Morgunblaðið - 06.05.1994, Síða 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994
Grænlandskynning
á uppstigningardag
Á VEGUM Ferðamálaráðs Vestnorðurlandanna þriggja, íslands,
Grænlands og Færeyja, verður Grænlandskynning í Norræna húsinu
á uppstigningardag, 12. maí. Þar verða einnig kynntir ferðamöguleik-
ar á Grænlandi og sýndir bæklingar þaðan.
Grænlenskur kór sem kemur til
landsins af þessu tilefni syngur
nokkur lög, efnt er til ferðahapp-
drættis og sýning verður á sel-
skinnspelsum og minjagripum frá
Grænlandi.
Fyrirlesarar verða Guðmundur
Olafsson fornleifafræðingur, sem
segir frá nýjum fornleifarannsókn-
um í Vestribyggð, Ingvi Þorsteins-
son náttúrufræðingur segir frá
ferðum um Suður-Grænland í máli
og myndum, Ólafur Örn Haraldsson
landfræðingur segir frá skíðaleið-
angri yfir Grænlandsjökul og sýnir
einnig myndir. Þá segir Ingimundur
Stefánsson kvikmyndagerðarmaður
frá fjallaleiðangri á Stáningsstölp-
um og Ari Trausti Guðmundsson
jarðeðlisfræðingur talar um Angm-
assaliksvæðið. Einnig er vert að
geta að Bente Endresen og Peter
Rasmusen kynningarfulltrúar
munu segja frá uppbyggingu ferða-
mála á Grænlandi. ■
Enn verðlaun lil Emirates
ENN fær flugfélag Dubai, Emirates, viðurkenningu. Nú frá Ferða-
málaráði Singapore. Þetta er í fyrsta skipti sem ferðamálaráðið
verðlaunar erlent flugfélag sem flýgur til Singapore. Viðurkenning-
in er veitt fyrir mikið og gott kynningarstarf Emirates á Singapore
sem kjörnum ferðamannastað.
Verðlaunum og viðurkenningum
hefur rignt yfir Emirates sl. ár og
þetta er 54. viðurkenningn sem
það fær og 13. á þessu ári. Við-
urkenning ferðamálaráðs Sin-
gapore sem hefur verið veitt
árlega síðustu 9 ár þykir ein-
hver sú eftirsóknar-
verðasta í Austurlönd-,
um fjær að sögn blaðs-
ins Travel-Asia Pacific
Óhætt er að segja að sjaldgæft
sé að flugfélag afli sér jafn mikils
orðstírs og Emirates hefur tek-
jst á örfáum árum. Þessa daga
er að ljúka mikilli ferðakaup-
stefnu í Dubai og Emirates
bauð sérstaklega ódýr far-
gjöld sem varð til þess að
meirihluti flaug með
því.
„fslandsferð fjöl-
skyldunnar komin öt
FERÐABLAÐI hefur borist ritið
„Islandsferð fjölskyldunnar" sem
er eins og titill gefur til kynna
upplýsingablað um það sem er í
boði nánast út um allt land í sum-
ar í tengslum við átakið „ísland
— sækjum það heim“. Ritinu er
dreift í 100 þúsund eintökum og
verður sent inn á öll heimili í
landinu. Að útgáfu standa sam-
gönguráðuneyti, Esso og MS.
Halldór Blöndal ráðherra skrifar
ávarp.
Þarna er meðal annars fróðleikur
um iandið, náttúru, mannlíf og
menningu svo og upplýsingar um
alls konar viðburði og afþreyingu
vítt og breitt um landið. Einnig er
dagskrá þjóðhátíðarinnar á Þing-
völlum 17. júní svo og listahátíðar
í Reykjavík.
Á forsíðu er happdrættisnúmer
og daglega frá júní og fram í sept-
ember verða dregnir út vinningar í
beinni útsendingu í útvarpi og sjón-
varpi og verður vinningaskrá birt
daglega í blöðum. Úrval glæsilegra
vinninga er í boði, bækur, búnaður
til ferðalagi, ferðavinningar o.m.fl.
Svo farið sé nokkrum orðum um
efni eru pistlar um verksvið upplýs-
Hvað búa margir
i borgum?
Land %
Sviss 60
Malasía 44
Maldiveseyjar 26
Laos - 20
Macau 100
Papúa Nýja Gínea 17
Saudi-Arabía 78
Nígería 37
Nepal 12
Frakkland 74
Ítalía 69
Bretland 89
Bhutan 6
ingamiðstöðva ferðamála, fjölskyld-
una á ferð, ljósmyndun á íslandi,
veiðiferð fjölskyldunngar, um golf,
jöklaferðir á íslandi og síðast en
ekki síst er að geta ítarlegs og að-
gengilegs lista um dagskrá og
dægradvöl víðs vegar um landið í
allt sumar.
Framkvæmdastjóri „íslandsferð-
ar §ölskyldunnar“ er Tómas Guð-
mundsson. ■
Fjfirar Jænda-
ferðif akveónar
Á VEGUM Stéttarsambands
bænda verður efnt til nokkurra
ferða í sumar og haust. Farnar
verða tvær ferðir til Þrándheims
með leiguflugi og hafa 40 sæti
verið tekin frá fyrir „bændaferð-
ir“. Fyrri ferðin er 26. júní - 11.
júlí en hin er frá 26. júlí - 1.
ágúst. Þá verða tvær ferðir í
haust, 26. október - 1. nóvember
til Vínar og Búdapest og seinni
ferðin er til Þýskalands og farið
6. nóvember og stendur í viku.
I fyrri Norðurlandaferðinni er
farið um Noreg og Svíþjóð og gist
fjórar nætur í bændaskólum en
annars á hótelum eða í orlofshúsum.
Seinni ferðin er einkum farin til að
horfa á uppfærslu á leiksýningu
sem er um Stiklastaðabardaga þar
sem lið Ólafs helga barðist við
bændur. Þessi sýning er flutt árlega
á Stiklastöðum. ■
helgina
ÚTIVIST
FYRSTA lágfjallaganga Úti-
vistar er 8; maí og gengið á
Helgafell. I ár eru syrpurnar
tvær, háfjallasyrpa og lág-
fjallasyrpa, og er sú síðar-
talda einkum ætluð þeim sem
hafa áhuga á fjallgöngum en
vilja byrja rólega.
Fjöllin í lágfjallasyrpunni eru
Helgafell, Grænadyngja,
Stóri-Bolli, Jórutindur, Sand-
fell við Hagavík, Þyrill,
Vörðufell, Keilir, Hrómund-
artindur og Hrafnabjörg.
Þessi fjöll eru tiltölulega auð-
veld uppgöngu og ágætt tæki-
færi fyrir þá sem ekki eru van-
ir fjallgöngum að leggja nú af
stað.
Lágfjallgöngur verða annan
hvern sunnudag í sumar. Lagt
er af stað frá Umferðarmið-
stöðinni kl. 10.30 og hægt er
að koma í ferðina við biðskýlið
á Kópavogshálsi, Ásgarði í
Garðabæ og við Sjóminjasafnið
í Hafnarfirði.
Fí
Á sunnudag verða þijár
dagsferðir Ferðafélagsins. Sú
fyrsta er Skógfellavegur sem
er gömul þjóðleið milli Vatns-
leysustrandar og Grindavíkur.
Leiðin liggur frá Vogum,
skammt austan Snorrastaða-
tjarna, Litla Skógfells og Stóra
Skógfells, Sundhnúka og niður
í Járngerðarstaðahverfi í
Grindavík.
Á sama tíma er einnig ferð í
Eldvörp en skammt frá þeim
í Sundvörðuhrauni eru rústir
af byrgjum sem er ekki vitað
um aldur á né til hvers þessir
kofar voru notaðir. Getgátur
eru um að útilegumenn hafi
hafst þarna við en þykir fremur
ólíklegt, en ýmsir telja að menn
hafi hugsað sér þarna skjól ef
Tyrkir gerðu aftur strandhögg.
Þá er einnig skíðaganga á
Hellisheiði.
Fimmtudag 12. maí kl. 13
er 4. áfangi í Lýðveldis-
göngunni og gengið frá Lækj-
arbotnum að Sandskeiði.
Laugard. 14. maí er hin ár-
lega fuglaskoðunarferð um
Suðurnes í samvinnu við Nátt-
úrufræðifélag íslands. Brottför
er kl. 10. ■
I gegnum brju gðng
ng yfir f jögur sund
FÆREYJAR samanstanda af nítján eyjum og eru sextán þeirra í
byggð. Allar liggja nálægt hver annarri fyrir utan Suðurey, sem
er syðsta eyjan. Til að komast sem fljótast og best milli staða
hafa Færeyingar komið sér upp samgöngukerfi, sem er einstakt
í sinni röð. Kostnaðurinn við það að koma þessu kerfi upp hefur
tekið sinn toll því hann var ein af meginástæðum þess að kreppa
ríkir nú á eyjunum.
Samt sem áður halda þeir sam-
göngum gangandi enn sem komið
er og getur maður komist hvert
sem er á eyjunum nær hvenær sem
er á stuttum tíma. Kerfið saman-
stendur af a.m.k. fjórtán göngum,
sem eru sum rúmlega þriggja kíló-
metra löng, um 20 ferjuleiðum,
sem geta margar tekið bíla og
ótal rútum, sem keyra á milli feija
eða áfangastaða. Áfangastaðir
eru svo tengdir saman með vegum,
sem eru flestir malbikaðir. Yfir
vetrartímann er notaður fjöldinn
allur af snjóruðningstækjum við
að halda samgöngum opnum. í
Færeyjum er aðeins ein brú á
milli eyja.
Rétt áður en kreppan skall á
hófust framkvæmdir við göng,
sem hefðu tengt saman Straumey
og Voga. Göngin hefðu orðið svip-
uð að stærð og gerð og fyrirhuguð
Hvalfjarðargöng, en aðeins tókst
að gera innganginn að þeim áður
en kreppan skall á.
Til þess að gera betur grein
fyrir samgöngukerfi Færeyja,
skulum við fara í smá ferðalag.
Við hefjum för okkar í bænum
Akrabergi, sem er syðsti bær á
Suðurey, syðstu eyjunni. För okk-
ar er heitið til Fuglaeyjar, sem er
nyrsta eyjan. Við byijum á að
taka rútuna til feijubæjarins Drel-
nes. Þaðan fer feijan til Þórshafn-
ar. í Þórshöfn tökum við aðra feiju
til Toftar á Austurey, keyrum
þaðan í gegnum ein göng til Leir-
víkur. Frá Leirvík tökum við feij-
una til Klaksvíkur, ökum þaðan í
gegnum tvö göng til bæjarins
Nordepils þar sem við tökum enn
eina feijuna til Svínaeyjar og það-
an með feijunni komum við svo
til Fuglaeyjar. Þegar þeim áfanga
er náð getum við svo valið um
ferju eða rútu til annars af tveim
bæjum eyjarinnar því hvort
tveggja er hægt.
A ferðalaginu höfum við þar
með keyrt í gegnum þijú göng,
siglt yfir fjögur sund og notað
þijár rútur. Eitt furðufyrirbæri
hefur þetta kerfi þó getið af sér.
Það er að finna á Kalsey, sem er
Hó fjöll og
heiöorreyn-
asf torfær
yfir vetrar-
tímann.
löng og mjó og þekja fjöll mestan
hluta hennar. Þar eru fjórir bæir,
sem standa eftir henni endilangri.
Til að greiða fyrir samgöngum á
Kalsey hafa verið boruð þijú göng
í gegnum nær alla eyjuna, sem
er um 15 km löng. En svo þegar
vindar gnauða í gegnum göngin
þá tónar eyjan og er hún því án
efa „heimsins stærsta blokk-
flauta". ■
Valgnrður Bragason
Höfundur er nemi