Morgunblaðið - 06.05.1994, Síða 5
4 C
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994
H-
V angefnir framleiða
tískufatnað fyrir Ameríkumarkað
ÞAÐ er um það bil ár síðan fyrir-
tækið Hlín hf, við Háaleitisbraut
fór að framleiða tískufatnað úr
íslensku gæruskinni fyrir Banda-
ríkjamarkað. Það er styrktarfé-
lag vangefinna í Reykjavík sem
á fyrirtækið og þar vinna við
framleiðsluna, með aðstoð
tveggja leiðbeinanda, nokkrir
vángefnir einstaklingar, sumir
hluta úr degi og aðrir allan dag-
inn. Framkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins er Brynhildur Kristjánsdótt-
ir klæðskeri.
Um það bil tvð hundruð vangefn-
ir einstaklingar eru á þremur dag-
stofnunum og einum vernduðum
vinnustað sem styrktarfélagið er
með og eru þeir á öllum aldri. Reynt
er að skipta vistmönnum niður eftir
aldri á dagheimilin.
„Við höfum þjálfað skjólstæðinga
okkar í vinnu eftir getu sem er
misjafnlega mikil og höfum reynt
að taka það fólk sem er mjög dug-
legt og útvega því vinnu úti í þjóðfé-
laginu,“ segir Magnús Kristinsson,
formaður stjórnar Hlínar. „Fyrir-
tækið Hlín var stofnað fyrir um það
bil ári en þá hafði undirbúningur
staðið yfir um tíma og hönnuður
og saumakona verið með í að und-
irbúa og þjálfa fólk. Aðaltilgangur-
inn var að reyna að fá fjölbreytni
í störf fyrir vangefna."
Magnús segir að fólkinu líki vel
að vinna við saumaskapinn, það
fínni að þetta sé ekkert föndur held-
ur alvöru vinna og það hefur verið
mjög hvetjandi og afköstin sífellt
verið að aukast.Einnig séu áform
um að gefa starfsmönnum kost á
að kaupa hlutabréf í fyrirtækinu.
„Það er hvetjandi fyrir starfsfólkið
og ekki síst fyrir þá vangefnu að
eiga þess kost að eignast hlut í sínu
fyrirtæki því það er oft mjög erfítt
fyrir vangefna að fá vinnu úti í
bæ“, segir Magnús.
Fyrirtækið á nú í viðræðum við
sænska og danska aðila um sölu á
Engifer
gegn æxlismyndun?
EF VIÐ erum það sem við
etum borgar það sig sannar-
lega að borða skynsamlega.
Japanskir vísindamenn hafa
rannsakað yfir 120 græn-
metis- og kryddjurtategund-
ir með tilliti til þess hvort
og þá hversu mikla vörn þær
gætu hugsanlega veitt gegn
krabbameini. Seyði voru
prófuð m.t.t. getu til að
hindra æxlismyndum.
Meðal þeirra tegunda, sem
höfðu hvað máttugust áhrif,
voru m.a. salatblöð, blómkál,
steinselja, engiferjurt og
avókadó. Hins vegar reyndist
engifer, sem notað er í thai-
lenska matargerð, svokallað
Languas galanga áhrifamest.
Vísindamennimir einangruðu
í því ákveðið efni, sem virtist
geta komið í veg fyrir æxlis-
vöxt skv. tilraunum, sem gerð-
ar voru á rannsóknastofu.
Þetta kemur fram í ritinu As-
iaweek. Annað afbrigði af
engifer, svokallað Zingiber
cassumunar sýndi svipaða nið-
urstöðu. Vísindamenn segja að
engifer kunni að vera lykillinn
í baráttunni við æxlismyndanir
og leggja til að menn gefi þess-
ari kryddjurt aukinn gaum.B
Morgunblaðið/Kristinn
gæruskinnsfatnaði þar. Framleiðsla
Hlínar hér hefur m.a. verið seld hjá
Rammagerðinni og íslenskum
markaði 5 Keflavík. Auk fatnaðar
úr gæru hafa starfsmenn verið að
framleiða kerrupoka og ýmsa smá-
hluti eins og gæruskó og hárbönd.
Mestur hefur áhuginn verið að
undanfömu fyrir skinnvestum sem
farið er að framleiða og viðtökur
við gærupokunum lofa góðu. Auk
"Þad er hvetj-
andi ffyrir
starfsfólkiö og
ekki síst fyrir
þó vangefnu
aö eiga þess
kost aö eign-
ast hlut í sínu
fyrirtæki því
þaö er oft
mjög erfitt
fyrir vangefna
aö fó vinnu úti
í bæ."
þess sem fyrirtækið selur í verslan-
ir þá er saumað eftir pöntunum ein-
staklinga.
„Það hefur verið erfítt að mark-
aðssetja vömna og við vildum gjam-
an komast í samband við fleiri sölu-
aðila. Við emm stolt af því að vera
að vinna úr íslensku hráefni og af
því að framleiðslan skuli sífellt vera
í þróun“, segir Magnús að lokump
grg
Eiga foreldrar að
láta systkini rífast í friði?
SYSTKYNI rífast og
við því er ósköp lítið
að gera, annað en leyfa
þeim að útkljá deilur
sínar. Þetta á við nema
rifrildi valdi því að barn-
ið hljóti líkamlegan eða
andlegan skaða. Foreldr-
ar eiga sem sagt ekki að
skipta sér af rifrildi barna
sinna.
Breski sálfræðingurinn
Meg Eastman heldur þessu
fram í bók sinni, Taming The
Dragon In Your Child, sem
nýlega kom út. Hún hefur sér-
hæft sig í fjölskylduráðgjöf og
segir óráðlegt að skipta sér af
deilum barna sinna, nema þau skaði
hvert annað líkamlega, eða tilfínn-
ingalegt jafnvægi barnsins sé í
hættu. Önnur undantekning frá
reglunni er þegar ágreiningsefnið
er stöðugt hið sama, en í slíkum
tilfellum ráðleggur hún eftirfar-
andi.
■ Varast ber að taka afstöðu
með öðru barninu og á móti hinu.
Hjálpar fólki við
að finna sitt eigið sjálf
HÚN HEFUR búið yfir andlegum hæfileikum frá þriggja ára aldri.
Hún hefur notað tímann til að undirbúa og byggja upp andlega
kennslu fyrir þá, sem eru tilbúnir að vakna til fullrar meðvitundar
um sitt andlega sjálf og nota það bæði sjálfum sér og öðrum til
framdráttar.
Maia Khan er 31 árs fráskilin
tveggja barna móðir, býr í bænum
Boulder í Colorado, er Indveiji í
föðurætt og íri í móðurætt. Hún
fullyrðir að núverandi líf sé sitt
sjötta líf sem andlegur kennari hér
á jörðu og jafnframt að formæður
hennar í sex ættliði í föðurætt hafi
haft samskonar hlutverki að gegna.
Hún segist njóta stuðnings löngu
látins indversks kennimanns, Hala
að nafni, og sé fær um að falla í
trans . Hún hefur háskólagráður í
viðskipta- og þjóðfélagsfræðum, en
segist lifa samkvæmt köllun, sem
miði að því að hjálpa fólki við að
finna sitt eigið sjálf. Hún leggur
þó fyrst og fremst áherslu
á að hún sé ekkert annað
mannvera og stundi
sem
ákveðinn
en
kennslu sína mest með
því að tala við fólk, spyrja
spuminga og segja dæmi-
sögur svo fátt eitt sé
nefnt.
Maia Khan var stödd í
fyrsta skipti hér á landi
fyrir skömmu og tók bæði
fólk í einkatíma og hélt
námskeið fyrir stærri
hópa. Hún ætlar að heim-
sækja ísland aftur í haust og hefur
■ hyggju að setja hér upp nokkurs
konar auka-aðalstöðvar, eins og
hún orðar það, fyrir Evrópubúa,
enda ekki ætlunin að vera á
faraldsfæti vítt og breytt um
heiminn. Höfuðstöðvar sínar
„The Human Spirit Found-
ation" hefur hún hinsvegar í heima-
bænum Boulder.
Orkulind
Hún segir að ísland búi yfir ótrú-
legri orku sem hún fínni úti í náttúr-
unni, í fjöllunum, vatninu, vindinum,
eldinum og jörðinni og sú mikla
orka sé jafnframt beisluð í íbúum
þessa mikilfenglega lands. Hvergi
annars staðar hafí hún fundið til
svo ríkrar orkulindar, hvorki í nátt-
úrunni né mannfólkinu. Aðalatriðið
sé það að fínna kjarnann og vinna
með hann á uppbyggilegan hátt þar
líf hvers einstaklings hafi
tilgang í upphafí. Hinir
meðfæddu eiginleikar
skipta miklu meira máli
en hinir lærðu og þar
komum við að kjarna
málsins. „Atvinna og
þjóðfélagsstaða skiptir
engu samanborið við til-
fínningarnar, sem
streyma frá hjartanu. Ég
sé það þó fyrst og fremst
í íslendingum að lífsmáti
þeirra endurspeglar ekki
þeirra eigið sjálf eins
staðfastlega og þeir
vildu.“
Maia hefur um 600 nemendur á
sínum snærum vítt og breitt um
heiminn og stundar sín störf ýmist
með heimsóknum, bréfaskiptum,
snældu- eða myndbandsupptökum.
„Ég er sjálf í sambandi við fólkið,
sem ég er með hverju sinni, og læt
Maia Khan
leggur óherslu
ó að líffið sjálft
gangi í gegn-
um hjartaó,
andlega jafnt
sem líkam-
lega.
því í té persónulega þau skilaboð,
sem eiga við hveiju sinni. Þau skila-
boð, sem ég hef fram að færa,
snúast ekki um það hvað þú gerir,
heldur hver þú ert og hluti af þessu
öllu saman er að gefa fólkinu hlut-
deild í mínu eigin lífi. Ég vil meina
að samanborið við aðra andlega
leiðtoga sé ég mjög manneskjuleg
á minn hátt enda legg ég ofurkapp
á að deila mínu lífí og minni reynslu
með því fólki, sem ég er að fást
við hveiju sinni. Ég vinn ekki eins
og félagsráðgjafí og ég er ekki
með neinar skyndilausnir. Vinna
mín byggir á allt öðrum grunni.
Trúln
Maia vill ekki láta setja sig í hóp
þeirra yfirskilvitlegu, eins og hún
orðar það, þar sem að með því sé
hún sett undir ákveðin hatt sem
ekki sé svo gott að komast undan.
„Mitt aðalmarkmið er það að kenna
fólki að lifa lífinu lifandi - vera
meðvitað um sitt andlega sjálf - í
stað þess að dansa skýjum ofar á
fölskum forsendum svo það geti
haft að leiðarljósi framvegis sál-
rænt mikilvægi lífsins. Ég tengi
saman hluti í lífi þess og minni það
síðan á hvað það er sem, býr innra
með því.“
Þegar talið berst svo loks að trú-
málum vill Maia sem minnst um
þau tala, en liggur samt sem áður
ekki á skoðun sinni. „Trú er eitt-
hvað, sem er afar persónulegt mál
hvers og eins, en ég trúi því að við
séum öll leidd áfram, hvert á sinn
hátt. Hinsvegar ef trú þýðir stofnun
eða aðgangur að lífinu sjálfu þá
er ég ekki trúuð,“ segir Maia að
lokum. ■
Jl
Þau bera bæði
ábyrgð á rifrildinu.
■ Gott er að
spyrja börnin, hvort
í sínu lagi, hvað þau
hafi gert til að leysa
úr ágreiningnum.
■ Hægt er að
hjálpa barninu að
standa á rétti sínum,
Tilfinningsveiflur eru oft
miklar hjó systkynum.
Stundum eru þau bestu
vinir í heimi og þess á
milli rífast þau eins og
hundur og köttur.
án þess að það hefni sín
á mótheijanum.
■ Það má minna
börnin á að þó þau séu
sanngjörn, er ekki víst
að aðrir séu sanngjarn-
ir við þau.
■ Foreldarar verða
að muna að börn
þurfa á viðurkenn-
ingu og örvun að
halda. Auk þess
þurfa þau stundum
að fá að vera í einr-
úmi og eiga sitt
einkalíf, eins og
fullorðnir.
■ Foreldrar
ættu að rifja upp
í huganum
hvernig þeir
bregðast sjálfir
við, þegar þeim
sinnast við ein-
hvern. ■
Lausnin
fundin fyrir
reykingafólk
Reyklausir vinnustaðir verða æ
fleiri og margir reykingamenn eru
að gefast upp á því að geta ekki
lengur púað að vild í vinnu.
Það kann að vera komin lausn á
vanda þeirra sem kjósa að halda
áfram að reykja hvar sem er þvi Belg-
inn Gabriel van der Elst hefur fundið
upp sérstakt reykingartæki.
Uppfinningamaðurinn kom með
eldrautt tækið á alþjóðlega sýningu
uppfinningamanna sem haldin var í
Genf á dögunum.
Reykvélin gerir það að verkum að
reykurinn safnast í fílter en fer ekki
út í umhverfið. ■
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994
C 5
Siggi Grétars
þjálfar aðra í að skora mörk
ALLIR nema einn stóðu á einum fæti þegar ég kom á æfingavöll
Grasshoppers i Ziirich. Sigurður Grétarsson var sá eini sem stóð í
báða fætur, með hendur fyrir aftan bak. Hann er hættur að keppa í
knattspyrnu og farinn að gefa fyrirskipanir sem þjálfari eftir 12 ár
sem atvinnuleikmaður.
2 Sigurður er 32 ára og hefði átt
■■ eftir nokkur ár sem leikmaður
Q í Sviss ef hnéð á honum hefði
“! ekki gefið sig í fýrravor. „Það
“ var erfitt í upphafí að sætta sig
Z við að ég yrði að hætta að
keppa,“ sagði hann. „Lengi vel
fór ég ekki á völlinn. En nú er
ég kominn yfir það og hef gam-
^ an af þjálfarastarfinu.“
2! Hann hefur sótt þijú af fímm
þj álfaranámskeiðum
sem svissneska knatt-
spyrnusambandið
heldur og stefnir að
því að fá full réttindi
sem þjálfari í Sviss.
Hann sótti um starf
aðstoðarþjálfara hjá
gamla liðinu sínu í
Luzern í vor og var
talinn eiga góða
möguleika á að fá það þangað til í
kom ljós að aðeins þjálfari með full
þjálfararéttindi kom til greina. Sig-
urður er því enn að leita_ að föstu
þjálfarastarfi. Hann og Ýr Gunn-
laugsdóttir, kona hans, myndu helst
vilja vera áfram í Sviss. „Okkur lang-
ar að vera lengur úti. Það yrði ekki
auðvelt að fara út aftur ef við færum
heim núna.“
Útungunarvél
„Unglingastarfið hjá Grasshopp-
ers felst fyrst og fremst í því að finna
góða stráka sem eiga framtíð fyrir
sér sem atvinnumenn,“ sagði Sigurð-
ur. „Það er eins konar útungunarvél
fyrir fyrstu deild. Það skiptir eigin-
lega meira máli að þjálfa strákana
svo vel að þeir komist áfram með
Grasshoppers en að liðinu gangi vel
í keppnum og mótum. Því fleiri sem
virðast eiga erindi í atvinnumennsku
því betra.“ Lið Sigurðar er í öðru
sæti í sínum riðli.
Grasshoppers er eitt besta fót-
boltaliðið í Sviss. Það á við fjárhags-
erfiðleika að etja eins og flest önnur
fótboltafélög og getur ekki lengur
leyft sér að kaupa of marga rándýra
fótboltakappa. Æ ríkari áhersla er
því lögð á að ala upp góða menn í
unglingastarfinu. „Það hefur lengi
tíðkast í Hollandi. Eindhoven er til
dæmis með heimavist-
arskóla þar sem nem-
endur hafa góðan tíma
til að æfa fótbolta. Við
tókum þátt í móti með
þeim um páskana og
þeir báru af. Ungl-
ingastarfið þar skilar
mörgum leikmönnum
upp í fýrstu deild og
sumir eru seldir til ít-
alíu fyrir ofíjár.“
Draumastarfið
Tveir af strákunum í 16 manna
hópi Sigurðar eru komnir með samn-
ing hjá Grasshoppers. Félagið hefur
samið við fyrirtæki fyrir þá um að
þeir fari þangað í læri og ljúki því
á þremur árum í stað tveggja svo
að þeir hiafi nægan tíma til að stunda
knattspyrnu með náminu. Einn til
tveir aðrir geta átt von um sams
konar samning. „Það þykir mikil-
vægt að strákarnir læri eitthvað
áður en þeir fara út í atvinnu-
mennsku,“ sagði Sigurður. „Þá hafa
þeir eitthvað að snúa sér að þegar
knattspyrnuferlinum lýkur.“
Sjálfur lærði Sigurður rafvirkjun
áður en hann fór til Þýskalands árið
1982 og þaðan til Grikklands og
Sviss að spila fótbolta. Hann dreymdi
strax á unglingsárunum um að verða
Það var erfitt í
upphafi að sstta
sig við að ég yröi
að hætta að
keppa
SIGURÐUR segir 15 og 16 ára strákum hjá Grasshoppers í Zurich
fyrir verkum. Þeir þjálfa fjórum sinnum í viku. Einn dag í viku gera
þeir ekkert nema æfingar.
„ Morgunblaðið/Anna Bjamadóttir
ÞJALFARINN sýnir hvernig á að hoppa rétt yfir grindur.
atvinnumaður. „Dreymir ekki alla
stráka einhvern tímann um það?“
Nú hjálpar hann strákunum „sínum“
að láta drauminn rætast. Hann tekur
starf sitt alvarlega og strákarnir
bera virðingu fyrir honum, ekki síst
vegna þess að hann var afburðaleik-
maður sjálfur. Bróðurpartinn af því
sem hann miðlar þeim lærði hann
sem leikmaður. „Þjálfaranámskeiðin
eru aðallega gagnleg til að læra
hvernig best er að stjórna, byggja
upp æfíngar og þess háttar. Hér
áður fyrr mætti ég á æfingar, keppti
og hafði ekki áhyggjur af öðru en
að standa mig vel. Nú þarf ég að
sjá til þess að allt gangi upp, eiga
við foreldra og hvetja strákana.
Þjálfarinn þarf að vinna ótrúlegt
skipulagsstarf. En ég hef gaman af
því af því að það tengist knattspyrn-
unni.“ ■
Anna Bjarnadóttir
Samþykki allra
þarf til hunda- og
kattahalds í fjölbýlishúsum
TIL AÐ mega halda hunda eða ketti í fjöleignarhúsi hefur það nú
verið bundið í landslög að samþykki þurfi að liggja fyrir allra þeirra
eigenda, sem hafa hvers kyns sameiginlegt húsrými. Auk þess hefur
það verið lögleitt að reglur um hunda- og kattahald skuli skráðar
í húsreglur fjölbýlishúsa, sé það á annað borð heimilað.
Reglur um hunda - og katta-
hald ffjölbýlishúsa eiga nú að
vera skróðar í húsreglur
Þetta er m.a. að finna í nýjum
lögum um fjöleig-narhús sem taka
munu gildi um næstu áramót. Þetta
ákvæði byggir fyrst og fremst á
því að nokkuð er um að börn og
fullorðnir hafi ofnæmi fyrir þessum
dýrum. Getur slíkt ofnæmi haft það
alvarleg áhrif að fólk geti jafnvel
þurft að flytja úr eigin íbúðarhús-
næði gangi ekki að fá skilning
sameigenda á þessu vandamáli.
Hingað til hefur ekki verið að
finna neitt í lögum eða reglugerð-
um um kattahald hér á landi og
hafa risið ýmsir túlkunarörðugleik-
ar vegna banns við slíku i húsregl-
um þó ekki sé vitað til þess að slík-
ur ágreiningur hafi nokkurn tím-
ann komið til kasta dómstóla. Aft-
ur á móti hvað viðvíkur hundahaldi
hefur verið í gildi reglugerð í
Reykjavík undanfarin fimm ár,
útgefin ' af heilbrigðiseftirliti
Reykjavíkurborgaf. Þar kemur
meðal annars fram: „Ef sótt er um
leyfí til að halda hund í fjölbýlis-
húsi skal skriflegt samþykki allra
íbúðareigenda í sama stigagangi
■fylgja umsókn. Sé um að ræða
raðhús eða parhús skal samþykki
aðliggjandi íbúða fylgja umsókn. í
fjölbýlishúsi, þar sem sér-
inngangur fylgir íbúðum,
þarf samþykki allra
íbúðaeigenda.“ ■
JI
Haítuþér hruustum með
f v * Multi Vit
MULTIVIT
NÁTTÚKULEGT
í frumskógi vitamina og bætieftia getur
verið erfitt að velja rétta glasið. Glösin með
gula miðanum tryggja að þú fáir vönduð,
náttúruleg bætiefhi, sem sett eru sarnan með tilliti
til íslenskra aðstæðna og samþykkt af lyfjanefnd.
Þegar þú tekur MULTIVIT færðu 22 valin
bætiefni í kroppinn, 12 vítamín og 11 steinefhi.
Með því að taka MULTIVIT daglega, byggir þú
líkamann upp og stuðlar að heilsu og hreysti.
Guli miðinn tryggir gæðin.
Fcesl í apótekum og beilsiihillutn
matvöruverslana.
Eilsuhúsið
Kiinglunni sími 689266 Skólavörðustíg sími 22966