Morgunblaðið - 22.05.1994, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.05.1994, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MAl 1994 B 5 „Aldrei skemmtilegt í handknattleik“ p egar Gunnar Gunnarsson og Þorbjörn Jensson komu til Svíþjóð- ar 1986 til að leika með Malmö IFK, var haldinn blaðamannafund- ur. Gunnar segir svo frá: „Það þótti mikill fengur fyrir félagið að fá Þorbjörn sem leikmann — fyrir- liða íslenska landsliðsins í heims- meistarakeppninni í Sviss, sem hafnaði í sjötta sæti. Ég kom þá frá Danmörku, þar sem ég lék með Ribe. Ég kunnu þokkalega dönsku og vissi að það voru nokkur orð í dönsku og sænsku, sem voru eins, en höfðu gjörólíka meiningu. Þar á meðal er orðið „roligt“ — í Dan- mörku er það að vera rójegur, en í Svíþjóð skemmtilegt. Á blaða- mannafundinum spurðu blaða- mennirnir Tobba, en hann var eins og ég þokkalegur í dönsku. Einn blaðamaðurinn spyr á sænsku, hvernig standi á því að 32 ára maður, sem væri búinn að upplifa svo margt í handknattleiknum, nenni að standa í því að koma til Svíþjóðar og leika með fyrstudeild- arliði — hvort að honum finnist ennþá „roligt“ (skemmtilegt) að leika handknattleik. Tobbi tók það þannig, að hann væri að spyija hvort hann væri kominn til Svíþjóð- ar til að taka það rólega í hand- knattleik. Það voru þarna margir blaðamenn og aðstandendur fé- lagsins — og þeir ráku upp stór augu, þegar Þorbjörn sagði að það væri aldrei „roligt" (skemmtilegt) að leika handknattleik. Menn litu á Þorbjörn með furðulegum svip og þótti einkennilegt að Þorbjörn sem hafði leikið handknattleik í ijölda ára, hefði aldrei haft neina skemmtun af því.“ „Það sýndi sig vel hvernig Þor- björn hugsaði um framtíðina, þegar Bogdan lagði hvað mesta áherslu á að hann yrði með á Olympíuleikunum í Seoul. Þá var viðkvæði Þorbjörns: „Nei, nú hætti ég vegna þess að það er leikmaður frá mér, sem kemst inn.“ Leikmaðurinn er Geir Sveins- son, fyrirliði landsliðsins í dag. Þor- björn sagðist ekki ætla að taka þann tíma frá Geir sem hann þyrfti til að þroskast sem leikmaður," sagði Jó- hann. Gunnar segir að Þorbjörn Jensson hafi sýnt og sannað sem þjálfari Malmö IFK og Vals, að hann sé mjög hæfur þjálfari. „Það voru marg- ir með efasemdir þegar hann tók fyrstu skrefin sem þjálfari og sögðu að hann hefði ekkert í þjálfun að gera. Þorbjörn kom Malmö IFK upp í úrvalsdeildina og hefur fært Val þijá íslandsmeistaratitla, tvo bikar- meistaratitla og einn deildarmeist- aratitil á undanförnum árum. Ég spyr: Er hægt að krefjast meira af þjálfara?" „Er glaðastur þegar leikmenn hans koma honum á óvart“ „Þorbjörn hefur alltaf sagt að það eigi ekki að hefta frjálst hugmynda- flug leikmannsins og hann er manna glaðastur ef leikmennirnir koma jafnvel honum á óvart með skemmti- leguin tilþrifum," segir Jóhann. „Þor- björn er þó fljótur að grípa inn í ef honum finnst að leikmaðurinn sé kominn á villigötur. Valdið er hans, og þegar Þorbjörn tekur leikmann í gegn, finna menn strax að það er ekki til neins annars en bæta þann sem hann er að æsa sig við,“ sagði Jóhann Birgisson, liðsstjóri Vals. Læknastöóin hf., Alf heimum 74. Guðmundur Ásgeirsson, bnrnnlæknir verður ífríi frá 4. til 28. júní. Baldvin iónsson, barnalæknir mun leysa hann af. Upplýsingar og tímapantanir í síma 686311. Lausir tímar í maí og júní Litgreining eitt kvöld. Fatastíls- og framkomunámskeið tvö kvöld. Fyrirlestrar fyrir vinnustaði og félagasamtök. Tímapantanir teknar í ___ síma 623160, HIIIWt JO\SSO\ milli kl. 16 og 18, mánud.- fimmtud. Snyrti- og tískuhús/Image Design Studio Vesturgötu 19, 101 Reykjavík, tel: 623160 Att þú verðmæta muni? Við silfurhúðum gamla muni, könnur, borðbúnað, kertastjaka o.fl. 25 ára reynsla, vönduð vinna. Framnesvegi 5 - sími 19775 Opið alla virka daga frá kl. 16.00-18.00. r T I 1 00 r iropi D E 1 L D HLIÐARENDI 1. UMFERÐ VALUR-ÍBK mánudagskvöldið 23. maí kl. 20.00. ALLIR Á VÖLLINN • ÁFRAM VALUR! _ __ B R /E Ð U R N I R _ __ __ AEG DfyoRMSSONHF AEG Lágmúla 8. Siml 38820 nrpml STOFNAf) 191 Sjabu hlutina í víbara samhengi! - kjarni málsins! hc z N—! < V——\ J i—Jbí r v c/3 CJttí ZjS uJd h8 08 133 rekstrarnám f Sviss □ 2ja ára háskólanám sem lýkur með próf- skírteini. Háskólagráða (Sviss/Bandaríkin). (1 ár í Sviss/ 1 ár í Bandaríkjunum). □ Svissnesk/bandarísk háskólagráða (7-8 annir). □ Framhaldsnám sem lýkur með prófskír- teini (1 ár). Öll kennsla fer fram á ensku. HOTEL CONSULT SHCC COLLEGES, CH-1897 Le Bouveret, Sviss. Sími (+41) 25 81 38 62 eða 81 30 51. Fax. (+41) 25 81 36 50. Glæsiiegasta úrval matarstella á landinu Kristalsglös, hnífapör, gjafavörur. Brúðhjónalistar og gjafakort. þegar þu gefur gjöf Laugavegi 52, sími 91-624244 Kastiö nú endanlega afykkur vetrarhaminum og fagnið sumri með tveggja vikna kröftugri danssveiflu! WORKSHOP" 28. maí-11. júní Gestakennari Clé Douglas HÚ5I& Bókaðu pláss í síma 15103

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.