Morgunblaðið - 06.05.1994, Síða 6
6 C
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994
4
Malaría í hitabelti
MALARÍUSTOFNAR eru misjafnir og misjafnlega sterkir eftir
heimshlutum, en þrífast vel í hitabeltisloftslagi. Helgi Guðbergsson
héraðslæknir í Reykjavík segir að mismunandi malaríulyf séu gefin
eftir því hvert ferðinni er heitið vegna þess að til eru stofnar sem
eru ónæmir fyrir lyfjum.
■"Malaría berst með ákveðinni
IDtegund af móskítóflugum.
13 Kvenfluga af tegundinni anop-
heles, sem sogið hefur blóð
*"*úr malaríusjúklingi, ber í sér
o sníkil sem hún skilur eftir þeg-
ar hún bítur næst. Þegar sní-
klar eru komnir í blóðrásina,
ferðast þeir til lifrarinnar og
gjj fjöiga sér hratt.
§*■ Nýtt bóluefni í augsýn
í tímaritinu Asiaweek var
'■H nýlega greint frá bóluefni sem
eykur til muna mótstöðu gegn mal-
aríu. Bóluefnið heitir SPf66 og
hefur verið í þróun í Kólumbíu frá
árinu 1988. Gerð hefur verið rann-
sókn á virkni þess og í Asiaweek
segir að 20 þúsund manns hafi tek-
ið þátt í henni. Þar segir jafnframt
að niðurstöður hafi fram að þessu
lofað góðu. Ekki hafi komið fram
merkjanlegar aukaverkanir og
bóluefnið virðist hafa skjót áhrif á
ónæmiskerfi líkamans.
Lokahnykkur rannsóknarinnar
er próf sem verið er að gera í Tanza-
níu í Afríku. Þar taka 600 böm
þátt í rannsókninni, en algengt er
að moskítóflugur bíti þau um 20
sinnum á dag. Endanlegar niður-
stöður munu liggja fyrir síðar á
þessu ári.
Meðan flugurnar stinga . . .
Nú er svo komið að margir sýkla-
stofnar era orðnir ónæmir fyrir lyfj-
um. Sumar moskítóflugur sem bera
sýkla í sér era einnig orðnar ónæm-
ar fyrir skordýraeitri. Bóluefni eða
lyf gegn malaríu koma vissulega
ekki í veg fyrir smit, því meðan
- flugumar stinga, heldur malaría
áfram að berast milli manna.
Hins vegar geta malaríutöflur og
bóluefni hjálpað líkamanum til að
vinna á einkennum sýkingarinnar,
sem oft getur dregið menn til
dauða. I Asiaweek kemur fram að
árlega sýkist hálfur miljarður
manna af malaríu á hveiju ári. Þar
af deyja um þijár miljjónir í kjölfar-
ið, aðallega börn. í rannsóknum
hefur hið nýja bóluefni fækkað veik-
indatilfellum vegna malaríu um
77%. Asiaweek hefur eftir fulltrúum
alþjóða heilbrigðisstofununarinnar
að bóluefnið verði væntanlega tekið
í almenna notkun árið 1998.
í Heimilislækninum er meðal
annars fjallað um malaríu. Þar kem-
ur t.d. fram að nokkrum dögum
eftir að maður sýkist, eyði sníklarn-
ir rauðum blóðkornum. „i flestum
tilfellum verða margir sníklar eftir
. og fjölga sér í lifrinni og hluti þeirra
losnar af og til út í blóðrásina. Þess
vegna fá sjúkiingar með ákveðin
1. stig: Hækkandi likamshiti,
skjálfti og höfuðverkur.
3. stig: Lækkandi líkamshiti og
svitakóf.
afbrigði malaríu endurtekin köst,
þar til þeir fá rétta meðferð."
Engin einkennl fyrst
Fyrstu einkenna verður yfirleitt
vart 9-30 dögum eftir bit flugunn-
ar. Einkennum er prýðilega lýst í
bókinni Where There Is No Doctor
og þar kemur fram að oftast líði
tveir til þrír dagar milli malaríu-
kasta, sem koma upp í hvert skipti
sem sníkiar sleppa út í blóðrásina.
Hvert kast stendur yfir í nokkrar
klukkustundir og má skipta því í
þijú stig.
1. stig
Fyrst fá sjúklingar kuldahroll.
Samhliða fínna þeir oft fyrir höfuð-
verk og getur skjálfti varað í 15-60
mínútur.
TIL MINNIS
KLÆÐIST hæfilega þykkum
fatnaði utan dyra eftir sólsetur.
Föt skulu vera úr ljósu efni, síðar
skálmar og langar ermar.
Á óklædda hluta líkamans skal
borinn áburður sem fælir flug-
urnar frá. Slíkan áburð má fá í
lyfjabúðum án lyfseðils. Varist
að bera mikið af honum á unga-
börn.
Soflð, ef þess er kostur, í húsa-
kynnum sem sérstaklega eru var-
in fyrir flugum. Herbergi með
loftkælingu er oftast nokkuð ör-
uggt.
Hafið skordýraeitur við höndina.
Notið mýflugnanet kringum
rúmið á nóttunni og gætið að
hvergi sé smuga sem flugur kom-
ast inn um. Fáanlegur er búnað-
ur sem má koma fyrir innan
dyra og gerður til að granda
flugum.
Lyf eru ekki einhlít.
2. stig
Líkamshiti hækkar mikið í kjöl-
farið og fer oft í 40 gráður. Slapp-
leiki verður mikill og húðin roðnar.
Stundum fá sjúklingar óráð á þessu
stigi. Líkamshiti helst yfírleitt hár
í nokkrar klukkustundir.
3. stig
Sjúklingur byijar að svitna og
líkamshiti lækkar.
Sældarlíf í hitabeltl
Anopheles-moskítóflugan er ekki
í Norður-Evrópu en hún lifir sældar-
lífi í hitabeltinu og næsta ná-
grenni. Læknar skrifa upp á malar-
íulyf fyrir ferðamenn á leið til svæða
þar sem hún er algeng. Lyfjameð-
ferð á að hefjast viku áður en lagt
er af stað í ferðalagið og henni á
að halda áfram í mánuð eftir að
ferð lýkur.
Ef ofangreind einkenni gera vart
við sig, er nauðsynlegt að leita
læknishjálpar sem allra fyrst. í
blóðprófi sést hvort malaríusýking
er til staðar og með réttri meðferð
hverfa einkennin á fáum klukkutím-
uni. Meðferð þarf þó að halda áfram
í nokkrar vikur til að koma í veg
fyrir að sjúkdómurinn taki sig upp
aftur.
í bókinni Where There Is No
Doctor gefur höfundurinn, David
Werner, nokkur ráð. í fyrsta lagi
að forðast moskítóflugur og sofa
undir laki eða moskítóneti. Ef barn
er með í för, er sérstaklega mikil-
vægt að veija svefnstað þess með
slíku neti. Síðast en ekki síst ráð-
leggur hann ferðamönnum á
áhættusvæðum að taka malaríutöfl-
ur sínar samkvæmt fyrirmælum
lækna. ■
Brynja Tomer
FERÐABLAÐIÐ International Living birtir árlega ítarlega úttekt á
því hvar í heiminum sé best/verst að búa. Tekið er tillit til margra
þátta, svo sem efnahags, uppbyggingar stjórnkerfis, menning-
ar/skólakerfis en þá er m.a. farið eftir hver er fjöldi safna og kvik-
myndahúsa, fjöldi nemenda á framhaldsskólastigi miðað við mann-
fjölda og læsi, afþreyingar, heilsugæslu, umhverfisþáttar og frelsis
og er þá átt við almenn borgararéttindi, mál og ritfrelsi o.þ.h. Upp-
lýsingar um einstaka þætti eru fengnar m.a. úr skýrslum stofnana
SÞ og tölfræðiritum. Island kemur mjög vel út úr þessari könnun
og varð í 6. sæti að stigum yfir „bestu löndin“ en alls voru 193 lönd
tekin með í þessari viðamiklu úttekt.
Bandaríkin með flest stig
Bandaríkin fengu flest stig og
síðan komu Kanada, Þýskaland,
Sviss, Svíþjóð, ísland, Lichtenstein,
Noregur, Nýja-Sjáland og Lúxem-
borg.
Bandaríkin hlutu samtals 84 stig
en ísland var með 77 stig. Svo mjótt
var á munum hjá topp-tíulöndunum.
Það liggur nokkum veginn í hlutar-
ins eðli að ísland var því hátt í flest-
um fyrmefndum þáttum.
Almenn gróska og hellbrigðl í
góðu standi hér
ísland var númer 1. í heilsu/heilsu-
gæslu, númer 8. af þeim grósku-
mestu en þar voru Sviss og Svíþjóð
efst en lægst að stigum vora Króa-
tía^ Armenía og Úganda
Island var meðal 28 landa sem
fengu fullt hús stiga fyrir frelsis-
þáttinn. Ekkert Afríkuríki komst á
þann lista og af Suður- og Mið-
Ameríkuríkjum aðeins Belize og
Costa Rica. Allmörg eyríki í Eyja-
álfu komu vel út úr þeim þætti.
ísland komst ekki í hóp efstu í
menningarþáttunum. Þar hlutu
Bandaríkin, Bretland, Ítalía og U
Kanada 100 stig og Frakkland,
Þýskaland og Grikkland milli
90-98 stig. ísland fékk 74 stig. Á
þeim lista vora' þijú Norðurland-
anna, Noregur, Svíþjóð og Finn-
fslendinga-
slóöir í Höin á
lýðveldisárinu
r Hversu heitt er hjá þeim?
Borg °C
- Abidjan 31
- Amman 28
Z Aþena 25
- Bagdad 36
- Bahrein 33
' Beirút 26
. Boston 19
- Dar es Salaam 30
BuenosAires 18
! Dublin 15
- Edinborg 14
■ Fíladelfía 23
j Jeddah 35
- Hong Kong 28
■ Kaíró 33
j Kúveitborg 34
§ £ ! 1 - Lima 21
- Manila 34
5 I Nikosía 29
3; ■§ . Oklahoma 26
.1 | ■ Sanaa 28
ll j Seoul 23
l Singapore 31
Teheran 29
IN TRAVEL Scandinavia mun
standa fyrir gönguferðum á fs-
lendingaslóðir í Kaupmanna-
höfn í sumar. í frétt frá ITS
segir að lögð verði áhersla á
þætti sjálfstæðisbaráttunnar,
sem eigi sögulegar rætur og
minnismerki í Kaupmannahöfn,
í tilefni lýðveldisársins.
Gengið verður um miðborg
Hafnar og endað með því að skoða
minningarsafn Jóns Sigurðssonar
í Jónshúsi. Gönguferðir á íslend-
ingaslóðir nú era nokkuð frá-
bragðnar gönguleiðum síðasta .
sumars. Þær hefjast alla sunnu-
daga kl. 11 f.h. við tröppur Ráð-
hússins á Ráðhústorginu frá og
með 15. maí og til og með 4. sept-
ember. ■
FERÐAMENN í Hollandi geta
fengið milli 15-50% afslátt af
hótelgistingu ef borgað er með
Visa greiðslukorti.
Meðal hótela sem veita afslátt
er Hótel Okura sem er 5 stjörnu
hótel og gefur 50 % afslátt um
helgar. Þá gefur Mariott 25% af-
slátt á öllum dögum vikunnar og
Intercontinental í Haag býður milli
20-35% afslátt af gistingu. Þessi
tilboð gilda þar til í febrúar 1995.
t-