb. í kj. 46 fm. Nýtt gler og gluggar. (b. mikið endurn. Sérinng. Góö lán áhv. Álfheimar. 4ra herb. falleg íb. é 3. haeð, 100 fm Mikið end- urn. Stórar suðursv. Mögul. á garðstofu. Áhv. Byggsj. 2,4 millj. Kríuhólar. 2ja herb. ib. 46 fm á 4. hæð í lyftubiokk. Garð- skáli. Verö 4,5 millj. Efstasund. 2ja herb. glæsil. ib. á Kaplaskjólsvegur. 4ra herb. 2. hæö, ca 50 fm. íb. er öll mikið end- endaíb. 117 fm auk herb. í kj. Tvennar urn. Nýl. gleroggluggar. Góö lán óhv. svalir. Fallegt útsýni. Áhv. húsbrl. 4,6 millj. Kleppsvegur. 4ra herb. íb. ó 1. hæð, 94 fm. Góðar suðursv. Maka- skipti mögul. á stærri eign í sama hverfi. Engihjalli. 4ra-5 herb. góö íb á 2. hæð, 98 fm. Fallegt útsýni. Góð lán áhv. Makaskipti mögul. á 2ja herb. íb. Verð 6,7 millj. Leifsgata. 2ja herb. falleg íb. á 3. hæð, ca 50 fm. Mikið endum. Áhv. húsb. 3 mlllj. Verð 5,2 millj. Skúlagata — þjón- ustuíb. 2ja herb. faileg Ib. á 3. haáð, 64 fm auk bílskýlis. Fal- legar innr. Sérþvottaherb. ( fb. Fallegt útsýni. Blöndubakki. 4ra herb. íb. á 3. haáð, 116 fm, auk herb. í kj. Glæsil. útsýni. Góð samelgn. Grettisgata. 2ja herb. falleg risíb. 47 fm. Góðar innr. Parket. Góð lán áhv. Verö 4-4,2 millj. Boðagrandi. 4ra herb. falleg íb., 92 fm, auk bílskýlis. Lyfta. Flúsvörður. Gervihnsjönvarp. Fráb. útsýni. Gufubaö í sameign. Áhv. húsbróf 4,7 millj. Maka- skipti mögul. Sörlaskjól. 4ra herb. íb. á 1. hæð 103 fm auk 30 fm bílsk. Stórar suð- ursv. Góður garöur. Kleifarsel. 2ja herb. falleg ib. á 1. hæð 75 fm. Sér suður- garður. Góð verönd. Þvherb. i (b. Góð lán óhv. Verð 5.9 millj. Hraunbær. 5 herb. falleg endaíb., 138 fm, á 3. hæð. Áhv. húabr. 3,9 millj. Parket. Suðursv. bvhús í ib. laus. Vitastígur. 2jaherb.góð(b. á 2. hæð 45 fm. Góðar ínnr. Góð lán áhv. Verð 4,9 mlllj. Laus. Laugavegur. 2ja herb. íb., 35 fm. Nýtt gler og gluggar. Verð 3,5 millj. Makaskipti á góðri 3ja herb. íb. Frostafold. 5-6 herb. fb. á 3. hæð, 138 fm, t lyftuhúsi. Tvennar svalir. Parket. Bílskýli. Göð tán áhv. Makask. mögul. é raðhúsl eða elnb. í sama hverfl. Garðhús. 3Ja herb. ib. á 1. hæð 77 fm i tvibýlish. Mögul. á garðstofu. Áhv. Byggsj. 3,6 mitlj. Verð 7,5 miltj. Lindarbraut — Seltj. Fallegt efri sórh. ca 150 fm auk ca 30 fm bflsk. Tvennar svallr. Glæsil, útsýni. Góð lán áhv. Verð 11,9 mlllj. Kaplaskjólsvegur. 3ja herb. ib. á 1. hæð 78 fm. Suð- ursv. Góð sameign. Laugarásvegur. 5 herb. sérh. 126 fm auk 35 fm bilsk. Góð lán áhv. Fallegt ótsýni. Krummahólar. 6 herb. ib. á tveimur hæðum 163 fm auk bílskýlis. Glæsil. útsýni. Verð 10,9 millj. Seilugrandi. 3ja herb. ib. á 2 hæöum 87 fm. Stórar svalir. Góð lán áhv. Laugateigur. 3ja herb. fb. i kj. 75 fm i þrib. Góður garður. Verð 5,6 millj. Silungakvísl. Neðri sórh. í tvíb. á 2 hæðum. Ca 185 fm. Mögut. á tveimur íb. Góð garð- stofa. Góð lén áhv. Skarphéðinsgata. 3ja herb. íb. ó 2. hæð 51 fm. Ný eldhinnr. Góðar svalir. Verð 5,4 millj. Krummahólar. 3ja herb. íb. á 2. hæð, 90 fm auk bílskýlis. Góð lán áhv. Verð 6,5 millj. Otrateigur. Endaraðhús, 168 fm, með 28 fm bílskúr. Mög- ul. á séríb. kjallara með sérínng. Nýlegt gler og gluggar. Suður- garður. Mögulelki á makaskipt- um á minni eign. Verð 12,8 millj. Lokastígur. 3ja herb. fal- leg ib. á 3. hæð, 67 fm. Mikið endurn. ( góðu steinh. Suðursv. Leirubakki. 3ja herb. góð ib. á 1. hæð 84 fm. Góðar innr. Göð lán éhv. Verð 6,5 millj. Laugalækur. Raðhús á 3 hæðum, 206 fm, auk 24 fm bil- skúrs. Nýl. ínnr. Suðursvallr. Verð 14,5 millj. Grettisgata. 3ja herb. fal- leg ib. á 1. hæð 67 fm. Husið er mlkið endum. Góð lán áhv. Byggsj. 2,5 millj. Sérinng. Klyfjasel. Fallegt einb. 186 fm, Góðar stofur. 5-6 svefnherb. Stórar vinkilsvalir. Bflskréttur. Stóragerði. 3ja herb. falleg íb. ca 85 fm á 4. hæð auk herb. í kj. - Fallegt útsýnl. Verð 6,8 millj. Laus. Stuðlasel. Glæsll. elnbhús á einni hæð 195 fm með ínnb. bflskúr. Fallegar innr. Fallegur ræktaður garður. Makaskipti mögul. á sérh. Hraunbær. Sja herb. falleg ib. 85 fm á 2. hæð. Suðursv. Góð sameign. Nýtt gler. Vorsabær. Fallegt einb. á einni hæð 140 fm ásamt 40 fm bílsk. Falleg- ur garður. Góö lán áhv. Austurberg. 3ja herb. fal- leg ib. 78 fm auk bilsk. Suðursv. Góð lán áhv. Verð 6.6 millj. Rituhólar. Glæsii. einb. á 2 hæðum, 250 fm, auk 50 fm bilsk. Arinn bæði úti og inni. Glæsil. útsýni. Asparfell. 3ja herb. glæsil. ib. ib. 91 fm á 2. hæð. Fallegar innr. Þvottaherb. á hæðinni. Mik- ið endurn. Góð lán áhv. Verð 6,2 mlllj. Bfldshöfði. Höfum til sölu verslunar- og iðnaðarhusnæði. Verslunarhúsn. m. góðu lager- plássi og skrifstofuaðstöðu er 177 fm. Iðnaðarhúsn. m. stórum innkeyrslud. 174 fm. Einnig iðn- aðarhúsn. m. góðum Inn- keyrslud. 336 fm. Hagstætt verð. Góð lán áhv. Fellsmúli. 4ra herb. íb. á jarðh. 97 fm. Parket á gólfum. Góð lán áhv. Njálsgata. 4ra herb. Ib. 96 fm. Mikið endum. Verð 6,7 millj. Veitingastaður — miðborgin. Höfum til sölu veitinga- og kaffistofu í verslun- arkjarna I miðborinni. Mlktir mög- ul. Dalsel. 4ra-5 herb. íb. á 3. hæð 107 fm. Bilskýti 36 fm. Hús- ið er allt ný teklð að utsn. Glæsil.útsýni. Laus. Suðursv. Veitingastaður. Höfum til sölu veitingastað á góðum stað f verslunarsamstæði. Góð taeki. Rumg. sslur. Uppl. é skrifst. Blönduhlíð. 4ra herb. rúmg. rísib. Stórar suöursv. ca 9 fm. Fallegt útsýni. GóÖ lán áhv. Gunnar Gunnarsson, lögg. fasteignasali, hs. 77410. FÉLAG FASTEIGNASALA FASTEIGNASALA VITASTÍG I3 3ja herb 4ra herb. og staerri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.